Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 32
n Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, er kominn á þann stað í lífinu að bera þann virðulega titil „formaður allsherjarnefndar Al- þingis“. Þingmaðurinn söngelski er því kominn óravegu frá sínu fyrra sýsli en meðal ann- ars spilaði hann í brekkusöngn- um í Eyjum, var á sjónum og vann hjá Stöð 2 og NFS. Margar fræg- ar sögur eru til af þingmanninum og má þar meðal annars nefna þegar hann hélt því fram í fréttum Stöðvar 2 að Ísland hefði ver- ið komið á lista staðfastra þjóða árið 2003 áður en tiltekinn ríkisstjórnar- fundur var haldinn. Róbert þurfti síð- ar að taka éta fréttina ofan í sig eftir að upp komst að hann kunni ekki mjög vel á klukku og lét hann af störfum í kjölfarið. Róbert sneri síðar aftur á NFS og skrifaði eitt frægasta bréf ís- lenskrar samtímasögu sem stílað var á Jón Ásgeir Jóhannesson þar sem hann var beðinn um að halda lífi í NFS. Formennska Róberts í alls- herjarnefnd er því enn eitt sporið á skrautlegum starfsferli hans. RóbeRt viRðuleguR „Það er ekki vaninn að íbúar í Götu læsi húsunum sínum en ættingjar Eivarar er nú byrjaðir að gera það út af þessum manni. Öll fjölskyldan hennar býr í Götu,“ segir Jens Guð- mundsson aðspurður um íslenskan mann sem hrellt hefur Eivöru Páls- dóttur söngkonu í heimabæ hennar Götu síðastliðið ár. Maðurinn, sem er um fertugt, hefst við í tjaldi og færir sig til og frá í bænum og fylgist með Eivöru. „Hann finnur sér einhverja grasbala til að tjalda á,“ segir Jens sem vinn- ur nú að bók um Eivöru og heimsótti Götu um páskana vegna þessa og ræddi við ættingja hennar. „Ég heyrði mikið talað um hann þegar ég var í Færeyjum. Venjulega ganga menn bara inn í hús í Götu, það þekkist ekki að fólk banki eða hringi dyrabjöllunni. Menn labba bara inn og leita bara að þeim sem þeir vilja ná í. En nú læsa menn að sér út af honum,“ segir Jens um hrell- inn og bætir því við að samkvæmt fjölskyldu Eivarar sé henni langt í frá skemmt yfir veru hans í bænum og hefur hún rætt við lögregluna í bæn- um um hann. „Þessi maður hefur fengið þá flugu í höfuðið að umboðsmaður Eivarar standi í veginum fyrir því að hann og Eivör geti orðið hjón. Og honum er mjög illa við umboðs- manninn hennar. Hann er með ranghugmyndir en hefur hingað til ekki gert neinum mein þótt hann hafi hótað því að kveikja í húsi um- boðsmanns Eivarar. Út af þessu get- ur lögreglan ekkert gert í málinu,“ segir Jens sem bætir því við að hann sendi Eivöru einnig gríðarlega mik- inn fjölda bréfa. Aðspurður hvernig eltihrellirinn hafi í sig og á segir Jens að hann viti ekki til þess að maðurinn hafi unnið neitt í Götu og því sé líklegt að hann eigi einhverja peninga sem hann notar til að draga fram lífið í tjaldinu í Götu. ingi@dv.is Íslenskur eltihrellir hefur áreitt færeyska söngfuglinn Eivöru Pálsdóttur í Götu: læsa vegna hRellisins n Össur Skarphéðinsson, utanrík- isráðherra og þingmaður Samfylk- ingarinnar, tók á því í World Class í Laugum á dögunum, þar sem hann svitnaði á skíðavélinni. Það vakti athygli gesta í stöðinni að Össur skyldi velja sér að horfa á útsend- ingu frá fundi Alþingis á sjónvarps- skjá á meðan hann puðaði. Össur hefur verið mikill kafbátur í íslenskum stjórnmálum frá hruninu og mestmegnis kom- ið upp á yfirborðið við tækifæri sem hann velur sér sjálfur í stað þess að vera í fararbroddi. Ein- hverjir veltu því fyrir sér hvort ráðherr- ann hefði ekki átt að vera við- staddur þing- fundinn í stað þess að horfa á hann úr ör- uggri fjarlægð. Töframaður á toppnum! DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. veðRið í dag kl. 15 ...og næstu daga sólaRuppRás 03:23 sólsetuR 23:29 Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 hoRfði á alþingi í Ræktinni REykjavík komdu í áskrift! 512 70 80 dv.is/askrift frjálst, óháð dagblað Fim Fös Lau Sun vindur í m/s hiti á bilinu Stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Fim Fös Lau Sun vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Höfn Reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri Selfoss Sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík 3-5 9/13 5-8 8-12 3-5 7/11 3-5 7/10 5-8 5/9 3-5 6/10 3-5 3/12 0-3 4/13 5-8 7/9 0/3 8/14 5-8 8/11 3-5 8/14 3-5 8/14 5-10 9/12 3-5 9/14 0-3 8/14 0-3 7/13 3-5 7/11 5-8 6/10 3-5 8/12 3-5 5/13 0-3 7/14 3-5 7/9 3-5 9/13 8-13 9/14 3-5 8/15 3-5 8/15 8-10 9/13 0-3 9/14 0-3 7/13 0-3 7/12 3-5 7/11 3-5 6/10 3-5 7/11 3-5 5/14 3-5 7/13 5-8 8/9 3-5 9/11 8-13 9/14 3-5 9/16 3-5 10/13 3-5 9/12 3-5 12-14 0-3 9/12 3-5 7/12 3-5 8/9 3-5 6/8 0-3 7/10 3-5 5/11 0-3 8/14 5-8 9/11 0-3 10/15 5-8 14/15 3-5 10/14 3-5 8/12 5-8 11/13 Mán Þri Mið Fim hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu Stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu London hiti á bilinu París hiti á bilinu Berlín hiti á bilinu Tenerife hiti á bilinu Alicante 19/11 20/9 16/8 21/10 23/9 22/8 14/7 26/15 29/18 19/10 21/7 20/8 20/10 23/9 23/12 15/9 25/15 29/18 19/11 20/7 20/8 17/7 26/12 27/15 16/11 21/16 29/18 19/9 22/8 21/9 17/6 27/11 28/16 22/11 21/13 29/18 veðRið úti í heimi í dag og næstu daga 13 11 9 14 15 8 15 9 1115 14 6 2 2 2 22 2 4 6 10 66 6 8 Hitakort Litirnir í kortinu tákna hitafar á landinu. Sjá kvarða. Góðviðri oG fer batnandi HöfuðboRgaRsvæðið Fínasta veður næstu daga. Hægviðri og léttskýjað að mestu. Hiti 11-16 stig að deginum næstu daga, hlýjast á föstudag og laugardag. Sunnudagurinn verður hlýr en skýjað. Líkt og í gær verður hætta á síðdegisskúrum, einkum þó um helgina, bæði laugardag og sunnudag. landsbyggðin Þeir eru duglegir að skamma mig þeir bændur sem vilja almenni- lega rigningu. Þeim finnst ég horfa um of á sólarglennuna og þurrkinn. Ég er nú þeirrar skoðunar að gott veður sé hægviðri, þurrt og milt og að sólin sé punkturinn yfir i-ið. Rigningin er vissulega nauðsynleg en telst ekki endilega til blíðuveðurs. En ég lofa öllum að það komi dagar þar sem rigningin gerir sig gildandi, ekki síst sunnanlands. næstu dagaR Hægviðrasamt verður almennt séð fram yfir helgi. Þó má búast við vaxandi austanátt síðdegis á morgun og á föstudag allra syðst og gæti þá orðið allhvass vindur á annesjum og í Eyjum. Einnig verður blástur með norðurströnd landsins. Víðast verður bjart veður fram á sunnudag en þá þykknar víða upp. Hlýtt í veðri eða 10-20 stig, hlýjast til landsins nyrðra. <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.vEðRið mEð sigga stoRmi siggistormur@dv.is Hugað að skÝjum! Nú í fyrstu verður skýjað norðaustan- og austanlands en þar léttir til um hádegi. Á Suðurlandi þykknar hins vegar nokkuð upp þegar líður á síðdegið. Ég á þó ekki von á neinum alvöru síðdegisskúrum. Hvar verður besta útileguveðrið? Allt landi er nú lagt undir en nánar í helgarblaði DV. atHugasEmd vEðuRfRæðings n Óskar Jónasson, leikari, handrits- höfundur og leikstjóri, sem margir þekkja líka sem Skara skrípó, gerði sér lítið fyrir og gekk upp á Hvanna- dalshnúk um helgina í stórum hópi fólks. Gang- an upp á hæsta fjall Íslands var farin undir for- merkjum hóps- ins Toppaðu með 66° Norður og Íslenskum fjalla- leiðsögumönnum, sem æft hafa fyrir gönguna upp á tindinn með því að ganga á ýmis fjöll í vetur. Hópurinn lagði af stað snemma morguns og var Óskar meðal fremstu manna alla leið- ina á toppinn. gekk á hvannadalshnúk fjölskyldan óhress Fjölskylda Eivarar í Götu er ósátt við íslenska eltihrellinn sem hefur hafst við í Götu síðastliðið ár og læsir nú húsunum sínum að nóttu til af ótta við hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.