Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 FRÉTTIR
Lífsýnakrafa meintrar barnsmóður Bobbys Fischer til Hæstaréttar:
Bobby ekki grafinn upp
Jarðneskar leifar Bobbys Fischer, fyrr-
verandi heimsmeistara í skák, verða
ekki grafnar upp til að hægt sé að taka
lífsýni. Að þeirri niðurstöðu komst
Héraðsdómur Reykjavíkur nýverið
en meint dóttir skákmeistarans hafði
lagt fram þá kröfu. Lögmaður hennar,
hæstaréttarlögmaðurinn Þórður Boga-
son, hefur áfrýjað málinu til Hæstarétt-
ar.
Marilyn Young, fyrrverandi ástkona
skákmannsins Bobbys Fischer, hefur
höfðað barnsfaðernismál fyrir hönd
dóttur sinnar, Jinky, í þá veru að hinn
látni skáksnillingur Bobby Fischer sé
faðir ungu stúlkunnar. Málið var þing-
fest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyr-
ir jól. Ein af kröfum mæðgnanna er sú
að lífsýni úr Fischer verði borið saman
við lífsýni úr Jinky sem tekið var á dög-
unum er þær komu í heimsókn hingað
til lands í tengslum við málið. Samuel
Estimo, lögfræðingur frá Filippseyjum,
vinnur málið með Young en Þórður
flytur málið hér á landi. Þá hefur móð-
irin gert kröfu fyrir hönd dóttur sinnar í
dánarbú skákmeistarans, sem metið er
á nærri 300 milljónir króna, og sú krafa
verður einnig borin undir dómstóla.
Hæstiréttur komst nýverið að þeirri
niðurstöðu að Miyoko Watai, japönsk
ekkja Fischers, hafi ekki náð að sanna
lögmætan hjúskap þeirra og því var
dánarbú meistarans tekið til opinna
skipta. Samkvæmt heimildum DV eru
allar líkur á því að málinu verði aftur
skotið til dómstóla og það komi í þeirra
hlut að skera endanlega úr því hvort
Fischer hafi verið löglega kvæntur og
hvort hann sé raunverulegur faðir Jin-
ky.
Héraðsdómur hefur nú hafnað
kröfu um lífsýnatöku úr kistu Fischers
en það kemur til kasta Hæstaréttar að
skera úr um hvort gripið verði til þess
að nálgast lífsýni úr jarðneskum leif-
um meistarans en hann hvílir í Laug-
ardælakirkjugarði rétt utan við Selfoss.
trausti@dv.is
Ekki í bili Kista Bobbys Fischer verður
ekki grafin upp til að ná lífsýnum en
héraðsdómur hafnaði kröfu lögmanns
meintrar dóttur skáksnillingsins.
Utanþingsráð-
herrar vinsælir
Tæplega áttatíu prósent lands-
manna vilja hafa utanþingsráðherra
í ríkisstjórninni samkvæmt nýj-
um þjóðarpúlsi Capacent Gallup.
Frá þessu var greint í kvöldfréttum
RÚV á þriðjudag. Þá vilja þrír fjórðu
landsmanna að ráðuneytum verði
fækkað en tíundi hver er á móti því.
Könnunin sem um ræðir var gerð
dagana tólfta til tuttugasta og sjötta
maí og var svarhlutfall 67,3 prósent.
Úrtaksstærðin var 2.387 einstakling-
ar. Tveir utanþingsráðherrar eru nú í
ríkisstjórninni; Ragna Árnadóttir og
Gylfi Magnússon.
Fordæma ekki
árásir
Meiri hluti utanríkismálanefndar
fordæmir harðlega árás ísraelska
hersins á tyrkneskt skip í skipalest á
alþjóðlegri siglingaleið með hjálpar-
gögn til Gasasvæðisins. Sjálfstæðis-
flokkurinn er eini flokkurinn á þingi
sem fordæmir ekki árásir Ísraela.
Þingmenn vinstri grænna, Samfylk-
ingarinnar, Framsóknarflokks og
Hreyfingarinnar vilja beita Ísraela
viðskiptaþvingunum eða slíta stjórn-
málasambandi við Ísrael virki önnur
úrræði ekki.
Jón Gnarr mun
brillera
Merði Árnasyni, þingmanni Sam-
fylkingarinnar, hugnast best að Besti
flokkurinn fari í meirihlutasamstarf
við Samfylkinguna í Reykjavík. Hann
segir flokkana geta náð saman er
kemur að velferðarkerfi og atvinnu-
málum en að Besti flokkurinn geti
náð að bæta stöðu Samfylkingar-
innar í öðrum málum í borginni
þar sem hún hefur verið fremur
döpur undanfarin ár að mati Marð-
ar. Hann segir Jón Gnarr, oddvita
Besta flokksins, vera vísan til að fara
á kostum sem borgarstjóri Reykja-
víkur.
ÓSAMSTÍGA STJÓRN
Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir, þingmenn Vinstri-grænna, eru bæði
gagnrýnin á vinnulag ríkisstjórnarinnar og telja að því þurfi að breyta til að svara
kröfu almennings sem sett var fram í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Rík-
isstjórn Vinstri-grænna og Samfylkingar hefur verið ósamstíga í mörgum málum.
Samfylking og Vinstri-græn töpuðu
mesta fylgi á landsvísu af fjórflokk-
unum. Vinstri-græn tapa þar af
hlutfallslega mestu, eða um fjórð-
ungi fylgisins, og Samfylkingin hátt
í fimmtungi. Önnur og ný framboð
sækja hins vegar í sig veðrið. Þau
bæta við sig miklu fylgi á kostnað
fjórflokksins.
Ögmundur Jónasson, þing-
maður Vinstri-grænna, segir úr-
slitin fela í sér skýr skilaboð um að
breyta þurfi vinnulagi í stjórnmál-
um. Gera þurfi þau opnari og lýð-
ræðislegri. Lilja Mósesdóttir, þing-
maður flokksins, tekur í svipaðan
streng. Hún segir niðurstöðurnar
hafa valdið sér miklum vonbrigð-
um. Bæði segjast þau þó styðja for-
mann flokksins, Steingrím J. Sigfús-
son, áfram í starfi. Þau telja helst
málefnalegum ágreiningi um að
kenna frekar en einstaklingum.
Flokksmenn fari eftir stefnu
Lilja hefur verið gagnrýnin á
stefnu þingflokks Vinstri-grænna
í Magma-málinu. Hún segir það
hafa komið sér á óvart að Stein-
grímur hafi ekki útlistað fyrir kjós-
endum til hvaða aðgerða hann
hefði gripið frá því í ágúst í stað
þess að gefa í skyn að hún hefði
ekki farið með rétt mál eftir að
Magma keypti sig inn í HS Orku í
þessum mánuði. Hún segir marga
flokksmenn Vinstri-grænna hafa
komið að máli við sig fyrir kosn-
ingarnar og sagt skilið við flokk-
inn vegna málsins. „Það hefði
aukið trúverðugleika flokksins ef
fjármálaráðherra hefði skýrt ná-
kvæmlega frá sínum aðgerðum frá
því í ágúst í fyrra,“ segir hún.
Lilja segir flokkinn þurfa að
setja sín merki í ríkari mæli á þau
mál sem ríkisstjórnin fer út í eða
framkvæmir. Einstaklingar sem
telji sig ekki geta framfylgt henni
þurfi að íhuga stöðu sína. „Ef þeir
einstaklingar sem ekki eru í for-
ystu treysta sér ekki til að fara fram
með stefnu flokksins finnst mér að
það megi velta því upp hvort aðrir
séu betur til þess hæfir,“ segir Lilja
sem telur þó ágreininginn fyrst og
fremst snúast um málefni í stað
persóna.
Áframhaldandi samstarf
Ögmundur segist vonast til
þess að það séu áframhald-
andi forsendur fyrir samstarfi
Vinstri-grænna við Samfylking-
una. Hann segir að niðurstöður
kosninganna séu krafa almenn-
ings um að stjórnmálamenn
geri betur. „Það væri afleitt ef
leiðsögumenn hrunsins myndu
leiða okkur á ný út í efnahags-
fenið. Þeir þurfa að stilla komp-
ásana sína. Ég styð þetta stjórn-
armynstur en tel nauðsynlegt
að tekið verði upp breytt vinnu-
lag,“ segir Ögmundur sem set-
ur stjórninni þó ekki afarkosti í
þeim efnum.
Orkunýting
Ríkisstjórnin hefur ekki verið á einu máli þegar kemur að virkjana- og stóriðju-
framkvæmdum. Fjárfesting Magma í HS Orku er nýjasta dæmið um núning milli
stjórnarflokkanna.
Evrópusamband
Ágreiningur var í ríkisstjórn um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Þar
vildu nokkrir þingmenn Vinstri-grænna að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um
hvort sækja ætti um aðild að Evrópusambandinu.
Niðurskurður
Þegar Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra voru uppi
háværar raddir um að hann hefði tekið ákvörðunina að hluta til vegna fyrirhugaðs
niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Sjálfur sagðist hann hafa tekið ákvörðunina
vegna afstöðu sinnar í Icesave sem nyti ekki stuðnings innan ríkisstjórnarinnar.
Icesave
Einn djúpstæðasti ágreiningurinn í ríkisstjórninni snýr að Icesave og samninga-
viðræðum Íslendinga við Hollendinga og Breta um greiðslu lágmarkstryggingar
innistæðna.
Sameining ráðuneyta og ríkisstofnana
Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um skynsemi þess að sameina ráðuneyti og
ríkisstofnanir. Hefur verið talið að sameiningarnar feli í sér takmarkað hagræði
fyrir ríkið.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Nokkrir þingmenn Vinstri-grænna hafa talað fyrir því að áætlun Íslands og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði slitið.
Ágreiningsmál ríkisstjórnarinnar Það hefði aukið trúverðugleika
flokksins.
RÓBERT HLYNUR BALDURSSON
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Áfellisdómur Kurr er innan Vinstri-grænna eftir fylgistap flokksins á landsvísu.
Tveir af þingmönnum flokksins segjast þó áfram styðja formann flokksins og
telja fyrst og fremst um málefnalegan ágreining að ræða.