Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 20
Johan Westlund (Joel Kinnaman)
sinnir viðskiptatengdu námi sem
hann vonar að muni færa honum
auðæfin sem hann þráir til að full-
komna lífsstíl sinn. Hann hangir
með smjörgreiddum yfirstéttarhöl-
um og lýgur sig áfram sem svakaleg-
an spaða meðal þeirra. Þetta er ekki
ódýrt og hann sinnir alls konar höstli
og harki til að geta þó allavega lit-
ið út fyrir að vera ríkur. Ekki minnk-
ar þrýstingurinn þegar hann eignast
ríka kærustu og vitað er að hann þarf
að sanna sig sem vel fjáður til að dul-
argervið virki. Hann fær rosalegt, en
á sama tíma kolólöglegt, tilboð sem
gæti uppfyllt efnishyggjudrauma
hans til fullnustu. En miklum pen-
ingum fylgja mikil vandamál.
J.W. er vel skrifaður og vel leikinn
karakter sem rímar heldur skakkt við
„samstarfsfélagana“ í vafasama geir-
anum. Þeir sem stýra glæpaheim-
inum í Svíþjóð horfðu ekki á Einar
Áskel í æsku heldur eru margir hverj-
ir ferskir úr blóðugum borgarastríð-
um. Þetta er sænsk mynd en mest er
töluð chilesk spænska, arabíska og
serbneska. J.W. velkist um í vita von-
lausum bransa þar sem allir svíkja
alla og enginn stendur við neitt,
hvorki gagnvart vinum, fjölskyldu né
sjálfum sér. En á sama tíma eru þetta
svo aumar upphæðir miðað við fórn-
ina. Við sjáum ástæður hvers og eins
og hvaða örþrif keyra menn áfram,
Snabba Cash setur líf og sál í glæpa-
fyrirsagnir okkar tíma. Meira að segja
J.W. fær samúð manns þótt hann sé
bara gráðugur í golfföt og skyrtu-
hnappa.
Snabba Cash er sannferðug.
Spurningum er látið ósvarað, heim-
ildavinna út í minnstu smáatriði
tryggir trúverðugleika, enginn flýgur
á vængjum Hollywood úr ósigrandi
stöðu og hasarinn er raunveruleg-
ur. Ekkert er fegrað, en menn missa
sig reyndar aðeins hér í að láta alla
vera með dinglandi sleftauma við
minnsta æsing. Myndin er vel leik-
in, vel gerð og sjónarspilið stendur
manni nærri. Jafnvel þegar sólin skín
upplifir maður dimmt yfirbragð sög-
unnar, skemmtilega verið að leika sér
með birtu og fókus.
Þekktustu glæpamyndir okkar
tíma eru of mikið í ákveðinni
„gangsta rómantík“ þar skemmtana-
gildið tekur yfir raunveruleikateng-
inguna. Snabba Cash er ekki í þeim
flokki og menn vilja meira.
Erpur Eyvindarson
Hvað Heitir lagið?
„Hlýtur að vera djöfull á milli okkar,
eða hórur í höfði mínu, hórur við
dyrnar mínar, hóra í rúmi mínu.“
á mi ðvikudegi
20 miðvikudagur 2. júní 2010 fókus
PersíuPrinsinn
enn vinsælastur
Kvikmyndin Prince of Persia:
Sands of Time heldur toppsæti
listans yfir aðsókn að kvikmynda-
húsum landsins fyrir síðustu helgi.
Eins og kunnugt er er kvikmynda-
mógúllinn Jerry Bruckheimer aðal-
framleiðandi myndarinnar og Gísli
Örn Garðarsson á sterka innkomu
sem vondi kallinn Vizier en mynd-
in var frumsýnd fyrir tveimur vik-
um. Í sætum tvö og þrjú eru einnig
sömu myndir og helgina áður, Ro-
bin Hood og Snabba Cash. Af þeim
myndum sem frumsýndar voru um
helgina nær Last Song með Miley
Cyrus í aðalhlutverki hæst, eða
fjórða sætinu. Fast á hæla henni
koma Centurion og Youth in Re-
volt.
Bjartar Hvera-
gerðisnætur
Tónlistarhátíðin Bjartar sumar-
nætur verður haldin í Hveragerð-
iskirkju um næstu helgi, dagana
5. og 6. júní. Boðið verður upp
á einsöng, einleik og öndvegis
kammerverk. Flytjendur verða
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran-
söngkona, Ástríður Alda Sig-
urðardóttir píanóleikari, Hulda
Jónsdóttir, fiðluleikari og með-
limir Tríós Reykjavíkur, þau
Peter Máré píanóleikari, Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Gunnar Kvaran sellóleikari. Fyrri
tónleikarnir verða á laugardaginn
klukkan 20 og bera yfirskriftina
Fauré í forgrunni. Hinir seinni,
með yfirskriftinni Klassík í háveg-
um, eru á sunnudaginn og hefjast
klukkan 17.
Blanda íslensku
og skosku
Glænýtt tón- og textaverk eftir Bene-
dikt H. Hermannsson, betur þekktan
sem Benni Hemm Hemm, verður
frumflutt á Listahátíð í Reykjavík á
morgun, fimmtudag. Í verkinu er
íslensku og skosku att saman svo úr
verður tungumál sem hljómar kunn-
uglega, en er þó framandi. Söngvar-
arnir tveir, Benni og hinn skoski
Alasdair Roberts, syngja persónu-
lega og nærgöngula texta hvor á sínu
tungumálinu. Blásarasveit Reykja-
víkur heldur söngvunum uppi og
flæðir inn í textaeyður og stundum
tekur hún völdin og sprengir þakið
af húsinu. Tónleikarnir verða einnig
á tónlistarhátíðinni AIM í Ketilhús-
inu á Akureyri á laugardaginn.
Eyþór Ingi, sigurvegari þáttarins Bandið hans Bubba, sendir frá sér sitt fyrsta lag:
draumavél af lagernum
„Þetta er eitt af þeim lögum sem ég á
á lager, ef hægt er að segja svo,“ seg-
ir Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngv-
ari og lagasmiður, sem á eitt lag-
anna sem er að finna á safnplötunni
Á vegum úti og Zonet gaf út á dög-
unum. Lag Eyþórs, sem þekktast-
ur er fyrir að bera sigur úr býtum í
sjónvarpsþættinum Bandið hans
Bubba á Stöð 2, heitir Draumavél-
in og mætti lýsa sem nokkuð ljúfu
popplagi en þó með agressífu raf-
magnsgítarsviðlagi. Trompetsóló í
seinni hluta lagsins virkar svo sem
skemmtilegt krydd.
„Von er á meiru í framhaldi af
þessu,“ segir Eyþór og vísar þar til
sólóplötu sem hann er með í bí-
gerð. „Það er í raun allt að verða til-
búið á hana, en ég er ekki búinn að
ákveða hvenær ég ætla að gefa hana
út,“ bætir hann við og segir aðspurð-
ur að hann ætli ekki að stressa sig á
að klára plötuna fyrir haustið. Eitt af
því sem á eftir að gera er að ganga
frá samningi við útgefanda.
Draumavélin er fyrsta lagið eft-
ir Eyþór sem gefið er út. Áður hefur
komið út með honum lagið Hjartað
mitt en það var samið af Bubba.
Höfundur texta Draumavélar-
innar er stúlka að nafni Jónína Guð-
rún Eysteinsdóttir. „Þetta er kærasta
besta vinar míns. Hún er klárlega
upprennandi rithöfundur,“ segir Ey-
þór, himinlifandi með samstarfið
við Jónínu. kristjanh@dv.is
Draumavélin er fyrsta lagið af
fyrirhugaðri sólóplötu.
MYND HEIða HElgaDóttIr
Svar: Hey með Pixies.
smjörgreiddur
einar áskell
snaBBar reiðufé
Snabba caSh
leikstjóri: Daniel Espinosa
aðalhlutverk: Joel Kinnaman, Matias
Padin Varela, Dragomir Mrsic, Lisa Henni
kvikmyndir
Snabba Cash „Heimildavinna út í minnstu
smáatriði tryggir trúverðugleika, enginn
flýgur á vængjum Hollywood úr ósigrandi
stöðu.“
Harka Það duga engin vettlingatök í
undirheimum Svíþjóðar.