Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Síða 4
4 Fréttir 14. mars 2012 Miðvikudagur Guðgeir í sjálfsvígshættu n Sýndi merki um andlegt ójafnvægi og er undir sérstöku eftirliti G uðgeir Guðmundsson, sem ját- að hefur að hafa ráðist á Skúla Eggert Sigurz og veitt honum lífshættulega áverka með hníf þann 5. mars síðastliðinn, er talinn vera í sjálfsvíghættu og er því und- ir sérstöku eftirliti á Litla-Hrauni þar sem hann er í gæsluvarðhaldi. Samkvæmt heimildum DV var Guðgeir óstöðugur á geði og sýndi merki um að vera í miklu andlegu ójafnvægi. Hann var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarhald til 4. apríl næstkomandi. Guðgeiri var gert að gangast undir geðrannsókn, en hún er framkvæmd af dómkvöddum geðlækni. Ástæða árásarinnar er talin vera innheimtubréf frá Lagastoð, þar sem Skúli er framkvæmdastjóri. Skuld- in hljóðaði upphaflega upp á 80.000 krónur en Guðgeir og Skúli höfðu komist að samkomulagi um að hún skyldi lækkuð um 30.000 krónur áður en Guðgeir lét til skarar skríða og veittist að Skúla með stórum veiði- hníf. Guðgeir býr í 60 fermetra blokk- aríbúð í Breiðholtinu sem hann keypti 1998. Í dag hvíla á henni tæpar sjö milljónir króna en hún er metin á 12 milljónir samkvæmt fasteignamati ríkisins. Guðgeir er ekki á vanskila- skrá og aldrei hefur verið gert fjárnám á hans nafni. Svo virðist sem að hann eigi tæpan helming í fasteign sinni og því virðist hann ekki hafa verið á von- arvöl í fjárhagslegu tilliti. Guðgeir er menntaður rafeindavirki úr Iðnskól- anum og hefur starfað sem leiðbein- andi hjá litlu tæknifyrirtæki frá 2005. hanna@dv.is Ostborgari franskar og 0,5l gos Máltíð Mánaðarins Verð aðeins 1.045 kr. d v e h f. 2 0 12 / d av íð þ ó r Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890 *gildir í mars S kotið var á heimili Hilmars Leifssonar í Kópavogi þann 21. febrúar síðastliðinn. Sam- kvæmt heimildum DV teng- ist hinn meinti árásarmaður undirheimum Reykjavíkur. Enginn meiðsli urðu á fólki við skotárásina en skotvopnið sem notað var á ekki að hafa verið mjög öflugt. Skotið fór þó í gegnum rúðu í húsinu. Skráður framkvæmdastjóri Óljóst er hvað vakti fyrir árásarmönn- unum, en Hilmar er framkvæmda- stjóri fyrirtækis en sambýliskona hans er skráður eigandi fyrirtækisins sem heitir Leifur-þjónusta og teng- ist starfsemi þess leigu á atvinnuhús- næði. Samkvæmt nýjasta ársreikningi félagsins, sem er frá árinu 2008, á fé- lagið sex fasteignir og nam hagnaður þess tíu milljónum króna en skuldir félagsins námu sextíu og fjórum millj- ónum króna. Mikil harka í undirheimum Ólga ku vera í undirheimum Reykja- víkur vegna skotárásarinnar en að minnsta kosti einn þeirra sem grun- aður er um skotárásina á að tengjast Outlaws-samtökunum. Samkvæmt heimildarmanni DV er mikil spenna í loftinu vegna árásinnar og óttast er að hennar kunni að verða hefnt. Þrír menn voru handteknir grunaðir um að tengjast skotárásinni, en engin kæra var lögð fram á hendur þeirra. Mikil harka er hlaupin í undirheima Reykjavíkur og samkvæmt heimildar- manni DV hefur umhverfið breyst mikið á undanförnum tveimur árum. Fleiri árásir tengdar Outlaws Fleiri árásir sem tengjast Outlaws hafa átt sér stað að undanförnu. Þann 27. febrúar, sex dögum eftir skotárás- ina, var bensínsprengju kastað í hús í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að mikill eldur braust út. Í húsinu búa menn sem tengjast Outlaws. Íbúarnir voru ekki heima þegar bensínsprengj- unni var kastað í húsið. Vegna tengsl- anna við Outlaws-samtökin voru uppi vangaveltur um hvort íkveikjan tengist uppgjöri í undirheimunum, en ekki er vitað hvort bensínsprengjan tengist skotárásinni. Þá tengjast tveir menn sem í dag sitja í gæsluvarðhaldi vegna skotárás- ar í Höfðahverfi Outlaws-samtök- unum. Sú árás er talin tengjast fíkni- efnaskuld, en við rannsókn málsins lagði lögreglan hald á stórt vopnasafn á heimili aðila sem talinn er tengjast samtökunum. Það mál er fyrir dómi en athygli vakti að aðalvitnið í málinu bar fyrir sig minnisleysi og vildi draga til baka bótakröfu á hendur ákærðu. Fjórir einstaklingar sem allir tengj- ast öðrum mótorhjólasamtökum, Hells Angels, sitja í gæsluvarðhaldi vegna hrottalegrar líkamsárásar á konu í Hafnarfirði í desember á síðasta ári. Þar á meðal er Einar „Boom“ Mar- teinsson, forseti Hells Angels á Íslandi. Einar er talinn hafa skipulagt árás- ina á konuna, en hann á að hafa tal- ið hana hafa hótað sér og öðrum meðlimum samtakanna. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði á að hafa ver- ið gefið út „veiðileyfi“ á konuna með SMS-skilaboðum til nokkurra einstak- linga. Konan nýtur nú verndar lögregl- unnar þar sem óttast er um öryggi hennar. Vopnasöfnun vandamál Lögreglan flokkar ellefu hópa í dag sem svokölluð MC-gengi eða vélhjóla- gengi, með 89 meðlimum. Samkvæmt Karli Steinari Valssyni, aðstoðaryfir- lögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, eru flestir hópanna starfræktir á höfuðborgarsvæðinu, en einnig á Akureyri og mikill áhugi er á meðal einhverra gengja á að setja upp sams konar hópa á Egilsstöðum. Vopnasöfnun brotahópa er orðið mikið vandamál að sögn Karls Stein- ars og segir hann það eitthvað sem lögreglan hafi ekki staðið frammi fyrir áður. „Einn þeirra sem grunaður er um skotárásina á að tengjast Outlaws-samtökunum. Árásarmaður Guðgeir Guðmundsson hafði fengið innheimtubréf frá lögmanns- tofunni Lagastoð sem er í Lágmúlanum. Vigdís olli usla á þingi: „Varð bara allt vitlaust“ „Er þessi vinstri stjórn ekki sífellt talandi um að allt eigi að vera gegnsætt og uppi á borðum?“ spurði Vigdís Hauksdóttir í við- tali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á þriðjudag. Óhætt er að segja að Vigdís hafi komið alþingismönnum í upp- nám, en Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis, sleit fundi eftir að í ljós kom að Vigdís hafði birt færslur á Facebook þar sem hún skrifaði um það sem átti sér stað á fundinum. Þar á meðal sagði Vigdís að ljóst væri að ekki yrði atkvæðagreiðsla um stjórnar- skrána í sumar samhliða forseta- kosningum. Vigdís kvaðst ekki skilja í hvaða ójafnvægi nefndar- menn voru á fundinum eða hvers vegna honum var slitið. „Hér varð bara allt vitlaust,“ sagði hún. Hún telur að ríkisstjórnin riði til falls verði ekki boðað til atkvæða- greiðslu um stjórnarskrána í sum- ar samhliða forsetakosningum. Fundur í stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd var lokaður og því er spurning hvort Vigdís hafi með þessu brotið þingsköp. Sjálf segist hún ekki hafa gert það og bendir á að fjölmargir noti spjaldtölvur, snjallsíma og fartölvur í störfum sínum í þinginu. „Að sjálfsögðu setur maður nokkra gullmola inn á Facebook-síðuna sína þegar maður er með svona fréttir.“ Hélt höfðinu upp úr ánni Ökumaður fólksbíls var hætt kom- inn þegar bíll hans valt utan við Blönduós á þriðjudagskvöld. Bif- reiðin valt ofan í Laxá í Ásum en svo vildi til að vegfarandi kom að slysstað skömmu eftir að bíllinn fór út af. Hann hélt höfði manns- ins upp úr ánni þar til frekari hjálp barst. Fréttavefurinn mbl. is greindi frá þessu á þriðjudags- kvöld. Bíllinn endaði á hvolfi úti í ánni upp úr klukkan 19. Illa hefði getað farið ef vegfarandann hefði ekki borið að garði. Skotið á húS hilmarS n Óttast er að árásarinnar kunni að verða hefnt Framkvæmdastjóri Skotið var á hús Hilmars Leifssonar í lok febrúar af mönnum sem talið er að tengist Outlaws- samtökunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.