Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Page 12
12 Fréttir 14. mars 2012 Miðvikudagur Útlit fyrir milda páska n Siggi stormur spáir þó að blautt verði framan af sumri E f maður lítur til veðurlagsspáa þá gera þær ráð fyrir því að það fari hlýnandi og við fáum tiltölulega milda páska,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur aðspurð- ur um sviptingar í veðrinu sem spár gera ráð fyrir. Sigurður segir að óróleiki sé í kort- unum þar sem lægð muni mjaka sér austur fyrir land með suðurströnd- inni í nótt og henni fylgi snjókoma um nær allt land. „Þetta er skítviðri eins og það gerist leiðinlegast,“ segir Sigurður og býst við að það verði vetrarlegt yfir að líta á næstu dögum, kalt og ákveð- in norðanátt. Spár næstu daga virðast gera út um vonir þeirra bjartsýnustu sem farnir voru að vonast til að vorið væri komið. „Þetta er ekki veður sem færir lykt af vorinu.“ Sigurður segir í raun veturinn hafa verið hundleiðinlegan almennt. „Frá því um miðjan nóvember með ein- staka hléum.“ Þegar Siggi er beðinn um að rýna lengra fram í tímann, nú þegar styttist í páskana, segir hann að gera megi ráð fyrir mildu páskaveðri. Og hvað sum- arið varðar þá gera veðurlagsspár ráð fyrir viðsnúningi frá því sem var í fyrra þegar sumarið kom seint og kalt varð í veðri miðað við árstíma. „Það lofar góðu hvað varðar apríl, maí og júní miðað við það sem var í fyrra. En gallinn er sá að þegar hlýtt er á þessum árstíma þá er vætusamara en ella því hlýindin koma með lægð- um að sunnan.“ Fyrri hluti sumars gæti því verið hlýr en eilítið votur og Sigurð- ur segir að spár geri ráð fyrir því að síð- ari hluti sumars verði kaldur miðað við árstíma en bjartur. birgir@dv.is O kkur er afskaplega brugð- ið,“ segir Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum, í samtali við DV á mánu- dag. Aðfaranótt sunnu- dags gekk karlmaður á þrítugsaldri í skrokk á 23 ára stúlku á Nemenda- görðum Hólaskóla með þeim afleið- ingum að fjölmargar tennur brotn- uðu og hún hlaut skurð á höfði. Samkvæmt upplýsingum DV brotn- uðu að minnsta kosti sjö tennur í stúlkunni við barsmíðarnar en árás- armaðurinn notaði að sögn varð- stjóra lögreglunnar á Sauðárkróki hurðarhandfang er hann lét höggin dynja á stúlkunni. Fyrrverandi kærasti DV hefur heimildir fyrir því að árás- armaðurinn sé fyrrverandi kær- asti stúlkunnar sem er nemandi við skólann í hestafræðideild. Á laugar- dagskvöld var gleðskapur hjá nem- endum þar sem hópur fór á Sauðár- krók að gera sér glaðan dag. Að sögn nemanda við skólann sem DV ræddi við var árásarmaðurinn skyndi- lega mættur óboðinn á Nemenda- garðana og virtist eiga eitthvað van- talað við stúlkuna. Eftir því sem DV kemst næst urðu engin vitni að árás- inni þar sem maðurinn mun hafa ruðst inn á herbergi stúlkunnar þar sem hann misþyrmdi henni. Heim- ildir DV herma að árásarmaðurinn hafi áður reynt að veitast að stúlk- unni en þá náði hún að forða sér. Maðurinn var handtekinn eftir að tilkynnt var um árásina og hann færð- ur í fangageymslu lögreglunnar þar sem hann var yfirheyrður á sunnu- daginn og telst málið upplýst hjá lög- reglu. Stúlkan var flutt á sjúkrahús eft- ir árásina hrottafengnu þar sem gert var að sárum hennar og áverkum. Eft- ir því sem DV kemst næst var aðkom- an á vettvangi árásarinnar afar ljót. Samfélagið slegið Árásin hefur vakið mikinn óhug og hið litla og rólega samfélag á Hólum er slegið vegna árásarinnar. „Þetta var mjög hrottafengið og það tók þá talsverðan tíma að þrífa íbúðina,“ segir einn íbúanna í samtali við DV. „Hann hefur gengið bara berserks- gang þarna. Þetta hefur svo mikil áhrif í svona litlum samfélögum eins og á Hólum þegar svona gerist.“ Undir þessi orð tók Skúli Skúlason rektor í samtali við DV á mánudag. „Þetta er ekki það sem við eigum að venjast,“ sagði Skúli. Hann bætti við að skólinn myndi fylgja málinu vel eftir. „Við berum ábyrgð á nemendum og vellíðan fólks á svæðinu að því leyti sem við erum opinber stofnun og við munum fylgjast náið með rannsókn málsins og aðstoða við hana.“ DV hafði samband við fórnarlamb árásarinnar á þriðjudag en stúlkan vildi ekki tjá sig um málið. MisþyrMdi stúlku Með hurðarhúni n Heiftúðugur fyrrverandi kærasti n Hrottafengin árás á Hólum„Þetta er ekki það sem við eigum að venjast. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Hólar í Hjaltadal Nemendum jafnt sem starfsfólki er brugðið eftir hrottafengna líkamsárás sem gerð var um helgina. Mynd: Sigtryggur Ari Vætusamt Fyrri hluti sumars gæti orðið blautur að sögn Sigga storms. Veiking krónunnar ylli tjóni: Gjaldeyris- höftin „veru- lega slæm“ „Frekari veiking krónunnar yrði til tjóns fyrir fyrir efnahagslífið í landinu, ekki síst heimilin og neytendur,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskipta- ráðherra, um hert gjaldeyris- höft sem Alþingi lögfesti síðast- liðið mánudagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisstjórn- inni en þar segir hann einnig að mikilvægt sé að gjaldeyrir skili sér hingað aftur. „Enn fremur er mik- ilvægt að tryggja að gjaldeyrir, sem er erlendis, skili sér hingað heim í samræmi við skilaskylduna. Góð- ur gangur er í útflutningsgreinum landsins og því ætti að vera mögu- legt að koma í veg fyrir frekari veikingu krónunnar.“ Oddný Harðardóttir fjármála- ráðherra segir að gjaldeyrishöftin séu slæm og mikilvægt sé að kom- ast út úr þeim og að leið til þess sé að taka upp annan gjaldmiðil. „Gjaldeyrishöftin eru veru- lega slæm fyrir alla þjóðina og við þurfum að finna leið til að komast út úr þeim. Ein leið er að taka upp annan gjaldmiðil,“ segir Oddný. Í tilkynningunni segir einnig að Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla- bankastjóri segi að verði glufum í gjaldeyrishöftunum leyft að grafa um sig geti það leitt til mik- ils gjaldeyrisútstreymis og gengi krónunnar geti lækkað. Hann lítur ekki svo á að lögin, sem Alþingi hefur nú samþykkt, seinki afnámi gjaldeyrishaftanna. Með umræddum lagabreyting- um voru takmarkaðar undanþág- ur til að greiða út verðbætur eða greiða niður höfuðstól skuldabréfa í gjaldeyri. Frá því gjaldeyrishöftin komu til sögunnar hefur erlend- um aðilum verið heimilt að kaupa erlendan gjaldeyri fyrir krónur sem til falla vegna vaxta, verð- bóta, arðs og samningsbundinna afborgana og flytja úr landi. Upp- lýsingar liggja fyrir um að erlendir aðilar hafi stóraukið kaup á jafn- greiðslubréfum Íbúðalánasjóðs í þeim tilgangi að nýta sér þessa heimild til að taka út gjaldeyri í krafti hennar. Erlendir fjárfestar og fleiri gátu því grætt talvert á glufunni og komið afborgunum og vöxtum af jafngreiðslubréfum í erlendri mynt úr landi á nokkrum árum. Í tilkynningunni segir að út- streymi gjaldeyris ógni hag heim- ilanna, en gengislækkun af þeim sökum gæti aukið tímabundið greiðslubyrði verðtryggðra lána þar sem laun fylgja ekki hækkun verðlags. „Líklegt er að greiðslu- geta sé sérstaklega viðkvæm fyrir hækkun verðlags þegar eigið fé er lítið eða neikvætt og skuldir verð- tryggðar. Skert greiðslugeta skuld- ara, bæði fyrirtækja og heimila, rýrir mögulega verðmæti eigna- safna bankanna og Íbúðalána- sjóðs og eykur á almenna óvissu og fjármálaóstöðugleika. Því er mikilvægt að hafa stjórn á því með hvaða hætti útgreiðslur til kröfu- hafa úr búum föllnu fjármálafyrir- tækjanna fara fram,“ segir í grein- argerð með lagafrumvarpinu sem samþykkt var.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.