Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Side 12
12 miðvikudagur 2. júní 2010 fréttir
SPÁIR ALGERU HRUNI
„Góð fjármálakerfi skapa hagsæld í
ríkjum án skuldsetningar. Slæm fjár-
málakerfi valda miklum skuldum og
bankar eru valdatæki sem geta skap-
að kreppur,“ segir bandaríski heim-
ildarmyndagerðarmaðurinn Bill Still
en hann hefur rannsakað fjármála-
kerfi, sögu þeirra og starfsemi, í yfir
tuttugu ár. Hann er frægastur fyrir
myndina Money Masters frá 1995,
en í henni er rætt um hvernig stór-
ir bankar í heiminum hafi náð völd-
um yfir hagkerfi heimsins, á kostnað
þjóðkjörinna stjórnvalda.
Bill Still spáir algjöru hruni fjár-
málakerfis nútímans innan fárra
ára vegna skuldasöfnunar í heimin-
um sem orðið hafi til við „fractional
reserve“-lánastarfsemi sem hafi gef-
ið bönkunum vald til þess að búa til
peninga.
Bill Still er staddur á Íslandi og
mun halda fyrirlestur í Húsinu,
Höfðatúni 12, klukkan 20 í kvöld,
miðvikudagskvöld, og kynna nýja
mynd sína, Secret of Oz. Hann mun
einnig freista þess að ræða við al-
þingismenn og aðra stjórnmála-
menn um lausnirnar sem hann segir
að muni bjarga lýðræði í heiminum.
Burt með skuldir
„Ég er nýkominn frá Svíþjóð og
Þýskalandi og nú er ég hér. Það er
mjög athyglisvert að sjá að fólki af
öllum þjóðernum virðist líða eins;
að stjórnmálamenn svari alls ekki
kalli kjósenda og að um leið og þeir
nái völdum sogist þeir inn í ginn-
ungagap peninga og valda og missi
sjónar á lýðræðislegum umbótum.
Við sjáum að borgarbúar í Reykja-
vík kjósa Besta flokkinn og ísbirni
fram yfir gömlu valdhafana sem fólk-
ið hefur misst trúna á. Fólk kvartar
undan nákvæmlega sömu hlutunum
í Bandaríkjunum,“ segir Bill Still sem
segist hafa lesið sér til um hækkun
húsnæðislána á Íslandi.
„Þetta er alveg ótrúlegt ástand og
verra en í Bandaríkjunum, við höf-
um það ekki gott, en þó ekki jafn skítt
og þið. En þrátt fyrir að ástandið sé
slæmt eru góðu fréttirnar þær að það
er til lausn sem getur bjargað ykk-
ur. Lausnin er að Ísland gefi út eigin
peninga án þess að fá peninga lán-
aða. Engin lönd skulu safna lánum.
Ég útbjó stuðaralímmiða (e. bump-
er sticker) með íslenska fánanum þar
sem segir „Burt með ríkisskuldir“. En
svo komst ég reyndar að því að Ís-
lendingar nota ekki slíka límmiða á
bílum sínum! Það er kjarninn í lausn-
inni. Ríki ættu ekki að fá að taka lán
og bankar ættu ekki að geta lánað
meiri peninga en þeir eiga. Þetta er
svona einfalt.“
Skuldlausir peningar lausnin
„Það sem skapar hagsæld í ríkjum
er að geta búið til eigin fjármagn án
skuldsetningar, það er mikilvæg-
asta vald stjórnvalda. Eini hængur-
inn á þessu er að stjórnvöld verða
að stjórna peningamagninu svo að
verðbólga myndist ekki. Ef þeim
tekst það verður hagsæld í ríkinu.
Þá þarf ekki að borga vexti af lánum
og lönd eru ekki háð valdsviði lánar-
drottnanna.
Íslendingar þurfa ekki á lánum
að halda. Þið getið búið til ykkar eig-
in fjármagn. Þið getið jafnvel borgað
skuldir ykkar þannig, en þið borgið
þá með ykkar eigin peningum, sem
hafa orðið til skuldlaust á Íslandi,“
segir Bill Still.
Ríkið eigi að prenta peninga
Í myndinni Money Masters var full-
yrt að seðlabanki Bandaríkjanna (e.
Federal Reserve) væri í raun í einka-
eigu valdamikilla manna í Banda-
ríkjunum. Um svipað var rætt í
heimildarmyndinni Zeitgeist, sem
sýnd var á RÚV og margir Íslending-
ar hafa séð.
„Seðlabankinn í Bandaríkjunum
tilheyrir ekki bandarískum stjórn-
völdum. Ef þú spyrðir einhvern úti
á götu hvar sem er í Bandaríkjun-
um hver gefi út peninga í landinu
myndi svarið í nær öllum tilvikum
vera bandarísk stjórnvöld, að þau
prenti peningana. Það myndu allir
segja það, þótt það sé alls ekki rétt.
Ástæðan fyrir því að þjóðin heldur
að sá háttur sé á er að innsæið seg-
ir þeim að þannig ætti það að vera;
stjórnvöld eiga að prenta pening-
ana skuldlaust, með alla borgara í
huga. En ekki eins og núna þar sem
ákveðnir hópar græða. Abraham
Lincoln sagði að þetta væri mikil-
vægasta vald stjórnvalda, að prenta
peninga,“ segir Bill Still.
Seðlabankinn á valdi
auðmanna
„En svo er hins vegar alls ekki,
seðlabanki Bandaríkjanna er ekki
innan valdsviðs bandarískra stjórn-
valda. Það hefur verið sannað með
mörgum dómsúrskurðum, þar á
meðal í hæstarétti Bandaríkjanna,“
segir Bill Still og bendir auk þess á
að í símaskrá Washingtonborgar
birtist nafn seðlabankans, Federal
Reserve, á ensku, ekki með nöfnum
ríkisstofnana, heldur á lista einka-
fyrirtækja fyrir neðan hraðflutn-
ingafyrirtækið FedEx. „Seðlabanki
Bandaríkjanna er í raun þrýsti-
hópur fyrir alla stóru bankana á
einkamarkaðinum. Vandamál-
ið er að bankar geta lánað hvaða
upphæð sem er, og þeir vilja að
svo verði áfram,“ segir Still. „Fjöl-
miðlar í heiminum ræða þessi mál
ekki vegna þess að þeir eru annað-
hvort í eigu þeirra er hagnast á fyr-
irkomulaginu eða hafa tekið stór
lán í bönkunum. Heldurðu að frétt
á NBC eða í New York Times um að
„fractional reserve-kerfið“ sé upp-
spretta allra heimsins vandamála
myndi nokkurn tíma birtast, þegar
eigendur fjölmiðlanna hafa tekið
lán í bönkunum?“ spyr Still og segir
að kerfið leitist auk þess við að virð-
ast óskiljanlegt í augum fólksins.
Vald bankanna eykst
Brotaforðalánastarfsemi (e. frac-
tion al reserve lending) er tækni
sem allir bankar nútímans nota
(sjá hliðargrein). Banki lánar án
þess að eiga samsvarandi upp-
hæð í innlánafjárhirslum sínum en
helgi hRafn guðmundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Bandaríski heimildarmyndagerðarmað-
urinn Bill Still spáir endalokum fjármála-
kerfis nútímans innan fárra ára vegna
skuldasöfnunar sem hafi orðið til þegar
viðskiptabankar í heiminum hafi fengið
valdið til að stjórna peningamagni í um-
ferð. Hann segir að nýtt fjármálakerfi
verði að miða að því að ríkið sjálft gefi út
allt fjármagnið og bankar fái ekki að lána
meira en þeir eigi.
„Þegar ég gerði Money Masters
leitaði ég að hagfræðingi til að
fara yfir myndina, til að sjá hvort
ég hefði misskilið eitthvað. Ég
var metnaðarfullur og hringdi í
Stanford og bað um að fá að tala
við Nóbelsverðlaunahafann Milt-
on Friedman. Hann sagði: Hvað
viltu?
Ég sagði: Ég er með heimildar-
mynd í smíðum og vil að þú skoð-
ir hana. Friedman horfði á mynd-
ina og hringdi svo í mig og sagði:
Drengur, ef þú leggur seðlabank-
ann niður en gerir ekkert í fract-
ional reserve-kerfinu verður þér
ekkert ágengt,“ segir Bill Still.
Orð hagfræðingsins gerðu það
að verkum að Bill Still endurhugs-
aði nokkra kafla í Money Masters
og hann hefur æ síðan kafað dýpra
í lánastarfsemi af þessu tagi.
„Valdamikla fólkið gat ekki haft
hemil á Friedman, því hann var
Nóbelsverðlaunahafi. Um það snú-
ast verðlaunin, að gera menn nógu
stóra til þess að þeir geti sagt það
sem þeir vilja. Ég nefni sem dæmi
að Friedman hélt því fram í árar-
aðir að seðlabanki Bandaríkjanna
hefði viljandi valdið kreppunni
miklu á fjórða áratugnum. Hann
var útmálaður sem elliært gam-
almenni fyrir að halda því fram.
En National Public Radio útvarp-
aði frá níræðisafmæli Friedmans
árið 2006. Þar voru staddir nokkr-
ir embættismenn frá seðlabankan-
um sem viðurkenndu að hafa vald-
ið kreppunni miklu og sögðust hafa
gert mistök sem myndu ekki end-
urtaka sig,“ segir Bill Still.
friedman og Still
milton friedman Nóbelsverð-
launahafinn barðist á móti fractional
reserve-lánastarfsemi.