Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Síða 8
8 Þriðjudagur 21. júlí 2009 fréttir
Eignarhaldsfélagið Samson, sem
síðar keypti 45,8 prósenta hlut í
Landsbankanum af íslenska ríkinu í
árslok 2002, leitaði eftir lánveitingu
upp á 64 milljónir dollara á haust-
mánuðum 2002 til að fjármagna
kaup sín á 33 prósenta hlut í bank-
anum. Þetta kemur fram í bréfi frá
fjármálafyrirtækinu Dawnay, Day
Corporate Finance Limited, sem
dagsett er 21. október árið 2002 sem
er að finna í gögnum einkavæðing-
arnefndar um söluna á Landsbank-
anum.
Í bréfinu, sem stílað er á Björgólf
Thor Björgólfsson, einn af þrem-
ur eigendum Samsonar, og sam-
starfsmann hans Andra Sveinsson,
kemur fram að Samson hafi haft
samband við Dawnay til að vera
milligönguaðili um lánveitinguna
til að fjármagna kaupin á þriðj-
ungshlutnum í Landsbankanum. Í
bréfinu kemur fram að Samson hafi
einnig verið að leita hófanna um
lán hjá nokkrum erlendum bönk-
um, meðal annars UBS Warburg
og Deutsche Bank en einnig hjá ís-
lenskum fjármálafyrirtækjum.
Kveðið á um 34,5 eiginfjár-
hlutfall hið minnsta
Heildarkaupverðið fyrir 33 prósenta
hlutinn í Landsbankanum var rúm-
ar 96 milljónir dollara og átti að
greiðast í tveimur hlutum: innan
fjögurra daga frá undirritun kaup-
samningsins 31. desember 2002 og
fyrir 31. apríl árið 2003. Í ljósi ný-
legra frétta af útistandandi skuld
Samsonar við Kaupþing upp á tæpa
sex milljarða króna vegna 3,4 millj-
arða króna lánveitingar sem félag-
inu var veitt í apríl 2003 til að greiða
ríkinu fyrir hlutinn í Landsbankan-
um er vitað að það lán var að öll-
um líkindum notað til að fjármagna
seinni hluta kaupverðsins á 33 pró-
senta hlutnum sem var á gjalddaga
í lok þess mánaðar. Ekkert í gögn-
um einkavæðingarnefndar bendir
hins vegar til þess að Samson hafi
verið búið að tryggja sér lánið þeg-
ar bankinn var keyptur og er líklegt
að Búnaðarbankalánið hafi verið
þrautalending.
Greiðsluna fyrir 12,5 prósenta
hlutinn átti svo að reiða af hendi í
lok árs 2003, samtals rúmlega 42,5
milljónir dollara. Í heildina var
greiðslan til ríkisins vegna kaup-
anna því rúmlega 139 milljónir
dollara, eða sem nam rúmum 11,2
milljörðum króna á þeim tíma.
Heildarlánveitingin sem Samson
leitaði eftir til að kaupa bankann
nam því rúmlega 46 prósentum af
heildarkaupverði bankans.
Leitað til 23 banka
Í gögnum einkavæðingarnefnd-
ar um söluna á Landsbankanum
kemur ekki fram hvort Samson náði
að tryggja sér lánveitinguna þannig
að ekki er hægt að fullyrða hvort
hún hafi verið veitt eða ekki. Bréfið
sem sent var til Björgólfs Thors og
Andra frá Dawnday var hins vegar
sent þremur dögum eftir að einka-
væðingarnefnd skrifaði undir sam-
komulag um að selja Samson 45,8
prósenta hlut í Landsbankanum og
því er vísað til samtals sem starfs-
menn fjármálafyrirtækisins áttu við
Björgólf þann sama dag og bréfið
var skrifað.
Tíu dögum eftir að bréfið var
skrifað sendi Andri Sveinsson
starfsmanni breska fjárfestinga-
bankans HSBC, Anders Alfred-
son, bréf þar sem hann greindi frá
því að Samson hefði, í samráði við
Dawnday, leitað til 23 banka eftir
lánveitingu til að kaupa bankann.
HSBC hafði verið ráðið til að veita
einkavæðingarnefnd ráðgjöf við
söluna. Í bréfi Andra kemur fram að
þrír bankar hafi neitað því að lána
Samson, sex hafi lýst yfir áhuga á að
lána því og að hin fjármálafyrirtæk-
in væru að meta stöðuna. Í bréfinu
segir Andri að Samson hefði á þeim
tímapunkti verið að stíla inn á 33,3
prósenta eiginfjárframlag vegna
kaupanna og 66,7 prósent með
lánsfé. Lánsfjárhæðin, sem rætt var
um í bréfinu til Dawnday, var hins
vegar rúm 46 prósent af endanlegu
kaupverði, eins og áður segir.
Tæpum mánuði eftir að bréf-
ið var sent frá Dawnday barst
íslenska Fjármálaeftirlitinu
bréf frá fjárfestingabankan-
um Merryll Lynch þar sem
fram kom staðfesting á
því að á reikningum Sam-
sonar í bankanum væri
að finna þær 32 milljónir
dollara sem nota ætti sem
eiginfjárframlag til að kaupa
hluta bankans. Skýringarnar
sem alltaf hafa verið gefnar á til-
vist eiginfjárframlags Samsonar
eru sala þeirra Björgólfsfeðga
og Magnúsar Þorsteinssonar
á Bravo-bjórverksmiðjunni í
Rússlandi fyrir 400 milljónir
dollara fyrr á árinu 2002 og
í gögnum einkavæðingar-
nefndar er oftsinnis vísað til
þessarar sölu og gróða þre-
menninganna vegna henn-
ar. Eiginfjárfamlögin sem
Samson átti að leggja fram voru
því talin tilkomin vegna sölunnar
á Bravo. Þremenningarnir áttu því
að eiga miklu meira en nægjanlegt
fé til kaupanna og því vakna spurn-
ingar um hvers vegna sóst var eftir
svo háum lánveitingum frá erlend-
um aðilum til að fjármagna kaupin.
Lán til að fjármagna
eiginfjárframlag
Í endanlega kaupsamningum við
Samson er tekið fram að miðað við
forsendur kaupsamningsins skuli
eigið fé í kaupunum ekki fara nið-
ur fyrir 34,5 prósent. Í ársreikningi
Samsonar fyrir árið 2003 eru skuldir
Samsonar vegna kaupanna skráðar
rúmlega 6,5 milljarðar króna. Rúm-
ur helmingur þeirrar fjárhæðar er
skuldin við Búnaðarbankann, síð-
ar Kaupþing, og tæpur helmingur
er skuld við eigendur
Samsonar, þá
Björgólfs-
feðga og
Magnús
Þorsteins-
son, sem
lánuðu fé-
laginu af sín-
um eigin pen-
ingum til
að kaupa bankann. Eftirstöðvarn-
ar af kaupverðinu voru svo eigin-
fjárframlag Samsonar og var fé-
lagið búið að greiða skuld sína við
ríkissjóð í árslok það ár, samkvæmt
kaupsamningnum.
Skýringar hafa ekki fengist frá
Samson um af hverju félagið leitaði
eftir þessari 64 milljóna dollara lán-
veitingu frá fjármálafyrirtækjum til
að fjármagna kaupin á bankanum.
Ein af af skýringunum kann hins
vegar að vera sú að félagið hafi leit-
að eftir þessari lánveitingu en ekki
fengið hana og því hafi verið afráðið
að eigendur Samsonar lánuðu fé-
laginu fyrir hluta kaupverðsins og
leitað yrði til Búnaðarbankans eft-
ir hluta kaupverðsins. Skýringuna á
málinu kann að vera að finna í gögn-
um í þrotabúi Samsonar, sem tekið
hefur verið til gjaldþrotaskipta, en
DV hefur ekki náð að verða
sér úti um þær upplýs-
ingar. Alveg ljóst er hins
vegar út frá þessum
gögnum einkavæðing-
arnefndar að Samson
leitaði logandi ljósi að
lánsfé út um allar jarð-
ir til fjármagna kaupin
á Landsbankanum.
björgólfarnir
VilDU ErlEnT lÁn
Samson leitaði til meira en 20 banka til að fjármagna kaup á 33 prósenta hlut í Landsbankanum. Upp-
hæðin sem beðið var um var 64 milljónir dollara eða rúm 46 prósent kaupverðsins í bankanum. Samson-
armenn leituðu eftir milligöngu um lánið til erlends fjármálafyrirtækis þremur dögum eftir að ákveðið
var að selja þeim bankann. Lánið margumtalaða frá Búnaðarbankanum kann að hafa verið veitt þegar
ekki gekk að fá lánið sem um ræðir hér.
IngI F. VILhjáLmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
samsonarmenn Björgólfur Guðmundsson
og Magnús Þorsteinsson voru hluthafar
í eignarhaldsfélaginu Samson sem
leitaði logandi ljósi eftir lánveitingu til að
fjármagna Landsbankakaupin árið 2002.
Hátíðarmatseðill
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
Steikt Lúðufiðrildi með
hvítlauksristuðum
humarhölum og humarsósu
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Hunangsgljáð andabringa
„Orange” með rusty kartöflum
og ristuðu grænmeti
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
200 gr. ristaðir humarhalar
með mangó-chilli cous cous,
salat og kartöflubátar
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Glóðuð Nautalundarpiparsteik,
ristaðir humarhalar, grænmeti
og rjómalöguð piparsósa
Dessert
Hátíðardessert
Laugaás 30 ára
25. júní