Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2009, Side 11
Spurning:
Ég er í vandræðum með nágranna
minn. Ég gaf leyfi fyrir hundi sem
síðan féll frá. Síðan þá hefur annar
hundur komið í húsið. Nágranni
minn telur að ég hafi leyft honum að
hafa hund á meðan hann býr þarna.
Er það rétt? Getur verið að samþykki
mitt forðum sé svo víðtækt?
Svar:
Hundahald er að meginstefnu
bannað nema að fengnu leyfi við-
komandi sveitarfélags. Hvert sveit-
arfélag hefur sett sér samþykkt um
hundahald. Í slíkum samþykktum
er ýmist vísað í lög um fjöleign-
arhús eða sérstaklega tilgreint að
samþykki meðeiganda í fjölbýli
sé áskilið. Leyfi til hundahalds er
ekki veitt af viðkomandi sveitarfé-
lagi nema tilskilið samþykki með-
eigenda í fjölbýli liggi fyrir þar sem
það á við. Í flestum tilfellum þarf
samþykki allra meðeigenda í fjöl-
býli nema um sé að ræða sérinn-
gang. Samþykktir sveitarfélaga eru
þó mismunandi og í sumum til-
vikum myndi samþykki allra einn-
ig vera áskilið jafnvel þótt um-
sækjandi hefði sérinngang að íbúð
sinni. Hafi nágranni þinn þurft
leyfi á sínum tíma þá gilti það fyrir
tiltekinn hund. Þegar hundur fell-
ur frá verður að fá leyfi fyrir nýj-
um hundi. Samþykki meðeiganda
í fjölbýli er þannig bundið við til-
tekinn og ákveðinn hund, það er
þann hund sem um ræð- ir þeg-
ar samþykki er gefið. Fallist
nágranni þinn ekki á
þessi rök getur
þú leit-
að til
hundaeftirlits þíns sveitarfélags
sem mun taka málið til afgreiðslu.
Spurning:
Ég er í vandræðum með nágranna
minn en hún er leigjandi og á ekki
íbúðina. Hún heldur því fram að ég
megi ekki vera með kött þrátt fyrir að
eigandi íbúðarinnar sem hún leigir
af hafi gefið skriflegt samþykki fyrir
því á sínum tíma ásamt öllum í hús-
inu. Hún segir að það dugi að íbúi
leggi fram kröfu um að köttur fari og
þá verði að fara eftir því.
Svar:
Einungis eigandi íbúðar getur
samþykkt eða synjað leyfi til gælu-
dýrahalds. Eina úrræðið sem ná-
granni þinn hefur er að snúa sér
að leigusala og eiganda íbúðar-
innar. Mögulega gæti leigjandi sagt
upp samningi en það er milli hans
og leigusala og um lögskipti þeirra
gilda húsaleigulög.
Spurning:
Nýverið var leigð út íbúð í stigagangi
mínum og þar eru nú komnir tveir
kettir. Ekki var óskað eftir samþykki
mínu. Ég hefði ekki veitt það enda er
ég með astma og þoli illa sambúð við
dýr þótt mér sé alls ekki illa við þau.
Hvað get ég gert? Er nóg að ég fái
vottorð sérfræðings til að fá
kettina út?
Svar:
Einungis eigendur íbúða
geta
veitt
leyfi fyrir kattahaldi þar sem sam-
þykki fyrir slíku er áskilið. Að auki
er samþykki allra eigenda í viðkom-
andi stigahúsi áskilið samkvæmt
lögum um fjöleignarhús og sam-
þykktum um kattahald enda óum-
deilt að köttur þarf og mun fara um
sameiginlegt húsrými. Fyrsta skref-
ið væri því að hafa samband við
eiganda íbúðarinnar, það er leigu-
sala nágranna þíns. Óvíst er að eig-
andi hafi veitt leigjanda leyfi fyrir
kattahaldi og því allar líkur á því að
leigusali grípi til viðeigandi ráðstaf-
ana. Gangi það ekki eftir getur þú
snúið þér til dýraeftirlits þíns sveit-
arfélags. Eins og staðan er í dag eru
kettirnir þarna í óleyfi og án sam-
þykkis. Eigandi sem beðinn er um
að samþykkja kattahald getur synj-
að því án þess að gefa upp sérstak-
ar ástæður fyrir því. Það þarf því
ekki að leggja fram sönnur fyrir of-
næmi eða öðrum sjúkdómum þeg-
ar slíkri beiðni er synjað. Hins veg-
ar geta komið upp þær aðstæður
að ofnæmi komi upp eftir að leyfi
hefur verið veitt og í þeim tilvikum
verður að leggja fram fullnægjandi
sönnun fyrir slíku. Við slíkar að-
stæður getur niðurstaðan orðið sú
að köttur sem áður var gefið sam-
þykki fyrir verði að víkja.
neytendur 22. september 2009 þriðjudagur 11
gæludýr
í fjölbýli
guðbjörg Matthíasdóttir, lögfræðingur Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum lesenda.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
Dýrahald í fjölbýli Samþykki
allra meðeigenda í fjölbýli þarf til
að mega halda hunda eða ketti.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
WWW.SVAR.IS
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
SKÓLATILBOÐ!
ALLT AÐ 8 KLST
RAFHLÖÐUENDING
FÁST Í ÖLLUM
REGNBOGANS LITUM