Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2009, Page 22
Svarthöfði er að farast úr fyr-irtíðaspennu vegna þeirrar yfirlýsingar Páls Hreinssonar, formanns rannsóknarnefndar
Alþingis, að engin nefnd hafi nokkru
sinni þurft að flytja þjóðinni verri frétt-
ir. Honum finnst blátt áfram óbærileg
tilhugsun að þurfa að bíða í 81 dag
eftir því að komast að þeim skelfilegu
fréttum sem Páll boðar. Skýrslan mun
koma út 1. nóvember.
Þegar beðið er eftir einhverju mikilfenglegu vill ímyndunar-aflið hlaupa með Svarthöfða í gönur. Hann hefur því ekki hjá
því komist að lesa í þessi skilaboð
Páls. Hann vonar að sjálfsögðu
að niðurstöður nefndarinnar
varpi ljósi á það sem gerðist;
hverjir báru ábyrgð á hrun-
inu og þeim spillingarfnyk
sem lagt hefur frá stjórn-
málunum síðustu misseri.
Svarthöfði má vart til þess
hugsa en mögulega gætu
vondu fréttirnar, sem Páll
vísar til, falist í því að ráða-
og bankamönnum tókst að
knésetja þjóðina á löglegan hátt.
Geir sé blásaklaus, Ingibjörg hafi ekki
stigið feilspor og Davíð megi helst
lýsa sem hvítskúruðum kór-
dreng. Enginn hafi gert neitt
af sér og ekki einn einasti
ráða- eða bankamaður
þurfi að sitja eina mínútu í
læstum klefa. „Sorry, þetta
var allt löglegt en siðlaust,“
gæti staðið í niðurlagi
skýrslunnar.
Þó Svarthöfði sé í eðli sínu bjartsýnismaður telur hann að fjandinn verði laus ef þetta verða
vondu fréttirnir sem Páll vís-
aði til. Hús munu loga, bílar
brenna og búsáhaldabylt-
ingin verður sem þjóð-
hátíð í samanburði við
þá skeggöld sem hér
mun ríkja ef skýrslan
verður hvítbók fyrir alla
þá sem að stjórnsýslu
og bönkum komu. Lík-
legt verður að teljast að
með því yrði réttlætis-
kennd Íslendinga
gróflega misboðið
með skelfilegum
ófyrirséðum af-
leiðingum. Fólk
gæti gengið af
göflunum.
Svarthöfði treystir sér ekki til að búa á Íslandi ef
allt fer á versta veg. Hann
ætlar að flýja eggjakastið, of-
beldið og grænu skyrsletturnar.
Hann ætlar í eins konar útrás.
Mun setjast að í Frakklandi
og gerast þar ráðsett-
ur pistlahöfundur sem
skrifar um garðrækt eða
fallegu hliðar mann-
lífsins, eins og Krist-
inn R. í Madrid.
Hann mun skrifa
um syngjandi
fugla, ásfangið par
í næsta garði eða
um sólbaðsstrendur.
Hann mun hvorki hugsa
um né skrifa
stakt
orð
um
efnahag eða hvíta flibba. Af því verður
Svarthöfði búinn að fá sig fullsaddan.
En Svarthöfði ætlar ekki að búa hvar sem er í Frakklandi. Hann ætlar, ef allt fer til fjand-ans, að setjast að norður með
sjó á Bretagne-skaga. Í næsta húsi
mun eldri kona með rauð gleraugu
búa. Sú er eitursnjöll, ákveðin en lítil-
lát og rassskellir alla þá sem stela pen-
ingum. Svarthöfði ætlar að gerast ná-
granni Evu Joly, þar sem útilokað
er að nokkur bankaræningi
eða spilltur stjórnmála-
maður muni nokkurn tím-
ann búa. Þar mun hann
eyða efri árunum, langt í
burtu frá Icesave, Kaup-
þingi, fjórflokknum og ís-
lensku krónunni.
Vondar fréttir Palla Hreins
Spurningin
„Ég er allavegana
ekki að leita að
neinum sem er í
framboði,“ segir
Einar Bárðarson
athafnamaður.
Greint hefur verið
frá því að Einar
leiti nú að hæfu
útvarpsfólki til að
starfa við
útvarpsstöðina Kanann 91,9 sem fer í
loftið 1. september næstkomandi.
er meira framboð
en eftirsPurn?
Sandkorn
n Mikið hefur verið um það
rætt undanfarið hversu lítið
hafi sést til Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra . Muna
menn
vart
eftir
forsæt-
isráð-
herra
sem
hefur
farið
jafnlít-
ið fyrir.
Hefur
þetta
orðið sumum gárungunum
tilefni til að segja að nú sé kjör-
ið fyrir einhvern útgefandann
að endurútgefa og staðfæra
bækur sem stundum hafa ver-
ið vinsælar og nefnast „Hvar
er Valli?“ þar sem söguhetjan
týnist á hinum torkennileg-
ustu slóðum. Segja menn að
nú megi taka þær myndir og
breyta söguhetjunni og gefa
bækurnar út undir nafninu
„Hvar er Jóhanna?“
n Hægrimennirnir á Andríki
hafa nú skundað fram á aug-
lýsingamarkað með opnu-
auglýsingu þar sem þeir herja
á stjórnarliða að samþykkja
ekki Icesave-ábyrgð. Vísa þeir
meðal annars til skoðanakönn-
unar sem þeir létu vinna fyrir
sig sem sýnir mikla andstöðu
almennings við Icesave-sam-
komulagið. Menn velta hins
vegar fyrir sér hvort það séu
Andríkismenn eða einhverjir
aðrir sem standi að baki þessu.
Bæði kostar skoðanakönnun
sitt og þá ekki síður opnuaug-
lýsingar. Það væri ekki í fyrsta
skipti sem vefriti væru eignuð
útgjöld opinberlega sem það
stóð ekki að. Þannig var til
dæmis með könnun Kreml um
árið sem leiddi í ljós mikinn
stuðning við þingframboð Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
og var runnin undan rifjum
nánustu stuðningsmanna
hennar.
n Nú er mat ýmissa að líf ríkis-
stjórnarinnar hangi á bláþræði.
Og óneitanlega hvarflaði að
íbúum miðborgar Reykjavíkur
í gærdag
að sumir
myndu
gráta fall
hennar
þurrum
tárum
og jafn-
vel vona
heitt og
inni-
lega að
stjórn-
in félli. Tveir menn gengu þá
um götur miðborgarinnar, sem
ekki höfðu sést þar lengi. Þeir
voru léttir í bragði og glaðir í
lund, og höguðu sér eins og
þeir valdamenn sem þeir einu
sinni voru. Einn vegfarandi
orðaði það svo að þeir létu
„eins og þeir ættu pleisið, eða
myndu að minnsta kosti eign-
ast það mjög fljótlega“. Þetta
voru þeir vinirnir Davíð Odds-
son og Kjartan Gunnarsson.
LynGháLs 5, 110 REyKjavíK
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: Elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Það hefur
engin útvarps-
stöð opnað
svona stórt á
Íslandi.“
Athafnamaðurinn Einar Bárðarson um
útvarpsstöðina Kanann 91,9 sem fer í loftið 1.
september næstkomandi. - DV.
„Pabbi þú mátt bara gera
hvað sem er.“
Sonur Sigga storms áður en
veðurfréttamaðurinn
neyddist til að skera sjálfur í
tannhold sonar síns til að
lina þjáningarnar því engir
tannlæknar svöruðu
neyðarkalli hans. Hans eigin
tannlæknir var upptekinn í sólbaði. - DV.
„Þetta gæti endað illa.“
Kristinn Gísli Sigurjónsson úr stjórn Félags
dyravarða um nýlega skýrslu sem sýnir að rétt
rúmur helmingur dyravarða í Reykjavík talar
íslensku sem á að vera eitt af skilyrðunum fyrir
starfinu. - DV.
„Fáránleiki þess að halda
því fram að styrkja megi
gengið með stórkostlegri
erlendri skuldsetningu
má vera flestum ljós.“
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, um
Icesave-samningin og þau
rök að hann muni reisa
krónuna við og um leið
efnahaginn. - Visir.is
„Ríkisstjórnin er ekki að
springa.“
Ögmundur Jónasson aðspurður hvort
andspyrna hans við Icesave-samninginn muni
kosta ríkisstjórnina lífið. - MBL.is
Upprisa landsbyggðarinnar
Leiðari
Eftir fasteignabóluna og hrun at-vinnumarkaðar á höfuðborgar-svæðinu er orðið enn fýsilegra en áður að búa á landsbyggðinni. Við-
búið er að næstu ár verði framleiðsla raun-
verulegra verðmæta ábatasömust, sem og
þjónusta við ferðamenn. Í þessu hefur lands-
byggðin forskot.
Landsbyggðin hefur engu að síður gullið
tækifæri til að laða að sér fólk að nýju, en til
þess þarf hún að bjóða upp á eins innihalds-
ríkt hversdagslíf og hægt er. Lykillinn að því
er vel heppnað bæjarskipulag, sem hefur
brugðist fram að þessu.
Höfuðborgarsvæðið utan miðborgar
Reykjavíkur getur í fæstum tilfellum talist
mannvæn borg, enda hafa hagsmunir einka-
bílsins ráðið för í útþenslu hennar í stað at-
hyglisverðs vettvangs fyrir mannlíf. Svæðið
er að stærstum hluta samansafn misheppn-
aðra úthverfa. Skipuleggjendur flestra með-
alstórra byggðarlaga hafa gert sömu mistök.
Það segir sitt um bæjarskipulag síðustu
áratuga að grunnurinn var lagður að best
heppnuðu byggðunum áður en bílar komu
til sögunnar. Ísafjörður, Keflavík og Akur-
eyri eru sjaldgæf dæmi um byggðir þar sem
fólk finnur ástæðu til að stíga út úr bifreiðum
sínum og ganga um. Þetta eru þeir bæir sem
hafa raunverulega miðbæi með samblöndu
starfsemi og íbúabyggðar. Selfoss og Egils-
staðir eru yngri byggðir og alger andstæða.
Þeir eru bæir án kjarna. Í slíkum bæjum er
lítill hvati til annars en að ganga frá bílastæð-
inu inn í búð og til baka. Þeir hafa álíka mikið
aðdráttarafl og Grafarholt, Grafarvogur eða
önnur svefnhverfi, með ónotuðum gang-
stéttum og fullum bílastæðum. Báðir bæir
njóta þess að verða á leið tugþúsunda ferða-
manna, sem fá þó lítið tilefni til að stoppa við.
Á allra síðustu árum hafa mistökin haldið
áfram, þar sem byggð hafa verið fjölbýlishús
í útjöðrum byggðanna, í stað þess að blanda
saman þéttri byggð og fjölbreyttri starfsemi
miðsvæðis, sem er forsenda vel heppnaðs
miðbæjarlífs.
Síðustu þrjú ár hafa bæjaryfirvöld á Egils-
stöðum og Selfossi hins vegar skipulagt upp-
byggingu nýrra, þéttari miðbæja, þar sem
markmiðið er að skapa vettvang fyrir mann-
líf á götum, gangstéttum og torgum. Þannig
geta þeir umbreyst úr gegnumakstursbæj-
um í áfangastaði og jafnvel búsetustaði fyrir
þá sem síður vilja búa í lífvana og rándýrum
svefnhverfum höfuðborgarinnar.
bókStafLega
22 miðvikudagur 12. ágúst 2009 umræða
Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Selfoss og Egilsstaðir eru yngri byggðir og alger andstæða. Þeir eru bæir án kjarna.