Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 11
FRÉTTIR 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR 11 Arndís Einarsdóttir er 44 ára, þriggja barna móðir. Hún er atvinnulaus og sér fram á að vera komin á götuna í haust með tvær dætur sínar, 6 og 9 ára. Hún hefur sótt um fleiri hundruð störf en sjaldnast fengið svör við umsóknunum. „Ég hef að meðaltali sótt um fjögur störf á dag, fimm daga vikunnar,“ segir Arndís sem er orðin þreytt á langvarandi aðgerðaleysi stjórnvalda. „ÉG Á FREKAR AÐ ÞIGGJA BÆTUR“ Arndís Einarsdóttir hefur ver- ið atvinnulaus í um tíu mánuði. Þar áður var hún í námi en fékk ekki fyrirframgreidd námslán svo hún sá þann eina kost í stöðunni að hætta í náminu og þiggja frek- ar bætur frá Félagsþjónustunni. Arndís segist ekki hafa tekið þátt í góðærinu svokallaða en standa þó uppi snauð. Árið 1999 keyptu hún og þáver- andi eiginmaður hennar sér litla íbúð við Laugaveg. Árið 2002 var íbúðin orðin of lítil fyrir fjölskyld- una sem fór stækkandi og því festu þau kaup á 70 fermetra einbýlis- húsi sem kostaði sex milljónir og þau gerðu það upp sjálf. Íbúðin þeirra seldist ekki svo þau leigðu hana út. Árið 2005 skildu Arndís og eiginmaður hennar og seldu húsið. Arndís flutti þá aftur í litlu íbúðina við Laugaveg ásamt tveimur ung- um dætrum sínum. Bara venjuleg fjölskylda „Við erum bara venjuleg fjölskylda sem hefur lent í ýmsu en tókum aldrei þátt í góðærinu, við vorum nærri því við fátækramörkin þeg- ar uppgangurinn var sem mestur,“ segir Arndís. Í kjölfar skilnaðarins ákvað Arn- dís að fara í nám til að bæta stöðu sína. Hún kláraði stúdentspróf og fór þar næst í Háskóla Íslands. Hún fékk fyrirframgreidd námslán fyrstu önnina en veiktist og gat ekki klárað prófin og endaði því uppi með námslánaskuld. Hún fékk ekki fyrirfram greidd námslán í kjölfar- ið. Þetta leiddi til þess að á endan- um neyddist Arndís til að hætta í náminu og þiggja frekar bætur hjá Félagsþjónustunni, en þær gat hún ekki fengið ef hún var skráð í nám. „Það er eins og hugtakið hjálp til sjálfshjálpar sé ekki til innan kerfis- ins.Í raun á ég frekar að þiggja bæt- ur og gera ekkert í staðinn fyrir að mennta mig,“ segir Arndís. Fjögur störf á dag, fimm daga vikunnar Eftir að henni varð ljóst að hún gæti ekki haldið áfram í skólanum hefur hún sótt um fjölda starfa. „Ég nota yfirleitt morgnana til atvinnuleit- ar og hef fundið það út að ég hef að meðaltali sótt um fjögur störf á dag, fimm daga vikunnar.“ Arndís byrjaði að sækja um störf í ágúst á síðasta ári, eða fyrir um 10 mán- uðum. „Eftir allar þessar umsókn- ir hef ég fengið þrjú svör og eitt viðtal. Ég held það hafi svona 150 manns verið boðaðir í það viðtal og það var hálfsdags starf í afgreiðslu. Fyrst var ég að sækja um störf út frá menntun minni, ég er menntað- ur heilsunuddari, en núna sæki ég bara um allt,“ segir Arndís og bætir við: „Þetta er rosaleg höfnun, fyrstu vikurnar var ég bjartsýn og hélt að það væri ekkert mál að fá vinnu. Svo eftir ákveðinn tíma fóru að renna á mann tvær grímur og mað- ur veltir fyrir sér hvað sé í gangi,“ segir Arndís sem er orðin þreytt á langvarandi atvinnuleysi.Hún seg- ir það lýjandi til lengdar að vera án atvinnu og er ósátt við aðgerðaleysi stjórnvalda. „Það vantar hvatningu til að gera eitthvað. Ég hef starf- að með grasrótarsamtökum og í stjórnmálum til að hafa eitthvað að gera,“ segir Arndís sem hefur verið virk í starfi Heimavarnarliðsins. Bauðst til að nudda bankamenn Arndís telur kerfið virka letjandi á fólk.Hún vill vinna en segir enga vinnu að fá og getur ekki verið í skóla því þá getur hún ekki fram- fleytt fjölskyldu sinni. „Það er oft talað um atvinnulaust fólk þannig að það sé bara hangandi í fríi all- an daginn en það er ekki þannig. Þú ert alltaf atvinnulaus. Þegar þú vaknar, sofnar, um helgar og á jól- unum. Þetta er ekki frí. Sjálf hafði ég verið með þessa fordóma áður en ég varð atvinnulaus og dauð- skammast mín fyrir það.“ Arndís segist hafa leitað ým- issa leiða til að finna sér atvinnu. „Ég fór til dæmis í bankann minn og bauð þeim að ég myndi nudda starfsfólk upp í skuldirnar mínar, það var bara hlegið að mér,“ seg- ir hún og hlær við. „Maður er bara að reyna að sýna sjálfsbjargarvið- leitni en það er eins og það sé ekki gert ráð fyrir sjálfsbjargarviðleitni í kerfinu. Það er betra að hafa fólk bara á bótum.“ Hún telur ástæðuna fyrir langvarandi atvinnuleysi sínu vera meðal annars sú að hún líti ekki vel út á pappír. „Ég lít ekki vel út á ferilskrá, ég var heimavinnandi í 5 ár og svo fór ég í skóla. Það kem- ur ekki vel út á pappír. Ég er dug- leg og hef mikla reynslu. Til dæmis sem foreldri geðsjúks barns og sem foreldri fyrirbura auk þess að vera menntaður heilsunuddari. En ég þarf bara að sitja út í horni og gera ekki neitt,“ segir hún. Einnig telur hún að erfitt sé að koma sér að því maður sé bara nafn á pappír. „Þetta er svo breytt frá því hvernig þetta var fyrir nokkrum árum þegar maður gekk sjálfur inn í fyrirtækin og gat selt sig þannig, í dag er þetta allt í ferlum,“ segir Arn- dís. Ekkert má út af bregða Arndís segir að ekkert megi út af bregða þegar fjárhagurinn sé svona þröngur. „Ég til dæmis lofaði stelp- unum mínum óvart bíóferð í vetur. Við þurftum að bíða eftir barna- bótamánuði til að ég gæti efnt lof- orðið og þá var hætt að sýna mynd- ina,“ segir Arndís. Hún hefur þegið mataraðstoð frá Mæðrastyrksnefnd þegar mjög hart hefur verið í ári. „Þegar mað- ur fer í fyrsta skiptið í Mæðrastyrks- nefnd eru það mjög þung skref að stíga og mikil skömm sem maður þarf að yfirstíga,“ segir Arndís. „Ég reyni samt að fara sem sjaldnast þangað en stundum bara verð- ur maður. Annars er ekki mik- ið að hafa þar lengur því það er líka kreppa þar. Fyrst var maður að fá svona tvo, þrjá poka, núna er þetta kannski botnfylli,“ segir Arndís. Hún segist passa upp á að vera vel undirbúin ef eitthvað kynni að fara úrskeiðis. „Ég er alltaf með pening í umslagi í veskinu mínu sem nægir fyrir leigubíl upp á slysó ef eitthvað gerist.“ Á götunni í haust Nú horfir hún fram á að lenda á götunni í haust, með dætur sín- ar tvær. „Ég byrjaði að safna van- skilum á íbúðina eftir að ég fékk ekki námslánin fyriframgreidd, ég bara gat ekki borgað af henni.“ Arndís segir augljóst að hún geti ekki farið út á almennan leigu- markað með svo lágar tekjur á mánuði. Hún getur ekki sótt um leiguíbúð hjá Félagsþjónustunni fyrr en eftir að búið er að taka íbúðina af henni. „Þá skilst mér að það geti tekið við um tveggja til þriggja ára bið eftir íbúð,“ seg- ir Arndís sem yrði þá væntanlega að fara á almennan leigumarkað á meðan. „Ég er í afneitun fyr- ir því sem gerist í haust og ætla að reyna að njóta sumarsins með börnunum mínum. Ég reyni að hafa húmorinn að vopni og það hefur haldið manni gangandi.“ VIKTORÍA HERMANNSDÓTTIR blaðamaður skrifar: viktoria@dv.is Á götunni Arndís sér fram á að lenda á götunni í haust verði ekkert að gert. Það er oft talað um atvinnu- laust fólk þannig að það sé bara hangandi í fríi allan daginn en það er ekki það, þú ert alltaf atvinnulaus. Lýjandi atvinnuleysi Arndís hefur sótt um fjölda starfa en fær sjaldnast svör við umsóknunum. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.