Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Qupperneq 20
Skipulagning
n Um mánaðamót, þegar búið er að borga
reikninga, ákveddu hvað þú ætlar að gera
við peningana þína, þ.e.a.s. taktu frá fyrir
afmælisgjöfum, strætó, bensíni eða hvað
það nú er sem þú þarft að taka frá fyrir og
notaðu svo afganginn í mat.
Sparaðu til að eyða
n Leggðu til hliðar smá aur um hver
mánaðamót. Þegar þið langar svo til að
gera eitthvað sérstakt, eitthvað kemur
upp á eða þú þarft aukapening, þá geturðu
náð í peninginn. Leggðu líka til hliðar fyrir
stórum útgjaldamánuðum eins og jólum og
sumarfríi. Sparaðu sem sagt til að eyða.
Gerðu samanburð
n Skiptu afgangnum (því sem á að fara í
mat) niður og finndu þannig út hvað þú mátt
eyða miklu í mat á viku. Búðu til matseðil og
svo innkaupalista með því sem kostar ekki
meira en það sem þú hefur gert ráð fyrir.
Farðu svo með þá upphæð í peningum út í
búð (ekki kort) og kauptu nákvæmlega það í
matinn sem á að duga fyrir vikuna.
Skammtaðu pening
n Ef þú ætlar að kaupa eitthvað, hvort
sem er skó, föt, mat eða eitthvað annað,
ákveddu þá hve miklu þú ætlar að eyða
áður en þú leggur af stað og taktu svo þá
upphæð með þér í peningum, ekki meira.
Þannig eru engar líkur á að þú getir eytt
meiru en þú hafðir ætlað þér.
Saðsöm hollusta
n Hafðu saðsamt meðlæti á matseðlinum,
eins og hrísgrjón, pasta og brauð með
matnum eða brauðbollur. Brauð kostar lítið
(sérstaklega heimabakað) og er saðsamt.
Gerðu ráð fyrir að hver máltíð innihaldi minna
af kjöti og meira af grænmeti, pasta og öðru
meðlæti. Sem dæmi er hægt að búa til þrjár
máltíðir fyrir fjóra úr tveimur kjúklingum.
Farðu fótgangandi
eða hjólandi
n Leggðu bílnum ákveðna daga í viku.
Hugaðu að því hvernig þú keyrir og ákveddu
hvað þú ætlar að eyða miklu í eldsneyti á
mánuði og ekki eyða umfram þá upphæð.
Drýgðu sápuna
n Drýgðu uppþvottalög, sápur, sjampó,
hárnæringu og fleira þvíumlíkt með vatni.
Notaðu alltaf minna af þvottaefni en
ráðlagt er og í stað þess að kaupa rándýrar
hreinsivörur, notaðu gömul húsráð sem
finna má á vefnum. Edik er til dæmis til
margra hluta nytsamlegt og dugar til sömu
verka og annars rándýr hreinsiefni.
Ókeypis afþreying
n Í stað þess að stunda afþreyingu sem
kostar peninga er hægt að gera ýmislegt
sem kostar ekkert, eins og fara í gönguferð-
ir, út að skokka, hlaupa og stunda líkams-
rækt heima við, nú til skemmtunar er hægt
að spila við fjölskylduna, heimsækja fólk,
láta eins og fífl, lesa og fleira og fleira.
20 Lífsstíll 14. mars 2012 Miðvikudagur
Betri árangur á skemmri tíma
n Brenndu fitunni 9 sinnum hraðar
T
íminn til líkamsræktar er fyrir
marga af skornum skammti og
kostur að geta stytt þjálfunar-
tíma sinn og náð betri árangri
þrátt fyrir það. Stuttar og snarpar æf-
ingar með miklu álagi virðast skila
meiri árangri fyrir þá sem brenna
hægt en þurfa að léttast.
Slík þjálfun byggist á því að gera
æfingar af miklum þunga í stutt-
an tíma (30–60 sekúndur) og hvíla á
milli með því að gera rólegar æfingar
(2–3 mínútur).
Heildartími æfinganna er frá 30
mínútum til klukkustundar.
Lengi var talið að besta leiðin til
fitubruna væri að stunda þolþjálfun
í að minnsta kosti 20 mínútur eða
lengur samfleytt. Nýjar rannsóknir
hafa hins vegar leitt í ljós að þeir sem
stunda snöggálagsþjálfun brenna fitu
allt að 9 sinnum hraðar en þeir sem
stunda þolþjálfun.
Talið er að þar leiki meðal annars
stórt hlutverk hinn svokallaði „eftir-
bruni“ – aukinn fitubruni sem á sér
stað eftir að æfingunni lýkur.
Þessi tegund þjálfunar hefur þó
ekki jafn mikið gildi þegar kemur að
því að styrkja hjarta- og æðakerfi,
lækka blóðfitu og blóðþrýsting. Þótt
snöggþjálfun hafi ótvírætt góð áhrif á
alla þessa þætti hafa þolæfingar vinn-
inginn.
Reyndu meira á
þig á styttri tíma
Þannig nærðu meiri
árangri ef þú þarft
að léttast.
1
5
2
6
3
7
4
8
Lára Ómarsdóttir fréttamaður er fimm barna móðir og
þekkir fjárhagserfiðleika af eigin reynslu en Lára og eiginmaður
hennar fóru í gegnum gjaldþrot áður en kreppan skall á. Lára
deilir góðum ráðum með lesendum DV.
Sparaðu
til að eyða
8 sparnaðarráðEkki reyna að vera bestu vinir
Þið þurfið að viðhalda ákveðinni
tilfinningalegri fjarlægð til að ráða
betur við praktískar hliðar þess að skilja.
Leyfið vináttunni frekar að þróast hægt
og rólega með foreldrahlutverkinu ef þið
deilið því.
Ekki fara í hart
Byrjaðu á því að fara sáttaleiðina
og finndu þriðja aðila sem hefur
þann eiginleika að geta miðlað málum.
Það má vera lögfræðingur, sálfræðingur
eða prestur.
Gerið sáttmála
Ef að þið eigið börn, byrjið þá á því
að skrifa skjal tileinkað börnunum
og skrifið í það áætlun um það hvernig þið
ætlið að skipuleggja uppeldið saman.
Treystið, en …
Það er gott ef
traust ríkir á
milli ykkar. En þegar
reiðin hleypur með fólk í
gönur er auðvelt að brjóta
samninga og samkomulag.
Haldið skrá yfir alla gerða samninga og
hafið allt samkomulag skriflegt.
Verið sammála um að
vera ósammála
Að gera mistök er eðlilegt. Verið
viðbúin því að vera ósammála og
verið búin að ræða hvað þið gerið ef það
hendir. Gott er að vera búin að samþykkja
að leysa deiluna hjá þriðja aðila.
Gjald fyrir brot á
samkomulagi
Það er góð hugmynd að ákveða að
ef samkomulag er brotið þurfi að
gjalda þess.
Ekki fara í gamla farið
Njótið þess að skilja. Það er engin
ástæða til þess að halda rifrild-
unum áfram eða einblína á vankanta
fyrrverandi makans. Haltu áfram með
lífið og andaðu léttar.
Byrjið upp á nýtt
Ef von vaknar um að byrja aftur
með fyrrverandi maka farið þá
hægt í sakirnar og látið börnin ekki vita
fyrr en samband ykkar er orðið traust og
byggt á nýjum grunni.
Verjið tíma saman
Börn alast upp í meira öryggi ef
foreldrar þeirra eru nægilega
þroskaðir til að halda áfram að hittast.
Farið á kaffihús og mætið á sýningar
barna ykkar saman.
Ekki nýtt fólk strax
Ekki leyfa nýjum mökum að
tengjast barninu um of fyrr en nýtt
samband er orðið þroskað. Það er óheil-
brigt fyrir alla aðila.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
10 leiðir
að góðum
skilnaði