Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Síða 15
neytendur 2. júní 2010 miðvikudagur 15
Bestu sundlaugar landsins
Best á landsByggðinni
Sundlaug akureyrar
Verð: Fullorðnir 450 kr. Börn 0 kr.
n Sundlaugin var tekin í gegn fyrir nokkrum árum og er orðin
sannkölluð vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna. Þar eru tvær
stórar sundlaugar auk þess sem þar eru tvær rennibrautir,
busllaug, fjórir heitir pottar, eimbað, gufubað, nuddstofa og
fjölskyldugarður með leiktækjum. Fyrir það er hún einstök.
Búningsklefarnir og öll aðstaða er til fyrirmyndar enda er
sundlaugin afar vinsæl. Óhætt er að segja að Akureyrarlaug sé
besta sundlaug á landsbyggðinni.
Vatn og Vellíðan
Sundlaugin á höfn
Verð: Fullorðnir 425 kr. Börn 170 kr.
n Á Höfn er góð aðstaða til sunds. Þar er ný
25 metra sundlaug auk barnalaugar með alls
kyns leiktækjum Á Höfn eru hvorki fleiri né
færri en þrjár rennibrautir, tveit heitir pottar
en annar þeirra er sagður með góðu nuddi. Þá
er gufubað á staðnum auk þess sem aðgengi
fyrir fatlaða er gott; meðal annars er lyftustóll
á laugarbakkanum til staðar. Þessi aðstaða
gerir það að verkum að sundlaugin er að-
gengileg fyrir alla og verðskuldar sæti á meðal
þeirra bestu. Hún er rekin undir kjörorðunum:
Vatn og vellíðan.
Hituð upp með jarðgufu
Sundlaugin laugaSkarði
Verð: Fullorðnir 350 kr. Börn 150 kr.
n Hvergerðingar eiga sundlaugaperlu í
Laugaskarði. Þó laugin sé í grunninn gömul var
hún gerð upp fyrir nokkrum árum og er aðstaða
þar öll til fyrirmyndar. Laugin er gegnumrennsl-
islaug og er hituð upp með jarðgufu. Það tryggir
eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins og fyrir
vikið hefur laugin sérstöðu. Sundlaugin sjálf er
50 metrar en þess utan er heit en grunn setlaug
og heitur potti með rafmagnsnuddi. Rúsínan í
pylsuendanum er náttúrulegt gufubað. Þá er
laugin í sérstaklega fallegu og skjólsælu umhverfi
sem skapar lauginni mikinn sjarma. Meðal
annarra lauga í nágrenningu má nefna Sundhöll
Selfoss og sundlaugina í Þorlákshöfn.
perla fyrir
austan
SelárdalSlaug við vopnafjörð
n Laugin stendur við bakka Selár þar sem
hún rennur í grunnu gljúfri. Leitun er að jafn
fagurri staðsetningu fyrir sundlaug enda laugin
rómuð fyrir umhverfi sitt. Laugin er nokkuð
langt frá Vopnafjarðarkaupstað, 12km, þar af
3 km langur afleggjari með bundnu slitlagi frá
þjóðveginum. Þeir sem þangað hafa komið
segja laugina einstaka. Eftir því sem DV kemst
næst er hún alltaf opin en engin gæsla er við
laugina. Hún var byggð í sjálfboðavinnu fyrir
um 60 árum.
sundlaug á öskuslóðum
Seljavallalaug
n Falin perla fremst í Laugárgili
í Austur-Eyjafjallasveit. Ein elsta
sundlaug á Íslandi, fyrst hlaðin árið
1923. Hún er um 25 metrar á lengd
og um 10 metrar á breidd. Hún er
opin öllum er fólk er þar á eigin
ábyrgð. Laugin er hreinsuð einu
sinni á sumri en hún er stundum
þakin þykku slýi sem krefst þess að
fólk umgangist hana með varúð.
Þá hefur öskufall sett svip sinn á
laugina undanfarið.
einstakt
útsýni
Sundlaugin á hofSóSi
n Ný sundlaug var reist á Hofsósi
nú í vetur. Hún var tekin í notkun
í mars. Sundlaugin er í sjálfu sér
hefðbundin en útsýnið úr lauginni
þykir einstakt, eins og glöggt
má sjá á þessari fallegu mynd.
Umhverfið er annars snyrtilegt og
stílhreint. Sundlaugin var gjöf frá
athafnakonunum Lilju Pálmadótt-
ur og Steinunni Jónsdóttur sem
eiga jarðir á Höfðaströnd.
mögnuð jarðBöð
jarðböðin við mývatn
n Jarðböðin eru flestum kunn enda hafa
Íslendingar og útlendingar baðað sig í þeim í
meira en hálfa öld. Þau samanstanda af 5000
fermetra hveravatni, náttúrulegum gufuböðum
og heitum pottum. Einstakt er að koma í böðin
og aðstaða er þar öll til fyrirmyndar. „Hiti er í
jörð, heitar uppsprettur eru í gjám og hvergi
annars staðar á Íslandi stígur hrein vatnsgufa,
laus við brennistein og aðra mengun, upp úr
jörðinni,“ segir á heimasíðunni jardbodin.is.
Besta laug á
austurlandi
Sundlaugin á eSkifirði
Verð: Fullorðnir 340 kr. Börn 170 kr.
n Á Eskifirði er nýleg og glæsileg
sundlaug sem var tekin í notkun fyrir
um fjórum árum. Þeir sem ferðast um
Austurland og vilja skola af sér rykið
ættu að skella sér í sund á Eskifirði.
Þar eru heitir pottar, gufubað,
vaðlaug og rennibrautir fyrir börnin.
Aðstaðan er öll til fyrirmyndar og
þrátt fyrir að sundlaugin á Egilsstöð-
um sé góð er þessi líklega númer eitt.
Besta sundlaug á Austurlandi.