Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2009, Side 12
Samtals voru 504.073 beiðnir sendar
síma- og netfyrirtækjum í fyrra um
að hlera símtöl og tölvupósta íbúa
Bretlandseyja. Þetta jafngildir tæp-
lega fjórtán hundruð beiðnum á dag,
eða að einn af hverjum 78 fullorðn-
um í Bretlandi hafi verið hleraður
einhvern tíma á árinu. Talan var að-
eins lægri árið 2007 en er sextíu pró-
sent hærri en árið þar á undan. Þess-
ar upplýsingar birtast í ársskýrslu sir
Pauls Kennedy, opinbers eftirlits-
manns fjarskiptahlerunar í landinu.
Svefnganga án verndar
Í skýrslunni kemur fram að flest-
ar beiðnirnar bárust frá lögreglu en
einnig sendu leyniþjónustan og bæj-
ar- og borgarráð víðs vegar í landinu
slíkar beiðnir.
Chris Huhne, talsmaður innan-
ríkismála hjá frjálslyndum demó-
krötum, segir tölurnar sýna að Bret-
ar hafi gengið í svefni inn í það sem
hann kallar eftirlitsríki og að tölurnar
gætu orðið til þess að íbúar í landinu
misstu trú á stjórnvöldum.
„Margar þessar aðgerðir, sem
framkvæmdar eru af lögreglu eða
leyniþjónustunni, eru nauðsynlegar
en þessi fjöldi er ógnvekjandi. Það
getur ekki verið réttlætanlegt svar
við vandamálunum sem við stönd-
um frammi fyrir í þessu landi að ríkið
sé að njósna um hálfa milljón fólks á
ári. Við erum búin að ganga í svefni
inn í eftirlitsríki án nægrar vernd-
ar. Stjórnvöld gleyma að skáldsag-
an 1984 eftir George Orwell var við-
vörun en ekki leiðbeining. Við erum
langt frá því að búa við leynilögreglu,
eins og Stasi var í Austur-Þýskalandi,
en það að nauðsynlegt sé að njósna
um einn af hverju 78 fullorðnum
boðar ekki gott,“ segir Huhne.
1 af 31 hleraður
Sir Paul segir fjarskiptahleranir
vera ómetanlegt vopn í baráttu gegn
glæpum en bætti við að það væri að
verða æ tæknilegra og erfiðara vegna
háþróaðra starfsaðferða hryðju-
verka- og glæpamanna.
Í skýrslunni kemur fram að tvær
kvartanir um ólögmæta hlerun hafi
verið staðfestar af dómstólum, aðeins
í annað og þriðja skiptið sem slíkar
kvartanir fara svo langt. Engar frekari
upplýsingar eru um málin nema að
gögnin sem fengust með hleruninni
voru eyðilögð og bætur greiddar út í
öðru málinu en ekki hinu.
Síðustu þrjú árin hafa 1,2 milljón-
ir beiðna um hleranir borist síma- og
netfyrirtækjum í Bretlandi. Jafngildir
það að einn af hverjum 31 fullorðn-
um hafi verið hleraður. Rétt er að
taka fram að upplýsingar í ársskýrslu
ársins 2007 innihéldu tæplega sex
hundruð villur.
12 þriðjudagur 11. ágúst 2009 fréttir
Ríkissaksóknarinn í Noregi hefur
gefið út ákæru á hendur manni um
fertugt sem er gefið að sök að hafa
smitað eiginkonu sína og dóttur af
HIV-veirunni.
Maðurinn stundaði óvarið kynlíf
með eiginkonu sinni seint um sumar
og haust árið 2007 án þess að segja
henni að hann væri HIV-smitaður.
Faðir, móðir og dóttir eru HIV-smit-
uð en maðurinn er ekki ákærður fyr-
ir að hafa stundað kynlíf með dóttur-
inni, sem er á táningsaldri, og smitað
hana þannig af veirunni. Hún smit-
aðist þegar faðir hennar bað hana
að þurrka upp blóð á heimilinu eft-
ir að til slagsmála kom milli föður og
móður. Dóttirin hefur vitnað að hann
hafi ekki haft samræði við hana. Ekki
kemur fram í ákærunni hvernig mað-
urinn sjálfur smitaðist.
Lögreglan í Drammen í Noregi
hefur reynt að bera saman þessi þrjú
HIV-smit til að ganga úr skugga um
að þau séu öll frá föðurnum kom-
in. Lögreglan getur ekki farið nán-
ar út í rannsóknina á málinu að svo
stöddu.
Samkvæmt skýrslu sem stofnunin
HivNorege gerði við árslok 2008 hafa
tólf mál ratað til dómstóla síðan um
aldamót þar sem fólk smitar aðra af
HIV-veirunni visvítandi. Samkvæmt
skýrslunni féll fangelsisdómur í öll-
um málunum.
liljakatrin@dv.is
Fertugur, norskur karlmaður gæti fengið sex ára fangelsisdóm fyrir vísvitandi smit:
Smitaði mæðgur af HIV-veiru
Fær borgað fyrir
að sofa
Háskólaneminn Roisin
Madigan hefur nælt í eitt besta
starf í heimi hjá lúxusrúma-
framleiðandanum Simon Horn
í Bretlandi. Hún fær þúsund
pund, eða rúmlega tvö hundruð
þúsund íslenskar krónur, fyrir
að sofa í lúxusrúmum á hverj-
um degi í mánuð. Hún eyðir
átta tímum á dag í rúmunum í
sýningarsal framleiðandans og
bloggar um reynslu sína. Suma
daga þarf hún jafnvel að stilla
sér upp í glugga verslunar Sim-
on Horns. Starfið er liður í svefn-
könnun sem framleiðandinn
gerir til að geta veitt sölumönn-
um og viðskiptavinum betri
upplýsingar um rúmin.
Leynileg jarðar-
för Jacksons
Poppkóngurinn Michael
Jackson fékk leynilega jarðarför
sem stingur í stúf við líferni hans
sem var fullt af glysi og glam-
úr. Samkvæmt breska blaðinu
The Daily Mirror hvílir Jackson
í Forrest Lawn-kirkjugarðin-
um í Hollywood Hills. Hann var
jarðaður í kyrrþey án nokkurrar
athafnar til að hindra að jarð-
setning hans yrði að hálfgerð-
um sirkus og aðdáendur myndu
streyma að gröf hans eins og
gerðist við gröf Elvis Presley.
Flytja þurfti Presley til Grace-
land vegna öryggisvandamála.
Starfsfólk Forrest Lawn-kirkju-
garðsins veit ekki einu sinni hvar
Jackson hvílir en talið er líklegt
að hann liggi hjá ömmu sinni,
Mörthu Bridges, sem var jörðuð
undir tré í garðinum árið 1990.
Fíll fastur í klóaki
Fílsungi var notaður sem
vinnuafl við vegavinnu í Rayong-
héraðinu í Taílandi en fíllinn
kom litlu í verk. Hleri yfir klóaks-
holu sem fíllinn stóð á gaf sig
nefnilega með þeim afleiðingum
að fíllinn féll ofan í holuna með
rassinn fyrst. Það tók björgun-
arfólk þrjá tíma að koma fílnum
úr þessari óþægilegu stöðu en
það gerði það með því að gera
holuna stærri og toga síðan fíl-
inn upp. Sem betur fer slasaðist
fíllinn ekki.
Geta ekki stundað
kynlíf
Rúmlega þriðjungur breskra
para eru ekki í nógu góðu formi
til að stunda kynlíf samkvæmt
nýrri skoðanakönnun. 2.000
manns tóku þátt í könnuninni og
sögðust tveir af hverjum þremur
vera of þreyttir í lok dags til að
leika sér í bólinu með makanum.
Einn af hverjum sex eru svo latur
að nenna ekki að standa upp og
skipta um stöð á sjónvarpinu ef
fjarstýringin er biluð.
Öll þrjú með veiruna
Norskur maður er ákærður fyrir að hafa
smitað eiginkonu sína og dóttur af HIV-
veirunni. Myndin er sviðsett.
Hlerun á hverri mínútu Einn af hverjum 78 fullorðnum í Bretlandi var hleraður í
fyrra.
Yfirvöld í Bretlandi hleruðu símtöl og
tölvupósta að meðaltali einu sinni á mín-
útu á síðasta ári. Flestar beiðnirnar komu
frá lögreglunni og voru þær allar sam-
þykktar. Sir Paul Kennedy, opinber eftir-
litsmaður fjarskiptahlerunar, segir hler-
anir vera ómetanlegt vopn í baráttunni
gegn hryðjuverkum og glæpum.
lilja Katrín gunnarSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Stjórnvöld gleyma að
skáldsagan 1984 eftir
George Orwell var við-
vörun en ekki leiðbein-
ing.“
1.400
HLERANIR
dAGLEGA