Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 4
4 miðvikudagur 2. júní 2010 fréttir Steinþór byrjaður Ásmundur Stefánsson lét af störfum sem bankastjóri Lansdbankans á þriðjudag. Við starfinu tekur Stein- þór Pálsson. Ásmundur hefur gegnt stöðu bankastjóra frá 1. mars á síð- asta ári, en hann var áður formað- ur bankaráðs frá nóvember 2008. Í fréttatilkynningu segir að Ásmundur hafi tekið við rekstri bankans á erfið- um tímum en honum hafi tekist að byggja Landsbankann upp og hann skili bankanum af sér í „traustri stöðu eins og sjá má af afkomu bankans fyrstu þrjá mánuði ársins“ eins og segir í fréttatilkynningunni. Handrukkarar á Barnalandi Aðfaranótt þriðjudags auglýsti not- andi á vefsíðunni Barnaland.is eftir tveimur „góðum mönnum“ til að sjá um innheimtu á skuld. Boðið er upp á góð laun fyrir rétta aðila og óskað eftir því að svarað verði með einka- skilaboðum. „Vantar tvo góða menn til að sjá um innheimtu á skuld góð laun í boði sendið hér í einkaskil- boðum uppls,“ segir í skilaboðunum. Skilaboðunum var síðan svarað á opnu spjalli í morgun klukkan 09.25 af notendanum „Komin heim“. Þar lofar hann árangri innan þriggja daga í 99 prósent tilvika. Makríll skammt frá Eyjum Júpíter ÞH, skip Ísfélags Vestmanna- eyja, varð í síðustu viku vart við makríl skammt undan Eyjum. Lítil- ræði af honum ánetjaðist er verið var að prófa nýja gerð trolls að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélagsins. Þetta kemur fram á vef- síðu LÍÚ. Huginn VE fer í kvöld út til þess að leita makríls suður af Vest- mannaeyjum. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins, seg- ir nokkra eftirvæntingu hjá sínum mönnum og „orðið tímabært að fara að byrja á veiðunum“. Röng úrslit í Árborg Rangar niðurstöður voru birtar um sveitarstjórnarkosningarnar í Árborg í síðasta tölublaði. Þar víxluðust úrslit milli kosninganna árið 2006 og 2010. Rétt er að Sjálf- stæðisflokkurinn bætti við sig manni og náði þar með hreinum meirihluta á kostnað Framsókn- arflokksins. Samfylking fékk tvo menn kjörna og Vinstri-græn einn. Ómarkviss auðlindastefna stjórnvalda og sveitarfélaga stuðlaði að því að HS Orka, þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins, endaði í höndum Magma Energy. Magma virð- ist hafa gert afar góð kaup við þröngar aðstæður hér á landi eftir bankahrun. Lengst af var kanadíska fyrirtækið eina fyrirtækið sem sýndi áhuga á kaupum á hlut Orku- veitu Reykjavíkur í HS Orku. Magma fékk lánað hjá OR fyrir kaupunum og metur skuldabréfið nærri 2 milljörðum lægra nú en OR gerir. STEFNULAUS STJÓRN GLATAÐI TÆKIFÆRI Kanadíska fyrirtækið Magma Energy metur skuld sína við Orkuveitu Reykjavíkur um tveimur milljörðum króna lægri í bókhaldi sínu en Orku- veitan gerir sjálf. Orkuveitan kveðst engar forsendur hafa til að útskýra eða meta aðferðir Magma við færslu bókhaldsins og lítur svo á að eftirlit með bókhaldi annarra fyrirtækja sé ekki á ábyrgðarsviði OR. Í helgarblaði DV í síðustu viku var greint frá því að í ársfjórðungs- skýrslu Magma Energy, sem dagsett er 31. mars, sé skuld kanadíska fé- lagsins vegna kaupa á liðlega 32 pró- senta hlut OR í HS Orku, núvirt á um 50 milljónir dollara. Það samsvarar um 6,4 milljörðum króna á genginu þann daginn. Þann sama dag er verðmæti skuldabréfanna fært í bækur Orku- veitu Reykjavíkur á 8,25 milljarða króna eða liðlega 64 milljónir doll- ara. Mismunurinn nemur um 1,85 milljörðum króna. Í svörum Orkuveitu Reykjavíkur við spurningum DV er tekið fram að skuld Magma við OR sé í samræmi við staðlaðar reikningsskilavenjur. Það á væntanlega einnig við um árs- hlutauppgjör Magma sem áritað er af kanadískum endurskoðendum. Ríkið bar sig ekki eftir hlutnum „Þetta er í samræmi við það sem við höfum haldið fram alla tíð og sýnt fram á,“ sagði Sigrún Elsa Smára- dóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn OR, í samtali við DV í síðustu viku. Til áréttingar máli sínu vísaði hún til álits ALM-Fjármálaráðgjafar sem lagt var fram í september í fyrra. Þar segir berum orðum að miðað við tilteknar forsendur sé virði skulda- bréfsins minna en haldið sé fram. „Núvirt virði bréfsins að teknu tillliti til skuldaálags væri því að hámarki tæplega 70 prósent af nafnviðri höf- uðstóls,“ segir í álitinu. Lán OR til Magma er til 7 ára. Vextir eru 1,5 prósent og gert er ráð fyrir verðtryggingu sem tekur mið af heimsmarkaðsverði á áli eftir nán- ari reglum. Magma getur frestað greiðslu vaxta í þrígang þarf félagið ekki að greiða höfuðstól lánsins fyrr en efir 7 ár. Reynist mat Magma Energy vera rétt er ljóst að Orkuveita Reykjavík- ur myndi tapa hartnær 2 milljörð- um króna ef hún seldi skuldabréfið nú. Það stendur hins vegar ekki til. OR gæti einnig veðsett skuldabréf- ið gegn frekari lántökum erlend- is. Það hefur heldur ekki verið gert samkvæmt upplýsingum OR. Þess má geta að skuldabréfið er með veði í hinni seldu eign. Reyndar er all- ur eignarhlutinn, 32,3 prósent, veðsettur OR þó svo að samkeppnisyfirvöld hafi úrskurðað að OR megi ekki eiga svo stóran hlut í samkeppnishluta annars orkufyrirtækis. Eina tilboðið Ljóst er að um langa hríð var Magma Energy með eina tilboðið í hlut OR í HS Orku. Slík staða hlýtur að teljast afleit þegar svo mik- il verðmæti eru í húfi og engin samkeppni til staðar. Því vakn- ar spurningin hvort Samkeppniseft- irlitið hafi ekki sýnt fullmikla hörku þegar OR var gert að selja svo stóran hlut sinn í öðru orkufyrirtæki. OR upplýsir DV um að orkufyrir- tækið hafi sótt um og fengið frest hjá samkeppnisyfirvöldum þegar hlut- urinn var settur í opið söluferli. Það ferli hafði staðið í átta mánuði þeg- ar kom að ákvörðun um það hvort taka ætti tilboði Magma. Í samráði við væntanlegan kaupanda fékk fjármálaráðherra 10 daga frest til að koma að kaupunum. Af því varð ekki og hafði ríkisvaldið raunar ekki bor- ið sig eftir hlutnum í hinu opna sölu- ferli, eins og segir í svörum OR við spurningum DV. Á valdi Íslandsbanka Í lok ágúst í fyrra kvaðst Steingrím- ur J. Sigfússon fjármálaráðherra vilja kanna í þaula hvort ekki væri unnt að ná samkomulagi sem allir gætu sætt sig við varðandi eignarhald á HS Orku. Þá þegar stóðu stjórn- völd frammi fyrir því að þörf var á erlendum fjárfestingum inn í landið um leið og þau óttuð- ust yfirráð útlendinga yfir auðlindum þjóðarinnar og vinnsluréttindum. Á þessum tíma ræddi Steingrímur við Ross Beaty, forstjóra og aðal- eiganda Magma Energy um málið. Hann sagði fátt um viðræður sínar við Beaty. „Það má hins vegar vera ljóst hver afstaða mín er til eignar- halds á ís- lensk- um orkufyrirtækjum.“ Meðal annars var rætt á þess- um tíma um aðkomu lífeyrissjóða að kaupum á HS Orku. Við blasti einnig að Geysir Green Energy var í raun komið í hendur ríkisins í gegn- um Íslandsbanka með greiðslu- þroti stærstu hluthafa, Atorku og FL Group. Atorka átti 41 prósent í Geysi Green Energy en Íslandsbanki fór með önnur 40 prósent í gegnum Glacier Renewable Energy Fund. Vald Íslandsbanka yfir Geysi Green Energy helgaðist ekki síst af því að félagið skuldaði bankanum vel á þriðja tug milljarða króna. Þess- ar skuldir GGE voru bankanum tals- vert áhyggjuefni. Ráða sveitarfélög ferðinni? Ljóst er að hlutur GGE í HS Orku var seldur með vitund, vilja og samþykki Íslandsbanka, en formaður banka- ráðsins er nú Friðrik Sophusson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjun- ar. Bankinn er að sínu leyti á valdi erlendra kröfuhafa og sitja fulltrúar þeirra einnig í bankaráðinu. Hafi Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra bundið vonir við það síðla árs í fyrra að ítök ríkisins í Ís- landsbanka hafi getað tryggt að HS Orka héldist áfram í meirihlutaeign Íslendinga blasir engu að síður við að ríkið bar sig aldrei eftir hlutnum. Um 98 prósenta eignarhald Magma Energy á HS Orku hefur vak- ið hörð viðbrögð, ekki síst vinstri grænna. Meðal annars ritaði Stein- grímur, formaður VG, ásamt Katrínu Jakobsdóttur, varaformanni flokks- ins, grein í Fréttablaðið þann 27. maí síðastliðinn, tveimur dögum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Þar er ábyrgð á örlögum HS Orku varpað yfir á Reykjanesbæ og Reykjavíkur- borg. „Ekki má heldur gleymast að mikilvægar ákvarðanir sem hafa víð- tæk áhrif eru teknar í sveitarstjórn- um. Nærtæk dæmi eru ákvarðan- ir bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og borgarstjórnar Reykjavíkur á kjör- tímabilinu sem leiddu til þess að þriðja stærsta orkufyrirtæki lands- ins, HS Orka, hefur farið úr samfé- lagslegri eigu í hendur kanadíska fyrirtækisins Magma Energy,“ segir í grein þeirra. jóhann hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Af því varð ekki og hafði ríkis- valdið raunar ekki borið sig eftir hlutnum í hinu opna söluferli. hafði svigrúm en nýtti ekki Álitamál um eignarhald á HS Orku voru í fangi Steingríms J. Sigfússonar. Engu að síður virðast kaup Magma á hlut Geysis Green Energy hafa komið VG í opna skjöldu. orkan og eignarhaldið Magma á þriðja stærsta orkufyrirtæki landsmanna að mestu leyti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.