Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2009, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2009, Side 12
Þúsundir flykkjast nú í afskekkt, nep- alskt þorp til að tilbiðja Risab, sex mánaða gamalt barn sem er með fjórar hendur og fjóra fótleggi. Risab er nefnilega samvaxinn sníkilství- bura sínum sem fæddist án höfuðs. Þorpsbúar telja Risab vera fílaguðinn Ganesh endurholdgaðan. Ganesh er vel þekkt goð í hindúatrú og er guð upphafsins og hindrananna. Ganesh birtist í mörgum myndum og get- ur haft allt frá tveimur upp í sextán handleggi. Rikhi Ghimire, faðir Risabs, seg- ir marga gefa honum gjafir en aðrir telja barnið afbrigðilegt. „Sumir segja að hann sé eins og guð og þeir koma til að tilbiðja hann og gefa honum peninga. Þeir gefa nokkrar rúpíur og færa honum gjaf- ir sem eru oftast matur eða föt. Aðr- ir hafa sagt að hann líkist apa eða sé nornabarn.“ Um það bil fimm þúsund manns hafa heimsótt barnið síðan það fæddist að sögn Prem KC, kennara í þorpinu. Hann segir suma hafa gengið eða keyrt langar vegalengd- ir til að sjá undrabarnið. Ghimire þorpspresturinn kennir síðbúnum og óstöðugum monsúnrigningum um ástand barnsins. „Sumir segja að þetta sé krafta- verk, eða að þetta sé guð, á meðan aðrir halda því fram að bölvun hvíli á barninu,“ segir Ghimire. Januk, móðir Risabs, á tvo aðra syni og þjáðist gífurlega fimm dögum fyrir fæðingu hans. Hún hélt að hún myndi deyja í fæðingunni en þegar Risab fæddist var hún dauðhrædd um viðbrögð þorsbúanna. „Ef eiginmaður minn hefði ekki verið hjá mér hefði ég verið hrædd um að þorpsbúar myndu kalla mig norn og drepa mig,“ segir Januk. Hún segir eins einfalda hluti og að svæfa Risab eða baða hann sé mjög erf- itt. Faðir Risabs vill að hann gangist undir aðgerð til að skilja hann frá tví- bura sínum svo hann geti lifað eðli- legu lífi en fjölskyldan hefur ekki efni á því. liljakatrin@dv.is 12 miðvikudagur 12. ágúst 2009 fréttir Ráðist á Mónu Lísu Lögreglan í París handtók rússneska konu á sunnudag eftir að hún réðst á eitt frægasta mál- verk heims, sjálfa Mónu Lísu, með bolla af eldheitu English Breakfast- tei. Konan henti bollanum í mál- verkið beint fyrir framan örygg- isverði í Louvre-safninu sem brá heldur betur í brún. Bollinn lenti á skothelda glerinu í kringum Mónu Lísu og lenti á gólfinu þar sem hann brotnaði. Öryggisverð- ir sneru konuna niður en Mónu Lísu sakaði ekki. Konan er enn í varðhaldi og er búin að gangast undir sálfræðirannsókn. Kvartað undan kaffihúsi Nýtt kaffihús í Los Angeles hef- ur svo sannarlega valdið usla í Borg englanna. Kaffihúsið heitir Bikini Espresso og þar má finna föngulegar stúlkur sem bera fram kaffi í bikiníi einu klæða, jafnt á morgnana sem á kvöld- in. Viðskiptavinir kaffihússins eru nær eingöngu karlmenn. Margar konur hafa hringt í Gary Gillet, eiganda kaffihússins, og kvartað undan bikiníbombun- um, sérstaklega vegna þess að konurnar standa oft úti á götu langt frá kaffihúsinu til að aug- lýsa það. Gillet þessi lætur sér fátt um finnast og ætlar að opna sams konar kaffihús á Englandi og Frakklandi og í Moskvu og Madrid. Systir Kennedys látin Eunice Kennedy Shriver, syst- ir Johns F. Kennedys heitins, fyrrverandi forseta Bandaríkj- anna, er látin 88 að aldri. Dóttir Eunice er Maria Shriver, eigin- kona Arnolds Schwarzeneggers, hasarmyndahetju og ríkisstjóra Kaliforníu. Eunice var miðju- barn Josephs P. Kennedys og konu hans, Rose, en þau eign- uðust alls níu börn sem mynd- uðu eitt stærsta pólitíska veldi Bandaríkjanna á síðustu öld. Hún skilur eftir sig eiginmann. Hundar bjarga lífum Stæltir strandverðir á ítölskum ströndum hafa haft minna að gera það sem af er sumri en áður því ný tegund strandvarða verð- ur sífellt vinsælli. Þrjú hundruð hundar hafa nefnilega leyfi til að bjarga drukknandi baðgestum á ítölskum ströndum og í sumar hafa þeir bjargað sjö einstakling- um. Hundarnir eru alltaf í fylgd leiðbeinenda og sjá um að draga fólk upp úr vatninu þannig að leiðbeinandinn hefur nægan styrk til að hlúa að fólkinu og veita fyrstu hjálp. Hundarnir eru þrælsterkir og hafa þeir dregið allt að fjörutíu manns í einu á þurrt land. Ekki með fílshöfuð Guðinn Ga- nesh er með fílshöfuð en ekki Risab litli. Samt telja þorpsbúar hann vera Ganesh endurholdgaðan. Þúsundir manna flykkjast í nepalskt þorp til að tilbiðja ungbarn með átta útlimi: Endurholdgaður fílaguð Þúsundum barna er rænt á ári hverju í Kína. Mannræningjar geta fengið allt að 150 þúsund krónur fyrir stráka en rúmlega 25 þúsund krónur fyrir stelpur. Foreldrar sem hafa misst börnin sín á þennan hátt segja lögregluna ekkert aðhafast á meðan börnum er rænt á hverjum einasta degi. Syni Deng Huidong var rænt fyrir ári. Hún er reið lögreglunni sem hjálpaði henni ekki við leitina. Bandaríska utanríkisráðuneytið telur að tíu til tuttugu þúsund kon- um og börnum sé rænt á ári hverju í Kína í þeim tilgangi að selja þau. Yfirvöld í Kína segja að aðeins rúm- lega tvö þúsund börnum og konum hafi verið rænt á síðasta ári en Sam- einuðu þjóðirnar telja opinberar tölur alltof lágar. Er þetta sonur minn? Deng Huidong er ein fjölmargra kínverskra kvenna sem hafa lent í því að missa barn sitt til mannræn- ingja. Syni hennar, Ye Ruicong, var rænt fyrir rúmlega ári þegar hann var aðeins níu mánaða gamall. Allt- af þegar Deng sér strák um þriggja ára aldurinn getur hún ekki annað en velt því fyrir sér hvort hann gæti verið sonur hennar. „Ég ímynda mér hve hávaxinn hann er núna og hve hratt hann gæti hlaupið. Ég tek myndir af strák- um sem eru svipað gamlir og hann væri núna. Þannig þekki ég hann ef ég hitti hann einhvern daginn.“ Drengir verðmætari Deng heldur að Ye hafi verið seld- ur til fjölskyldu sem var að leita að karlkynserfingja, hugsanlega nokkrum klukkustundum eftir að honum var rænt. Drengir eru taldir verðmætari en stúlkubörn í Kína og fá mann- ræningjar hátt verð fyrir drengi á svarta markaðinum. Kona sem stundaði mannrán sagði lögregl- unni í Kína fyrir tveimur árum að rúmlega 150 þúsund krónur fengj- ust fyrir drengi á mansalsmarkað- inum og rúmlega 25 þúsund krón- ur fyrir stúlkur. Gera má ráð fyrir að verðið hafi hækkað síðan þá. Að sögn Deng hvarf Ye á svip- stundu. Er hún rifjaði upp daginn sem hann hvarf sagði Deng að hvít- ur sendiferðabíll hafi keyrt hægt fram hjá fyrir utan heimili hennar er hún var að leika við son sinn og dóttur. Sendiferðabíllinn stöðvað- ist, hurðirnar opnuðust og maður hallaði sér út og greip Ye. Því næst keyrði bíllinn burt á ofsahraða. „Þetta gerðist á nokkrum sek- úndum. Fólkið steig ekki einu sinni út úr bílnum,“ sagði Deng í viðtali við fréttastofuna CNN. Reið lögreglunni Deng elti bílinn á hlaupum þangað til ókunnugur maður á mótorhjóli bauð hjálp sína og saman eltu þau bílinn þangað til þau hittu fyrir lög- reglubíl. „Ég fór inn í ansans lögreglu- bílinn en eftir nokkrar sekúnd- ur beygðu þeir niður aðra leið en sendiferðabíllinn. Ég spurði þá grátandi af hverju en þeir sögðu ekki orð. Seinna á lögreglustöð- inni spurði ég af hverju þeir hefðu ekki elt bílinn og lögreglumaðurinn sagði mér að hann hefði ekki verið á vakt þannig að það var á ábyrgð annarra að elta mannræningjana. Ég var svo reið við lögregluna. Syni mínum var rænt og þeir gerðu ekk- ert. Það var eins og sonur minn væri minna virði en hundur,“ sagði Deng. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir CNN vildi lögreglan ekkert tjá sig um málið. Undantekning, ekki regla Fleiri foreldrar horfinna barna hafa kvartað yfir aðgerðaleysi lögregl- unnar sem rannsakar málin stund- um ekki fyrr en vikum eftir að barn- inu var rænt. Chen Shique hjá mannráns- deildinni í öryggismálaráðuneytinu í Kína segir lög í landinu hafa breyst og nú þurfi lögreglan að rannsaka öll mannshvörf sem glæpi. „Lögreglan hefur þau fyrirmæli að bregðast við um leið og þeir fá tilkynningu um barnshvarf og þessi mál eru nú rannsökuð sem glæp- ir. Hér áður fyrr voru engin vitni að hvarfinu né upptökur úr örygg- ismyndavélum. Þá hjálpuðu lög- reglumenn við leit að horfnum börnum og rannsökuðu málin en þau voru ekki meðhöndluð sem glæpir. Nú eru öll slík mál rannsök- uð sem glæpir,“ sagði Chen. Hann segir mál þar sem foreldrar kvarta yfir aðgerðarleysi lögreglu vera undantekningu, ekki reglu. Of sársaukafullt Chen segir lögreglu hafa tekið sig á í málum sem varða barnshvörf. Í landinu er listi yfir tuttugu verstu mannræningja landsins og ellefu af þeim hafa verið handteknir. Hann segir foreldra oft eiga í erfiðleikum með að bera kennsl á börn sín þeg- ar þau finnast og því komi til greina að starfrækja DNA-gagnagrunn í vissum hlutum landsins sem ger- ir það kleift að tengja börn við for- eldra sína. Deng, móðir Ye litla, sagði til- hugsunina um að sameinast syni sínum á ný of sársaukafulla. „Núna vona ég bara að góð- hjörtuð fjölskylda annist son minn. Ég gæti leyft þeim að annast son minn ef þeim þykir í raun vænt um hann og fullvissa mig um að hann lifi góðu lífi.“ Hvar er sonur minn? Talið er að þúsundum barna sé rænt á ári hverju í Kína og þau seld á svörtum markaði. H&N-myND AFP „SYNI MÍNUM VAR RÆNT OG ÞEIR GERÐU EKKERT“ „Það var eins og sonur minn væri minna virði en hundur.“ liljA KAtRíN gUNNARsDóttiR blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.