Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Qupperneq 16
Baldur Vilhelmsson
fyrrv. prófastur í vatnsfirði við Djúp
Baldur fæddist á Hofsósi í Skaga-
fjarðarsýslu. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1950, guðfræðiprófi frá
HÍ 1956 og fyrsta stigs prófi í klass-
ískri grísku frá HÍ 1981. Baldur var
kennari í Skagaskólahverfi í Austur-
Húnavatnssýslu 1951-52, var sókn-
arprestur í Vatnsfirði frá 1956 og
prófastur Ísafjarðarprófastsdæmis
frá 1988 en lét af störfum fyrir aldurs
sakir 1999.
Baldur var kennari í Barna-
og Héraðsskólanum í Reykjanesi
1956-68 og 1984-85, auk þess for-
fallakennari þar löngum, skóla-
stjóri þar í forföllum og prófdóm-
ari í Héraðsskólanum í Reykjanesi
um árabil frá 1974. Baldur var for-
maður Ungmennafélagsins Vísis
1963-74, í sáttanefnd og formaður
barnaverndarnefndar 1962-76, sat í
hreppsnefnd Reykjarfjarðarhrepps
1958-66 og 1968-86 og í sýslu-
nefnd Ísafjarðarsýslu 1966-68 og
um nokkurt skeið frá 1978, var for-
maður skólanefndar Barnaskólans í
Reykjanesi 1958-62 og 1966-74 og í
skólanefnd Grunnskólans í Reykja-
nesi 1974-87, sat í skólanefnd Hér-
aðsskólans í Reykjanesi 1962-66 og
1978-82 og formaður hennar 1965-
66, hefur verið formaður Veiðifélags
Vatnsfjarðardals frá stofnun 1971,
í stjórn Æðarræktarfélags Norður-
Ísafjarðarsýslu frá 1964, var formað-
ur bókasafns Vatnsfjarðarsveitar
1957-76, bókasafns í Reykjanesi frá
stofnun 1977 og í stjórn Bókasafns
Ísafjarðar 1981-85.
Fjölskylda
Baldur kvæntist 6.10. 1957 Ólaf-
íu Salvarsdóttur, f. 12.8. 1931, hús-
freyju. Hún er dóttir Salvars Ól-
afssonar, f. 4.7. 1888, d. 3.9. 1979,
bónda í Reykjarfirði í Vatnsfjarðar-
sveit, og k.h., Ragnheiðar Hákonar-
dóttur, f. 16.8. 1901, ráðskonu við
Reykjanesskóla.
Börn Baldurs og Ólafíu eru Ev-
lalía Sigríður Kristjánsdóttir (stjúp-
dóttir) f. 1.6. 1951, verslunarmaður
í Reykjavík, gift Jóhanni Jónssyni,
húsgagnsmið og framkvæmda-
stjóra; Hallfríður, f. 25.9. 1957, bóka-
safnsfræðingur, bókavörður við
Þjóðarbókhlöðu; Ragnheiður, f. 6.10.
1958, stöðvarstjóri Íslandspósts, gift
Kristjáni B. Sigmundssyni vélstjóra;
Þorvaldur, f. 5.11. 1959, bifreiðar-
stjóri í Reykjavík; Stefán Oddur, f.
5.4. 1966, verslunarmaður í Reykja-
vík; Guðbrandur, f. 2.5. 1968, vega-
gerðarmaður á Vestfjörðum.
Barnabörn Baldurs eru þrjú tals-
ins.
Systkini Baldurs eru Pálmi, skrif-
stofumaður hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík; Ásdís, húsmóðir í Reykja-
vík; Birgir, prentari í Reykjavík; Leif-
ur, símvirki í Reykjavík.
Foreldrar Baldurs voru Vilhelm
Erlendsson, f. 13.3. 1891, póst- og
símstöðvarstjóri á Blönduósi, og
k.h., Friðrika Hallfríður Pálmadóttir,
f. 25.9. 1891.
Ætt
Vilhelm var bróðir Margrétar, móð-
ur Erlends Sigmundssonar, fyrrv.
prófasts á Seyðisfirði, bróðir Önnu,
móður Höskuldar, forstjóra ÁTVR og
Valgarðs, fyrrv. framkvæmdastjóra
SÍF Ólafssona, og bróðir Stefaníu,
ömmu Stefáns Skarphéðinsson-
ar sýslumanns. Vilhelm var sonur
Erlends, verslunarstjóra á Hofsósi,
bróður Vilhelmínu, ömmu Magn-
úsar Hallgrímssonar verkfræðings.
Erlendur var sonur Páls, b. á Hofi
í Hjaltadal Erlendssonar, bróð-
ur Guðrúnar, ömmu Friðriks Frið-
rikssonar æskulýðsleiðtoga. Bróðir
Páls var Jónas, afi Guðrúnar, móð-
ur Björns á Löngumýri og ömmu
Páls Péturssonar, fyrrv. ráðherra á
Höllustöðum. Móðir Páls var Sigríð-
ur Guðmundsdóttir, b. í Sörlatungu
Ólafssonar, skálds í Þverbrekku í
Öxnadal Jónssonar. Móðir Guð-
mundar var Sigríður Þorláksdóttir,
ættföður Ásgeirsbrekkuættar Jóns-
sonar. Móðir Erlends var Guðrún,
dóttir Magnúsar, b. á Hjaltastöð-
um í Blönduhlíð Þorsteinssonar og
Hólmfríðar, systur Guðrúnar, ömmu
Björns Pálssonar, fyrsta stórtempl-
ars. Hólmfríður var dóttir Gamal-
íels, pr. á Myrká Þorleifssonar og
Hólmfríðar Stefánsdóttur, pr. í Lauf-
ási Halldórssonar, langafa Björns,
afa Björns Stefánssonar erind-
reka. Móðir Hólmfríðar var Þuríður
Jónsdóttir, systir Þorgríms, langafa
Gríms Thomsen.
Móðir Vilhelms var Guðbjörg
Stefánsdóttir, b. á Fjöllum í Keldu-
hverfi Ólafssonar, b. á Auðbjargar-
stöðum Gottskálkssonar, hrepp-
stjóra í Nýjabæ Pálssonar, langafa
Jóns Trausta og Benedikts, föð-
ur Bjarna forsætisráðherra, föður
Björns, fyrrv. ráðherra og Valgerð-
ar alþm., en bróðir Bjarna forsæt-
isráðherra var Sveinn, afi Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins. Móðir Stefáns var
Kristín, systir Bjargar, ömmu Nonna
og langömmu Jóhannesar, föður Ás-
geirs, fyrrv. forstjóra Innkaupastofn-
unar ríkisins. Önnur systir Kristínar
var Guðný, móðir Kristjáns Fjalla-
skálds. Kristín var dóttir Sveins,
hreppstjóra á Hallbjarnarstöðum
Guðmundssonar, b. á Sandhólum
Guðmundssonar, b. í Keldunesi
Guðmundssonar, bróður Steinunn-
ar, móður Stefáns Halldórssonar, pr.
í Laufási. Móðir Sveins var Ingunn
Pálsdóttir, b. á Víkingavatni Arn-
grímssonar. Móðir Guðbjargar var
Anna Guðmundsdóttir, b. á Hall-
bjarnarstöðum Sveinssonar, bróður
Kristínar.
Friðrika Hallfríður var systir Þór-
önnu, ömmu Jónasar Kristjáns-
sonar, fyrrv. ritstjóra, og systir Þor-
bjargar, ömmu Leifs Þórarinssonar
tónskálds. Bróðir Friðriku Hallfríðar
var Jón, b. á Þingeyrum, faðir Guð-
rúnar arkitekts. Hallfríður var dótt-
ir Pálma, pr. á Höfða Þóroddsson-
ar, bróður Ingibjargar, móður Jóns
Loftssonar framkvæmdastjóra, afa
Jóns L. Árnasonar stórmeistara.
Ingibjörg var einnig móðir Pálma,
forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, afa
Más Gunnarssonar, starfsmanna-
stjóra Iceland Air. Móðir Hallfríð-
ar var Anna Jónsdóttir, prófasts á
Reynistað Hallssonar, afa Jóns Stef-
ánssonar listmálara.
Baldur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Kristín fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp og í Kópavoginum. Hún lauk
kennaraprófi frá KÍ 1959, sótti við-
bótarnám við Handíða- og myndlist-
arskóla Íslands í almennum vefnaði
og stundaði framhaldsnám í Svíþjóð
í vefnaðar- og efnisfræði. Auk þess
sótti hún ýmis námskeið tengd starfi
sínu sem hannyrðakennari í Dan-
mörku, Svíþjóð og Sviss. Hún stund-
ar nú MA-nám í sagnfræði við HÍ.
Kristín var kennari við Hlíðaskóla
1959-68 og síðar við Ölduselsskóla
og Hagaskóla, kenndi á kvöldnám-
skeiðum við Námsflokka Reykja-
víkur, Tómstundaskólann og ýmsar
greinar við Heimilisiðnaðarskóla Ís-
lands. Þá var hún í hlutakennslu við
textíldeild KHÍ á árunum 2000-2006
Kristín hefur haft mikinn áhuga
á íslenskri textílvinnu, einkum út-
saumi, þráðagerð, prjóni og knipli,
með það markmið að viðhalda verk-
þekkingu í þessum þáttum með
fræðslu og sjálfstæðri vinnu. Hún
starfaði að textílhönnun um árabil,
einkum fyrir handprjón og starf-
ar sjálfstætt við ýmsa textílvinnu,
kniplar m.a. kniplinga á íslenska
þjóðbúninga. Kristín var búsett í
Sviss um skeið og var þar félagi í
hópi starfandi textíllistakvenna. Hún
hefur tekið þátt í samsýningum hér á
landi og erlendis og haldið eftirtald-
ar einkasýningar í Stöðlakoti: Flíkur
og form, 1988; Kniplað úr togi, 1991;
Útsaumur, 1997.
Kristín sat í stjórn Handavinnu-
kennarafélags Íslands 1962-65, sat
í stjórn Heimilisiðnaðarfélags Ís-
lands 1977-81 og tók þar þátt í ýms-
um nefndarstörfum, situr í ritnefnd
Hugar og handar, rits félagsins. Hún
hefur skrifað ýmsar greinar í tímarit
og er höfundur bókarinnar Tvíband-
aðir vettlingar, útg. af Heimilisiðnað-
arfélagi Íslands 1981.
Fjölskylda
Kristín giftist 22.5. 1968 Ulrich
Schmidhauser, f. 7.11. 1941, verk-
fræðingi. Hann er sonur Jules
Schmidhauser garðyrkjumeistara
og Emmu Schmidhauser Bretseher
húsmóður en þau eru bæði látin.
Börn Kristínar og Ulrichs eru
Guðrún Þórunn Schmidhauser, f.
16.6. 1968, lífeindafræðingur og er
sonur hennar Friðrik Jóhann Ró-
bertsson, f. 2.3. 1998, en vinur Guð-
rúnar er Finnbogi Geirsson forstjóri
og eru börn hans Þorgeir og Þór-
anna; Anton Örn Scmidhauser, f. 6.8.
1969, byggingatæknifræðingur en
kona hans er Kristrún Þórkelsdótt-
ir, B.Sc. í hjúkrunarfræði, en börn
þeirra eru Emma Rún Antonsdóttir,
f. 14.7. 1994, og Þorsteinn Gunnar
Antonsson, f. 11.11. 2004.
Systkini Kristínar eru Unnar Jóns-
son, f. 13.5. 1938, byggingatækni-
fræðingur og fyrrv. bankastarfsmað-
ur, í Hafnarfirði; Áslaug Jónsdóttir, f.
6.9. 1941, fyrrv. forvörður við Þjóð-
skjalasafn Íslands, búsett í Reykjavík;
Ómar Víðir Jónsson, f. 10.7. 1944, d.
10.8. 1995, bifvélavirki og bifreiða-
skoðunarmaður.
Foreldrar Kristínar voru Jón Ant-
on Ingibergsson, f. 5.11. 1913, d. 26.4.
1991, járnsmiður í Reykjavík, og Þór-
unn Þorvarðardóttir, f. 25.4. 1910, d.
15.1. 2006, húsmóðir frá Þiljuvöllum
á Berufjarðarströnd.
Kristín Jónsdóttir
kennari og húsmóðir
70 ára í dag
30 ára
n Aneta Jacunska Háarifi 55 Rifi, Hellissandi
n Hai Thi Pham Hjaltabakka 26, Reykjavík
n Johan Erik Einar Jonsson Reynimel 74, Reykjavík
n Sveinbjörg Jónsdóttir Klapparhlíð 20, Mosfellsbæ
n Þórður Bjarki Arnarson Hávallagötu 11, Reykjavík
n Guðni Rúnar Pálmason Bleikjukvísl 22, Reykjavík
n Svana Rebekka Róbertsdóttir Hraunbæ 40,
Reykjavík
n Steinlaug Anna Þorsteinsdóttir Mýrarvegi 118,
Akureyri
n Jóhanna Björg Jóhannsdóttir Galtalind 19,
Kópavogi
n Reynir Bjarkason Árgerði, Selfossi
n Ingvar Skúli Vilhjálmsson Fífumóa 5a,
Reykjanesbæ
40 ára
n Joyce M Þóroddsson Kirkjubraut 21, Reykjanesbæ
n Tanja Stepansdóttir Heimatúni 2, Álftanesi
n Rafal Stojak Lindargötu 1, Sauðárkróki
n Svandís Guðjónsdóttir Trönuhjalla 15, Kópavogi
n Sigurður Ágúst Hjartarson Rauðalæk 41,
Reykjavík
n Fjóla Steingrímsdóttir Strandvegi 13, Garðabæ
n Gunnar Örn Arnarson Lindasmára 52, Kópavogi
n Arnheiður H Hafsteinsdóttir Eyrarholti 22,
Hafnarfirði
n Andrea Magdalena Jónsdóttir Lækjarbraut 2,
Mosfellsbæ
n Sylvía Hlín Matthíasdóttir Lindasmára 34,
Kópavogi
n Ólafur Þór Guðmundsson Ljósuvík 6, Reykjavík
n Hulda Guðfinna Geirsdóttir Blesugróf 1, Reykjavík
50 ára
n Ragnheiður K Nielsen Brekkuhjalla 1, Kópavogi
n Guðrún Agnes Einarsdóttir Reykjal Neðribraut 8,
Mosfellsbæ
n Jóhanna Gunnlaugsdóttir Sléttahrauni 34,
Hafnarfirði
n Einar Gylfi Haraldsson Hjarðarhaga 24, Reykjavík
n Stefán Magnússon Þingási 44, Reykjavík
n Margrét Ingibergsdóttir Norðurvöllum 38,
Reykjanesbæ
n Magnús Birgisson Suðurholti 6, Hafnarfirði
n Magnús Diðrik Baldursson Ásvallagötu 64,
Reykjavík
n María Hákonardóttir Ystadal 3, Eskifirði
n Gerður Magnúsdóttir Trönuhjalla 13, Kópavogi
n Stefán Hjaltalín Jóhannesson Kríuási 47,
Hafnarfirði
n Svanborg Gústafsdóttir Þorláksgeisla 43,
Reykjavík
n Rúnar Þórarinsson Reykjavíkurvegi 28, Reykjavík
n Filippus Þór Einarsson Lerkilundi 9, Akureyri
60 ára
n Þorbjörg R Óskarsdóttir Heiðarbraut 18,
Reykjanesbæ
n Birgir Guðmundsson Vættaborgum 70, Reykjavík
n Zbigniew Jan Wojcik Sólvallagötu 29, Reykjanesbæ
n Matthías Einarsson Þverbrekku 2, Kópavogi
n Magnús Sigurðsson Jaðarsbraut 11, Akranesi
n Úlfar Schaarup Hinriksson Vesturbergi 83,
ReykjavíkMargrét Kristj. Friðriksdóttir
n Mýrum 12, Patreksfirði Sóley Ingólfsdóttir
n Álagranda 8, Reykjavík Hrefna Sigurðardóttir
Háaleiti 38, Reykjanesbæ
n Guðrún Kristinsdóttir Rituhöfða 11, Mosfellsbæ
n Kristján Auðunsson
n Fífuseli 24, Reykjavík
70 ára
n Kristveig Baldursdóttir Sóleyjarima 21, Reykjavík
n Sólveig Illugadóttir Sólgörðum, Mývatni
n Anna S Snæbjörnsdóttir Núpalind 6, Kópavogi
n Halldóra Hallgrímsdóttir Drápuhlíð 23, Reykjavík
n Baldur Skaftason Prestastíg 6, Reykjavík
n Skúli Grétar Guðnason Sólbraut 17, Seltjarnarnesi
n Guðmundur Ágústsson Skólastíg 26, Stykkishólmi
n Ingi Bjarnason Garðavegi 15, Hvammstanga
75 ára
n Guðný Pálsdóttir Ekru, Reyðarfirði
n Sæmundur Guðmundsson Fornastekk 8, Reykjavík
n Hanna Jónsdóttir Hrísateigi 26, Reykjavík
80 ára
n Vilborg Þorgeirsdóttir Helluvaði 21, Reykjavík
n Bergþóra Bachmann Þórufelli 4, Reykjavík
85 ára
n Jóhannes Páll Halldórsson Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi
Til
hamingju
með
afmælið!
80 ára á morgun
16 þriðjuDagur 21. júlí 2009 ættfræði