Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Blaðsíða 27
Páll óskar kveður Nasa Fólk 27Miðvikudagur 14. mars 2012 Logi ætlar að fljúga inn á sviðið n Poppstjörnur Íslands saman á tónleikum fyrir ungu kynslóðina L ogi er búinn að lofa rosa­ legu opnunaratriði. Hann er að tala um að koma fljúgandi í gegnum salinn og upp á svið. Hann tók mig á eintal og tilkynnti mér það,“ segir athafnamaðurinn og út­ varpsstjórinn Einar Bárðarson. Hann stendur fyrir tónleikum í Hörpu á sumardaginn fyrsta sem handboltakempan Logi Geirsson og Sverrir Þór Sverris­ son sjá um að kynna en á tón­ leikunum kemur fram einvala lið íslenskra poppara. Tónleikarnir eru ætlaðir krökkum á aldrinum 10–14 ára. „Mér fannst vanta tækifæri fyrir ungu kynslóðina til að skemmta sér í þessu húsi, þennan aldurs­ hóp. Sinfónían hefur verið með dagskrá fyrir yngri krakkana en það vantar tækifæri fyrir þennan hóp til þess að koma í Hörpu,“ segir hann. „Það er til­ valið að frænkur og frændur sinni sínum venslatengslum og sinni tónlistaruppeldi og bjóði krökkunum á tónleika á sumar­ daginn fyrsta.“ Margir af helstu poppurum landsins koma fram á tón­ leikunum. „Páll Óskar, sem er náttúrulega yfirpoppstjarna Íslands, kemur fram en hann hyggst draga sig í hlé innan tíðar, hann spilar á þessum tón­ leikum og svo einhverju tengt Eurovision en ætlar svo ekkert að spila fyrr en um verslunar­ mannahelgina. Síðan eru það perlurnar úr Hafnarfirði, bræð­ urnir Jón Ragnar og Friðrik Dór, Ingó Þórarins, svo Eurovision­ fararnir og nýstirnin í Bláum Opal,“ segir Einar og lofar mik­ illi stemningu í Hörpu. Poppararnir Hér eru allir söngvar- anir sem koma fram á tónleikunum í Hörpu á sumardaginn fyrsta. Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 VW POLO COMFORTLINE 10/2004, ekinn 91 Þ.km, SJÁLF- SKIPTUR. Verð 990.000. Raðnr. 284107 á www.bilalind.is - Bíllinn sæti er á staðnum! TOYOTA HIACE 01/2006, ekinn 108 Þ.km, dísel, sjálf- skiptur. Verð 2.290.000, TILBOÐSverð 1.890.000. Raðnr. 321930 á www. bilalind.is - Bíllinn er á staðnum! JEEP GRAND CHEROKEE LAREDO 06/2000, ekinn 191 Þ.km, bensín, sjálf- skiptur, hátt og lágt drif, fallegt eintak. Verð 690.000. Raðnr. 284135 á www. bilalind.is - Jeppinn er á staðnum! VW TOUAREG DIESEL 03/2006, ekinn 132 Þ.km, sjálfskiptur, leður. Verð 3.990.000. Raðnr. 135534 á www.hofdahollin.is - Jeppinn er á staðnum! TOYOTA LAND CRUISER 90 VX 50TH ANEVERSERY 8 manna 07/2001, ek- inn 239 Þ.km, dísel, 5 gíra, 38“ breyttur! Verð 2.960.000. Raðnr. 118248 á www. hofdahollin.is - Jeppinn er í salnum! FORD EXCURSION LTD 4WD DIESEL 35“ breyttur, Árgerð 2003, ekinn 185 Þ.km, sjálfskiptur, leður, ofl, nýtt í bremsum, ný dekk, nýir geymar og nýir demparar. Verð 3.890.000. Raðnr. 134935 á www.hofdahollin.is - Er á staðnum! KIA SORENTO DIESEL 02/2006, ekinn 93 Þ.km, sjálfskiptur, mjög fallegt eintak! Verð 2.390.000. Raðnr. 135538 á www.hofdahollin.is - jeppinn er á staðnum! SUZUKI GRAND VITARA 06/2009, ekinn 46 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 3.190.000. Raðnr. 281921 á www. hofdahollin.is - Jeppinn er á staðnum, eigum fleiri eintök! M.BENZ G 55 AMG KOMPRESSOR 10/2005, ekinn aðeins 65 Þ.km, sjálf- skiptur, leður og margt annað skemmti- legt, einstakur bíll!. Verð 12.900.000. Raðnr. 281803 á www.hofdahollin.is - Jeppinn fallegi er í salnum! TOYOTA HILUX DOUBLE CAB SR D/C 11/2005, ekinn 92 Þ.km, dísel, 5 gíra, pallhús, ferilvöktunarkerfi, ofl. Verð 3.450.000. Raðnr. 284068 á www. bilalind.is - Pikkinn er á staðnum! SUBARU LEGACY WAGON LUX 12/2004, ekinn 108 Þ.km, sjálfskiptur, hraðastillir ofl. ofl. Verð 1.880.000. Raðnr. 321996 á www.bilalind.is - Bíllinn er á staðnum! M.BENZ E 200 KOMPRESSOR 04/2004, ekinn 103 Þ.km, sjálfskiptur, mjög fallegur bíll! Verð 2.490.000. Raðnr. 321810 á www.bilalind.is - Bíllinn er í salnum! www.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík FARÐU AFTUR Í BÍÓ Í FYRSTA SINN Tangabryggja 14-16, 110 Rvk. S. 567 4840 www.hofdahollin.is RÝMINGARSALA! Tangabryggja 14-16, 110 Rvk. S. 567 4840 www.hofdahollin.is RÝMINGARSALA! n Ball með Bláum Ópal Þ að eina sem hægt er að gera er að kveðja þetta hús með stæl og reisn og það ætla ég svo sannarlega að gera,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem mun troða upp á Nasa ásamt strákunum í Bláum Ópal á laugardagskvöldið – í það sem gæti verið síð­ asta skiptið. „Nú fer hver að verða síðastur að njóta þess að gleyma sér þarna á stærsta dans­ gólfi Reykjavíkur,“ segir Palli og bætir við að það séu allar líkur á því að Nasa loki í byrjun júní. „Ég vona í hjarta mínu að þetta verði ekki í síðasta skiptið sem ég treð þarna upp en Inga fer út í júní. Það er staðreynd. Hvað verður svo um bygginguna sjálfa og inn­ viði hennar verður tekin ákvörðun um síðar af borgaryfirvöldum og hús­ eigendum. Ég vona bara að hér verði ekki Sirkus­sagan endurtekin – að starfseminni verði hætt og húsnæðið látið grotna niður,“ segir Palli og er mikið niðri fyrir. Páll Óskar segist hafa átt í nokkurs konar hjónabandi við húsnæðið. „Þetta er mér mikið hjartans mál. Þarna hef ég átt margar ógleyman­ legar stundir sem mér hefur þótt vænt um. Minningarnar brjótast fram og maður grætur í hjartanu yfir því að þetta sé að verða búið,“ segir Páll Óskar og bætir við að hann sé með lausn á vandanum. „Besta lausnin er að leyfa Nasa að standa því verðmæti þess eru ótvíræð, hvort sem þau eru menningarleg, fjárhagsleg eða tilfinn­ ingaleg. Svo væri hægt að taka restina af gamla Landsímahúsinu og nota skrifstofur Alþingis. Þær eru dreifðar um allan bæ. Þegar almennri skrifstofuvinnu lýkur væru hljóðprufur á Nasa að hefjast þannig að þær myndu engan trufla. Það er alveg nóg af hótelum í miðborginni!“ Páll Óskar ætlar að kveðja húsið með stæl. Hann hefur einu sinni áður haldið ball með Bláum Ópal og hlakkar til að gera það aftur. „Við héldum ball á Sel­ fossi kvöldið eftir Söngvakeppni sjónvarpsins. Við svínvirkum saman,“ segir hann og bætir við að hann gruni að strákarnir ætli að frumflytja nýtt lag. „Sjálfur mun ég tjalda öllu sem ég get þetta kvöld. Þetta verður Palla­ball með öllum glamúrnum. Það eina sem ég lofa er að Páll Óskar og Blár Ópal er blanda sem mun sprengja þakið af húsinu.“ indiana@dv.is Svínvirkar með Bláum Ópal Palli ætlar að kveðja Nasa með stæl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.