Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Page 26
Ragnhildi Gísladóttur hefur
marg oft verið hrósað í gegnum
tíðina fyrir unglegt og heilsusam-
legt útlit. Ekki furða þar sem þessi
53 ára gamla tónlistarkona lítur
ekki út fyrir að vera deginum eldri
en 33 ára. Oft hefur Ragnhildur
verið spurð um leyndarmálið
en lítið látið uppi í þeim efnum.
Sumir standa á því fastar en fót-
unum að hún hafi leyft lýtalækn-
um að sýna færni sína á and-
liti sínu. Ragnhildur hefur alltaf
neitað því. Að verjast sólarljósi
er þó hugsanlega ein skýringin á
útlitinu unglega. Heimildamað-
ur DV sá söngkonuna frábæru
alla vega hjólandi í Vesturbænum
með sambýlismanni sínum, Birki
Kristinssyni, í veðurblíðunni um
síðustu helgi. Þrátt fyrir glamp-
andi sólskin var ljóst að geislar
þeirrar gulu fengu ekki að leika
um andlit Ragnhildar þar sem
hún var með, auk stærðarinnar
sólgleraugna, kolsvartan trefil vaf-
inn um höfuð sitt og andlit.
Hið árlega Stjörnugolf fer fram 23. júní í ár
á hinum glæsilega Urriðavelli í Garðabæn-
um. Mótið er ekki samtengt Herminator In-
vitational eins og í fyrra heldur fer það aftur í
fyrra horf. Leikið er eftir Texas Scramble-fyrir-
komulagi þar sem betri boltinn gildir í tveggja
manna liði. Á hverju ári mæta stjörnur á borð
við Eið Smára, Ladda, Sveppa, Sigmund Erni,
Loga Bergmann og Helgu Möller ásamt fleir-
um.
Í ár er leikið til styrktar kaffistofu Samhjálp-
ar sem gefur þeim að borða sem ekki eiga í sig
eða á. Heimsóknir á kaffistofuna hafa tvö-
faldast frá árinu 2007 en alls sóttu 42 þúsund
manns hjálp til kaffistofunnar á árinu 2009.
„Við töluðum við Samhjálp sem er alveg
svakalega stórt batterí. Eftir tuttugu mínútna
fyrirlestur frá þeim var ekki spurning í okk-
ar huga að þetta væri eitthvað sem við vild-
um leggja lið,“ segir Ágúst Guðmundsson
sem ásamt félaga sínum, Björgvini Frey Vil-
hjálmssyni, eru stofnendur og mótshaldarar
Stjörnugolfsins.
Stjörnugolfið hefur hingað til lagt ýmsum
málefnum lið, meðal annars Barnaspítala
Hringsins, Neistanum, Umhyggju og MND
félaginu. Mest hefur safnast 2,1 milljón en í
heildina hafa þeir félagarnir með hjálp góðra
fyrirtækja safnað um níu milljónum til styrkt-
ar góðum málefnum.
Fyrirtæki geta keypt sig inn á mótið en
lágmarksgjald er 50.000 krónur. „Það er erf-
iðara að fá inn pening núna. Við erum ekki
með neinn helling af sponsum í þessu núna
en krafturinn fer núna allur í að safna pening.
Við viljum safna 1.750 þúsundum, þá yrðum
við sáttir,“ segir Ágúst og bendir á póstfang-
ið stjornugolf@visir.is fyrir þau fyrirtæki sem
vilja taka þátt. tomas@dv.is
Stjörnugolfið styrkir Samhjálp
SJÖTTA GOLFMÓT FRÆGA FÓLKSINS TIL STYRKTAR GÓÐU MÁLEFNI:
ELÍN HIRST:
Gunnar Þorsteinsson í Kross-
inum og Jónína Benediktsdótt-
ir leggja upp í brúðkaupsferð
til Flórída á morgun, fimmtu-
dag, en eins og flestir vita líklega
gengu þau í það heilaga í mars
síðastliðnum. Sölvi Tryggvason,
dagskrárgerðarmaður á Skjá ein-
um, fer með líkt og Jónína greindi
frá í viðtali við DV skömmu eftir
brúðkaupið þar sem þau tvö ætla
að vinna að bók um íslenska
viðskiptaheiminn eins og Jónína
hefur upplifað hann síðustu ár.
Sölvi segir frá því á fésbókarsíðu
sinni að ferðin sé handan við
hornið og fær ýmis viðbrögð frá
vinum. Þar á meðal frá söngvar-
anum Friðriki Ómari, sem bjó
heima hjá Jónínu tímabundið
fyrr á árinu, en hann segir Sölva
bara að hringja í sig ef Gunnar
verði óþægur. Hann eigi nokkur
hollráð í pokahorninu sem svín-
virki á klerkinn í Krossinum.
26 MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 FÓLKIÐ
Elín Hirst hefur haft í nógu að snú-
ast eftir að hún lét af störfum fyrir
RÚV. Hún eyddi til að mynda tíu
dögum með upptökuliði 60 Minu-
tes á dögunum í leit að heppileg-
um tökustöðum vegna umfjöllun-
ar um eldgosið í Eyjafjallajökli. Var
það afar áhugaverð og lærdóms-
rík reynsla sem Elín metur mikils,
enda algjör draumur fyrir frétta-
hund eins og hana að komast í tæri
við slíka reynslubolta eins og þar
starfa, þar sem aldur og reynsla eru
talin til verðleika í þessum heims-
fræga fréttaþætti.
Á meðal þeirra mála sem Elín
Hirst fjallaði oft um í gegnum tíð-
ina á sínum ferli sem fréttakona
eru málefni Mæðrastyrksnefndar.
Eftir að hafa flutt fréttir af starfinu
langaði Elínu til að kynna sér starf-
ið betur. Hún hefur því nýtt tímann
sem hún hefur nú aflögu til þess og
hefur farið nokkra miðvikudaga til
þess að fylgjast með úthlutun. Hún
segir það afar hollt og góða leið til
þess að draga úr eigin sjálfsvor-
kunn. Þangað komi fjölskyldur í fá-
tækt, einstæðar mæður með mörg
börn, einstæðir karlar, innflytjend-
ur og einstæðingar. „Ég hef verið
þarna. Ég hef horft í augun á þessu
fólki og séð neyðina. Ég hef líka séð
hvað Mæðrastyrksnefnd er að gera
til þess að hjálpa þessu fólki og í
mínum huga er Ragnhildur hetja,“
og á þá við Ragnhildi Guðmunds-
dóttur formann Mæðrastyrks-
nefndar.
Ragnhildur hélt erindi á ráð-
stefnunni Tengslanet – Völd til
kvenna sem haldin var á Bifröst
síðastliðinn föstudag. Þar var
Elín einnig og að erindi Ragn-
hildar loknu stóð hún upp
og lýsti þessu yfir. Þá lét hún
klappa fyrir Ragnhildi, sem
væri ein þeirra þriggja kvenna
sem hafa gegnt lykilhlutverki í
því að hjálpa þjóðinni í gegnum
kreppuna ásamt þeim Sigríði
Benediktsdóttur og Evu Joly. Elín
tók einnig undir það að það væru
að myndast ghettó í Reykjavík
vegna fátæktar, líkt og Ragnhild-
ur Guðmundsdóttir sagði í er-
indi sínu, sem hún lauk með því
að ákalla Guð: „Kannski er ekki
rétt að kalla á Guð, heldur bið ég
ykkur allar sem hér sitjið að finna
það góða í sjálfum ykkur.“ Eins og
Elín hefur gert.
ingibjorg@dv.is
Elín Hirst aðstoðaði á dögunum upptökulið heimsfræga fréttaskýringaþáttarins 60
Minutes við umfjöllun um eldgosið í Eyjafjallajökli. Eftir að Elín lét af störfum hjá
RÚV hefur hún einnig fylgst náið með störfum Mæðrastyrksnefndar og hjálpað til við
úthlutun hennar.
60 MINUTES
OG MÆÐRASTYRKSNEFND
60 MINUTES Elín aðstoðaði tökulið við
þáttargerð um gosið í Eyjafjallajökli.
TAKA HÖNDUM SAMAN Guðmunda Ingadóttir,
forstöðumaður kaffistofunnar, ásamt Ágústi Guð-
mundssyni og Björgvini Vilhjálmssyni, mótshöldur-
um Stjörnugolfs. MYND RÓBERT REYNISSON
„EF GUNNAR
VERÐUR
ÓÞÆGUR“
FORÐAST
SÓLINA
ELÍN HIRST Hefur ekki
setið aðgerðalaus eftir
starfslok á RÚV.
MYND VERA PÁLSDÓTTIR