Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Blaðsíða 10
10 þriðjudagur 21. júlí 2009 neytendur
Aðeins fimm pitsustaðir senda
pitsur heim fyrri part dags á höf-
uðborgarsvæðinu. Af þeim býr Hrói höttur til bestu pitsurnar,
samkvæmt bragðkönnun DV. Stærðarmæling leiddi í ljós að
þrjár pitsur af fimm reyndust minni en upp er gefið. Pitsan frá
Domino’s var 1,4 tommum minni en hún átti að vera. Þeim sem
smökkuðu bar saman um að pitsurnar væru flestar of blautar.
Pitsan frá Hróa hetti hlaut hæstu
meðaleinkunn í bragðkönnun DV.
Hún hlaut meðaleinkunnina 7 af
10 mögulegum. Rizzo pizzeria kom
næst með 6 í meðaleinkunn en pits-
an frá Castello fékk 5,9 í meðalein-
kunn. Domino’s og Wilsons pizza
fengu falleinkunn hjá dómnefnd sem
DV valdi til að meta pitsurnar.
Dómnefndina skipuðu að þessu
sinni þau Erpur Eyvindarson tón-
listarmaður, Sólveig Baldursdótt-
ir, ritstjóri Gestgjafans, Matthías
Vilhjálmsson, knattspyrnumaður
úr FH, og Þorbjörg Marinósdóttir,
blaðakona á Séð og heyrt.
Aðeins 5 senda heim
Dv hringdi í þrettan pitsustaði á höf-
uðborgarsvæðinu og bað um heims-
enda pitsu. Fjórir staðir reyndust
ekki senda pitsur heim (sumir senda
reyndar innan ákveðins svæðis),
tveir staðir gátu ekki sent pitsu fyrr en
seinnipartinn, á einum stað var ekki
svarað í síma auk þess sem einn stað-
ur var lokaður vegna breytinga. Lista
yfir þessa staði má sjá að neðan. Eftir
stóðu fimm pitsustaðir; Hrói höttur,
Domino’s, Wilsons pizza, Rizzo pizz-
eria og Castello.
Á hverjum stað var beðið um eina
stóra pitsu með skinku, sveppum og
pepperóní. Beðið var um að pitsurn-
ar myndu berast klukkan 14.00, en
símtölin fóru fram 35 til 45 mínútum
áður.
Sviknar tommur
Pitsan frá Domino’s barst 13 mínút-
um á undan því sem beðið var um.
Hún átti að vera 15 tommur en reynd-
ist við nákvæmar mælingar aðeins
13,6 tommur, eða 34,5 cm. Pitsan frá
Wilsons barst á áætlun og reyndist
rétt tæpar 16 tommur, en það verður
að teljast innan skekkjumarka. Pits-
an frá Rizzo kom á slaginu tvö, eins
og til stóð, en reyndist einni tommu
minni en hún átti að vera. Pitsan frá
Castello kom 11 mínútum of seint
en hún reyndist rúmlega 16 tomm-
ur á stærð. Loks barst pitsan frá Hróa
hetti, 20 mínútum of seint. Hún var
nákvæmlega 15 tommur, sem er eins
og upp er gefið.
Of blautar
Verð fyrir heimsenda pitsu á höf-
uðborgarsvæðinu er á bilinu 2.590
krónum (Wilsons) til 3.245 króna
(Rizzo). Verðið á heimsendri pitsu
hefur hækkað um 200 til 400 krónur
að jafnaði, frá því DV framkvæmdi
sams konar bragðkönnun í fyrra. Þá
hlaut Wilsons hæstu einkunn.
Bragðkönnunin sjálf fór þannig
fram að smakkararnir komu sér fyrir í
herbergi og vissu ekki hvaða tegund-
ir voru til smökkunar. Ein pitsa var
borin inn í einu. Að lokinni smökk-
un voru þau beðin um að gefa álit sitt
á pitsunni og loks einkunn, áður en
sú næsta var borin inn. Þetta gekk
hratt og örugglega fyrir sig. Eins og
áður sagði bar pitsan frá Hróa hetti
af. Hún hlaut 7 í meðaleinkunn en
nokkur samhljómur var hjá smökk-
urunum um gæði pitsanna.
Almennt fannst dómnefnd pits-
urnar of blautar, eins og þau kom-
ust að orði; þeim fannst of mikil olía
á þeim flestum. Þá töldu dómnefnd-
armeðlimir sig finna skrýtið bragð af
ostinum á tveimur eða þremur pits-
um.
Að könnuninni lokinni kom fram
að smakkarar urðu heilt yfir fyrir
nokkum vonbrigðum með pitsurnar,
jafnvel þó pitsan frá Hróa hetti þætti
ágæt. Meðaleinkunn allra pitsa ber
það með sér, en að jafnaði fengu pit-
surnar 5,4 í einkunn af 10 möguleg-
um.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Besta pitsan hjá hróa hetti
hrói höttur
Meðaleinkunn: 7
uppgefin stærð: 15”
Mæld stærð: 15”
Verð: 2.940 kr.
Barst 20 mínútum á eftir áætlun
n erpur „Hún lítur vel út þessi. Hún hefur það umfram hinar
er að sósan hefur meiri karakter. Það er oregano og kannski
eitthvað meira. Botninn er fínn, get ekkert kvartað yfir hon-
um.“ 8,0
n tobba: „Ostinum er illa dreift á pitsuna. Það er dálítið mik-
ið oregano, sem er ekki fyrir alla, en mér finnst það gott. Þessi
sleppur í gegn, hún er ágæt.“ 7,0
n Sólveig: „Mér finnst þessi vera best. Það er eitthvað pínu
persónulegt touch þarna. Þeir gera eitthvað við sósuna sem
hinar hafa ekki. Botninn er fínn og hún er vel bökuð.
Það er ekki þetta aukabragð sem ég hef fundið af sumum
hinum.“ 8,0
n MatthíaS: „Mér finnst pepperónó allt öðruvísi á þessari
en á hinum. Ég veit ekki hvort þetta er bara malakoff. Ef ég
panta pepperóní vil ég fá pepperóní en ekki malakoff. Ég fíla
ekki svona deig, það er mjög líkt Domino’s. Sveppirnir eru fín-
ir en ég er nokkuð viss um að hún verður þung í magann. Ég
gæti alveg borðað hana ef ég ætti ekkert annað.“ 5,0
rizzo
Meðaleinkunn: 6
uppgefin stærð: 16”
Mæld stærð 15”
Verð: 3.245 kr.
Barst á áætlun
n erpur: „Strax munur að hún er þynnri. Þannig voru pits-
urnar upphaflega og þannig vil ég hafa þær. Hún er samt
sveitt, eins og virðist vera tilhneiging hjá mörgum pitsustöð-
um. Botninn er seigur en sósan fín. Osturinn er undarlegur.
Hann er svolítið eins og teppaafgangur.“ 6,0
n tobba:„ Osturinn nær ekki nógu langt út á kantana. Hann
er of mikið á miðjunni. Annars er of mikil olía en mér finnst
botninn fínn.“ 6,0
n Sólveig: „Mér finnst þær allar bera þess merki að vera of
blautar. Þessi er það líka. Ég finn aftur þetta aukbragð sem
ég kann ekki við, eins og á pitsu númer 2. Ég myndi vilja hafa
botninn stökkari. Hann er frekar seigur.“ 6,0
n MatthíaS: „Þessi er þunnbotna og það er minn tebolli.
Degið er samt frekar seigt en hráefnið er betra en á hinum
pitsunum. Það er samt eitthvað sem vantar.“ 6,0
Castello
Meðaleinkunn: 5,9
uppgefin stærð: 16”
Mæld stærð: 16,5”
Verð: 2.765 kr.
Barst 11 mínútum á eftir áætlun
n erpur: „Ekkert kraftaverk. Ég yrði ekkert ósáttur ef ég
fengi þessa. Sósan er alveg fín.“ 6,5
n tobba: „Mér finnst gott magn af áleggi. Fínt pepperóní.
Hún er samt of blaut og slepjuleg.“ 6,0
n Sólveig: „Mér finnst þessi hlutlaus. Sennilega afþví
ég hef gerst svo fræg að fara á fyrsta pitsustaðinn á Ítalíu,
í Napoli. Þessar jafnast auðvitað ekki á við svoleiðis
pitsu.“ 5,0
n MatthíaS: Mér finnst hún svipuð og pitsa númer 3.
Ágæt en ekkert meira. Ég er farinn að hallast að því að
skinka, pepperóní og sveppir séu ekki nóg fyrir mig. Deigið
var fínt en skinkan ekkert spes.“ 6,0
5,96,07,0