Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 18
GJALLARHORN PÁLMA n Gunnar Hjálmarsson, Dr. Gunni, er svo heppinn að vera orðinn varaborgarfulltrúi sem þýðir að hann mun fá ágæt laun frá Reykvíkingum. Hann blogg- aði um frama sinn og lýsti þar þeirri von sinni að flokkur hans yrði ekki „hækja auðvaldsins“ eins og Bubbi Morthens. Einhverj- ir glottu við tönn við lesturinn. Dr. Gunni er í seinni tíð hvað þekkt- astur fyrir að vera með gjallarhorn í umboði Pálma Haraldssonar í Fons þar sem hann æpir á lands- lýð að fljúga með Iceland Express, f lugfélagi Pálma. KLOFIN FRAMSÓKN n Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokks- ins, stendur yfir flokki sínum klofnum eftir að sveitarstjórnar- kosningarnar leiddu svart- nætti fylgis- hruns yfir flokk hans. Guðmundur Steingrímsson alþingismað- ur varð fyrstur til þess að benda á ábyrgð formannsins sem ekki virð- ist ná í gegn. Vigdís Hauksdóttir þingmaður steig fram formannin- um til stuðnings. Þá skeiðaði fram á völlinn varaþingmaður formanns- ins, Ásta Rut Jónasdóttir, og lýsti stuðningi við Guðmund. Augljóst er að flokkurinn er í sárum. FÁIR HJÁ KRISTJÁNI n Kristján Jóhannsson óperu- söngvari á að baki glæsta fortíð sem óperusöngvari. Sú var tíðin að hann söng fyrir fullum höllum um víða veröld. Þegar hann kom til Íslands var það jafnan viðburð- ur. En nú hefur orðið breyting á. Gamli gull- barkinn hefur verið á tónleika- ferð um landið. Meðal annars kom hann fram á Ísafirði og dugði ekki minna en íþróttahúsið til að taka við væntanlegum mannfjölda. Vandinn var hins vegar sá að Ís- firðingar voru ekki uppnæmir. Kristján söng því fyrir hálftómu húsi. JÓNI ÁSGEIRI LÉTT n Eftir því er tekið að fréttaharkan á Stöð 2 hefur snarminnkað eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson hætti sem fréttastjóri. Nú er meira um mildari fréttir og svo er að sjá sem mesti ákafinn sé horf- inn. Einhverjum er létt við áherslu- breytingarn- ar. Hermt er að kátastur allra sé aðaleigandinn, Jón Ásgeir Jóhannes- son, sem er ekki lengur fastagestur í fréttatímum eigin fréttastofu og situr í þeim skilningi á friðarstóli. Kosningarnar um síðustu helgi hafa þá sérstöðu að þar tapaði enginn flokkur eða framboð nema heiðarlega framboðið hans Ólafs F. Magnússon- ar. Allir gömlu flokkarnir unnu stór- sigra á ýmsum sviðum. Þótt Fram- sóknarflokkurinn brynni til grunna á höfuðborgarsvæðinu vann hann samt stórsigur að mati formannsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hef- ur bent rækilega á þá staðreynd. Til dæmis fékk flokkurinn kosinn mann á Ísafirði. Þá benti formaðurinn á að innan L-istans á Akureyri eru margir fyrrverandi framsóknarmenn. Sama er uppi á teningnum víða um land. Svo er að skilja að í Reykjavík hafi flokkurinn verið heppinn að ná ekki inn oddvitanum sem ekki var til þess fallinn ráða við verkefni. Enda er aðeins rætt um eina afsögn innan flokks- ins. Óbreyttur Guðmundur Steingríms- son flutti mönnum þann munnlega gjörning að krefjast þess að formaðurinn tæki ábyrgð á óumflýjanlegu fylgishruninu. Af- sagnar hans er nú krafist. Steingrímur J. Sigfússon, for-maður VG, hefur einnig bent á stórsigur flokksins. Þetta er alveg rétt hjá honum því í stóra samhenginu má sjá að flokkurinn var ekki til fyrir rúmum 10 árum. Allt sem er umfram núllið flokkast sem sigur. Í Reykjavík tókst að verja sæti Sóleyjar Tómasdóttur þótt dúkameistarinn félli úr borgarstjórn. Bjarni Bene-diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, er á sömu nótum. Hann bendir réttilega á að flokkurinn er í stórsókn í Reykjavík með fimm borgar- fulltrúa í stað sex áður. Og þannig er það víðar um landið í nokkrum hreppum að flokkurinn tapaði smátt sem þýðir varnarsigur. Á Akureyri tókst Sjálfstæðisflokknum að verjast algjöru hruni og halda inni einum manni. Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingar, hefur einnig séð ljósið í fylgishrun-inu. Samfylk- ing tapaði aðeins tveimur mönnum í Reykjavík en hefði getað tapað fimm. Þetta er því stórkostlegur varnarsigur. Og rétt eins og hjá Bjarna tókst að lágmarka fylgishrunið um allt land við óbærilegar aðstæður. Jóhanna var upptekin við að smala köttum þegar hún hefði þurft að smala atkvæðum. Og Jóka er ekki að djóka þegar hún sér enga ástæðu fyrir forystu flokksins að axla ábyrgð. For- ystunni tókst að verja flokkinn gegn tortímingu sem er kraftaverk ef mið- að er við frammistöðu í ríkisstjórn og í einstökum sveitarfélögum. Fjórflokkurinn er á einu máli um að fylgi Besta flokksins í Reykjavík sé eins og hverj-ar aðrar náttúruhamfarir. Þetta var óumflýjanlegt og ber að skoða kosningaúrslitin út frá því. Sigur í kosningunum snýst þannig um takmarkað tap. Og út frá því er ekkert hægt að lesa út úr kosningun- um annað en frábæra frammistöðu fjórflokksins við aðstæður sem voru þær erfiðustu í lýðveldissögunni. Eini flokkurinn sem tapaði að einhverju marki er Besti flokkurinn. Þar stefndu menn að meirihluta í Reykjavík en fengu minnihluta. Þeir sem halda því fram að keisarinn sé ekki í neinum fötum eru heimskir. FJÓRIR STÓRIR SIGRAR „Nei, en loksins eru borgarmálin orðin skemmtileg,“ segir Ragnar Bragason leikstjóri, sem leikstýrði og skrifaði Næturvakt- ina, Dagvaktina og Fangavaktina. Flest bendir nú til þess að aðalleikari þáttanna, Jón Gnarr, verði borgarstjóri Reykjavíkur innan fárra daga. Liggur þá ef til vill beint við að gera þætti um borgarstjórahlutverkið. ER BORGARVAKTIN Í PÍPUNUM?  „Mér finnst þetta, og ég bið ykkur að afsaka orðbragðið, helvítis rugl.“ n Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í gær þegar hann benti á nýlegar mannaráðningar í stjórnkerfinu án auglýsingar. Á sama tíma og niðurskurður væri í gangi. - mbl.is „Framsóknarmenn eru hreint ekki óvinsælir í borginni.“ n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um stöðu flokksins þrátt fyrir herfilega kosningu þar. Sumir hafa sagt að þeir séu ekki óvinsælir því þeir séu einfaldlega ekki til í borginni lengur. – visir.is „Þetta græna eplakjaftæði vil ég ekki sjá.“ n Bogi Ágústsson fréttamaður á RÚV í kosningasjón- varpinu. Þegar DV leitaði svara sagði Bogi að honum fyndist sódavatn með eplabragði einfaldlega vont. - RÚV „Við bara fengum ekki eins mörg stig og spáð var.“ n Valli sport, umboðsmaður Heru Bjarkar Þórhallsdóttur, aðspurður hvað farið hafi úrskeiðis en framlag Íslands í Eurovision þetta árið, Je Ne Sais Qui, í flutningi Heru náði einungis 19. sæti í keppninni. – DV.is „Ég ætla bara að reyna að finna mér vinnu og njóta lífsins.“ n Einar Skúlason, efsti maður á lista Framsóknarflokksins í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum. Hann ætlar að einbeita sér að því að vera ástfanginn af kærustu sinni. – DV Kjör Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-sonar sem formanns Framsóknar-flokksins snemma á síðasta ári gaf von um að íslensk stjórnmál hefðu breyst. Ákvörðun hans um að styðja minni- hlutastjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna staðfesti þá von. Þar fór Sigmundur út af leið gömlu stjórnmálanna og breytti í andstöðu við valdagræðgi. Hann leitaði lausna í stað þess að reyna fyrst og fremst að koma höggi á pólitíska andstæðinga. Síðan færðist Sigmundur Davíð smám sam- an í aukana og rann aftur í far gömlu stjórn- málanna með stóryrtum yfirlýsingum, skot- grafarstjórnmálum og kröfum um afsögn. Gömlu stjórnmálin, sem einkennast af lið- skiptri gagnrýni og rökræðum án hlustunar og hugsunar, líkt og Morfís-keppni þegar best læt- ur, hafa líka verið stunduð af vinstriflokkun- um. Og kannski var það þess vegna sem enginn hlustaði þegar Steingrímur J. Sigfússon og Ög- mundur Jónasson hrópuðu úlfur, úlfur í aðdrag- anda efnahagshrunsins. Í lok apríl sýndi Sigmundur Davíð af hverju hann var kjörinn. Hann baðst afsökunar á „and- varaleysi“ Framsóknarflokks í aðdraganda efnahagshrunsins. Hann benti á aðra orsök hrunsins, sem liggur í íslenskri umræðuhefð. „Ef ég ætti að nefna eitthvað eitt sem stendur upp úr sem meginástæða þess að fór sem fór er það skortur á gagnrýninni hugsun,“ sagði hann við samflokksmenn sína. Greining Sigmundar gaf til kynna skilning á mikilvægi mismunandi sjónarmiða og umburðarlyndi fyrir gagnrýni. Frambærilegasta tilfelli gagnrýninnar hugsunar eftir kosningaúrslitin átti sér ein- mitt stað hjá þingmanni Framsóknarflokksins. Guðmundur Steingrímsson skynjaði höfnun almennings á fjórflokknum þegar hann sá sig- ur Besta flokksins og L-listans á Akureyri. Ekki er sjálfsagt að stjórnmálamenn skynji slíkt, eins og heyra mátti á orðum Hönnu Birnu og Bjarna Benediktssonar, sem sáu Sjálfstæðisflokk falla um 10 prósentustig en skynjuðu „stórsókn í Reykjavík“. Í öðru lagi ályktaði Guðmundur að flokki hans hefði mistekist að bregðast við kröfu kjósenda um ný stjórnmál. Skilningur er ekki heldur sjálfsagður, eins og sjá má á viðbrögðum sömu stjórnmálamanna. Aðrir sem náðu svo langt að álykta hið sama voru Sóley Tómasdóttir hjá Vinstri-grænum og Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar. En Guðmundur tók þriðja skref gagnrýninnar hugsunar. Hann benti á það hvernig flokki hans hefði mistekist og hvaða leiðir væru til úrbóta. „Ef við hefðum hagað okkur öðruvísi, ef við hefðum sýnt að við værum fær um að, að sýna svona pólitík, sann- girni og samstarfsvilja og ákveðna auðmýkt, þá hefði öðruvísi farið í höfuðborginni.“ Í valdatíð Halldórs Ásgrímssonar og Val- gerðar Sverrisdóttur var gagnrýni á eigin flokk metin sem dauðasynd. Það var jafnvel höfuð- synd að gagnrýna samstarfsflokkinn í ríkis- stjórninni eða ríkisstjórnina. Ekki mátti gagn- rýna efnahagslífið eða gjaldmiðilinn, því þá væri verið að „tala niður“ efnahaginn, gjald- miðilinn eða jafnvel ríkisstjórnina. Ef Framsóknarflokkurinn rúmar gagnrýna hugsun Guðmundar á hann sér von á tímum nýrra stjórnmála. Ef ekki er best að hann haldi sig í Skagafirði. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Ef Framsóknarflokkurinn rúmar gagnrýna hugsun Guðmundar á hann sér von . 18 MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 UMRÆÐA SANDKORN LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA Guðmundur gagnrýnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.