Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2009, Síða 22
Svarthöfði er næmur á hin hár-fínu blæbrigði tilverunnar og veit því iðulega hvað klukkan slær og þarf því ekki að reiða
sig á spádóma og framtíðarsýn há-
skólamenntaðra spekinga og hinna
fjölbreyttu greiningardeilda tilverunn-
ar. Svarthöfði sá því aldrei ástæðu til
þess að taka nokkurt mark á greining-
ardeildum bankanna sem voru þegar
upp var staðið svo glámskyggnar að
þeim var fyrirmunað að sjá fyrir eigin
dauða. Eiginlega minna greiningar-
deildir hrundu bankanna einna helst
á falsspákerlingar sem eru góðar í að
giska út í loftið og blekkja þannig auð-
trúa sálir en er um leið lífsins ómögu-
legt að græða á getraunum eða lottói.
Og alltaf verða þær jafn hissa þegar
þær lenda undir strætisvagni.
Svarthöfði hefur aldrei fallið fyr-ir fréttum miðla og spákerl-inga að handan þótt Svart-höfða hafi dregið hann á stöku
miðilsfund í gegnum tíðina. Traust
Svarthöfða á eigið brjóstvit bjargaði
honum þannig frá því að taka mynt-
körfulán og kaupa marmarahöll,
jeppa með fellihýsi og 45 tommu flat-
skjá í eldhúsið. Svarthöfði var nefni-
lega góðu heilli vakandi í eðlisfræði-
tímanum í barnaskóla þar sem talað
var um orku. Hann veit því að orka
verður aldrei til úr engu og þar sem
peningar eru ekkert annað en orka
vissi Svarthöfði ætíð upp á sína tíu
fingur að ofsagróði íslensku pappírs-
tígrisdýranna væri bara plat.
Því er þó ekki að neita að Svarthöfða fannst svolít-ið fyndið á sínum tíma að íslenskir auðmenn skyldu
getað komist inn á Forbes-listann yfir
ríkustu menn í heimi. Það var magn-
að. Svarthöfði gefur þó ekki túkall fyrir
svona Forbes-lista en treystir hiklaust
á lista yfir vinsælustu lögin, tónlistar-
fólkið og gengisvísitölur kvikmynda-
leikara og Parisar Hilton. Þessir listar
eru nákvæmlega stilltir taktmælar á
gang tilverunnar.
Á meðan góðærisgeggjunin var í hámarki var allt mor-andi í frægu fólki á Íslandi. Gerard Butler, Matt Damon,
Quentin Tarantino og Eli Roth settu
svip sinn á næturlífið og Tarantino
hafði svo gaman af því að horfa á Ís-
lendinga kveikja í peningum að hann
gat ekki stillt sig um að hanga hér fram
yfir áramót.
Á þessum tíma fór ekkert á milli mála að Ísland var stórasta land í heimi og því ekkert eðlilegra en auðmenn
skelltu sér til Kína að horfa á silfur-
drengina fara á kostum í ólympíu-
keppninni í handbolta. Sigurvíman
og trylltur fögnuðurinn yfir því hversu
æðisleg og stór við erum var varla
runninn af þjóðinni þegar rothöggið
kom. Góðærið var feik og við vorum
bara ekkert stór, hipp og kúl heldur
niðurlægðir aumingjar sem hafa nú
mátt í heilt ár staulast með betlistaf
um heimsbyggðina.
Svarthöfði fær þó ekki betur séð en að nú sjái fyrir endann á þessari niðurlægingu og að landið sé byrjað að rísa. Við
losnum sennilega við Icesave-dell-
una úr umræðunni á næstunni og
getum farið að byggja upp á ný þótt
einhverjir boltastrákar á stuttbuxum
og veruleikafirrtir framsóknarmenn
virðist enn vera í Kína-vímu síðan í ág-
úst 2008 og standi í þeirri meiningu að
við séum enn stórust í heimi og í stakk
búin til að fara í slag við Hollendinga
og Breta. Hver heilvita maður sér auð-
vitað að gjaldþrota þjóð sem á hvorki
skriðdreka né kafbát verður óhjá-
kvæmilega beygð í duftið.
Þrátt fyrir Icesave-niðurlæg-inguna og óbragðið sem henni fylgir erum við á upp-leið en það sést best á því að
fræga fólkið er farið að láta sjá sig á
ný. Allt byrjaði þetta á því að ljósgjaf-
inn Yoko kom til landsins og aldrei
þessu vant fylgdu ekki hörmungar
í kjölfarið. Þetta var góður fyrirboði
og ekki spillti fyrir að sagan segir að
gleðiglyðran Lindsay Lohan hafi
verið í föruneyti Yoko. Ef Lindsay
nennir að koma hingað þá
erum við að komast aftur
á kortið. Og svo flaug
sjálfur John Travolta
hingað um helg-
ina, staldraði
við og borðaði
góðan mat.
M
eira er ekki um
þetta að segja. Þetta
er allt að koma.
Þetta er allt að koma
Spurningin
„Já, það eru fleiri mat-
hákar heldur en ég,“
segir Páll Winkel,
forstjóri Fangelsis-
málastofnunar. Í
viðtali við DV í gær
kom fram að hver
fangi fær 1.300
krónur á dag til
hráefniskaupa. Á það að duga fyrir
mat og hreinlætisvörum. Taldi Páll ekki
svigrúm til þess að lækka þessa
upphæð miðað við núverandi árferði.
eru fangar miklir
mathákar?
„Ég hef nú
gert annað
eins.“
Bubbi Morthens sem
hvetur Friðrik Ómar til að
leiðrétta útgáfu hans af laginu Rómeó
og Júlía sem nú hljómar á útvarpsstöðvunum.
Bubbi segist sjálfur hafa þurft að gera slíkt.
– Fréttablaðið
„Hefði verið fínt
að fá smá
tilbreytingu.“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari um að hann sé
orðinn þreyttur á því að mæta Frökkum en
Ísland leikur gegn liðinu í undankeppni HM.
– Fréttablaðið
„Breiðavík
hvað?“
Segir Mummi í
Götusmiðjunni en hann
segir íslenska ríkið engan
áhuga hafa á því að hjálpa
íslenskum ungmennum í vanda. Ofbeldið í dag
felist í aðgerðaleysi embættismanna sem sinna
ekki málunum. Hann hefur horft á eftir ófáum
krökkum í gröfina. – DV
„Greiðsluþrot
þjóðarbúsins
verður vart
umflúið.“
Gunnar Tómasson
hagfræðingur sem varar íslenska
ríkið við gífurlegum erlendum skuldum miðað við
þjóðarframleiðslu og að verði aðgerðaáætlun ekki
breytt fari þjóðarbúið í þrot. – DV.is
„Fordæmir skilyrðislaust
og með skýrum hætti það
ofbeldi.“
Ríkisstjórn Íslands sem fordæmir aðsúg að
heimilum fólks í mótmælaskyni. Gott að vita til
þess að ríkisstjórnin gefi sér tíma til að sinna þeim
málefnum sem brýnust eru. – mbl.is
Far í friði, séra Gunnar
Leiðari
Séra Gunnar Björnsson, sóknarprest-ur á Selfossi, er hlýr maður. Svo hlýr er hann að fimm stúlkur úr söfnuði hans telja sig vera brenndar af sam-
skiptum við hann.
Stúlkurnar fimm kærðu séra Gunnar fyr-
ir kynferðislega áreitni eftir að hann „faðm-
aði þær og kyssti“. Í dómsniðurstöðu kem-
ur fram lýsing stúlknanna á upplifun þeirra
af framferði séra Gunnars. Þær lýsa slæmri
líðan sinni vegna ítrekaðra faðmlaga og
kossa sóknarprestsins. Það skal tekið fram
að séra Gunnar var sýknaður í héraðsdómi
og Hæstarétti og telst saklaus af ásökunum
um kynferðislega áreitni. Engu að síður lýsa
stúlkurnar þeirri líðan sinni, að þær hræð-
ist að mæta sóknarprestinum úti á götu og
að málið hindri nætursvefn.
Undirritaður var fermdur af séra Gunn-
ari og hefur ekkert undan honum að kvarta.
Framkoma hans er elskuleg og hann geislar
af kærleika, nánast af þokka heilagleikans.
Séra Gunnar sýnir kærleika sinn með því að
faðma og kyssa konur sem karla, unga sem
aldna. Hins vegar verður hann að átta sig á
því að sú tilfinning stúlknanna ein og sér að
hann hafi gengið fram af þeim er mikilvæg-
ari áframhaldandi störf-
um hans á Selfossi.
Sakleysi séra Gunn-
ars útilokar ekki að hann
eigi að víkja. Stúlkunum
líður illa, og enn verr við
að séra Gunnar neiti að
hlýða tilmælum biskups
um að yfirgefa sóknina.
Og nú er svo komið að
sóknin er klofin. Aðeins
einn maður getur höggv-
ið á hnútinn og lægt öld-
urnar í sókninni. Það er
séra Gunnar, sami maður
og hefur skyldu til þess.
Prestur á ekki að stuðla að
ófriði, heldur stilla til frið-
ar. Prestur á að sameina,
ekki sundra. Hafi Gunn-
ar gengið of langt verður
hann að víkja. Sé hann hins vegar fullkom-
lega saklaus verður hann samt að víkja og
bjóða hinn vangann, eins og Jesús.
Í fermingarfræðslu
séra Gunnars ræddi
hann um týnda sauðinn.
Í dæmisögunni yfirgefur
fjárhirðirinn hjörð sína
til þess eins að endur-
heimta einn, sem hafði
aðskilið sig frá henni. Úr
hjörð séra Gunnars týnd-
ust fimm stúlkur. Hann
náði ekki að endurheimta
þær. Í stríði sínu um rétt-
læti tvístrar séra Gunnar
hjörðinni og klýfur hana
í tvær fylkingar.
Séra Gunnar vill ef-
laust vel, en nú er stundin
runnin upp fyrir hann að
yfirgefa hjörð sína, sauð-
anna vegna.
Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Nú er stundin runnin upp fyrir hann að yfirgefa hjörð sína, sauðanna vegna.
bókStafLega
22 miðvikudagur 21. október 2009 umræða
Sandkorn
n Drungalegt hefur verið
yfir Mogganum undanfar-
ið í kjölfar auglýsingafalls og
lesendaflótta. En öll él stytt-
ir upp um síðir. Nú heyrist
að sjálfur
Styrm-
ir Gunn-
arsson,
fyrrverandi
ritstjóri, hafi
undirgeng-
ist að skrifa
aðsendar
greinar í sitt
gamla blað og reyna þannig
að snúa óheillaþróuninni við.
Styrmir er goðsögn í heimi
fjölmiðlafólks. Hann gerði sitt
til þess að opna Morgunblað-
ið fyrir margvíslegum við-
horfum. Sjálfur er hann hvað
þekktastur fyrir hatramma
baráttu um árabil gegn kvóta-
kerfinu.
Flóttinn frá Moggablogginu
heldur áfram en nú hefur fem-
ínistinn vaski Sóley Tómas-
dóttir, sem bloggað hefur á
mbl.is við nokkrar vinsældir,
fært sig um set. Hún segist í
kveðjufærslu hafa oft velt því
fyrir sér á bloggferlinum hvort
mbl.is hafi verið rétti vettvang-
urinn fyrir hana og nú hafi
hún ákveðið að koma skoðun-
um sínum á framfæri á eigin
vegum í framtíðinni. Sóley er
þegar byrjuð að blogga á sinni
eigin síðu, www.soleytomas-
dottir.is.
Það verður skarð fyrir skildi
þegar Helgi Seljan hættir fastri
viðveru í Kastljósinu. Helgi
flytur til Ak-
ureyrar um
áramótin
og hefur
þar störf hjá
svæðisút-
varpinu.
Hann hætt-
ir þó ekki
alveg hjá
Kastljósinu því reiknað er með
að hann verði með innslög á
sínum gamla stað milli þess að
hann flytur Norðlendingum
fréttir af atburðum í héraði.
Prófkjörsbaráttan hjá Sjálf-
stæðisflokknum í Reykjavík er
að komast á fulla ferð. Margir
eru efins um Gísla Martein
Baldursson sem mun reyna að
halda öðru
sætinu.
Vandi Gísla
er sá að
hann hefur
ekki ræktað
bakland sitt
og er dálítið
á flæðis-
keri. Meðal
þeirra sem skorað er á að taka
slaginn um annað sætið er
Kjartan Magnússon borg-
arfulltrúi. Styrkur hans er að
vera duglegur og óumdeildur.
Það er því allt eins líklegt að
hann nái að skjótast upp fyrir
Gísla Martein. Þá er ólíklegt
að draumur Júlíusar Vífils
Ingvarssonar um að ná öðru
sætinu rætist. Hann gæti allt
eins dottið út ef baráttan æxl-
ast þannig.
LynghÁLs 5, 110 ReykjaVÍk
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: DV.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.