Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 8
Tugir ofbeldis- og kynferðisbrota- manna ganga lausir þrátt fyrir fangels- isdóma þar sem ekki er pláss fyrir þá í fangelsum landsins. Brot einstakl- inganna eru misalvarleg en dæmi eru um að glæpamenn með þunga dóma gangi lausir. Samkvæmt upplýsingum frá Fang- elsismálastofnun eru vel á fjórða hundrað einstaklingar á boðunarlista stofnunarinnar til afplánunar. Ekki eru laus pláss fyrir alla á listanum og því bíða hundruð brotamanna eftir því að taka út refsingu sína. Af þessum mikla fjölda brota- manna hafa ríflega 240 fengið boðun- arbréf frá stofnuninni en bíða þess að pláss finnist. Þetta er nokkur aukning frá því sem áður var en fyrir tuttugu árum biðu helmingi færri eftir fang- elsisplássi. Ef litið er til samanburðar áratug aftur í tíðann þá biðu 33 fangar eftir plássi og því hefur föngunum sem bíða fjölgað um rúmlega 500 prósent á einum áratug. Misalvarleg brot Flestir bíða eftir að taka út refsingu vegna umferðarlagabrota. Það er tæp- lega helmingur þeirra sem á boðunar- listanum er, 117 einstaklingar. Þá bíða margir sem dæmdir hafa verið fyr- ir fíkniefnabrot, alls 50 einstaklingar, eða rúm 20 prósent allra þeirra sem bíða eftir klefa. Þessu næst koma einstaklingar með auðgunarbrot á bakinu, þeir eru 33 talsins eða tæp 15 prósent allra á boðunarlista Fangelsismálastofnunar. Tuttugu og fimm ofbeldismenn, eða 10 prósent af heildinni, bíða eftir að taka út refsingu sína og helmingi færri kynferðisbrotamenn bíða eftir plássi. Kynferðisbrotamennirnir eru 13 tals- ins, 5 prósent af öllum þeim sem bíða eftir afplánun. Brjóta aftur af sér Dæmi eru um að brotamenn, sem dæmdir hafa verið í fangelsi fyrir of- beldis- og kynferðisbrot, hafi brotið af sér á meðan beðið var afplánunar eða fórnarlömbum málsins talið sér stafa ógn af brotamanninum. Nýj- asta dæmið er Bjarki Már Magnús- son, sem hlaut 8 ára fangelsisdóm fyr- ir gróf kynferðisbrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Á meðan málið stóð yfir fyrir dómstólum gekk hann laus og samkvæmt frásögn konunnar áreitti hann hana að næturlagi á dög- unum. Nýlega brutu síðan tveir af Barða- strandarræningjunum svokölluðu af sér á nýjan leik og gengu í skrokk á karlmanni á sjötugsaldri. Maður- inn var sendur á spítala með höfuð- áverka, handleggsbrot og brotið nef. Áður höfðu þeir rænt úrsmið á Barða- strönd. Þá var dæmdum kynferðisbrota- manni sleppt eftir yfirheyrslur lög- reglu en hann var kærður fyrir hrotta- lega nauðgun á 16 ára stúlku. Næstu vikur eftir að honum var sleppt stigu fleiri ungar stúlkur fram og sögðu frá óeðlilegum samskiptum við manninn. 8 MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 fRéttIR GLÆPAMENN á biðListA Nærri 40 ofbeldis- og kynferðisbrotamenn fá ekki fangaklefa þar sem fangelsi landsins eru yfirfull. Þeir eru í hópi hátt í 400 brotamanna sem eru á boðunarlista og bíða afplánunar. Dæmi eru um að brotamenn hafi brotið af sér á meðan beðið var eftir fangelsisplássi. trausti hafsteinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is n umferðarlagabrot 117 einstaklingar n fíkniefnabrot 50 einstaklingar n auðgunarbrot 33 einstaklingar n ofbeldisbrot 25 einstaklingar n Kynferðisbrot 13 einstaklingar n annað 5 einstaklingar BRotAMenn á BoÐUnARlIstA 48% 21% 14% 10% 5% 2% n Ívar anton Jóhannsson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir að nauðga fjórum ungum stúlkum, fékk að ganga laus eftir yfirheyrslur lögreglu í nóvember á síðasta ári. Þá kærði 16 ára stúlka hann fyrir hrottalega nauðgun eftir að þau kynntust á samskiptavefnum Facebook. Eftir yfirheyrslur var honum sleppt en lögreglu bárust síðan fleiri kærur frá ungum stúlkum vegna samskipta við Ívar vikurnar á eftir lögreglurannsóknina í nóvember. Þá var hann handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Móðir fyrstu stúlkunnar sem kærði Ívar lýsti opinberlega furðu sinni yfir því hvers vegna hann var ekki settur í varðhald eftir fyrstu kæru og hafi þannig getað framið brot gegn öðrum ungum stúlkum á meðan hann gekk laus. Það var svo 5. maí síðastliðinn sem Ívar Anton var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum barnungum stúlkum ásamt því að hafa í fórum sínum gróft klámefni. DV leitaði upplýsinga hjá Fangelsismálastofnun um hvort hann væri farinn í fangelsi til afplánunar en það fékkst ekki staðfest. sleppt þrátt fyrir nauðgunarkæru n Tveir svokallaðra Barðastrandarræn- ingja, þeir Viktor Már Axelsson og Axel Karl Gíslason, brutu samkvæmt heimildum DV aftur af sér á meðan þeir biðu afplánunar fyrir fyrra brot. Á Barðaströndinni réðust þeir á úrsmið á heimili hans og í félagi við tvo aðra rændu hann. Viktor Már fékk tveggja ára dóm fyrir ránið og Axel Karl 20 mánaða dóm. Það var svo í byrjun maí sem tvímenn- ingarnir voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna grunsemda um að hafa ráðist fólskulega á eldri mann í Reykjanesbæ. Maðurinn er á sjötugsaldri og var fluttur nefbrotinn, handleggsbrotinn og með áverka í andliti á spítala. Börðu eldri mann n Bjarki Már Magnússon stjórnmálafræð- ingur er á leið í fangelsi eftir að hafa verið dæmdur í Hæstarétti í átta ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot. Samkvæmt upplýsingum frá fangelsismálastjóra, Páli Winkel, verður það sett í forgang að koma honum í fangelsi og hefur hann þegar verið boðaður til afplánunar. Samkvæmt dómsorði töldu dómstólar brot Bjarka Más ekki eiga sér hliðstæðu í íslensku réttarkerfi. Hann var dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn þáverandi sambýliskonu sinni, Hrafnhildi Stefánsdóttur, meðal annars fyrir að neyða hana til kynlífsathafna með fjölda annarra karlmanna. Í samtali við DV segist Bjarki Már ætla að hlýta boðun um afplánun en aðspurður segist hann óttasleginn yfir fangelsisvist. Hann segist einfaldlega ekki vera sá glæpamaður sem dómstólar telji. á leiðinni inn ekkert pláss Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun bíða vel á fjórða hundrað einstaklingar afplánunar þar sem plássið skortir. Meðal þeirra eru ofbeldis- og kynferðisbrotamenn. Hátt í 400 brota-menn bíða eftir fangelsisplássi. Af þeim eru nokkrir tugir ofbeld- is- og kynferðisbrota- manna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.