Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 23
viðtal 2. júní 2010 miðvikudagur 23 Missti tengdaföður í Miðri kosningabaráttu var að gera. Ég hafði strax tilfinningu fyrir því að þetta myndi ganga svona vel. Sem sýnir bara að ég er í ágætum tengslum við umhverfi mitt, Reykjavík- urborg og borgarbúa. Ég er mikið bet- ur tengdur en fólk gerir sér grein fyrir. Einn minn mesti styrkur í þessu fram- boði var að aðrir frambjóðendur hafa vanmetið mig stórlega.“ Er heiðarlegur og almennilegur Hvernig þá? „Fólk er alltaf að tala um að árang- ur Besta flokksins sé fyrst og fremst til- kominn vegna óánægju með hina flokkana. Fólk áttar sig ekki á því að ég nýt mikils persónulegs fylgis á meðal Reykvíkinga. Af því að ég hef alla ævi vandað mig í samskiptum við fólk og lagt mig fram um að vera heiðarleg- ur og almennilegur. Ég hef komið vel fram og látið gott af mér leiða án þess að berja mér á brjóst fyrir það eða slá mig til riddara.“ Hvað hefur þú verið að gera? „Ég hef komið víða við. En þótt ég sé búinn að vera frægi kallinn í mörg ár hef ég alltaf haldið einkalífinu utan við sviðsljósið. Ég hef aldrei tranað mér fram í Séð og heyrt og Hús og híbýli hafa aldrei verið heima hjá mér.“ Ég veit að þú hefur leitað svolítið inn á við í gegnum tíðina og verið dug- legur að leita leiða til að gera sjálfan þig að betri manni. „Já, líka í samfélaginu. Síðustu ár hefur mitt aðalstarf falist í því að halda nám- skeið á vegum Þekkingarmiðstöðvar. Ég hef farið út um allt, inn í félagastofn- anir og fyrirtæki úti um alla borg. Þessi námskeið fjölluðu ann- ars vegar um þjónustu og samskipti, þróun á sam- skiptum, gildi og hæfni í mannlegum samskiptum. Og hins vegar um húmor, þróun á íslenskum húmor og verðmæti húmors. Ég notaði síðan sömu aðferð við að koma Besta flokkn- um í borgarstjórn. Það eru svo mikil verðmæti falin í húmor.“ Líkt við illmenni Var kosningabaráttan úthugsuð? „Nei, ég var meira bara að búa þetta til jafnóð- um og reyna að hafa gaman af því sem ég var að gera. Besti flokkurinn skapaðist jafnóðum. Eitt af því sem ég var að gera var að hæðast að pólit- íkinni og frambjóðend- unum. Á sama tíma var ég að búa til minn eigin flokk. Jafnframt var ég að vinna heimavinn- una mína og kynna mér málin af alvöru.“ Af hverju tókstu þetta á gríninu? „Ég er góður grínisti og hef unnið mikið með grín. Húmor er bara svo dýrmætur og mikilvægur eiginleiki. Ég hef alltaf verið svona frá því ég var lítill, glaðlyndur og hugmyndaríkur. Ég fæ endalausar hugmyndir. Ég mun aldrei hætta því, ég verð svona á grafarbakk- anum þar til ég dey.“ En nú hefur þú setið undir ýmsu síðustu vikur, meðal annars verið líkt við Hitler, Berlusconi og fleiri. Hvernig var að lesa svona um sjálf- an sig? „Þetta hefur allt verið mér í hag. Mér fannst leiðinlegt þegar þetta kom frá fólki sem ég hef alltaf talið vel gefið og hef staðið í þeirri trú að sé ekki ill- gjarnt. En þarna varð mér ljóst hvern- ig fólk er. Ég lærði hversu algengt það er að hugsjónir víki fyrir hagsmunum. Og hversu örvæntingarfullt fólk getur orðið þegar það er að verja hagsmuni sína, en það gerir það oft undir því yfir- skini að það sé að verja hugsjónir sínar. Það var mjög opinberandi fyrir rosa- lega marga. Ég man ekki eftir einstöku dæmi, en það var oft verið að líkja mér við erlend illmenni. En það var líka bara fyndið og gaman, ég get hlegið að flestu og yfirleitt haft gaman af því sem ég er að gera.“ Beitir húmor á erfiðleikana Húmorinn hefur líka hjálpað Jóni í gegnum ótrúlegustu hluti. Eins og hann sagði í DV fyrr á árinu sá hann meira að segja húmorinn í eineltinu: „Auðvitað er maður ekkert hoppandi glaður með að það sé verið að lemja mann en eftir á reynir maður að sjá húmorinn í svona hlutum. Mér finnst það líka vera val fyrir fólk að gera það. Þegar við lendum í einhverju er það hluti af því að takast á við aðstæður sem við ráðum ekki við. Til þess að komast yfir hlutina er mikilvægt að sjá það fyndna í þeim. Þannig sigrumst við á þeim. En fólk sem gerir það ekki það situr bara fast. Fast í reiðinni.“ Þá sagðist hann líka hafa verið duglegur við að koma sér í fáránlegar aðstæð- ur. Hann væri fljótfær, grunnhygginn, hégómlegur og skapmikill. Hefði hann ekki húmorinn væri hann á geðdeild, reiður og ruglaður. En húmorinn hjálpaði honum að takast á við þetta. Að sama skapi væri hægt að nota húmorinn til þess að breyta íslensk- um stjórnmálum. „Alls staðar þar sem ég hef verið hef ég gert meira gott en slæmt. Það er bara í eðli mínu. Ég er gefandi manneskja. Ég geri yfirleitt meira gott en slæmt og ég trúi því að ég fái það til baka einhvern tíma seinna. Ef ekki, þá skiptir það mig engu máli heldur. Það eina sem ég veit er að þetta þarf ekki að vera svona leiðinlegt. Það er hægt að láta gott af sér leiða án þess að vera hrútleiðinlegur.“ Fráfall tengdaföðurins En heldur þú að þú getir haldið grín- inu gangandi þegar þú verður orð- inn hluti af þessu kerfi? „Ég er búinn að kynnast erfiðleikum í lífinu og mér hefur tekist að halda húmor og gleði í gegnum það þannig að mér mun takast að halda því í gegn- um þetta.“ En getur borgarstjóri alltaf verið að grínast? Skapar það ekki óöryggi ef fólk veit ekki hvort þér er alvara eða ekki? „Ég er bara ekki þannig maður. Ég er 43 ára gamall og hef alið upp fimm börn. Ég er grínisti en ég er ekkert alltaf að grínast. Ég get líka verið eðlilegur í samskiptum. Í miðri kosningabaráttu varð tengdapabbi minn bráðkvaddur á heimili sínu. Það var gífurlegt áfall fyrir alla fjölskylduna. Ég afgreiddi það fallega og þá var ég enginn grínisti á meðan ég var að því. En svo hélt ég bara áfram.“ Varstu alveg viss um að þú gætir og ættir að halda áfram kosningabar- áttunni þegar þetta gerðist? „Já, af því að mér fannst þetta skipta mjög miklu máli. Þetta er borgin okk- ar og menningin. Það er rosalega mik- ið í húfi. Það hefur skipt mig gríðarlega miklu máli að við náum fram alvöru breytingum þannig að hlutirnir breyt- ist til hins betra og fólki fari að líða bet- ur. Þannig að ég held ótrauður áfram.“ Missti af afmæli sonarins Hvað finnst konunni þinni um þetta? Og börnunum? „Börnin eru bara sátt. Konan mín er mjög ánægð með þetta, enda hefði ég aldrei gert þetta ef hún stæði ekki með mér. Börnin mín hafa líka staðið með mér og tekið virkan þátt í kosningabar- áttunni. Þau hafa hjálpað til á kosn- ingaskrifstofunni og svo á ég einn fimm ára í dag, hann á afmæli í dag.“ Til hamingju. „Takk. En þau hafa líka passað hann.“ Hefur þú hitt hann eitthvað í dag, á afmælisdaginn hans? „Nei, eða jú aðeins. Ég rétt hitti hann í morgun og fór með hann í leikskólann.“ Þú hefur talað um það hvað þú hef- ur lagt mikla áherslu á að vera með honum á hans forsendum og gefa honum tíma. „Já, ég hef gert það. Ég hef alltaf reynt að passa upp á það. Við erum miklir vinir.“ Hvað ætlar þú þá að gera fyrir hann fyrst þú hittir hann ekk- ert á afmælisdag- inn? „Ég ætla að gefa hon- um hlaupahjól. En mamma hans sér um það fyrir okkur. Þeg- ar þetta er allt afstað- ið, við erum búin að mynda meirihluta og skipa í helstu emb- ætti borgarinnar langar mig til þess að fara með hann upp í sumarbústað. Fara kannski niður að höfn að veiða.“ Býstu við að nýta alla þessa tólf daga sem þið hafið til þess að ganga frá þessum málum? „Já, ég hugsa að vik- an fari svolítið í þetta. Næstu dagar verða ör- ugglega þannig að dag- urinn hefst klukkan níu og lýkur klukkan tíu að kvöldi. Þetta verður ör- ugglega þannig alla daga. En mig langar bara til þess að gera eitt- hvað gott fyrir borgina. Mig langar virkilega til þess að hjálpa til við að gera þessa borg fallega og skemmti- lega.“ Hvernig ætlar þú að gera það? „Með því að koma til móts við kröfur íbúa. Með því að bjóða upp á sam- göngukerfi sem virkar og fjölbreytta afþreyingu fyrir íbúa. Þá langar mig að bæta aðgengi fyrir hreyfihaml- aða. Og búa til eitthvað skapandi, styðja við skapandi fólk og verkefni. Mér finnst það mjög spennandi að verða borgarstjóri.“ Besti borgarstjórinn Í viðtali við DV fyrr í vetur sagði Jón að ef til þess kæmi yrði hann besti borg- arstjóri sem Reykjavík hefði eignast. Hann myndi aldrei gera annað en það sem myndi gleðja borgarbúa og væri sama um óvinsældir á meðal annarra borgarfulltrúa. En nú var verið að kalla hann á fund og við verðum að láta þetta gott heita, í bili allavega. Á kom- andi vikum og mánuðum munum við heyra meira í og af Jóni Gnarr. Enn er mörgum spurningum ósvarað, við vit- um til dæmis ekki hvað hann ætlar að gera varðandi ísbjörninn eða hvernig hann ætlar að breyta starfsaðferðum borgarstjórnar. En ef Jón mun sinna starfi borgarstjóra af sama frumleika og hann sinnti kosningabaráttunni verð- ur spennandi að sjá hvað hann gerir á komandi vikum og mánuðum, hvort hann verði bestur. Besti borgarstjórinn fyrir Besta flokkinn. Það kemur í ljós. ingibjorg@dv.is Mér finnst það mjög spennandi að verða borgarstjóri. Það hefur skipt mig gríðarlega miklu máli að við náum fram alvöru breyting- um þannig að hlutirnir breytist til hins betra og fólki fari að líða betur. Ætlar að taka til hendinni Jón Gnarr vill leggja sitt af mörkum til þess að breyta íslensku stjórnmálalífi og gera það bæði betra og skemmtilegra. Í hlutverki pólitíkuss Jón hefur í nógu að snúast þessa dagana við að mynda meirihluta í borgarstjórn. Vegna anna missti hann af fimm ára afmæli yngsta sonarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.