Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2009, Page 22
„Ég er ekki að kveinka mér eða að
kvarta, en menn hljóta að átta sig á
því að þegar einkalíf manns er skoð-
að eins og um sé að ræð [sic] gull-
fisk í búri er staðan undarleg,“ segir
Gunnar Þorsteinsson, kenndur við
trúfélagið Krossinn, í pistli sem birt-
ist á heimasíðu Krossins síðastliðinn
föstudag.
Gunnar og kona hans, Ingibjörg
Guðnadóttir, tilkynntu í síðustu viku
að þau hefðu tekið ákvörðun um að
skilja. Gunnar segir í pistlinum að
fjölmiðlar hafi farið mikinn og undr-
ist hann að sá „harmleikur“ sem
hjónaskilnaður sé skuli vera tilefni til
frétta dag eftir dag. Hann segir jafn-
framt að hann viti ekki hvað næstu
dagar beri í skauti sér, en hann hafi
það eina úrræði að leggja líf sitt í
hendur Guðs og gera sitt besta. „Ég
þekki Guð þannig að ég veit að í
Honum er ávallt nýtt upphaf, jafnvel
fyrir mig. Þessa dagana finn ég vel að
ég er skapaður af leiri jarðar,“ segir
Gunnar.
Eins og greint var frá í nýjasta
helgarblaði DV eru meðlimir Kross-
ins sumir hverjir nokkuð slegnir yfir
tíðindunum af skilnaði forstöðu-
hjónanna. Þeir líta samt björtum
augum til framtíðar en að mati sumra
ætti Gunnar að víkja sem leiðtogi
safnaðarins, að minnsta kosti tíma-
bundið, vegna skilnaðarins.
kristjanh@dv.is
Ólafur StephenSen:
Tónlistarmaðurinn Björn Krist-
jánsson, betur þekktur sem
Borko, eignaðist myndarlegan
son á dögunum. Þetta er fyrsta
barn Björns og heilsast móður,
barni og föður vel að því er DV
kemst næst. Tónlistarmaðurinn
hæfileikaríki nýtur lífsins þessa
dagana með frumburðinum og
ef marka má fésbókarsíðu kapp-
ans fær sonurinn að hlusta svo-
lítið á tónlist á milli blunda og
brjóstagjafa. Á samskiptasíðunni
alræmdu sagði Björn til dæmis
frá því í gær að sonurinn hefði
farið að gráta þegar hann heyrði
í Togga en róast þegar hann
heyrði í MGMT. Hvort lesa megi
einhverja merkingu í það um
tónlist þessara listamanna verð-
ur hér látið liggja á milli hluta.
22 þriðjudagur 22. september 2009 fólkið
líkir sér við gullfisk
Gunnar í Krossinum er eKKi sáttur við umfjöllun fjölmiðla:
Gunnar í Krossinum Segist ekki kveinka
sér eða kvarta. MYND GuNNar GuNNarssoN
Ofurskutlan og bloggarinn, Ás-
dís Rán Gunnarsdóttir, hefur
vakið mikla athygli eftir að hún
gerðist pistlahöfundur á press-
an.is. Í nýjasta pistlinum gefur
Ásdís lesendum sínum kreppu-
ráð og kennir stúlkum að gera
krullur í hárið með skeinipapp-
ír, ruslapoka og hárþurrku. Það
er óneitanlega skondin myndin
af þokkadísinni þar sem hún er
með pappírinn í hárinu, pokann
á hausnum og blæs undir hann
með hárþurrkunni. Það sýnir
þó að Ásdís tekur sig ekki of há-
tíðlega og setur lesendur sína í
fyrsta sæti þegar kemur að því að
útskýra kreppuráðið góða.
ruslapoki
og skeini-
pappír
grét yfir
togga
Borko jr.
„Það hafa myndast gríðarlegar væntingar hjá
börnunum um að fá nýbakað brauð og bakkelsi
þegar þau koma heim úr skólanum,“ segir Ólafur
Stephensen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðs-
ins, um hvað hann hafi fyrir stafni þessa dagana.
„Það er því nokkur pressa á manni,“ segir Ólaf-
ur léttur en hann lét óvænt af störfum sem rit-
stjóri blaðsins á föstudaginn eftir að hafa gegnt
því starfi í rúmt ár.
„Ég var líka að skoða hillukerfi í bílskúra í
morgun,“ en Ólafur hyggst nota þann frítíma
sem hann hefur á uppsagnarfresti sínum til þess
að sinna þeim heimilisverkum sem hafa setið á
hakanum og huga vel að fjölskyldunni. „Nú ætla
ég bara að taka mér góðan tíma í að ákveða hvað
ég ætla verða þegar ég verð stór,“ segir Ólafur um
hvað taki næst við hjá honum. „Ég hef alla tíð
verið blaðamaður. Ég byrjaði að vinna við það
sem strákur en ég ætla að taka mér góðan tíma í
að hugsa málin.“
Aðspurður hvað honum finnist um fjölmiðla-
flóru landsins, sem hefur dregist mikið saman
undanfarið, segist hann sakna fjölbreytninn-
ar. „Það er heldur lítið af dagblöðum orðið. Það
er nú alltaf skemmtilegast þegar flest blöð eru
í gangi og samkeppnin sem mest.“ Ólafur segir
erfitt að segja hvort tími frímiðla sé að líða und-
ir lok en þeir hafa verið nokkuð áberandi
hér á landi undanfarin ár. „Það hafa
nú verið unnin ákveð-
in þrekvirki í þeim
efnum. Það voru
ekki margir sem
spáðu Frétta-
blaðinu og Skjá
einum langlífi á
sínum tíma.“
Þó nokkrir
þekktir einstakl-
ingar hafa verið
nefndir til sögunn-
ar sem eftirmenn Ól-
afs á Morgunblaðinu.
Til dæmis Ólafur
Teitur Guðna-
son, Páll Magn-
ússon, Óskar
Magnússon,
Karl Blöndal
og síðast en
ekki síst Dav-
íð Oddsson.
Sjálfur segist
Ólafur ekki
hafa neinn sérstakan ein-
stakling í huga sem eft-
irmann sinn þó að hann
hafi skoðun á æski-
legri þekkingu hans og
reynslu. „Ég vona bara
að það verði einhver
góður blaðamaður.“
asgeir@dv.is
DV0909218404
DV0908257503_01.jpg
DV17437130208 david oddson 08_dúlla_
2_3.jpg
SH-0936-40-42883.jpg
Ólafur stephensen, fyrrverandi ritstjóri morgunblaðsins, bakar fyrir börnin sín
og skoðar hillukerfi í bílskúrinn en hann lét af störfum á föstudag. Ólafur ætlar að
hugsa sig vel um áður en hann ákveður hvað hann tekur sér næst fyrir hendur og
hefur þá ósk eina varðandi eftirmann sinn að hann verði góður blaðamaður.
Bakar fyrir
Börnin
Hver tekur við?
Ólafur vill fá góðan
blaðamann í sinn stað.
Ólafur stephensen Pressa er á
Ólafi frá börnunum að taka á móti
þeim með nýbakað brauð þegar
heim úr skólanum er komið.