Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2009, Side 6
Speglunardeild Landspítalans hef-
ur undanfarin ár átt í stórviðskipt-
um við Inter ehf. sem sérhæfir sig í
sölu á lækningavörum. Herdís Ást-
ráðsdóttir, deildarstjóri speglunar-
deildar 11D, og Þorvaldur Sigurðs-
son, eigandi og stjórnarmaður Inter,
eru hjón. Þorvaldur tekur fyrir að um
óheppileg tengsl sé að ræða. „Mín
kona sér ekki um innkaup á þeirri
deild. Það eru aðrir sem sjá um inn-
kaupin,“ segir hann.
Á vef Inter segir að fyrirtækið þjóni
heilbrigðisgeiranum með áherslu á
speglanir, skurðstofutæki, endurlífg-
un og gjörgæslusvið.
Sjö af ellefu samþykkt
DV óskaði eftir upplýsingum frá
Landspítalanum um umfang við-
skipta speglunardeildarinnar við
Inter á undanförnum árum. Tæki og
flestar rekstrarvörur fyrir deildina
eru keyptar samkvæmt niðurstöð-
um tveggja útboða sem áttu sér stað í
júní 2007 og í september 2008.
Fyrra útboðið snerist um rekstrar-
vörur fyrir speglun. Fjögur fyrirtæki
sendu inn tilboð; Inter, AIH, Fastus
og Icepharma.
Útboðinu var skipt í ellefu liði og
var í sjö þeirra gengið að tilboði Inter.
Í einu tilviki til viðbótar var gengið að
tilboðum þriggja fyrirtækjanna, þar á
meðal Inter.
Fjögurra manna faghópur mat út-
boðið, skipaður fjórum starfsmönn-
um spítalans, þar af tveimur læknum
og einum hjúkrunarfræðingi ásamt
fulltrúa frá innkaupa- og vörustjórn-
unarsviði.
Tugmilljóna viðskipti
Engar upplýsingar fengust um um-
samdar greiðslur Landspítalans til
Inter vegna viðskiptanna. Telja má
víst að viðskiptin hlaupi á tugum
milljóna, hið minnsta, enda um dýr
tæki að ræða.
Anna Lilja Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Land-
spítalans, vísar í því sambandi í
fimmtu grein upplýsingalaga þar
sem tekið er á takmörkunum á upp-
lýsingarétti vegna einkahagsmuna.
Þar segir: „Óheimilt er að veita al-
menningi aðgang að gögnum um
einka- eða fjárhagsmálefni einstakl-
inga sem sanngjarnt er og eðlilegt að
leynt fari, nema sá samþykki sem í
hlut á. Sömu takmarkanir gilda um
aðgang að gögnum er varða mikil-
væga fjárhags- eða viðskiptahags-
muni fyrirtækja og annarra lögaðila.“
Þorvaldur neitaði einnig að upp-
lýsa um hversu mikið Landspítal-
inn hefði greitt honum vegna útboð-
anna. „Fyrst spítalinn neitar því, þá
neita ég því líka,“ segir hann.
Formleg athugasemd
Seinna tilboðið snerist um rekstrar-
leigu á speglunartækjum fyrir deild-
ina.
Við opnun útboðsins var bókuð
athugasemd frá Stefáni A. Stefáns-
syni, sem þá starfaði hjá Icepharma,
þar sem hann óskar eftir því að fulls
trúnaðar verði gætt um tilboðsgögn
„... vegna þeirrar stöðu að deildar-
stjóri speglunardeildar er tengd-
ur einum bjóðanda og því ættu til-
boðsgögn ekki að fara í hendur þess
starfsmanns LSH.“
Anna Lilja segir í skriflegu svari til
DV: „Í báðum útboðum var sérstök
áhersla lögð á að tryggja eins vel og
hægt væri að ekki yrði um hagsmuna-
árekstra að ræða. Hjúkrunardeildar-
stjóri speglunardeildar, sem tengd-
ist einum bjóðenda, kom því ekki að
vinnu faghópa við gerð útboðslýsinga
né yfirferð og mati tilboða.“
Þrír aðilar buðu í seinna útboð-
inu; Inter, Icepharma og Fastus. Sex
manna faghópur fór yfir tilboðin og
gengið var að tilboði Icepharma.
6 þriðjudagur 22. september 2009 fréttir
Ráðherra ósáttur
við bankamenn
Jón Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra telur að fyrrverandi stjórn-
endur Glitnis hafi brotið lög
þegar þeir settu kvótaveð sem
tryggingu gegn erlendu láni.
Stöð 2 greindi frá því um
helgina að skilanefnd Glitnis
hefði komist að samkomulagi
við seðlabanka Lúxemborg-
ar um að íslensk útgerðarfyr-
irtæki fái fimm ár til að endur-
fjármagna skuldabréf sem lentu
í höndum bankans við hrun
Glitnis. Eru bréfin með veði í
kvóta nokkurra stærstu útgerða
landsins.
Jón Bjarnason sagði í hádeg-
isfréttum Bylgjunnar í gær að
ekki væri hægt að veðsetja afla-
heimildir. „Allur þessi gjörning-
ur sem verið er að lýsa orkar tví-
mælis,“ sagði hann.
Þjófnaðir
og óregla
Lögreglan á Selfossi hafði í
nógu að snúast í síðustu viku.
Á fimmtudaginn hafði lögregla
afskipti af óreglufólki sem var
á ferð á Selfossi og öðrum hóp
sem var til vandræða í orlofs-
húsi í Grímsnesi. Grunur leik-
ur á að annar hópurinn hafi
haft í hyggju að fremja rán en
einn úr hópnum var vopnaður
skrúfjárni og var með í fórum
sínum dulu til að skýla andliti.
Þá var brotist inn í sumar-
bústað á Flúðum og tvö íbúð-
arhús í Hveragerði auk þess
sem farið var inn í ólæst íbúð-
arhús í Reykholti og fartölvu
stolið.
Uppsveifla á hús-
næðismarkaði
Fimmtíu og sjö kaupsamningum
með íbúðarhúsnæði var þinglýst
á höfuðborgarsvæðinu í síðustu
viku og er það meira en hefur
verið í einni viku síðan í október
í fyrra. Þegar litið er á meðaltal
síðustu fjögurra vikna stendur
það í 46 samningum á viku og er
fjöldinn í síðustu viku því meiri
en hefur verið að meðaltali und-
anfarið.
Þetta kemur fram á vef Grein-
ingar Íslandsbanka. Þar kemur
fram að íbúðaverð á höfuðborg-
arsvæðinu hafi hækkað bæði
í júlí og ágúst, samtals um 1,1
prósent, eftir að hafa lækkað
samfellt frá því í júlí í fyrra sam-
kvæmt verðvísitölu Fasteigna-
skrár Íslands. Það er þó mat
Greiningar Íslandsbanka að
húsnæðisverð muni fara lækk-
andi á næstu misserum.
Fíkniefni og
ölvunarakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði för þriggja öku-
manna í umdæminu um helgina
sem allir voru undir áhrifum
fíkniefna. Tveir voru stöðvaðir á
sunnudag, annar í Kópavogi en
hinn í Breiðholti, en sá þriðji var
tekinn í Hafnarfirði í nótt. Um
var að ræða þrjá karla, tvo á þrí-
tugsaldri og einn undir tvítugu.
Fleiri fíkniefnamál komu á
borð lögreglunnar um helgina
því hún hafði afskipti af þremur
körlum á þrítugsaldri sem allir
eru grunaðir um fíkniefnamis-
ferli.
Stór hluti þeirra tækja sem keyptur hefur verið fyrir speglunardeild Landspítalans
kemur frá fyrirtækinu Inter ehf. Deildarstjóri speglunardeildar og eigandi Inter eru
hjón. Framkvæmdastjóri fjárreiðna hjá Landspítalanum segir að tengdum aðilum sé
haldið utan við ákvarðanir um tækjakaup.
HJÓN BEGGJA
VEGNA BORÐSINS
„Fyrst spítalinn
neitar því, þá neita
ég því líka.“
Dýr tækjakaup Engar upplýsingar fengust um umsamdar greiðslur Landspítalans
til Inter vegna viðskiptanna. Telja má víst að viðskiptin hlaupi á tugum milljóna, hið
minnsta, enda um dýr tæki að ræða.
MynD GuðMunDur ViGFúSSon
neitar að upplýsa Anna Lilja Gunnarsdóttir neitar
að upplýsa um þær fjárhæðir sem skiptu um hendur
og vísar til laga um takmarkanir á aðgangi að gögn-
um um fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja.
„Við vorum í húsnæði á ská á móti
Hamborgarabúllu Tómasar. Við byrj-
uðum að æfa þar en samstarfið gekk
ekki upp þannig að við misstum þá
aðstöðu. En stjórnin okkar er svo öfl-
ug að hún fann samdægurs húsnæði
sem við getum æft í,“ segir Svava
Björk Ólafsdóttir, meðlimur Stúd-
entaleikhússins. Hópurinn æfir nú
nýja leiksýningu í leikstjórn Tinnu
Lindar Gunnarsdóttur í Leikhús
Batteríinu í Hafnarstræti. Því miður
getur hópurinn ekki sýnt sýninguna
þar og leitar að sýningarhúsnæði.
„Við erum eiginlega á götunni.
Okkur vantar frekar stórt rými og
hrátt, hálfgert iðnaðarhúsnæði. Við
vonum að einhvern vanti smá líf í
húsnæðið sitt. Við sýnum í byrjun
nóvember þannig að það er enn tími
en það er erfitt að hafa ekki stað til
að sýna á. Það væri gott að fá hús-
næði sem fyrst til að æfa í og finna
möguleikana sem rýmið býður upp
á,“ segir Svava. Hún segir stjórn
Stúdentaleikhússins hafa leitað að
húsnæði að undanförnu en það hafi
ekki borið mikinn árangur. Þeir sem
telja sig luma á opnu, hráu og stóru
rými fyrir þessa skapandi starfsemi
er því bent að hafa samband við leik-
listarhópinn sem hefur gert það gott
með sýningar sínar á undanförnum
misserum.
Aðspurð um leiksýninguna sem
hópurinn æfir af kappi þessa dagana
getur Svava lítið sem ekkert sagt.
„Þetta er sýning sem við munum
skapa sjálf. Þetta er rosa spennandi
verkefni og flott sýning. En sögu-
þráðurinn er leyndarmál.“
liljakatrin@dv.is
„Erfitt að hafa ekki stað“
Stúdentaleikhúsið missti húsnæðið og leitar að stað til að sýna:
Í húsnæðisleit Fyrr á árinu setti Stúdentaleikhúsið upp verkið Þöglir farþegar eftir
Snæbjörn Brynjarsson.
Erla HlynSDóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is