Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2009, Síða 12
miðvikudagur 22. apríl 200912 Fréttir
Tvíburar leika
á kerfið
Eineggja tvíburar í svissneska
bænum Winterthur hafa til
margra ára haft stöðumælaverði
að háði og spotti. Tvíburarnir
deila bifreið og í hvert skipti sem
þeir fá stöðumælasekt heldur
hvor þeirra fyrir sig því fram að
hinn hafi verið á bílnum.
Ekki er hægt að sekta bræð-
urna, Harold og Michael Leng-
en, sameiginlega og því hvílir á
herðum yfirvalda að sanna hvor
var undir stýri í hverju tilfelli
fyrir sig.
Stöðumælavörðum er ekki
heimilt að krefjast persónuskil-
ríkja ef þeir hitta ökumann við
bifreið hans þegar brot á sér
stað og ljósmynd gerir lítið gagn
því tvíburarnir eru nákvæmlega
eins.
Síðastliðið ár fengu bræðurn-
ir 29 stöðumælasektir sem ekki
hafa verið greiddar.
Sækja kirkju
á netinu
Ef Norðmenn þurfa sáluhjálp-
ar við er presturinn aðeins í
músarsmells fjarlægð. Netkirkj-
an, Nettkirken, vaknaði til lífs-
ins fyrir um tíu árum og nýjasti
samstarfsaðili hennar er norska
þjóðkirkjan. Af hennar hálfu
eru þrír klerkar reiðubúnir til
að taka á móti gestum á netinu,
hvort heldur sem er í Noregi eða
utan landsins.
Gestir geta hlýtt á sálma, les-
ið í Biblíunni og leitað ráðgjafar
hjá prestunum. Prestarnir eru
bundnir þagnareiði og bjóða
einnig gestum að senda rafræn-
an póst þar sem þeir geta reifað
hugsanir sínar um trúna, eða
efasemdir gagnvart henni, og
allt milli himins og jarðar.
Hungurverkfall
vegna krikket-
móts
Líf á bak við lás og slá er ekki
sældarlíf. Á Indlandi fóru um
fimm hundruð fangar í hung-
urverkfall því þeim hafði verið
neitað um að horfa á krikket-
mót í kapalsjónvarpi.
Um er að ræða fanga í borg-
inni Kalkútta, en að sögn B. D.
Sharma, háttsetts lögreglufor-
ingja, er ekki mögulegt að heim-
ila kapalsjónvarp innan veggja
fangelsisins og því verða fang-
arnir að láta sér nægja ríkisfjöl-
miðla, auk bóka og tímarita.
Ekki er að undra að fangarnir
séu óánægðir með hlutskipti sitt
því um er að ræða eitt stærsta
krikket-mót á Indlandi.
Einföld leit á netinu hafði ánægjulegar afleiðingar:
Fann „dána“ dóttur sína eftir 27 ár
Karlmann einn í Seattle í Bandaríkj-
unum rak í rogastans eftir að hann sló
upp eigin nafni á leitarvél á netinu.
Dirk Pratt hafði nýlega séð kvikmynd-
ina Wanted með Angelinu Jolie í aðal-
hlutverki og datt í hug að slá nafn sitt
inn í leitarvélina í von um að fá frekari
upplýsingar um afdrif dóttur sinnar.
Fyrir tuttugu og sjö árum fékk hann
tilkynningu um að dóttir hans hefði
dáið.
Það var tengdamóðir Dirks sem til-
kynnti honum, fyrir 27 árum, að dóttir
hans, Francesca, væri dáin. Hún hafði
að sögn ömmunnar dáið í Ekvador
vegna skordýrabits, en þar hafði hún
verið ásamt móður sinni og ömmu og
snéri móðirin aldrei heim frá Ekvador.
Eftir margra ára sorg, óteljandi tár og
baráttu til að fá frekari upplýsingar frá
stjórnvöldum í Ekvador var Dirk Pratt
litlu nær um smáatriði í dauða dótt-
ur sinnar. En leit á netinu hafði meiri
áhrif en öll hans viðleitni þá tæpu tvo
áratugi sem liðið höfðu frá því að hin
válegu tíðindi bárust honum.
Ein af þeim niðurstöðum sem leit
hans skilaði var á spjallrás og hafði
verið lögð inn árið 2007: „Þessi skila-
boð eru til Dirks Pratt. Ég er að reyna
að komast í samband við hann. Ég er
dóttir hans.“
Eðli málsins samkvæmt var Dirk
tortrygginn vegna skilaboðanna: „Mín
fyrsta hugsun var: Er þetta Francesca
eða sjúklegur brandari?“
En þetta var ekki brandari og
að baki skilaboðunum stóð dóttir
hans, nú þrítug. Eftir að hafa spjall-
að á netinu og talað saman í gegnum
síma sameinuðust feðginin að nýju,
en Francesca bjó að fleiri óvænt-
um uppákomum því hún var einnig
með barni þannig að Dirk Pratt hefur
ekki aðeins fengið dóttur sína til baka
heldur verður hann einnig afi innan
tíðar. Ekki fylgdi fréttinni hvernig hög-
um Francescu hafði verið háttað eða
hvað hafði valdið misskilningnum
tuttugu og sjö árum áður.
Faðir og dóttir dirk pratt hélt
dóttur sína, Francescu, dána í 27 ár.
Einstaklingar sem gera sjálfsvígsárásir eru sífellt yngri. Írakskar öryggissveitir hafa
handtekið fjóra einstaklinga sem vart eru af barnsaldri en eru hluti samtaka sem
kallast „Paradísarfuglar“. Börnin hafa hlotið þjálfun hjá samtökunum al-Kaída.
PARADÍSARFUGLAR
Í SjáLFSmoRðSáRáS
Að sögn herforingja í írakska hernum
hafa írakskar öryggissveitir hand-
tekið fjögur börn sem talin eru hafa
verið hluti hóps barna sem hryðju-
verkasamtökin al-Kaída þjálfuðu til
sjálfsvígshryðjuverka.
Börnin sem voru handtekin í
þorpi skammt frá Kirkuk í norður-
hluta Íraks voru meðlimir hóps sem
þekktur er undir nafninu „Paradís-
arfuglar“ og voru sérstaklega þjálfuð
með það fyrir augum að vekja ekki
athygli þegar þau fremdu árásir sín-
ar.
„Sérsveitir hafa handtekið sam-
tök barna, samtals fjóra einstaklinga
undir fjórtán ára aldri sem kalla sig
Paradísarfugla,“ sagði Abdelamir al-
Zaidi, herforingi og yfirmaður hers
Íraks í Kirkuk. Haft var eftir al-Zai-
di að samtökin að baki börnunum
reiddu sig á börn og væru tengd al-
Kaída-samtökunum. Sagði al-Zaidi
að samtökin lokkuðu til sín börn til
að standa að sjálfsvígsárásum og til
að aðstoða hryðjuverkahópa við að
sprengja vegasprengjur.
Ekki einsdæmi
Hópar innan samtaka al-Kaída hafa
áður beitt fyrir sig börnum til að gera
árásir á öryggissveitir Bandaríkja-
manna og Íraka. Meðal annars, í einu
tilfelli, til að koma bílasprengju fram-
hjá eftirlitsstöð í Bagdad og sprengja
síðan í loft upp með barninu inni í
bifreiðinni.
Uppreisnarmenn hafa einnig ver-
ið sakaðir um að nota andlega fatl-
aðar konur til sjálfsvígsárása. Aðrir
hópar hafa notað börn til að skjóta af
handsprengjuvörpum og til að koma
fyrir vegasprengjum í þeirri fullvissu
að minni líkur væru á að hermenn
skytu að börnunum en fullorðnu
fólki.
Nafnið á hóp barnanna virðist
dregið af þeirri trú innan íslam að
þegar börn safnast til feðra sinna
verði þau paradísarfuglar.
Örvænting innan al-Kaída?
Kúrdar hafa gert tilkall til borgarinn-
ar Kirkuk og halda því fram að hún sé
hluti af hálfgildingssjálfstjórnarsvæði
þeirra. Borgin liggur á milli Baqouba,
í suðri, og Mosul, í norðvestri, tveggja
svæða þar sem samtök al-Kaída hafa
enn veruleg áhrif.
Mikillar spennu gætir í borginni
á milli Kúrda, araba og Túrkmena
og ekki talið loku fyrir það skotið að
þjóðernisdeilur þar geti breyst í ný
átök.
Írakskar öryggissveitir handtóku
fleira fólk í aðgerðum sínum. Foringi
í hernum sagði að notkun al-Kaída á
börnum væri til vitnis um aukna ör-
væntingu í röðum samtakanna sam-
fara auknum styrk og getu öryggis-
sveitanna.
„Þetta er nú aðferð og þetta er
aðferð þess sem er að tapa tríðinu,“
sagði foringinn, sem ekki er nafn-
greindur. „Innviðir þeirra eru eyði-
lagðir og leiðtogar þeirra eru hand-
teknir eða þeim banað.“ Að sögn
foringjans er tilgangur samtakanna
að láta vita af tilvist sinni, en að þau
„yrðu að beita öllum meðulum til að
framkvæma hryðjuverk“ sín.
Yngsta fórnarlambið
Í nóvember á síðasta ári varð þrettán
ára stúlka yngsti einstaklingurinn til
að gera sjálfsvígsárás í Írak þegar
hún sprengdi sig í loft upp við eftir-
litsstöð í bænum Baquba með þeim
afleiðingum að fjórir aðrir létust.
Eftirlitsstöðin var mönnuð
súnní-múslímum sem hafa verið
í fararbroddi í baráttunni gegn al-
Kaída.
Í ágúst 2008 gaf þrettán ára
stúlka sig fram við íröksku lögregl-
una í Baquba því henni hugnað-
ist ekki að verða píslarvottur fyrir
tilstilli sjálfsvígsárásar. Lögreglan
fjarlægði af líkama stúlkunnar vesti
hlaðið sprengiefni, og síðan vísaði
hún lögreglunni á annað líkt sem
var tilbúið til notkunar.
Á þeim tíma virtist sem ráða-
menn innan al-Kaída hefðu tekið
ástfóstri við konur til sjálfsvígsár-
ása, enda ólíklegra að leitað yrði á
þeim við eftirlitsstöðvar og vegna
þess að þær klæddust gjarna síð-
um kuflum sem hentugir eru til að
fela sprengiefni. Engu að síður kom
ungur aldur stúlkunnar sem gaf sig
fram við lögregluna í Baquba yfir-
völdum í opna skjöldu.
Sjálfsvígsárásir hafa löngum ver-
ið einkenni hryðjuverka al-Kaída-
samtakanna en hvort örvænting
veldur því að sjálfsvígssprengjufólk
verður æ yngra eða eitthvað annað
liggi þar að baki skal ósagt látið.
Nafnið á hóp barnanna
virðist dregið af þeirri trú
innan íslam að þegar börn
safnast til feðra sinna
verði þau paradísarfuglar.
KolbEinn þorstEinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
þrettán ára stúlka gaf sig fram
við lögreglu lögreglan losar stúlk-
una við sprengiefni, henni hugnaðist
ekki píslarvættisdauðdagi.
tilbúin í sína hinstu för al-kaída
þjálfaði konur til sjálfsvígsárása.
baquba í Írak
vettvangur
sprengjuárásar á
mánudaginn.