Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Blaðsíða 3
mánudagur 11. október 2010 fréttir 3 Fyrir liðlega ári tók Atli Fannar Bjarka son, þá nýráðinn blaðamað- ur á Fréttablaðinu, sér fyrir hendur á Facebook að safna peningum fyr- ir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleig- anda 365. Þetta var í gríni gert eins og frétt í DV af málinu ber með sér. Hún birtist síðan á DV.is þann 11. september í fyrra undir fyrirsögninni „Hef áhyggjur af Jóni Ásgeiri“: „„Ég get eiginlega ekki sofið fyr- ir áhyggjum af drengnum,“ segir Atli Fannar Bjarkason, fyrrverandi rit- stjóri Monitor og núverandi blaða- maður á Fréttablaðinu. Samkvæmt Facebook-síðu Atla Fannars hefur hann stofnað söfnunarreikning fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson, sem í viðtali við Viðskiptablaðið tók fram að fólk þyrfti ekki að hafa áhyggjur af hon- um. „Hann virðist vera í afneitun og hann hefur tapað miklu af pening- um. Ég held að öll þjóðin sé í mikilli geðshræringu yfir afdrifum Jóns Ás- geirs,“ segir Atli Fannar í tilfinninga- ríku samtali við DV en Fréttablaðið er sem kunnugt er rekið af fjölmiðla- samsteypunni 365, sem er í eigu Jóns Ásgeirs sjálfs. Spurður hversu mikilli fjárhæð hann hyggist safna segist hann stefna á 312 milljarða króna, eða sem nem- ur gjaldþroti Baugs. Hann viður- kennir þó að hann sé ekki ýkja bjart- sýnn á að það gangi eftir. „Ég setti reikningsnúmerið mitt þarna inn og síðast þegar ég gáði hafði ekki safnast ein einasta króna,“ segir hann léttur í bragði en þeir sem vilja leggja söfn- unni lið verða líklega að gerast vinir Atla Fannars á Facebook.“ Dró dilk á eftir sér Uppátæki Atla Fannars átti eftir að hafa ýmsar afleiðingar eins og tölvu- póstar gefa til kynna sem DV hef- ur undir höndum. DV hefur gengið úr skugga um að tölvupóstarnir og samskiptin sem þeir endurspegla fóru fram á þessum tíma. „Ég kann- ast við efnið og frásögnina en ætla ekki að tjá mig neitt um þetta,“ segir Jón Kaldal, núverandi ritstjóri Frétta- tímans. Daginn eftir, 12. september 2009, sendir Jón Ásgeir Jóhannesson stutt- an tölvupóst til Ara Edwald. Efnið er „Blaðamaður á FB stendur fyrir söfn- un opinberlega í mínu nafni.“ Orðrétt segir: „Sæll Óska eftir því að þessi starfsmað- ur verði látinn fara nú þegar hann verður ekki í mínum húsum. Hann getur verið sniðugur og búið sjálfur til fréttir hvar sem hann vill og hæðst af mér eins og hann vill, en að ég ætli að borga honum laun fyrir það no way. Kv Jón Ásgeir“ „Hann fer, tad er klart“ Samdægurs ritar Ari Edwald, for- stjóri 365, eftirfarandi orðsendingu til Jóns Ásgeirs: „Hann var ráðinn til reynslu, sem er 3 man, gæti verid ad vid yrdum ad borga 3 man thott hann hætti strax, eftir viku vinnu. 99% likur a sjalf- stædum frettum um ad blm rekinn fyrir ad fara i taugar JAJ, ekkert hugs- ad um rettmæti og ad hann buinn ad gera sig vanhæfan til starfa. Eg hringdi strax i gærmorgun i JK (Jón Kaldal, innskot blaðamanns) og hann var sammala mer. Ræddi vid drenginn. Eg skil tig vel, en tad gæti verid skynsamlegra ad lata a engu bera og hann taki foggur sinar eftir reynslutimann. Hugsadu tad adeins, thetta verdur notad eins og vidbrog- din vid akærunni og greinin daginn eftir. Endalaust tuggid a thessu a blm viti ad eitt ord sem styggi JAJ tydi brottrekstur um hæl. Allt kann sa er bida kann. Oll Baugshatara-mask- inan fer i overdrive. Hann fer, tad er klart. Bara spurning um adferd og tima. Kv. Ari“ Þegar lengra var liðið á þennan dag, ritaði Ingibjörg Pálmadóttir, eig- inkona Jóns Ásgeirs, tölvupóst til Ara, Jóns Ásgeirs og Jóns Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins. Þar segir orðrétt: „Er sammála þessu. Líklega vill hann frekar láta reka sig, það er at- hygli sem hann fær. En það er sérstakt að nýráðinn drengur láti svona og segir mér aðeins eitt að hann er ekki blaðamaður sem tekur starfið sitt alvarlega. Kv Ingibjörg stefanía“ Jón Kaldal ósammála Ara og Jóni Ásgeiri Þann 13. september, degi eftir of- angreind samskipti, ritar Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, Jóni Ásgeiri ítarlegt bréf þar sem hann gerir að- aleiganda blaðsins grein fyrir afstöðu sinni í löngu máli. Varla leikur neinn vafi á því að efni bréfsins var meðal þess sem nokkrum mánuðum síðar leiddi til brottrekstr- ar Jóns. Jón Kaldal ritaði 13. september 2009 kukkan 18.27: „Sæll nafni, Það hefur þegar verið tekið á mál- inu innanhúss. Viðkomandi frétta- manni hefur verið gerð grein fyrir því að starfs síns vegna þarf hann að huga að framgöngu sinni í netheimum, hvort sem það er í bloggskrifum eða á Facebook. Þessi tilraun hans til fyndni beind- ist að þér sem nafngreindum ein- staklingi. Fyrir vikið vakna upp rök- mætar efasemdir um að hann sé fær um að fjalla um þig af sanngirni í stafi sínu sem blaðamaður. Þær efasemd- ir nægja til þess að honum verða ekki falin fréttaskrif þar sem þú kemur við sögu. Í þessu samhengi er mikilvægt að taka fram að nákvæmlega sama hefði gilt ef skotspónninn hefði ekki ver- ið þú, heldur Björgólfur Thor, Stein- grímur J. Sigfússon, Davíð Oddsson eða einhver annar. En menn eru hvorki ráðnir á Fréttablaðið né reknir þaðan eftir skoðunum sínum á eigendum útgáf- unnar. Blaðamenn eru ráðnir ef við teljum þá geta eflt blaðið að gæðum. Þeir missa vinnuna ef þeir brjóta af sér í starfi. Og þegar þarf að hagræða fara þeir fyrstir sem blaðið getur helst verið án. Ég hef starfað á Fréttablaðinu í fimm og hálft ár. Allan þann tíma hef ég get sagt af bestu samvisku að ég hafi ekki orðið var við að eigendur hafi reynt að blanda sér í dagleg störf ritstjórnar. Í þau fáu skipti sem við höfum hist hafa umræður okkar eingöngu snúist um faglegar hliðar rekstur útgáfunn- ar. Um dreifingu, upplag, stærð rit- stjórnar og hugleiðingar um almenn- an brag á efnistökum. Þetta hef ég talið til mikillar fyrirmyndar. Skeytið frá þér í gær eru því vonbrigði.“ „Fréttamat er afstætt“ Jón Kaldal heldur áfram og segir meðal annars að fréttamat geti ekki byggst á því hvað hagkvæmt sé fyrir 365. „Við Ari (Edwald, innskot blaða- manns) höfum átt í töluverðum skoð- anaskiptum undanfarið um hlutverk Fréttablaðsins við kynningu á öðrum miðlum 365. Ari segir mér að þau mál hafi líka verið rædd í hópi stjórnar og ráðgjafa félagsins. Það er rétt að nota þetta tækifæri og gera grein fyrir mín- um viðhorfum í þeim efnum. Mín skoðun er eindregið sú að aðrir miðlar útgáfunnar eigi hvorki að njóta þess né gjalda að vera í eigu 365 þegar kemur að fréttaskrifum. Hið sama gildir um einstaklinga úr eig- endahópi blaðsins og önnur félög og fyrirtæki í þeirra eigu. Fréttamat er auðvitað afstætt fyr- irbrigði. Það er nánast ómögulegt að ná utanum á hverju á að byggja það. Það sem einum þykir fréttnæmt þykir öðrum ekki. Það er hins vegar mun auðveld- ara að segja á hverju fréttamat getur ekki byggt. Fréttamat getur til dæmis ekki byggt á pólitískum hagsmunum, eignatengslum eða hvað er hagkvæmt fyrir afkomu viðkomandi fjölmiðlafé- lags, í okkar tilfelli 365.“ „Eðlilegast er þá að reka ritstjórann“ Áfram heldur Jón Kaldal og segir: „Menn munu rata hratt í vandræði ef þeir ætla að hafa þau viðmið að af- koma 365 eigi að hafa áhrif á hvernig við skrifum fréttir. Hvar á þá að draga línuna í frétta- skrifunum? Á aðeins að hampa syst- urmiðlum Fréttablaðsins en ekki segja frá því sem keppinautar þeirra gera, ef menn telja það mögulega geta bætt afkomu 365? Er þá ekki hag- kvæmt að láta hið sama gilda í frétta- skrifum um mikilvægustu auglýsend- ur Fréttablaðsins og fyrirtæki sem tengjast 365 eignatengslum? Fréttablaðið mun ekki ástunda slík vinnubrögð undir minni stjórn. Það er enginn efi í mínum huga um að þau myndu hafa mjög neikvæð áhrif á trúverðugleika blaðsins og í fram- haldi mögulega arðsemi þess og þar með afkomu 365. Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir því að ef eigendur og stjórnend- ur fyrirtækisins vilja taka upp aðra ritstjórnarstefnu en hefur verið á Fréttablaðinu þá hlýtur sú ákvörðun að vera ráðandi. Eðlilegast er þá að reka ritstjórann og ráða annan í hans stað, sem er tilbúinn að fylgja breyttri stefnu. kkv jk“ Tölvupóstar sem DV hefur undir höndum sýna að Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleig- andi 365, hafði bein afskipti af ritstjórn Fréttablaðsins og beitti sér fyrir því að ungur blaðamaður yrði rekinn fyrir að gera grín að honum á netinu. Jón Kaldal, þáverandi ritstjóri, mótmælti afskiptunum. Liðlega fjórum mánuðum síðar var honum sagt upp. „Hann verður ekki í mínum Húsum“ Óska eftir því að þessi starfsmað- ur verði látinn fara nú þegar hann verður ekki í mínum húsum. Hann getur verið sniðugur og búið sjálfur til frétt- ir hvar sem hann vill og hæðst af mér eins og hann, en ég ætla ekki að borga honum laun fyrir það no way. JóHAnn HAuKsson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is n Handboltakappinn Logi Geirs- son átti bágt með að hemja til- finningar sínar þegar tilkynnt var um að þýska þjálfaranum Marcus Baur hefði verið sagt upp störf- um hjá Lemgo. Logi mun örugg- lega sjá mikið eftir þýsku hetjunni, ef marka má viðbrögð hans á Fac- ebook kvöldið sem tilkynnt var um brottrekstur- inn: „Thetta eru „svakalegar“ frétt- ir gott fólk nær og fjær ;)“ skrifaði Logi á Facebook- síðu sína en Baur hefur oftar en ekki ákveðið að hvíla silf- urdrenginn ljóshærða. Telja má fullvíst að Logi telji sig úthvíld- an. Er sparigrísinn tómur? Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Ég get eiginlega ekki sofið fyrir áhyggjum af drengnum,“ segir Atli Fannar Bjarkason, fyrrverandi rit- stjóri Monitors og núverandi blaða- maður á Fréttablaðinu. Samkvæmt Facebook-síðu Atla Fannars hefur hann stofnað söfnunarreikning fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson, sem í viðtali við Viðskiptablaðið tók fram að fólk þyrfti ekki að hafa áhyggjur af hon- um. „Hann virðist vera í afneitun og hann hefur tapað miklu af pening- um. Ég held að öll þjóðin sé í mikilli geðshræringu yfir afdrifum Jóns Ás- geirs,“ segir Atli Fannar í tilfinninga- ríku samtali við DV en Fréttablaðið er sem kunnugt er rekið af fjölmiðla- samsteypunni 365, sem er í eigu Jóns Ásgeirs sjálfs. Spurður hversu hárri fjárhæð hann hyggist safna segist hann stefna á 312 milljarða króna, eða sem nemur gjaldþroti Baugs. Hann viður- kennir þó að hann sé ekki ýkja bjart- sýnn á að það gangi eftir. „Ég setti reikningsnúmerið mitt þarna inn og síðast þegar ég gáði hafði ekki safn- ast ein einasta króna,“ segir hann léttur í lund en þeir sem vilja leggja söfnuninni lið verða líklega að gerast vinir Atla Fannars á Facebook. baldur@dv.is Logi „svaka sár“ Blaðamaður stofnar söfnunarreikning fyrir útrásarvíking: Hefur áHyggjur af jóni ásgeiri n Leikkonan þokkafulla Maríanna Clara Lúthersdóttir gekk að eiga sinn heittelskaða, tónlistarmann- inn Ólaf Björn Ólafsson, á dögun- um. Mikið fjör var í brúðkaupsveisl- unni sem var frekar óhefðbundin og haldin á barnum Karamba í miðbæ Reykjavíkur. Maríanna geislaði af feg- urð í silfurlituðum kjól með eldrauða hárspöng og hárauðan brúðarvönd. Ekki voru gestirnir af verri endanum enda hjónin mjög virt í listaheiminum. Með- al gesta voru Jói og Gói, hjónin Unnur Ösp Stefáns- dóttir og Björn Thors, Ilmur Kristjánsdóttir og Álfrún Örn- ólfsdóttir. Dans- inn dunaði langt fram eftir kvöldi og héldu vinir og vandamenn hnyttnar ræður, þar á meðal leikarinn Ólaf- ur Egill Egilsson. BrúðkaupsveisLa á Bar n Stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson hefur sjaldan lit- ið betur út og hlýtur verðskuldaða athygli hvar sem hann kemur. Til hans sást á B5 um helgina, þar sem hann var með tvær yngismeyjar upp á arminn. Lögmaðurinn lét sér ekki nægja að bíða í röð og fara inn um aðal- dyrnar, eins og hinir gestirn- ir, held- ur bauð hann föruneyti sínu inn um starfs- mannainn- ganginn, eins og hann ætti staðinn. veLdi á sveini andra Dagskrá og miðasala á ANDK RIST UR // LJÓS ÁR // NOR ÐUR // QU EEN RAQU ELA / / SÁN A 5 VE RÐLA UNAM YNDI R SÝ NDAR AÐE INS Þ ESSA EINU HEL GI Föstudagur 11. september Andkristur kl. 20 Queen Raquela kl. 18 Norður kl. 18 Ljósár kl. 18 Sána kl. 22 Laugardagur 12. september Sána kl. 16 og 18 Ljósár kl. 16 og 18 Norður kl. 16 ,20 og 22 Andkristur kl. 18 Queen Raquela kl. 22 Sunnudagur 13. september Ljósár kl. 16 og 18 Norður kl. 16 og 18 Sána kl. 16 og 20 Queen Raquela kl. 18 Andkristur kl. 22 ANDKRISTUR EFTIR LARS VON TRIER DANMÖRK LJÓSÁR EFTIR MIKAEL KRISTERSSON SVÍÞJÓÐ NORÐUR EFTIR RUNE DENSTAD LANGIO NOREGUR QUEEN RAQUELA EFTIR OLAF DA FLEUR ÍSLAND SÁNA EFTIR AJ ANNILLA FINNLAND SÝNINGARTÍMAR Stofnar söfnunarreikning atli fannar bjarkason telur alla þjóðina í geðshrær- ingu vegna afdrifa Jóns ásgeirs. 11. september 2009 AtliFannarífréttábaksíðuhelgarblaðsDV. Rekinn ViðbrögðJónsKaldal,ritstjóraFréttablaðsins,vöktuengakátínuhjáJóni ÁsgeiriogAraEdwald.Ílokfebrúaráþessuárivarritstjórinnrekinn.Bein afskipti af fréttaBlaðinu á trúverðugleika blaðsins og í fram- haldi mögulega arðsemi þess og þar með afkomu 365.“ Valdið er eigendanna Jón Kaldal kveðst í samtali við DV kannast vel við umrædd samskipti við Jón Ásgeir og Ara Edwald í sept- ember í fyrra og staðfestir því til- veru tölvupóstanna. „Ég kýs að tjá mig ekki um þetta en nefni aðeins að eigendur hafa vald og rétt til að taka ákvarðanir.“ Jón virðist hafa gert sér fulla grein fyrir því að afstaðan gæti kost- að hann ritstjórastöðuna á Frétta- blaðinu því ítarlegu svari hans til Jóns Ásgeirs þann 13. september í fyrra lýkur á svofelldan hátt: „Ég geri mér hins vegar fulla grein fyr- ir því að ef eigendur og stjórnend- ur fyrirtækisins vilja taka upp aðra ritstjórnarstefnu en hefur verið á Fréttablaðinu þá hlýtur sú ákvörð- un að vera ráðandi. Eðlilegast er þá að reka ritstjórann og ráða annan í hans stað, sem er tilbúinn að fylgja breyttri stefnu.“ Eins og áður segir hætti Jón Kaldal störfum í lok febrúar á þessu ári og hefur nú stofnað nýtt blað, Fréttatímann, ásamt ýmsum öðr- um blaðamönnum, þeirra á með- al Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem einnig yfirgaf fréttastjórastöðu inn- an 365 miðla með nokkrum hvelli. DV bar einnig ofangreind ágreiningsmál stuttlega undir Ara Edwald við vinnslu fréttarinnar. „Það eru alltaf einhver ágrei ings- mál,“ sagði Ari stutt og laggot e hann er staddur í Mónakó ásamt Jóni Ásgeiri til að velja íþróttaefni fyrir 365. Í tölvupósti til Jóns Ásgeirs 12. september í fyrra segir Ari að verulegar líkur séu á því að sjálfstæðar fréttir yrðu sagðar af því að blaðamaður hefði verið rekinn af Fréttablaðinu fyrir að fara í taugarnar á „JÁJ“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.