Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Blaðsíða 14
14 miðvikudagur 2. júní 2010 neytendur
Bestu sundlaugar landsins
Laugardalslaug, Akureyrarlaug og Vatnaveröld í Reykjanesbæ eru þrjár
af bestu sundlaugum Íslands á meðan Sundlaugin á Hofsósi, Jarðböðin á
Mývatni og Krossaneslaug á Ströndum eru á meðal perla sem þú verður að
prófa. DV hefur tekið saman bestu og forvitnilegustu sundlaugar landsins.
Ísland er sannkölluð sundlaugapara-
dís enda eru sundstaðir á Íslandi um
170 talsins. Þeir eru eins og gefur að
skilja af öllum stærðum og gerðum.
Nærri lætur að einn sundstaður sé á
hverja 1.900 Íslendinga.
DV hefur hér freistað þess að taka
saman nokkrar af bestu og merkileg-
ustu sundlaugum Íslands. Í því skyni
leitaði blaðið til Dr. Gunna, sem hef-
ur haldið úti sundlaugarýni á blogg-
síðu sinni og Páls Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, blaðamanns og ferðalangs.
Páll Ásgeir hefur víða komið við á
Íslandi og hefur skrifað allnokkr-
ar bækur um ferðalög og útivist. Þá
studdist DV við vefinn sundlaugar.
is, sem er mikill brunnur upplýsinga
um sundlaugar um allt land.
Umdeilanlegt
Sundlaug er ekki það sama og sund-
laug. Þess vegna var ákveðið að
skipta laugunum sem nefndar eru í
tvo flokka. Annars vegar er að finna
bestu sundlaugar landsins, þar sem
þjónusta og sérstaða fer saman. Hins
vegar er flokkur sem telur laugar sem
eru að einhverju leyti frábrugðn-
ar hefðbundnum góðum íslenskum
sundlaugum. Í þeim flokki er vitan-
lega um huglægt mat að ræða, sem
deila má um.
Margar stórar laugar
Á höfuðborgarsvæðinu eru 19 sund-
laugar skráðar á vefnum sundlaugar.
is en þar má finna upplýsingar um
flesta sundstaði landsins. Stærstu
laugarnar á höfuðborgarsvæðinu
eru Kópavogslaug, Laugardalslaug,
Árbæjarlaug og Vesturbæjarlaug,
svo einhverjar séu nefndar en þá er
ekki einungis verið að miða við lengd
sundlaugarinnar heldur alla aðstöðu
og þjónustu. Þá má einnig nefna
sundlaugina á Seltjarnarnesi, Ás-
vallalaug og laugina á Álftanesi.
Á Norður- og Norðausturlandi
eru hvorki fleiri né færri en 35 laug-
ar. Margar þeirra eru glæsilegar,
til dæmis á Akureyri, á Dalvík og í
Varmahlíð, svo fáeinar séu nefndar.
Á Suðurlandi eru 20 sundlaugar og á
Austurlandi eru þær 18. Þar ber hæst
sundlaugarnar á Eskifirði og á Egils-
stöðum en skammt frá Vopnafirði
er Selárdalslaug; falin perla sem
enginn ætti að láta fram hjá
sér fara.
Vestfirðir láta ekki sitt
eftir liggja þegar kemur að
sundlaugum. Nærri lætur að
hver einasti byggðarkjarni
hafi sundlaug auk þess
sem óhefðbundnar laugar,
til dæmis í Krossa-
nesi og Ísafjarðar-
djúpi, þykja sér-
lega áhugaverðar.
baldUr gUðMUndsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Drottning
sunDlauganna
LaugardaLsLaug
Verð: Fullorðnir 360 kr., Börn 110 kr.
n Þó margar laugar séu nýrri og ef til vill
með betri skiptiaðstöðu en Laugardals-
laug stendur hún alltaf fyrir sínu og er
stærsta laug Íslands. Um er að ræða
þrjár stórar laugar og fjóra búningsklefa.
Þar ber hæst fimmtíu metra útilaug en
útilaugarnar eru tvær og innilaugarnar
tvær. Þá eru sex heitir pottar, eimbað,
nuddpottar, ljósabekkir og 86 metra
löng vatnsrennibraut. Að mati Erlings
Jóhannssonar, landsliðsþjálfara í sundi,
er aðgengi fyrir fatlaða best í Laugar-
dalslauginni. Þar eru lyftur og góðir
búningsklefar, auk þess sem aðstoð-
armaður að öðru kyni getur hjálpað
þeim fatlaða. Erlingur segir einnig að á
völlunum í Hafnarfirði sé aðstaða fyrir
fatlaða góð. Laugardalslaug er drottning
sundlauganna.
ÖlDugangur við Bessastaði
sundLaugin á áLftanesi
Verð: Fullorðnir 400 kr. Börn 150 kr.
n Á Álftanesi er eina sundlaug landins
með öldum. Álftnesingar vörðu miklu
fé í laugina. Dr. Gunni hefur prófað
laugina og segir að laugin sé fjölbreytt,
nútímaleg og flott sundlaug með sjáv-
arföllum, sem sé svakalegt. Hann segir
hins vegar að sturturnar séu kraftlausar
og ekki nógu heitar. Engu að síður er
þetta laug með sérstöðu á Íslandi og
skipar sér þess vegna á meðal bestu
lauga landins. Risastór rennibraut er
á staðnum og flott aðstaða. Ef þú ert
heppinn geturðu hitt á herra Ólaf eða
frú Dorrit, sem búa skammt frá.
Best fyrir BÖrnin
vatnaveröLd reykjanesbæ
Verð: Fullorðnir 300 kr. Börn 0 kr.
n Vatnaveröld er glæsilegur
yfirbyggður vatnsleikja-
garður fyrir alla fjölskyld-
una. Hvergi á Íslandi er
betri aðstaða fyrir börn. Þar
er 50 metra innilaug og 25
metra útilaug. Þar eru að
auki heitir pottar, gufa og,
eins og áður sagði, fjölmörg
leiktæki fyrir börnin. Sú
staðreynd að laugin er
yfirbyggð gerir það að
verkum að hún er jafngóð
allt árið um kring.
stærsti heiti
pottur á ÍslanDi
sundLaugin í reykjanesi
n Við Ísafjarðardjúp er gömul sundlaug
sem er 50 metrar að lengd. „Þessi sundlaug
er mjög gömul og ég hef margar góðar
minningar þaðan enda er ég alinn upp
þarna í sveitinni,“ segir Páll Ásgeir. Dr. Gunni
segir að nýlega sé búið að „poppa“ hana
aðeins upp. „Þetta er gömul laug, dálítið
á hjara veraldar. Það er gaman að koma
þangað, enda er þetta líklega stærsti heiti
pottur á Íslandi,“ segir hann.
sunDlaug Í
fjÖruBorðinu
krossnesLaug
n Laugin er steinsteypt íslensk útisundlaug við
fjöruborðið, fáeina kílómetra frá Norðurfirði í Stranda-
sýslu. Laugin var tekin í notkun árið 1954. Páll Ásgeir
Ásgeirsson segir laugina frábæra. „Laugin á Krossnesi
á ströndum er sú alflottasta. Hún er toppurinn. Hefur
allan Húnafjörðinn fyrir framan þig og brimaldan
sleikir vegginn á sundlauginni. Þar er góð aðstaða en
engin gæsla og treyst á heiðarleika gestanna. Það er
eitthvað mjög fallegt við það.“
vatnið úr nálægum hver
reykjafjörður – náLægt bíLdudaL
n Enginn gætir þessarar ágætu laugar, sem byggð var í sjálfboða-
vinnu árið 1975. Suðurfjarðahreppur lagði til efnið í laugina en
verktaki á staðnum stýrði verkinu. Landeigendur í kring eiga í raun
laugina en hún er opin öllum og allir eru velkomnir. Þeir fara hins veg-
ar alfarið á eigin ábyrgð í laugina þar sem engin gæsla er á staðnum,
að sögn Braga Geirs Gunnarssonar landeiganda. Hann tók þátt í að
stofna Hollvinafélag Sundlaugarinnar í Reykjafirði en markmiðið er að
safna fjármagni til að byggja viðunandi búningsaðstöðu. Bragi segir
að félagið sé með reikning í sparisjóðnum á Bíldudal og hvetur fólk
til að leggja þeim lið. Laugin er að hans sögn 32 til 38 gráðu heit en
vatnið rennur úr nálægum hver. Laugin er aldrei lokuð.
skýringar. bestu sundLaugarnar. PerLur sem þú verður
að Prófa