Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2009, Side 14
Miðvikudagur 21. október 200914 HeiMili og rúM
1. Í svefnherberginu má ekkert
hafa sem minnir á vatn. Það mega
til dæmis aldrei vera þurrkuð blóm
inni í svefnherbergjum og heldur
ekki lifandi plöntur því það minn-
ir á vatn, hins vegar er í lagi að hafa
silkiblóm.
2. Fötum fylgir mikill óróleiki og því
er það slæmt að hafa opin fatahengi
inni í svefnherbergi.
3. Ýmsir hlutir eiga að geta ýtt und-
ir rómantíkina í svefnherberginu, til
dæmis er gott að hafa tvo litla, bleika
steina á suðvestursvæði hjónaher-
bergisins en það er talið rómantísk-
asta rýmið í svefnherberginu.
4. Það er ekki gott að hafa rúm upp
við vegg þar sem klósett er hinum
megin. Betra er að hafa skáp þar.
5. Ef það er sjónvarp í svefnherberg-
inu þá þarf að hylja skjáinn á nótt-
unni, til dæmis með því að hafa
sjónvarpið inni í þar til gerðum skáp
sem hægt er að loka.
6. Það er mikilvægt að hafa rúm-
ið staðsett þannig að maður sjái
auðveldlega hver er að koma inn í
svefnherbergið. Ef það er ekki hægt
þá er hægt að setja lítinn spegil of-
arlega á vegginn á móti dyrunum.
7. Mjög mikilvægt er að sofa með
hvirfilinn í eina af sínum bestu átt-
um.
8. Engir oddhvassir hlutir eiga að
vera yfir höfðagafli, heldur ekki
myndefni sem sýnir slíkt.
9. Spegla þarf að staðsetja þannig að
ekki sé hægt að sjá spegilmynd sína
í speglinum beint úr rúminu.
9 Feng Shui-ráð
1. Það kemur að því, þegar börnin
eldast, að fljúgandi ofurhetjur og
bleikar prinsessur hætta að vera
spennandi. Þá gæti verið spennandi
að breyta herberginu; mála til dæm-
is heilan vegg með krítarmálningu,
hengja upp
diskókúlu
og skipta
prinsessu-
lampanum
út fyrir
diskólampa
sem fást í
Toys´R´Us.
2. Ekki
„drekkja“
veggj-
unum í
barna-
herberginu í Disney-fígúrum og
dúlleríi. Þegar börnin eru enn þá
bara kríli og hafa enga skoðun á
því hvað skreytir veggina hjá þeim
getur verið hlýlegra og meira róandi
fyrir þau að hafa veggina í mildum,
ljósum litum og skreyta þá með
nokkrum bókstöfum, stjörnum eða
öðru smálegu.
3. Dót og aftur dót! Nútímabörn
virðast eiga endalaust af dóti sem á
það til að dreifast um allt hús. Það
eina sem virkar til að koma skipulagi
á dótahrúguna eru hirslur og þá
margar smærri frekar en fáar og
stórar því þá er bara öllu hent í einn
haug og
ekkert
skipulag;
LEGO-
karlarnir
vilja ekki
deila
plássi
með
Playmo-
dúddunum! Nógu margar hirslur
ættu að leysa dótahrúguvandann
og krakkarnir hafa bara gaman af
því að sortera allt í „sína“ skúffu; spil
í eina, dúkkuföt í aðra, kubba í þá
þriðju, ofurhetjur í þá fjórðu o.s.frv.
4. Ef krakkakrílið þitt fílar að kríta
og þér finnst venjuleg krítartafla
vera of lítil og of mikið að fórna
heilum vegg undir krítar-„töflu“
er besta lausnin að afmarka
krítarsvæðið með þremur spýtum
sem þess vegna er hægt að mála
í einhverjum lit sem passar vel við
herbergið. Lárétta spýtan nýtist þá
líka sem hilla undir krítarnar eða
hvað sem er.
5. Veggfóður getur virkað vel í
barnaherbergjum; ef það er mjög
skrautlegt og æpandi er feikinóg að
veggfóðra bara einn vegg með því.
Blómarósir vilja kannski eitthvað í
þessa áttina og ef rósin ykkar þráir
gæludýr gæti trúðfiskur í glerkúlu
slegið í gegn; hver vill ekki eiga einn
ofursætan Nemó inni hjá sér?
6. Herbergi undir súð bjóða upp á
ýmsar lausnir; hallandi veggir bjóða
kannski ekki upp á mikið skraut en
þá er tilvalið að leggja áherslu á þá
sem ekki halla. Í þessu tilfelli ramm-
ar veggfóðrið gluggana áberandi
inn og gefur herberginu karakter.
Súðina er hægt að nýta undir
kommóður, bókahillur, dótakassa
og jafnvel rúmið því barnið liggur jú
oftast þar og því ekki nauðsynlegt
að hafa fulla lofthæð yfir því.
barnaherbergið
20 ráð fyrir
Í BOði HúSa OG HÍBýLa
Í boði Húsa og híbýla
Svefnherbergið Það er í mörg horn
að líta þegar kemur að Feng Shui.
RugguRúmið
Það var hönnuðurinn Manuel Klo-
ker sem hannaði ruggurúmið. Þar
sameinar hann rúmið og hinn sí-
gilda ruggustól. Rúmið á að rugga ró-
lega fram og til baka og svæfa mann
eins og ungbarn. Stykkið kostar tæpa
milljón.
SegulRúmið
Er eins og nafnið gefur til kynna einn
stór segull sem getur haldið 900 kíló-
um fljótandi í loftinu. Til þess að
rúmið fari ekki af stað er það fest
með fjórum köplum í veggina. Hol-
lendingurinn Janjaap Ruijssenaars
hannaði rúmið og það er til sölu á
tæpar 200 milljónir.
SameindaRúmið
Samanstendur af 120 mjúkum bolt-
um og hannað af Animi Causa. Inn-
blástur rúmsins er sóttur í sameind-
ir eða „molecules“ en kúlurnar loða
saman og mótast nokkurn veginn að
vild. Hægt er að skapa hina ýmsu fleti
til þess að leggja sig á.
HljóðRúmið
Lítur út eins og stór trékassi en er í
raun bara rúm inni í hátalara. Ofan
í rúminu er fullkomið surround-
hljóðkerfi sem þekur allan líkamann
með hljóðbylgjum. Hannað af Kaffe
Matthews en aðeins sem sýningar-
gripur hingað til.
líkkiStuRúmið
Fyrirtækið The Casket Furniture
Company hannaði rúm í líkkistu fyrir
nokkru. Samkvæmt heimasíðu fyrir-
tækisins hefur verið mikil eftirspurn
eftir líkkisturúminu en það kostar
um hálfa milljón ytra.
tölvuRúmið
Er ekki eins og nafnið gefur til kynna
tölvustýrt rúm. Heldur er það ósköp
venjulegt rúm sem sameinar í raun
skrifborð og svefnaðstöðu. Þegar
rúmið er niðri er hægt að sofa í því en
ef því er velt upp breytist það í skrif-
borð án þess þó að þú þurfir að færa
nokkurn skapaðan hlut til á skrif-
borðinu sjálfu.
SófaRúmið
Reynir að brjóta upp hið hefðbundna
form svefnsófa. Er í raun sófi í tveim-
ur hlutum og fallegur í þokkabót. Þeg-
ar honum er svo rennt saman breytist
hann í hjónarúm í fullri stærð í miðri
stofunni. Hentar eflaust frábærlega í
litlum stúdíóíbúðum eða sem leyni-
gestarúm af bestu gerð.
HamboRgaRaRúmið
Var hannað af Keylu nokkurri Kromer
frá Texas. Hægt er að gerast aðdáandi
þess á Facebook og á hamburgerbed.
com. Rúmið er í raun ekki til sölu því
eftirspurnin er ekki til staðar að sögn
Keylu. Hennar reynsla er að fólk segist
vilja hamborgararúm en láti svo ekki
verða af því þótt það standi til boða.
Það eru til alls kyns undarleg rúm og sum þeirra eru hreinlega fáránleg. Íslendingar eru
nú ekki undarlegum rúmum ókunnir enda sennilega átt heimsmetið í flestum vatns-
rúmum miðað við höfðatölu í heiminum. DV tók saman nokkur stórfurðuleg rúm.
kynleg
Rúm