Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Qupperneq 11
neytendur 21. júlí 2009 þriðjudagur 11
Besta pitsan hjá hróa hetti
Dómnefndin að störfum
Frá vinstri: Þorbjörg, Erpur,
Matthías og Sólveig.
mynD Rakel
Domino’s
MEðalEinkunn: 4,8
uppgEFin Stærð: 15”
Mæld Stærð: 13,6”
VErð: 2.600 kr.
Barst 13 mínútum á unDan áætlun
n erpur: „Það er nóg af áleggi og áleggið er fínt.
Þetta eru ekki einhverjir dósasveppir eða neitt svo-
leiðis. En málið er að þetta er of mikið brauð. Skorpan
er stór og mikil og það er rosalega mikil fita á þessu.
Þetta er svona deep-pan american pitsuhefð. Þetta
er þung pitsa og manni líður eins og maður hafi dott-
ið niður af fimmtu hæð þegar maður er búinn með
hana.“ 5,0
n tobba: „Mér finnst hún ofboðslega sveitt og bragð-
lítil. Þetta er eiginlega bara fitubrauð.“ 4,0
n Sólveig: „Mér finnst þessi pitsa of blaut. Það er of
mikil olía á henni sem þýðir að botninn verður svo
blautur. Hún er ágæt á bragðið en mig langar ekki í
hana aftur.“ 6,0
n MatthíaS: „Mér finnst hún mjög sveitt. Hráefnið
er ekkert sérstakt og mér finnst hún ekkert voðalega
vel útlítandi. Þetta er fínt til að verða saddur af en
þetta er engin gæðapitsa.“ 4,0
4,8 Wilson‘s
pizza
MEðalEinkunn: 3,5
uppgEFin Stærð: 16”
Mæld Stærð: 15,7”
VErð: 2.590 kr.
Barst á áætlun
n erpur: „Erpur: „Mér finnst það sama með þessa og
þá síðustu. Brauðið er allt of þykkt og mikið. Hún er
bragðminni en sú fyrsta og það er eitthvað aukabragð
sem er ekki að virka. Það er vond hugmynd þegar álegg-
ið er allt meira og minna undir ostinum, því þá soðnar
það bara í staðinn fyrir að steikjast. Það er alveg „funda-
mental“ að vera ekki að borða soðna skinku.“ 4,0
n tobba: „Botninn er allt of harður og það er eitthvað
mjög skrýtið og sterkt aukabragð. Svo var bara einn
sveppur á minni sneið.“ 3,0
n Sólveig: „Mér finnst þetta ekki góð pitsa, ég verð að
segja það. Það er eitthvað aukbragð sem ég kann ekki
við. Ég held að það liggi í ostinum. Annaðhvort er hann
súr eða bara ekki nógu góður. Ég er sammála Erpi um
að áleggið á ekki að vera undir ostinum. Þá soðnar það
bara.“ 4,0
n MatthíaS: „Þetta er voðalega svipað og fyrsta pits-
an. Mér finnst hráefnið ekkert sérstakt, ég veit ekki
hvers konar pepperóní þetta er. Mér finnst hún ekki
góð.“ 3,0
3,5
Senda ekki heiM:
n Eldhúsið
n pizza hut
n Eldsmiðjan
n Eldofninn
Senda ekki fyrri part dagS:
n pizzahöllin
n pizzan
Svöruðu ekki í SíMa:
n Big papas
lokað vegna
breytinga:
n Eldbakan
Ömmubakstur ehf.
Kársnesbraut 96a | 200 kópavogi | S: 545 7000
Veljum
íslenskt
gott í dagsins önn...
Ömmu
kleinur
Ömmu
spelt
flatkökur
Ömmu
flatkökur
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI