Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 22
22 miðvikudagur 2. júní 2010 viðtal Missti tengdaföður í Miðri kosningabaráttu Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir fékk símtal á mánudagskvöldið. Jón Gnarr, fyrrverandi pönkari, þjóðþekktur grínari og líklega næsti borgarstjóri Reykvíkinga, var á hinni línunni. Símtal sem hún hafði beðið eftir. Sonur hans átti fimm ára afmæli en Jón hafði eytt deginum í meirihlutaviðræður og pólitík. Hann var svo önnum kafinn allan daginn að hann rétt hitti son sinn til þess að fara með hann á leikskólann. Engu að síður gaf hann sér nokkrar mínútur til þess að ræða síðustu daga, framboðið, bar- áttuna, hvernig það var að sitja undir því að vera kallaður illum nöfnum, missa tengdaföður sinn skyndilega í miðri baráttu og hvað það var sem dreif hann áfram. Sæll, gaman að heyra í þér. „Sæl, já, takk.“ Hvernig hefur þú það eftir allt sem á undan er gengið? „Ég hef það bara mjög gott. Það er mik- ið að gera en bara gaman. Síðustu dag- ar hafa verið sérstakir. Kosningadag- urinn var mjög spennandi dagur. Svo var ég illa sofinn og þreyttur í gær. Í dag er fyrsti dagurinn þar sem ég næ átta tíma svefni og ég er bara glaður. Ég er að átta mig á þessu.“ Leið illa í æsku Árið 2006 tók ég viðtal við Jón fyrir tímaritið Mannlíf. Þar kom fram að Jón er bæði ofvirkur og með athyglisbrest. Hann var ekki nema fjögurra, fimm ára þegar hann var farinn að líða fyrir hluti eins og hvatvísi auk þess sem hann átti erfitt með að aðlagast. Sex ára gamall var hann kominn inn á barna- og ung- lingageðdeild. Jón gat ekki lært og leið fyrir það. Hann lærði ekki að skrifa fyrr en hann var ellefu ára gamall og gat ekki lært stærðfræði. Þegar viðtalið var tek- ið kunni hann enn bara að leggja saman, ekki að draga frá og hafði lent í vandræðum vegna skuldasöfnunar. „Ég get ekki dregið frá nema neðri talan sé lægri en efri talan, ég kann ekki að fá lánað eða eitthvað svo- leiðis.“ Jón var ekki nema tólf ára þegar hann uppgötv- aði að hann hefði ekkert fram að færa sem skipti máli í þessu þjóðfélagi og gerði uppreisn. Hann var ekki metinn að verðleik- um og hafði ekki þá eig- inleika sem almennt eru mikils metnir í þjóðfélag- inu. Ári síðar gerðist hann pönkari. „Mér fannst fólk og þjóðfélagið óvinveitt mér og ég gaf frat í kerf- ið. Ég var að kafna. Ég var uppgefinn á þessu öllu saman, vera að reyna að vera eitthvað sem ég var ekki.“ Hann var laminn í skóla, læddist meðfram veggjum og leið illa í skóla. Fjórtán ára hætti hann að mæta og fór að hanga á Hlemmi, eins og kom fram í DV fyrr á þessu ári. Þá var hann sendur á unglingaheimilið Núp í Dýra- firði, sem var héraðsskóli og eins kon- ar geymslustaður fyrir vandræðaungl- inga. Þar var Jón í tvö og hálft ár. Þar var hann aldrei laminn og þótt hann hafi verið lokaður inni á kvöldin var þessi tími á Núpi ekki sem verstur. Jón hefur einnig sagt frá því í DV að hann hafi sniffað og tekið sjóveikistöfl- ur reglulega, einu sinni með þeim af- leiðingum að hann var fluttur á neyð- armóttökuna þar sem þurfti að dæla upp úr honum. Í kjölfarið lá hann á spítala í nokkra daga. Seinna notaði hann hass og kókaín en fór svo í með- ferð nítján ára gamall og hætti þá að nota áfengi og vímuefni. Þrátt fyrir þessa reynslu lítur Jón ekki á sig sem alkóhólista. Stórplayer í stjórnmálum Í Mannlífsviðtalinu sagðist Jón vera andlega seinþroska en bráðgáfaður. „Ég fæ hugmyndir sem enginn annar í heiminum hefur feng- ið en ég er fullkomlega ófær um að skipuleggja mig. Ég er mjög vanþrosk- aður tilfinningalega og get vel fallist á að ég sé misþroska.“ Hann sagði líka að einangrunin sem hann upplifði í æsku og hvatvís- in byggi alltaf í honum. Inni í sér liði honum oft eins og hann væri níu ára. En það sem hefði lagast væri viðhorf hans gagnvart sjálfum sér. „Ég er orð- inn sáttari við það hver ég er og hvern- ig ég er. Maður er hræddur við að fólk dæmi mann og það væri auðveldara að reyna að leyna því hver maður er og horfast ekki i augu við sjálfan sig. Það að viðurkenna þetta er mun erfiðara og flóknara. ... Það erfiðasta er í raun afstaða mín til þessa. Skömmin yfir því hver ég er og hvernig ég er. Skömmin er sár og í raun þyngri klafi á sálinni en hegðunin sjálf.“ Eins og Jón sagði hugsar hann öðruvísi en aðrir. „Mér líður oft eins og ég sé eina Macintosh-vélin i PC-heimi. Ég er bara einhvern veginn með annað stýrikerfi en allir aðrir. Með því að við- urkenna vanmátt minn gat ég einbeitt mér í því sem ég er góður í.“ Sem er meðal annars að skapa listaverk og list Jóns felst oft í gríni. Þó að hann hafi kynnst erfiðleikum, aldrei lokið námi og farið óhefðbundnar slóðir í lífinu hefur hann látið til sín taka og náð árangri í því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Hann er einn farsælasti skemmtikraftur þjóð- arinnar, grínisti, rithöfundur, leikari og hugsuður. Með alls konar uppátækjum hefur honum tekist að skapa umræðu. Engu að síður er saga hans ekki mjög týpísk fyrir verðandi borgarstjóra og eiginlega langt frá því. Ég óska honum til hamingju með árangurinn og spyr: Þykir þér þetta ekki óraunverulegt? „Nei, eiginlega ekki.“ Hvernig líst þér á verða borgarstjóri? „Bara vel. Ég stefni hraðbyri á að verða stórplayer í stjórnmálum,“ segir hann kankvís. Rekinn fyrir húmorsleysi Í þessu Mannlífsviðtali árið 2006 sagði Jón frá því að hann, sem Þórarinn Tyrfingsson rak frá SÁÁ á sínum tíma fyrir að vera húmorslaus, hefði síðar orðið þræll þess að vera skemmtileg- ur. Hann kynni ekki að lesa í lík- amstjáningu fólks og vissi ekki hver afstaða þess væri nema það brosti eða gréti. Eins og hann orðaði það sjálfur: „Ég var þræll þess að vera skemmtilegur umfram allt annað. Lífið varð samofið gríni og ég var hættur að gera grein- armun á veruleika og óraun- veruleika. Mér fannst ég ekki til nema ég væri fyndinn. Annars var ég ekkert.“ Til þess að finna lausn á þessu leitaði hann eftir lífsfyll- ingu með veraldlegum gæðum og fór á hausinn. Síðar leitaði hann í trúna og gerðist kaþ- ólskur til þess að heila sjálfan sig og vinna bug á tómarým- inu og þörfinni fyrir viður- kenningu annarra. „Það er oft þannig að maður leitar í eitt- hvað andlegt þegar erfiðleikar steðja að. Mín leið var að fara í kirkjuna og kveikja á kertum. Það var alltaf gott að koma þangað og mig vantaði andlegt akkeri.“ Jón gekk svo langt í leit sinni að trúarþekkingu að hann las alla biblí- una, staf fyrir staf, og dvaldi í klaustri Benediktsmunka í Bretlandi sumarið 2006. Í viðtali við DV fyrr á þessu ári sagðist hann ekki vera eins trúrækinn nú og þá. Trúarskoðun hans væri allt- af að breytast, líkt og hann sjálfur. „Ég trúi á hið góða. Ég trúi ekki á Guð en ég veit að hann hefur bullandi trú á mér.“ Var vanmetinn Hann sagði þó aldrei alveg skilið við grínið og árið 2007 hristi hann upp í þjóðinni með auglýsingaherferð Sím- ans sem hann gerði fyrir Ennemm þar sem hann vann þá. Júdas var í aðal- hlutverki í auglýsingunum, sem sum- um þóttu drepfyndnar á meðan aðr- ir hneyksluðust á því að grínast væri með son Guðs í símaauglýsingu. Eins og alþjóð veit sló Jón svo eft- irminnilega í gegn sem Georg Bjarn- freðarson, frekar ófrýnilegur en vel menntaður einstæðingur og örugg- lega leiðinlegasti maður á jarðríki. Og nú síðast vakti framboð hans athygli og umtal, ekki bara hér á landi heldur úti um allan heim. Besti flokk- urinn hefur verið umfjöllunarefni á BBC, Telegraph, Spiegel og víðar. Þeg- ar Jón kom fyrst fram með framboðið héldu margir að þetta væri gjörningur. Ég man að þegar við gerðum þig að Eldhuga ársins í Nýju Lífi í janúar vorum við ekki vissar á því hvort þetta væri alvara eða djók, en þá var þér strax full alvara. „Já. Frá upphafi var mér alvara. Það væri kannski athyglisvert að skoða framboðið í samhengi allt frá því ég bauð mig fyrst fram. Mér var alltaf al- vara og ég var alltaf að segja það.“ Datt þér einhvern tímann í hug að þú ættir raunverulegan séns í stöðu borgarstjóra? „Já, ég hafði alltaf fulla trú á því sem ég Besti flokkurinn skapaðist jafn- óðum. Eitt af því sem ég var að gera var að hæð- ast að pólitíkinni og frambjóðendunum. Í miðri kosninga-baráttu varð tengdapabbi minn bráð- kvaddur á heimili sínu. Það var gífurlegt áfall fyrir alla fjölskylduna. Ég afgreiddi það fallega og þá var ég enginn grínisti á meðan ég var að því. Grínistinn Þegar grínferill Jóns Gnarrs stóð s em hæst datt fáum í hug að hann ætti eftir að verða bor garstjóri. Grínið tryggði honum þó vinsældir auk þess sem Jón hefur alltaf reynt að vera heiðarlegur og koma vel fram við alla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.