Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 FRÉTTIR GRÍNISTAR Í GULLGRYFJU Hver og einn þeirra fulltrúa Besta flokksins sem náðu kjöri í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag fær að lágmarki 440 þúsund krónur í mánaðarlaun. Þar að auki fær varaborgarfulltrúi flokksins að lágmarki 318 þúsund krónur fyrir sitt starf. Verði Jón Gnarr borgarstjóri fær hann rúma milljón á mánuði í laun. Flestar þær tillögur sem Besti flokkurinn lagði fram fyrir kosningar fela í sér kostnaðarauka fyrir Reykjavíkurborg en sveitarfélagið hefur takmarkað fé til framkvæmda. Borgarfulltrúar hjá Reykjavíkur- borg hafa að meðaltali 678 þúsund krónur í launagreiðslur á mánuði. Þetta hafa þeir fyrir setu í nefnd- um og ráðum á vegum borgarinn- ar en einnig fyrirtækja í eigu henn- ar. Grunnlaun borgarfulltrúa eru 404 þúsund krónur á mánuði og eru miðuð við áttatíu prósent af þing- fararkaupi. Ofan á þessi grunnlaun bætast við launagreiðslur fyrir ým- iss konar álagsvinnu og starfstengd- ar greiðslur. Besti flokkurinn fékk sex full- trúa kjörna í sveitarstjórnakosning- unum á laugardag. Enginn þeirra hefur gegnt opinberri stöðu á veg- um borgarinnar áður. Þó er ljóst að allir þessir fulltrúar munu hafa að minnsta kosti 440 þúsund krón- ur í grunnlaun verði ekki breyting- ar gerðar á launakerfi Reykjavík- urborgar. Þar að auki er líklegt að flestir þessara fulltrúa fái greiðslur ofan á störf sín fyrir margvíslegar álagsgreiðslur og afnot af fartölvu og farsíma. Forseti borgarstjórnar hef- ur einnig aðgang að bifreið og bif- reiðarstjóra. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur fengið rétt rúma eina milljón króna í mánaðarlaun en ofan á þau bætast greiðslur vegna stjórnarformennsku hennar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins og Almannavörnum upp á 106 þúsund krónur. Þetta eru laun hennar eftir fimmtán prósenta lækkun þeirra í aðhaldsaðgerðum borgarinnar. Kjör nýrra varamanna Besti flokkurinn hefur sex varaborg- arfulltrúa á sínum snærum sem fá allir launagreiðslur taki þeir sæti í borgarstjórn eða sinni einhverj- um störfum á vegum borgarstjórn- ar. Fyrsti varamaður hvers framboðs- lista fær samkvæmt samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg um 318 þúsund krónur í fastar greiðslur á mánuði. Í tilfelli Besta flokksins er þar um að ræða Pál Hjaltason arkitekt sem skip- ar sjöunda sæti framboðsins. Ef aðrir borgarfulltrúar taka sæti í einhverjum af þremur af fasta- nefndum borgarinnar geta þeir feng- ið greiðslur frá 30.368 krónum til 80.912 króna á mánuði, eftir því um hverja þeirra ræðir. Þeir fá greitt fyr- ir hverja af þeim nefndum sem þeir taka sæti í. Formenn nefndanna fá tvöfalda þóknun. Ef varaborgarfull- trúar taka sæti í einhverjum af fasta- nefndum borgarinnar fá þeir greidd- ar rétt rúmar tíu þúsund krónur fyrir hvern setinn fund. Varamenn sem sæti taka í borgarstjórn fá greiddar rétt rúmar tuttugu þúsund krónur fyrir hvern fund. Fyrirtæki borgarinnar Þar að auki má reikna með því að einhverjir fulltrúar Besta flokks- ins muni taka sæti í stjórnum fyrir- tækja borgarinnar. Fyrir stjórnarsetu í Orkuveitu Reykjavíkur fá fulltrúarn- ir 112 þúsund krónur og 90 þúsund krónur fyrir stjórnarsetu í Reykja- vík Energy Invest. Fyrir stjórnarsetu í Faxaflóahöfnum fást 81 þúsund krónur og Sorpu bs. 71 þúsund krón- ur. Gegni fulltrúarnir formennsku í stjórnum þessara fyrirtækja tvöfald- ast upphæðin. Þeir Kjartan Magnússon og Júlí- us Vífill Ingvarsson voru launahæstu borgarfulltrúarnir samkvæmt úttekt DV í janúar. Kjartan var með 936 þús- und krónur en Júlíus Vífill með 900 þúsund krónur. Kostnaðarauki fyrir borgina Þær hugmyndir sem Besti flokkur- inn vakti máls á í kosningabaráttu sinni hafa flestar falið í sér kostnað- arauka fyrir Reykjavíkurborg. Flest- ar tillögurnar gera ráð fyrir einhvers konar framkvæmdum af hálfu borg- arinnar. Flokkurinn hefur aðeins kynnt tvær hugmyndir sem hugs- anlegar leiða til tekjuaukningar fyrir sveitarfélagið. Önnur þeirra er hvít- flibbafangelsi sem flokkurinn hafði áhuga á að vinna að í samstarfi við Fangelsismálastofnun. Þá hefur flokkurinn einnig viðrað hugmynd- ir um tollahlið við Seltjarnarnes þar sem fólk sem eigi leið þar um þurfi að greiða sérstaklega fyrir ferðalag- ið. Óljóst er hvort nokkrar hug- myndir Besta flokksins fælu í sér kostnaðarauka fyrir sveitarfélag- ið. Þetta eru sem dæmi hugmynd- ir um að fá ísbjörn í Húsdýragarð- inn í Reykjavík og lundaklett. Besti flokkurinn hefur kynnt þessar hug- myndir með þeim hætti að þær geti skilað sér í auknum tekjum fyrir borgarsjóð vegna þess að þær laði að ferðafólk. Alvarlegri tillögur framboðsins fela í sér tekjutengingu leikskólagjalda, athugun á skynsemi þess að sameina Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla og að sundlaug- ar Reykjavíkur verði markaðssettar. Engar af tillögum Besta flokks- ins fela í sér verulegan kostnað fyr- ir Reykjavík. Helst eru þar þó hug- myndir framboðsins um að flytja húsin í Árbæjarsafni yfir í Hljóm- skálagarðinn í miðborgina og raf- bílavæðing Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá verktakafyrirtæki Einars og Tryggva má gróft áætla að kostnaður við flutning hvers húss og uppsetningu þess sé að minnsta kosti tíu milljónir króna. Þar eru yfir tuttugu hús. Þá hefur Einar Skúla- son, sem bauð sig fram fyrir Fram- sóknarflokkinn, haldið því fram að kostnaður við að koma ísbirni í Hús- dýragarðinn sé um 250 milljónir króna. Lítið svigrúm til framkvæmda Á heildina litið má þó segja að rekst- ur Reykjavíkurborgar sé ekki al- slæmur. Rekstrarniðurstaða af skatt- tekjuhluta borgarinnar, rekstri skóla, stjórnsýslu og tengdum stofnunum, var jákvæð um þrjá milljarða króna á síðasta ári. Aðra sögu er hins veg- ar að segja um þjónustuhluta borg- arinnar og fyrirtæki hennar. Þegar þessi tvö svið eru lögð saman var niðurstaðan neikvæð um 1,7 millj- arða króna á síðasta ári. Þetta bæt- ist við 71 milljarðs króna halla sem samstæðan skilaði af sér í hitteð- fyrra. Óhætt er að segja að rekstur Reykjavíkurborgar gefi ekki mik- ið svigrúm til fjárfestinga mið- að við núverandi forsendur. Í að- gerðaáætlun Reykjavíkurborgar, sem fyrrverandi borgarstjórn samþykkti til að bregðast við því ástandi sem var uppi í fjármál- um sveitarfélagsins, kemur fram að tekjur hennar hafi minnkað og kostnaður aukist. Auk þess sé uppi fjöldi vísbendinga um þrengingar í fjármálum sveitarfélaga. Vegna þessa var ákveðið að grípa til að- haldsaðgerða. Þetta fól meðal annars í sér að draga almennt úr útgjöldum borgarinnar. Þetta kall- aði meðal annars á forgangsröðun framkvæmda á vegum borgarinn- ar þar sem ákveðið var að fresta þeim eða draga úr kostnaði í sam- ræmi við áhrif á atvinnustig sveit- arfélagsins. Þá var gert ráð fyrir því að eignir yrðu seldar fyrir að lág- marki einn milljarð króna. Ekki mikið svig-rúm til fjárfest- inga miðað við núver- andi forsendur. Tekjuaukning: n Tollahlið við Seltjarnarnes n Hvítflibbafangelsi Útgjöld: n Stytta af Báru bleiku n Ný rennireið borgarstjóra n Frí handklæði í sundlaugum n Flytja húsin í Árbæjarsafni yfir í Hljómskálagarðinn n Flutningur á styttum yfir í miðborgina n Rafbílavæðing Reykjavíkur n Frítt í strætó fyrir aldraða, öryrkja og ungmenni n Fella aspir í miðbænum og gróðursetja hlyn, birki og hegg n Skapandi sumarstörf n Íslenskukennsla fyrir innflytjendur n Leikvellir fyrir eldri borgara n Flytja inn íkorna og froska n Hátíðarhöld vegna þakkagjörðar- dags og konukvölda n Setja upp nýjar girðingar og hundasvæði Óljós áhrif: n Ísbjörn í Húsdýragarðinn n Lundaklettur n Tekjutenging leikskólagjalda n Sameining Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla n Markaðssetning sundlauga Reykjavíkur Tillögur Besta flokksins fyrir kosningar RÓBERT HLYNUR BALDURSSON blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Engin stefna komin Besti flokkurinn hefur ekki kynnt áherslumálin í viðræðum sínum við fulltrúa Samfylkingarinnar. Óttarr Proppé hefur sagt flokkinn hafa velferðarmál og opnari stjórnsýslu í forgrunni en ómögulegt er að ráða í hvað kemur út úr stjórnarmyndunarviðræðunum. Framboðið hefur opnað vefinn betrireykjavik.is þar sem fólki gefst kostur á að koma fram hugmyndum við fulltrúana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.