Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 19
JÓN AXEL FRANSSON varð á dögunum fastráðinn sem dansari við Konunglega danska ballettinn. Hann upplifði mikla gleði þegar honum var boðinn samningur við dansflokkinn. Jón Axel, sem verið hefur nemandi við ballettskóla Konunglega ballettsins, fékk samt smá sjokk fyrst því yfirmaður flokksins stríddi honum með því að hann væri rekinn. SAGÐI FYRST AÐ ÉG VÆRI REKINN Eitt dapurlegasta einkennið á þjóð- málaumræðunni á Íslandi í dag er sú tilhneiging ýmissa manna að geta að- eins séð atburði hversdagsins í svart- hvítu. Stundum gengur þessi tvílita skipting á heiminum út á það að taka afstöðu með eða á móti erkifjendun- um Davíð Oddssyni og Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni. Fylgismenn Davíðs eru þá kallaðir náhirð og flokkurinn í kring- um Jón Ásgeir er kenndur við Baug ásamt einhverjum mismóðgandi end- ingum. Þeir sem trúa á þessa tvílitu heimssýn líta svo á að allir séu annað- hvort í liði með náhirðinni eða Baugs- slektinu og að allir atburðir hversdags- ins snerti stríðið á milli þeirra á einn eða annan hátt. Annað sé ómögulegt. Nú hefur Ólafur Arnarson, álits- og ráðgjafi, stigið fram á bloggi sínu og reynt að sýna fram á að DV sé hluti af náhirð Davíðs Oddssonar. Ástæðan er sú að blaðið vogaði sér að fjalla um það að hann hefði tekið við mánaðarlegum greiðslum upp á 400 þúsund krónur frá þekktasta almannatengli á Íslandi, Gunnari Steini Pálssyni, sem unnið hefur afar náið með Exista og stjórnendum Kaupþings í gegnum tíðina og þeg- ið frá þeim háar greiðslur fyrir. Tengsl Gunnars Steins og eigenda Exista eru reyndar svo náin að þegar þeir Bakka- vararbræður föluðust eftir DV fyrir skömmu var Gunnar Steinn Pálsson í forsvari fyrir þá, líkt og fjallað var um í fjölmiðlum á sínum tíma. Hrekur ekki fréttina Hér er komið að kjarna málsins í umræðunni um náhirðina og Baugsliðið. Ólafur reynir ekki einu sinni að hrekja fréttaflutning DV um greiðslurnar og tengslin við Gunnar Stein heldur kýs þess í stað að segja að blaðið sé í ófrægingarherferð gegn honum vegna þess að það tilheyri náhirðinni og sé rekið áfram af annarlegum sjónarmiðum. Ólafur fer í kringum kjarna málsins og eyðir púðri í að réttlæta sjálf- an sig án þess þó að neita að inntak frétta- rinnar um greiðslurnar frá Gunnari Steini sé rétt: „Ég starfa sjálfstætt, sem ráðgjafi. Ég er ekki blaðamað- ur...,“ segir Ólafur meðal annars á bloggi sínu. En þetta á væntanlega að réttlæta það að það geti farið saman að vinna ráðgjafarstörf fyrir útrásarvíkinga og skrifa pistla um þessa sömu menn án þess að það eigi að hafa áhrif á skrifin og grafa undan tiltrú lesenda á hlutleysi við- komandi. Einhver gæti sagt: Ólafur er jú bara álitsgjafi og ráðgjafi en ekki blaðamaður og þess vegna er nánast ósanngjarnt að krefjast þess af honum að hann gæti lágmarks hlutleysis því hann megi hafa þær skoðanir sem honum sýnist. Ólafur er sleginn svo mikilli blindu að hann veltir því ekki einu sinni fyrir sér hversu heppilegar tengingar hans við Gunnar Stein, Exista og Kaupþing eru heldur leit- ar skýringa á fréttinni með því að segja að DV sé í liði með Davíð og því honum óvinveitt. Ólafur áttar sig ekki á því að Davíð Oddsson skiptir engu máli í fréttinni heldur einungis hann sjálfur og hans ráðgjafarstörf sem hann getur ekki svarað fyrir. Þess í stað skýlir Ólafur sér á bak við erjurnar sem hann hefur átt í við Davíð og segir tilgang DV með upp- lýsingunum um greiðslur til hans frá almannatenglinum vera annarlegan. Hvorki né er möguleiki Ólafur virðist ekki skilja að hægt er að vera hvorki í liði Davíðs né Jóns Ásgeirs og að hægt sé að segja fréttir af mönnum og málefnum án þess að hagsmunaástæður liggi þar á bak við. Svart-hvíta heimssýnin hans Ólafs Arnarsonar gengur ekki upp nema í kollinum á honum sjálfum og öðrum sem sjá heiminn í þessum einsleitu og dapurlegu litum. Frétt DV af Ólafi Arnarsyni er sögð vegna þess að það skiptir máli fyrir trúðverðugleika manna fyrir hverja þeir vinna og hver greiðir þeim laun. Þetta á sérstaklega við ef menn vinna sem álitsgjafar og pistlahöfundar á fjölmiðlum því yfirleitt er gert ráð fyrir að slíkir séu hlutlausir í skrifum sínum. Liggja þarf fyrir ef þessir álitsgjafar eru kostaðir af einhverjum öðrum en miðlinum sem þeir skrifa í svo þeir geti ekki leikið tveimur, þremur eða fleiri skjöldum og gert sér upp hlutleysi í einstökum málum. Þess vegna á það erindi við almenning að vita hvar þeir standa og hverjum þeim tengjast. Með þessa vitneskju í farteskinu geta lesendur sett upp ákveðin gleraugu þegar umfjöllun við- komandi manna er lesin og það kemur í veg fyrir að álitsgjafarnir misnoti lesendur sína með áróðri. En Ólafi finnst þessi rök sennilega ekki skipta máli enda hræðist hann þau vegna þess að þau eru sönn og vegna þess að þau geta grafið undan vægi þeirra skrifa sem hann lætur frá sér fara. Það þjónar miklu betur hans hagsmunum að stilla frétt DV upp sem hluta af herferð náhirðarinnar gegn honum og reyna að grafa undan sannleiksgildi fréttarinnar með því móti frekar en með staðreyndum og rökum. Fjár- hagsleg tengsl hans við Exista og Gunnar Stein Pálsson liggja nú fyrir og lesendur Ólafs eiga að hafa þau í huga. Villa Ólafs Arnarsonar UMRÆÐA 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR 19 1 AUGLÝST EFTIR HANDRUKKARA Á BARNALANDI Notandi á Barnalandi auglýsti eftir handrukkurum á netinu. 2 HERÓÍN BESTA LAUSNIN FYRIR FÍKLA Breskir læknar segja að heróín sé besta lausnin fyrir heróínfíkla. 3 BEITTU BAREFLUM Í ÁTÖKUM VIÐ SÉRSVEITARMENN Hjálpar- starfsmenn beittu bareflum gegn ísraelskum hermönnum. 4 „VIÐ MUNUM EKKI LEYFA NEINU SKIPI AÐ KOMA TIL GASA“ Aðstoð- arvarnarmálaráðherra Ísraels, Matan Vilnai, vill engin skip til Gasa. 5 „MÓTMÆLT SVO LENGI SEM EKKERT ER GERT FYRIR HEIMILIN“ Heimavarnarliðið vill úrbætur fyrir heimilin. 6 BEINT LÝÐRÆÐI Í BETRI REYKJAVÍK Á betrireykjavik.is gefst borgarbúum tækifæri á að kjósa um málefni borgarinnar. 7 SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN EKKI TIL Í AÐ SLÍTA STJÓRNMÁLASAM- BANDI Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Jón Axel Fransson.“ Hvar ertu uppalinn? „Aðallega í Danmörku því ég flutti hingað þegar ég var þriggja ára, eða í sextán ár. Ég hef búið á nokkrum stöðum á Stór-Kaupmannahafnarsvæðinu.“ Hvernig er að alast upp í Dan- mörku? „Það er æðislegt.“ Hversu hátt metinn er þessi dansflokkur á Evrópuskalanum, eða jafnvel á heimsvísu? „Hann er í fremstu röð í heiminum. Þetta er þriðja elsta danskompaní í heiminum þannig að ég myndi segja að þetta sé „top-elite“.“ Ertu fyrsti Íslendingurinn sem fær dansarastarf hjá dansflokknum? „Ég held að ég sé sá fyrsti sem er fastráðinn sem dansari.“ Hvernig var tilfinningin þegar þér var boðinn samningurinn? „Ég varð mjög glaður. Yfirmaður minn stríddi mér fyrst, sagði að ég væri rekinn. Ég fékk svolítið stórt sjokk. En hann leiðrétti það strax, fór að hlæja og sagði að ég væri ráðinn. Varðstu fyrir áreiti í æsku, verandi strákur í ballett? „Nei, aldrei. Ég upplifði aðallega að strákar segðu „vá, kúl“.“ Hvers vegna byrjaðir þú að æfa ballet? „Fyrst ætlaði systir mín að fara að sækja um inngöngu í ballettskólann. Þegar mamma spurði hvort ég vildi ekki bara koma með neitaði ég, sagði að ballett væri bara fyrir stelpur. En einhvern veginn tókst mömmu að taka mig með, mér fannst þetta mjög skemmtilegt og fékk inngöngu. Ég var átta ára þegar þetta var.“ MAÐUR DAGSINS KJALLARI „Já.“ GUÐMUNDUR RÚNAR GUÐMUNDSSON 31 ÁRS „Já, absolútt.“ SARA ANNA MARIA PIETIKAEINEN 30 ÁRA „Auðvitað eigum við að slíta stjórn- málasambandinu við Ísrael. Þetta er óforskömmuð framkoma gagnvart ríki.“ ARNDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR 49 ÁRA, SKRÚÐGARÐYRKJUFRÆÐINGUR „Ég veit það ekki.“ KJARTAN JÓN BJARNASON 19 ÁRA, NEMI „Er einhver tilgangur í að hafa samband við þá?“ KARL ALEXANDER JÓHANNSSON 23 ÁRA, NEMI Á ÍSLAND AÐ SLÍTA STJÓRNMÁLASAMBANDI VIÐ ÍSRAEL? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar „Ólafur áttar sig ekki á því að Davíð Odds- son skiptir engu máli í fréttinni.“ Mennskar umferðarkeilur „Þetta er fínt starf,“ sögðu þessar ungu konur á Seltjarnarnesinu, spurðar út í vistina á miðri Valhúsa- brautinni. Stúlkurnar gættu þess að ökumenn keyrðu ekki yfir blauta götumálninguna. Líklega með þægilegri störfum dagsins en bæjarstarfsmenn þurfa að sinna margvíslegum viðvikum á sumrin. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.