Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Side 18
„Það er sama hvernig íslensk yfirvöld haga sér. Þau munu aldrei stöðva inngöngu MC Iceland í Hells Angels.“ n Leif Ivar Kristiansen er forseti Vítisengla í Noregi. – Fréttatíminn „Auðvitað gerist eitthvað á lífsleiðinni sem er ekkert skemmtilegt en ég ætla ekki að eyða lífinu í að hugsa um hvort ég sé að deyja. Þá myndi ég bara liggja og grenja.“ n Lára Ómarsdóttir fréttamaður sem fékk krabbamein þegar hún var aðeins 24 ára. - DV „Erfiðast finnst mér hvað mikill tími, fyrirhöfn, orka og athygli fara í bull.“ n Jón Gnarr um borgarstjórastarfið. - DV „Með því að gera ekki neitt eða gera lítið getur vandinn orðið dýrari en ef við grípum til ráðstafana.“ n Ögmundur Jónasson efast um að almennar niðurfærslur skulda kosti um 220 milljarða króna eins og haldið hefur verið fram. - mbl.is „Ég er alls ekki besti söngvari í heimi en ég held að ég hafi sérstaka rödd sem mér hefur tekist að þróa með mér.“ n Justin Timberlake um sönghæfileika sína. - Fréttablaðið Kvenrembur í blindgötu Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð-herra var á dögunum gagnrýnd fyrir að standa í vegi fyrir atvinnuuppbygg-ingu með andstöðu sinni við Urriða- fossvirkjun. Gagnrýnin kom frá Samtökum atvinnulífsins. Svar Svandísar var að í forystu fyrir samtökin væri „eintóna kór karla“. Fyrir 95 árum var loksins viðurkennt að bæði kynin hefðu jafnmikinn rétt til að kjósa á Íslandi. Á 20. öldinni tókst síðan loksins nánast að útrýma þeirri hugsun að kyn ein- hvers gerði málflutning viðkomandi ótrú- verðugan. Á sama hátt tókst víða um heiminn að stöðva mismunun á grundvelli kynþáttar og trúarskoðana. Eftir allan þennan tíma og alla þessa bar- áttu stíga merkisberar femínismans nú fram og gera lítið úr sjónarmiði annarra á grund- velli kyns þeirra. Nú eru í vaxandi mæli færð rök fyrir því að karlar séu verr til þess falln- ir að koma að ákvörðunum en konur. Í stað þess að berjast fyrir jafnrétti er barist fyrir því að konur taki völdin, vegna þess að þær séu fremri körlum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrver- andi menntamálaráðherra, svaraði eitt sinn gagnrýni með því að neita því að taka við skipunum frá „miðaldra körlum“. Um það leyti sem rætt var um að ákæra Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur vegna brota á lögum um ráðherraábyrgð sagðist hún vera „... alveg að komast á suðupunkt yfir karlasamstöðunni í samfélaginu – innan flokka og fjölmiðla, milli flokka og milli flokka og fjölmiðla.“ Það er mikil afturför ef farið er að gera lít- ið úr sjónarmiðum fólks á grundvelli þess að sjónarmiðið sé sett fram af karli eða konu. Slík umræða er ekki sjálfbær og leiðir ekki til neins nema skotgrafarhernaðar. Við fær- umst ekki nær neinni niðurstöðu með því að stimpla hlutina sem karlatal eða kvennatal. Á sama hátt hjálpar það ekkert í þjóðfélags- umræðu fjölmenningarsamfélaga að segja að eitthvað sé bara „svartra manna tal“ eða „hvítra“. Fólk á ekki að gera öðrum það sem það vill ekki að sé gert því sjálfu. Það er einfaldur lærdómur, sem til dæmis má finna hjá Jesú og Immanúel Kant. Svandís vill væntanlega ekki að lítið sé gert úr hennar málflutningi á grundvelli þess að hún er kona. Femínistar í valdastöðum ættu að hætta að herma eftir verstu karlrembum fortíðar- innar. Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Svar Svandísar var að í forystu fyrir samtökin væri „eintóna kór karla“. leiðari 18 umræða 11. október 2010 mánudagur Davíð var Dýr n Ólafur Arnarson, bloggari og ráðgjafi, er óþreytandi við að benda á og upplýsa um spillingu Davíðs Oddssonar í forsætisráðherratíð hans. Ólafur bloggaði um það á dögunum að Davíð hefði í taum- leysi sínu gist á Plaza-hóteli á Manhattan þaðan sem hann hringdi í Banda- ríkjaforseta. Davíðsmenn brugðust illa við og sögðu að Davíð hefði ekki verið þar á kostnað ríkisins. Bloggarinn gaf sig ekki og krafð- ist upplýsinga um ferðir Davíðs. Þá kom í ljós að ríkið borgaði fyrir dvölina á Plaza. Alls kostuðu ferða- lög Davíðs árið 2004 rúmlega 14,1 milljón króna. Pressubloggarinn á nú von á nýrri árás Moggans. BrotlenDing Biskupssonar n Einhver versta brotlending ís- lenskrar sjónvarpssögu virtist hafa átt sér stað í skemmtiþættin- um Hringekj- unni sem Davíð Karlsson, leikari og biskupsson- ur, stýrir. Fyrsti þátturinn vakti sérlega harka- leg viðbrögð áhorfenda sem flykkjast í áskriftardeild Stöðvar 2. Heldur var óánægjan minni með þáttinn sem var um helgina. Það mun vera einhverjum huggun að þáttur- inn verður sleginn af um áramót og Evrópusöngvakeppnin kemur í staðinn. Hégómi ÞorBjörns n Þorbjörn Þórðarson, fréttamað- ur á Stöð 2, hefur verið duglegur við aða skúbba síðan hann hætti á Mogganum og gekk til liðs við sjón- varpsstöðina. Þorbjörn er gjarnan í harðkjarnafréttum og nýtur sín sem slíkur. Það vakti því athygli þegar hann birtist í Fréttablað- inu í umfjöllun sem fram að þessu hefur frekar verið tengd tískudrós- um. Stillti hann sér upp og sýndi al- menningi öll gullin sín. Þykir þetta vera til dæmis um að hégóminn hafi náð yfirhöndinni. arftaki guðrúnar n Rithöfundurinn Jón Kalman fór mikinn í Fréttatímanum þar sem hann hraunaði yfir alla lands- ins fjölmiðla. Hafði hann helst á móti DV að blaðið ástund- aði tilfinninga- klám án þess að skýra það frekar. Jón hefur á ferli sínum upp- skorið vegleg listamannalaun og margvíslegan heiður fyrir bækur sem sumpart eru tilfinningalegs eðlis. Meðal fjölmargra aðdáenda hans eru einhverjir sem vilja meina að hann haldi hátt á lofti kefli Guðrúnar frá Lundi og sé verðugur arftaki al- þýðuskáldsins. sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is umSjón helgarblaðS: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is umSjón innblaðS: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. bókstaflega „Nei,“ segir ViGDís HAuKsDÓttir, þingmaður Framsóknar- flokksins. Sigmundur Davíð gunnlaugsson, formaður Framsóknar, gekk að eiga önnu Pálsdóttur í Dómkirkjunni á sunnudag. Var þér boðið í brúðkaup for- manns framsókn- arflokksins? spurningin Undirbúningur okkar Íslendinga fyrir viðræður um aðild að Evr- ópusambandinu hefur gengið það vel, að snemm- sumars afréð ég að flýta formlegu upphafi viðræðn- anna sjálfra. Í stað þess að byrja þær um miðjan október hófust samningaviðræðurnar formlega 27. júlí. Það var gert á fundi Íslendinga með forystu ESB og fulltrúum allra aðildarríkja þess þar sem við lögðum fram ítarlega skriflega greinargerð um helstu viðhorf Íslendinga. Hún var áður rædd við utanríkismála- nefnd þingsins. Greinargerðinni fylgdi ég úr hlaði með munnlegum yfirlitsræðum. Þetta má allt finna á vef ráðuneytisins. Vandaður undirbúningur Samninganefndin er undir forystu öflugasta samningamanns Íslend- inga, Stefáns Hauks Jóhannessonar, sendiherra í Brussel, sem stórþjóð- ir hafa sóst eftir til að miðla málum í erfiðum deilum. Í samninganefnd- inni er þrautþjálfað fólk, sem allt hef- ur reynslu af milliríkjasamningum. Á annað hundrað sérfræðinga og full- trúa hagsmunasamtaka vinna með nefndinni að undirbúningi viðræðn- anna sjálfra. Alls þarf að semja um 35 sér- staka kafla, sem hver tekur til ákveð- inna málaflokka. Af þeim lýtur 21 að EES-samningum. Við gerum ráð fyr- ir að auðveldlega gangi að ljúka þeim langflestum. Hinir, sem lúta að mála- flokkum sem standa utan EES, verða vinnufrekari. Þar á meðal eru fisk- veiðar, landbúnaður og byggðamál. samningar næsta ár Undirbúningur samningaviðræðna er því á fullum skriði. Næst á dagskrá eru svokallaðir rýnifundir. Þá er lög- gjöf ESB fyrir hvern einstakan kafla borin saman við hina íslensku, og þeir þættir einangraðir sem standa út af. Um þau atriði þarf yfirleitt að semja sérstaklega. Fyrir eru teknir nokkrir kaflar í einu. Fyrsti rýnifund- urinn verður um miðjan nóvember, og meðal kaflanna sem fjallað verð- ur um fyrir áramót eru nokkrir erf- iðir, s.s. landbúnaður, sjávarútvegur, umhverfismál og fjármálaþjónusta í bland við léttari EES-kafla. Áætlað er að þeirri vinnu ljúki í júní. Samn- ingar, t.d. um sjávarútveg, gætu haf- ist haustið 2011 og um landbúnaðar- málin upp úr því. Auðlindir tryggar Flestir sem eru á móti ESB eru það á grundvelli misskilnings. Þannig hafa andstæðingar aðildar hamrað á því að hún feli í sér að Ísland muni gefa eftir yfirráð yfir auðlindum, bæði orku og fiski. Það er fjarri lagi. Í grein- argerðinni með áherslum Íslendinga sem ég lagði fram í júlí eru þannig yf- irráð okkar yfir orkulindunum gerð að frágangsatriði. Sömuleiðis er ljóst, að reglur sam- bandsins og það, hversu langt er síð- an sögulegri veiðireynslu ESB-land- anna lauk við Ísland, veldur því að ekkert ríkjanna getur með rökum krafist aflaheimilda í staðbundnum stofnum. Samt staðhæfa menn enn að aðild muni frá fyrsta degi opna lögsöguna fyrir útlendum ræningja- flotum, einkum spænskum og portú- gölskum. Ekkert er fjær sanni. Efnahagslegur ávinningur Aðild að Evrópusambandinu og skýr stefna á upptöku evrunnar er líklegt til að skapa hér traustara og stöðugra efnahagsumhverfi, með Evrópuvöxtum án verðtryggingar, lægri verðbólgu og meiri aga í öllu fjármálakerfinu. Reynsla smáþjóða, s.s. Maltverja, Slóvaka og Eistlend- inga, sýnir að aðild leiðir yfirleitt til aukinna erlendra fjárfestinga. Það, ásamt nýjum stöðugleika í efnahags- lífi í kjölfar aðildar, er líklegt til að stuðla að því að okkur takist að skapa þau 30 þúsund störf sem á næstu árum þarf til að eyða atvinnuleysi á Íslandi. Aðild mun ekki síst skapa betra umhverfi fyrir hátæknifyrir- tækin og nýjar skapandi atvinnu- greinar. Íslendingar eru nýkomnir í gegn- um þungbært efnahagshrun. Þeir þurfa að velja sér leið inn í framtíð- ina. Ein leiðin sem stendur okkur til boða liggur um Evrópusambandið. Því er brýnt að ljúka viðræðunum og koma heim með samning, sem þjóð- in getur kosið um. Mikill meirihluti Íslendinga er á sömu skoðun. Það sýndi nýleg könnun þar sem 63% vildu halda samningunum áfram. Við skiptum ekki um hest í miðri á. ESB-viðræður í góðum gangi kjallari össur skarp- héðinsson utanríkisráðherra skrifar Flestir sem eru á móti ESB eru það á grundvelli misskilnings.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.