Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Síða 3
FRÉTTIR 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR 3 Pólitísk fortíð SEXMENNINGA BESTA FLOKKSINS SVONA ÞEKKTUST ÞAU Jón Gnarr og Einar Örn Benediktsson Kynntust upphaflega í gegnum Þór Eldon, einn af stofnendum Sykurm- olanna og Smekkleysu þegar Jón er að gefa út sína fyrstu skáldsögu um Miðnætursólborgina, en bókin kemur út árið 1989. Tengsl milli hans og Einars voru lítil til að byrja með en þeir kynntust vel á þeim tíma sem hljómsveitin HAM var að stíga sín fyrstu skref. Sigurjón Kjartansson, einn af forsprökkum HAM, var með Jóni í einni hljómsveit sem hitaði upp fyrir tónleika Sykurmolana þar sem Jón las meðal annars upp úr Miðnætursólinni. Á Listahátíð árið 1995 fékk Einar Jón til að vera með sitt fyrsta uppistand í klúbbi þar. Síðan þá hefur verið gott samband milli þeirra tveggja. Jón Gnarr og Óttarr Proppé Kynntust sem unglingar, þegar þeir voru um fimmtán ára eða þar um bil. Þá var Jón á Núpi sem og bekkjarfé- lagi Óttars úr Hafnarfirði. Þeir tveir kynntust síðan í Núpspartíi og síðan þá hafa þeir ruglað saman reitum. Jón Gnarr samdi meðal annars texta fyrir hljómsveitina HAM og las upp ljóð á tónleikum hljómsveitarinnar. Helstu samstarfsverk þeirra hafa samt sem áður verið fólgin í sameiginlegri vináttu og samtölum þeirra á milli. Óttarr segir þá tvo alltaf hafa rætt málefni samfélagsins og umhverfisins en að þeir hafi ekki tekið þátt í pólitík á því stigi sem þeir gera nú. Jón Gnarr og Elsa Hrafnhildur Yeoman Þekkja hvort annað vel og hafa unnið saman við margt og ýmislegt. Elsa hefur starfað í matar- og veitinga- bransanum og er lærður smiður. Vinskapur hennar og Jóns varð til þess að hún skráði sig í Besta flokkinn upphaflega. Jón Gnarr og Karl Sigurðsson Tengsl þeirra Jóns Gnarrs og Karls Sigurðssonar má rekja langt aftur í tímann, eða allt aftur til áranna 1983 til 1986. Þá passaði Jón hann Karl þegar hann var á aldrinum tíu til þrett- án ára. Sjálfur var Jón þá með systur Karls en þau voru þá á unglingsaldri. Karl segist muna vel eftir því þegar Jón var að passa hann vegna þess að hann hafi alltaf verið að finna upp á einhverjum skemmtilegum leikjum. Síðan hafi Karl fylgst vel með störfum Gnarrs og leiðir þeirra legið oft og tíð- um saman á hinum ýmsu samkomum. Karl segir að Jóni hafi fundist gaman að honum en sjálfur lýsir hann sér sem litlu skrímsli sem hafi aldrei getað verið til friðs. Jón Gnarr og Eva Einarsdóttir Þekktust ekki persónulega fyrir kosningabaráttu Besta flokksins en Eva hafði þá lengi fylgst með störfum Jóns úr fjarlægð. Þau áttu sameigin- lega kunningja eins og Heiðu Kristínu Helgadóttur, kosningastjóra flokksins, og Gauk Úlfarsson fjölmiðlafulltrúa. Þau höfðu upphaflega samband við Evu og spurðu hvort hún vildi taka þátt í framboðinu. Eva segist aðeins hafa þekkt grínistann Jón Gnarr fyrir framboðið eins og annað venjulegt fólk, en síðar hafi hún kynnst því að hann væri umhyggjusamur fjölskyldu- maður þar sem stutt væri í glettnina. Einar Örn Benediktsson og Óttarr Proppé Hafa þekkst í gegnum alla mögulega starfsemi sem rekja má allt aftur til níunda áratugarins, eða hljómsveit- anna HAM sem Óttarr var í fararbroddi í og Purrk Pilnikk þar sem Einar var einn af forsprökkum. Einar Örn Benediktsson og Elsa Hrafnhildur Yeoman Kynntust ekki fyrr en fyrir nokkrum mánuðum í tengslum við framboðið. Að sögn Einars þykir honum Elsa þó mjög öflug og skemmtileg kona. Einar Örn Benediktsson og Karl Sigurðsson Einar Örn og Karl kynntust fyrst í gegnum framboðið og sameiginlegan vinskap þeirra við Jón Gnarr. Sjálfur segir Einar að það hafi verið mjög gaman að tala við Karl, hann sé frjór og skemmtilegur. Einar Örn Benediktsson og Eva Einarsdóttir Leiðir þeirra Einars og Evu lágu fyrst saman á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves árið 2006, en hún var að vinna fyrir hátíðina. Þau vissu þó af hvort öðru fyrir þann tíma. Þau störfuðu síðan einnig saman að stuðningsdiski sem gefinn var út fyrir samtökin Ísland-Palestína. Óttarr Proppé og Elsa Hrafn- hildur Yeoman Kynntust ekki fyrr en þau buðu sig fram fyrir Besta flokkinn. Óttarr þekkti hins vegar mann Elsu frá yngri árum en hafði aldrei kynnst henni eftir sem áður á þann hátt sem Besti flokkurinn hefur leitt þau saman. Óttarr segir kunn- ingsskapinn við Elsu hafa verið einn af ljósustu punktum kosningabaráttunnar. Óttarr Proppé og Karl Sigurðsson Óttarr og Karl þekkjast aðallega í gegn- um tónlistina þar sem þeir hafa komið fram, hvor með sinni hljómsveitinni. Sjálfir hafa þeir þó aldrei starfað saman fyrr en í framboði Besta flokksins þrátt fyrir að hafa þekkst í um þrjú ár. Jón og Óttarr voru einnig vinir á níunda áratugnum og segist Karl vera þess viss að Óttarr hafi verið að horfa á vídeó heima hjá honum í þá gömlu. Óttarr Proppé og Eva Einars- dóttir Þekktust óbeint áður en þau buðu sig fram fyrir Besta flokkinn í gegnum tón- listarstarf þeirra þegar Eva var að vinna fyrir tónlistarhátíðina Iceland Airwaves og Úttón. Hins vegar kynntust þau ekki persónulega fyrr en í framboðinu. Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson Elsa og Karl höfðu aldrei hist áður en þau gengu í Besta flokkinn. Þó hafa tekist góð kynni með þeim tveimur. Elsa Hrafnhildur Yeoman og Eva Einarsdóttir Þekktust ekki fyrr en á fyrstu stigum framboðsins. Að sögn Evu tókust hinsvegar með þeim góð kynni. Að sögn Evu þykir henni Elsa vera mjög litskrúðug og skemmtileg persóna. Karl Sigurðsson og Eva Einarsdóttir Eva og Karl þekktust ekki áður en þau buðu sig fram fyrir Besta flokkinn. Að sögn Karls líst honum þó afskaplega vel á að starfa með henni. Karl Sigurðsson Skráði sig í Vinstrihreyfinguna - grænt framboð fyrir síðasta prófkjör og tók þátt í því. Hann er enn skráður í flokkinn og hefur ekki tekið ákvörðun hvort hann skrái sig úr honum nú þegar hann hefur hlotið kjör sem borgarfulltrúi Besta flokksins. Fyrir nokkrum árum skráði hann sig í Sjálfstæðisflokkinn en staldraði stutt við þar. Var meðstjórnandi í nemendafélagi Menntaskólans í Hamrahlíð í einn vetur. Sjálfur segist Karl hafa verið flöktandi í pólitíkinni. Eva Einarsdóttir Er mikil áhugamanneskja um pólitík en hefur aldrei tekið þátt í opinberu starfi flokkanna áður. Hún segir hana og mann hennar hafa oftast valið þá leið að velja hvort sinn flokkinn í kosningum. Hún sé frekar höll undir vinstri væng stjórnmálanna. Hún er meðlimur samtakanna Ísland-Palestína. Elsa Hrafnhildur Yeoman Ekki er vitað til þess að hún hafi tekið þátt í pólitísku starfi áður en hún gekk til liðs við Besta flokkinn. Óttarr Proppé Hefur verið um víðan völl í pólitík en hefur frekar hallast að vinstri væng stjórnmálanna. Tók sem róttækur unglingur þátt í starfi Alþýðubandalagsins og hafði áhuga fyrir því að ganga í Kvennalistann. Þar fékk hann ekki inngöngu af augljósum ástæðum. Einar Örn Benediktsson Segist aldrei hafa verið skráður í stjórnmálaflokk og að hann hafi alltaf tekið afstöðu út frá eigin ranni frekar en með flokkspólitískum línum. Sjálfur segir hann takmarkanir fylgja því að vera skráður í flokk og að slíkt setji fólk inn í ramma. Árið 2008 tók hann þátt í skipu- lagningu Náttúrutónleikanna í Laugardalnum þar sem Björk tróð meðal annarra upp. Jón Gnarr Hefur verið út og suður í pólitík í gegnum tíðina. Hefur aldrei verið virkur í pólitík fyrr en í starfi Besta flokksins en hefur lesið sér mikið til. Hefur verið vændur um að vera á hægri væng stjórnmálanna, en hann studdi framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Gísla Marteins Baldurssonar. Guðlaugur Þór er fyrrverandi yfirmaður Jóns frá því í útvarpinu. Hefur þó sagst vera anarkisti og var á yngri árum mikill pönkari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.