Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 7
FRÉTTIR 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR 7 Jón Björnsson, eiginmaður Sig- rúnar Bjarkar Jakobsdóttur, seldi sparisjóðnum Byr hlutabréf í jarða- félaginu Lífsvali að upphæð 65 milljónir króna í nóvember 2007, samkvæmt heimildum DV. Jón var framkvæmdastjóri og hluthafi í Lífs- vali en meðeigandi hans að félag- inu og annar stjórnarformaður í því var stjórnarformaður Byrs, Jón Þor- steinn Jónsson. Núverandi stjórn Byrs sendi þetta mál til Fjármála- eftirlitsins og sérstaks saksóknara í mars síðastliðnum vegna gruns um að Byr hefði verið misnotaður í við- skiptunum því kaupin á bréfunum hefðu ekki verið rökrétt. Kaupmáli Jóns og Sigrúnar Bjark- ar, sem er fyrrverandi bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna á Akur- eyri, hefur verið nokkuð í umræð- unni upp á síðkastið en með hon- um voru eignir færðar frá Jóni og yfir til Sigrúnar. Kaupmálinn var gerður rétt áður en embætti sérstaks sak- sóknara gerði húsleit í sparisjóðn- um Byr. Þau felldu kaupmálann úr gildi eftir að hann komst í hámæli. Umræðan um kaupmálann átti síðar þátt í að grafa undan pólitískum ferli Sigrúnar Bjarkar á Akureyri. Sigrún Björk sagði af sér sem oddviti sjálf- stæðismanna á Akureyri á mánu- daginn eftir að flokkur hennar beið afhroð í nýafstöðum kosningum þar í bæ. Salan á bréfunum í Lífsvali er því ekki eina óheppilega málið sem Jón tengist. Tekið skal fram að þó að stjórn Byrs hafi séð tilefni til að senda ábendingu til Fjármálaeftirlitsins og saksóknara er ekki þar með sagt að embættið muni rannsaka málið og hvað þá ákæra í því. Staðan á at- hugun málsins hjá saksóknara liggur ekki ljós fyrir en vitað er að málið var sent frá Byr til saksóknarans. Ákveðið í kringum aukninguna Lífsval er eitt stærsta jarða- félag Íslands og á um 45 jarðir víðs veg- ar um landið. Aðstandendur félags- ins eru áðurnefndir Jónar, Lands- bankinn, Guðmundur Birgisson á Núpum, Ólafur Wernersson, eldri bróðir Karls, Ágúst Sindri Karls- son, kenndur við Exeter Holding, og Gunnar Þorláksson, annar af eig- endum verktakafyrirtækisins BYGG. Landsbankinn er stærsti hluthafi fé- lagsins með um 19 prósenta eignar- hluta. Lífsval skuldaði þrjá milljarða króna í árslok 2008 og tapaði 1,2 milljörðum á því ári, samkvæmt árs- reikningi ársins 2008. Eignir félags- ins eru metnar á 5,2 milljarða króna en tekið skal fram að það er mats- verð samkvæmt ársreikningi. Félag- ið hefur aldrei skilað hagnaði. Ákveðið var að kaupa bréfin í Lífs- vali á fundi í stjórn Byrs þann 23. nóvember árið 2007. Heimildir DV herma að stjórn Byrs hafi metið það sem svo að greitt hafi verið yfirverð fyrir bréf Jóns en samkvæmt sölunni til Jóns átti Lífsval að vera um 7 millj- arða króna virði þegar salan átti sér stað því Jón seldi um eins prósents eignarhluta. Ætla má að verðmæti Lífsvals hafi þó ekki verið meira en 3,5 til 5 milljarðar króna. Einnig þóttu tengsl Jóns Björns- sonar og Jóns Þorsteins Jónsson- ar ekki vera heppileg vegna tengsla þeirra í gegnum Lífsval. Samkvæmt heimildum DV var ákveðið að nota ætti hluta af því fjár- magni sem fengist í stofnfjáraukning- unni miklu í Byr í desember árið 2007 til að fjármagna kaup Byrs á bréfun- um í Lífsvali. Það var Glitnir sem fjár- magnaði stofnfjáraukninguna. Því var búið að ráðstafa fjármununum sem fengust í stofnfjáraukningunni að hluta til áður en hún fór fram. Fleiri slíkar viðskiptaákvarðanir voru teknar í stjórn Byrs fyrir stofn- fjáraukninguna. Jón gefur ekki færi á sér Lífsvalsmálið er eitt af nokkrum mál- um úr sparisjóðnum Byr sem hafa verið send til eftirlitsaðila. Þekkt- asta málið er líklega það sem tengist Exeter Holding þar sem stjórn Byrs lét sparisjóðinn kaupa af sér stofn- fjárbréf í sjóðnum til að geta stað- ið í skilum við MP Banka sem lánað hafði til kaupanna. MP Banki hafði hótað að gera einhverja af skuld- urunum gjaldþrota. Jón Þorsteinn Jónsson er einnig lykilmaður í Ex- eter-málinu. Rannsóknin á málinu er langt komin hjá embætti sérstaks saksóknara. DV hafði samband við Jón Björnsson til að ræða við hann um söluna á Lífsvalsbréfunum til Byrs. Jón svaraði skilaboðum blaða- manns um að hringja með tölvu- skeyti þar sem hann spurði hvert er- indið væri. Blaðamaður sagði Jóni að erindið væri að spyrja um um- rædda hlutabréfasölu. Jón svaraði ekki þeim pósti fyrr en blaðamaður spurði hann hvort hann hygðist ekki hafa samband. Þá sagði Jón að hann ætlaði að hafa samband síðdegis á þriðjudag. Jón hafði hins vegar ekki samband við DV til að svara spurn- ingum um Lífsvalsmálið. MÁL JÓNS Í LÍFSVALI SENT TIL SAKSÓKNARA Stjórn Byrs sendi ábendingu um sölu Jóns Björnssonar á hlutabréfum í Lífsvali til Byrs til Fjármálaeft- irlitsins og sérstaks saksóknara í mars síðastliðnum. Jón er eiginmaður Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, fyrrverandi oddvita sjálfstæðismanna á Akureyri. Stjórnin taldi Byr hafa greitt Jóni yfirverð fyrir bréfin. Stjórnarformaður Byrs var viðskiptafélagi Jóns. Jón gefur DV ekki tækifæri til að spyrja hann um málið. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Til saksóknara Stjórn sparisjóðsins Byrs sendi Fjármálaeftirlitinu og sérstökum saksóknara erindi í mars um meinta misnotkun á sparisjóðnum þegar hann keypti bréf Jóns Björnssonar í nóvember. Jón er eiginmaður Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, fyrrverandi oddvita sjálfstæðismanna á Akureyri. Heimildir DV herma að stjórn Byrs hafi metið það sem svo að greitt hafi verið yfirverð fyrir bréf Jóns. Lífsvalsmenn Jón Þorsteinn Jónsson og Guðmundur Birgisson, kenndur við bæinn Núp, eru tveir af aðstandendum jarðafélagsins Lífsvals. Jón Þorsteinn og Jón Björnsson eru viðskiptafélagar í Lífsvali og Jón Þorsteinn var jafnframt stjórnarformaður í sparisjóðnum Byr sem keypti bréfin af Jóni. Þegar Ríkissjónvarpið fjallaði um það í byrjun maí að Sigrún Björk Jakobsdóttir, þáverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, og Jón Björnsson, eiginmaður hennar, hefðu gert með sér kaup- mála síðasta haust sem fól í sér að allar fasteignir eiginmannsins voru færðar yfir á hana, brást hún ókvæða við í sjónvarpsviðtali. Sig- rún Björk lýsti mikilli hneykslun á að RÚV skyldi yfir höfuð fjalla um þau mál. Í viðtalinu sagði Sig- rún Björk: „Mér finnst með hrein- um ólíkindum að vera í viðtali út af þessu, fyrir það fyrsta, og að þetta skuli vera samfélagið sem við erum að kalla yfir okkur, finnst mér vera með hreinum ólíkind- um.“ Um var að ræða einbýlishús þeirra á Akureyri, helmingshlut Jóns í landskika í Hörgárbyggð og hluta í sumarhúsi í Ölfusi. Þá kom fram í kaupmála hjón- anna að bankareikningur Sigrún- ar væri séreign hennar. Hún vildi ekki meina að kaupmálinn væri gerður til að skjóta undan eign- um. Nokkrum dögum síðar lýsti hún því hins vegar yfir á fundi full- trúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Ak- ureyri að þau hefðu látið ógilda kaupmálann. valgeir@dv.is Sigrún Björk var undrandi á að RÚV fjallaði um hennar mál: „Með hreinum ólíkindum“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.