Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Blaðsíða 17
Nauðgun er í mínum
huga alvarlegur glæpur
Egill Einarsson í yfirlýsingu eftir að nauðgunarmál gegn honum var fellt niður. DV.is
Aðför að eldri borgurum
Spurningin
„Mér finnst hún bara flott, mér
finnst þetta flott frumkvæði
og bara gott að vekja athygli á
þessum málum. Þannig að þetta
er algjörlega jákvætt.“
Kristín Þorláksdóttir
20 ára nemi
„Mér finnst það bara snilld. Er
það ekki bara frábært að vekja
athygli á góðu málefni með
athyglisverðum hætti?“
Guðmundur Jóhann Guðmundsson
19 ára þjónn
„Mér líst bara mjög vel á þetta,
flott framtak.“
Ragnhildur Ásta Valsdóttir
19 ára nemi
„Þetta er ágæt áhugavakning á
þessu.“
Birgitta Ólafsdóttir
19 ára nemi
„Það er gott að vekja áhuga á
þessu.“
Helga María Guðmundsdóttir
26 ára hjúkrunarnemi.
Hvað finnst
þér um druslu-
gönguna?
1 Berglind: Slegin í rot og dregin upp í bíl Hluti úr viðtali við Berglindi
Steindórsdóttur þar sem hún lýsir
árásum á hendur sér
2 Sakar Gillzenegger um að vera hræsnari Ritstjórinn Jónas
Kristjánsson svaraði yfirlýsingu Egils
Einarssonar
3 Fær höll í 30 ára afmælisgjöf Vilhjálmur Bretaprins fagnaði 30 ára
afmæli sínu síðastliðinn fimmtudag
4 „Mér fannst þetta hafa verið mér að kenna“ Rósa Björk
Bergþórsdóttir segir að fyrstu árin eftir
að henni var nauðgað hafi hún engum
sagt frá því
5 „Skömmin var of mikil“ Ingunn Henriksen steig fram og deildi
lífsreynslu sinni af nauðgun
6 Þóra hefur safnað 11 milljón-um Á vefsíðu Þóru Arnórsdóttur
kemur fram að tæplega 11 milljónum
hafi verið safnað í kosningasjóð hennar
7 VÍS milljarðar renna loksins til Skinneyjar Eignarhaldsfélag
í eigu Skinneyjar–Þinganess á Höfn
Hornafirði hefur nú runnið inn í
útgerðarfélagið
Mest lesið á DV.is
Í
slendingar hafa sýnt mikið sjálfstæði
og ákveðni í gegnum tíðina. Við þykj-
um standa framarlega hvað mann-
réttindi varðar og almennt eru það
forréttindi að fá að alast upp og búa
hér á landi. Hins vegar er alltaf hægt að
gera betur og ber að hafa það í huga.
Hollt er að vera í stanslausri sjálfs-
skoðun og þróun að bættu samfélagi.
Ýmislegt látum við hins vegar yfir okkur
ganga. Miðað við atburði síðustu ára er
alveg ótrúlegt hversu lítil ólgan í samfé-
laginu hefur í raun og veru verið. Fólk
er tilbúið að „kvarta“ og finna lausnir
hvert í sínu horni en svo þegar kemur
að mótmælum og samstöðu þá er sami
hópurinn vart sýnilegur.
Allt að 30 sagt upp
Sjálf tilheyri ég þeim hópi. Eru þetta
kannski Íslendingar í hnotskurn? Nú
standa umræður um forsetakosningar
sem hæst, á sama tíma kemur fram í
bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins sem lögð var fram á borgarráðs-
fundi í gær að um 24 til 30 leiðbeinend-
um sem unnið hafa í félagsmiðstöðvum
eldri borgara hafi verið sagt upp störf-
um og að ekki muni verða ráðnir starfs-
menn í þeirra stað. Reykjavíkurborg er
hér með að „gjöreyða“ félagstarfi eldri
borgara á 15 starfsstöðvum. Mjög pent.
Tillögunni var ýtt í gegn á meðan aðrar
umræður voru í brennidepli. Hefur til-
lagan verið samþykkt af velferðarráði,
borgarstjórn eða borgarráði. Hálft
starfsgildi verður fyrir hverja félagsmið-
stöð og reyna á að fá Rauða krossinn
og/eða hjúkrunarheimilin til að manna
restina með sjálfboðastarfi.
Félagsleg einangrun
Hvað er verið að tala um? Það sér það
hver heilvita maður að þetta getur alls
ekki gengið upp. Niðurskurðurinn á
hjúkrunarheimilum borgarinnar er nú
þegar orðinn það mikill að ég efast stór-
lega um að þar sé hægt að fá mann-
skap í sjálfboðastarf til að manna stöð-
ur, þó að þar vinni frábært fólk sem má
þola mikið álag dag hvern og sé alltaf
tilbúið að leggja fram aðstoð sína og
þjónustulund. Hvert mun þessi hópur
leita? Hvert getur hann leitað? Er búið
að hugsa málið til enda? Eins og þetta
kemur mér fyrir sjónir eru þetta hrein-
lega fáránlegar aðgerðir sem skreytt-
ar eru með hugtökum sem „flott“ er að
nota nú á dögum þegar þarf að afgreiða
flókin mál, má þar nefna hugtök eins og
„sjálfbærni” og „valdefli”, hugtök sem
hinn almenni borgari skilur hugsan-
lega ekki til hlítar, því þau eru notuð í
svo víðu samhengi og við öll tilefni sem
gefast, en allt lítur þetta rosalega vel út
á pappír.
Að mínu mati getur borgin hrein-
lega ekki sokkið dýpra. Þetta eru kerfis-
bundnar aðgerðir í átt að verulegri fé-
lagslegri einangrun og ekkert annað.
Þessar aðgerðir munu hafa skelfilegar
afleiðingar í för með sér. Svo ekki sé
minnst á fjölskyldur þeirra sem sótt
hafa félagsstarfið, áhyggjur þeirra af
ástvinum og ættingjum munu stór-
aukast.
Sparnaðaraðgerðir þaggaðar niður
Eldri borgarar hafa unnið fyrir sér frá
unga aldri, margir hverjir ef ekki all-
ir mun erfiðari störf en þekkjast í dag.
Þau hafa borgað sína skatta og gjöld.
Hvenær mun vera komið nóg? Af minni
reynslu þá finn ég það að félagsstarf
eldri borgara gefur þeim sem sækja það
mikið: eldmóð, tilhlökkun, hamingju
og fyllingu í lífið. Sá hópur sem er virkur
í félagsstarfinu nýtur þess tvímælalaust.
Það fer ekki á milli mála að þetta starf
er nauðsynlegt og er hluti af lífi þús-
unda einstaklinga. Kominn er tími til
að við hugsum hvað Reykjavíkurborg er
að gera. Hefur sameining leikskóla sýnt
að þær aðgerðir skili þeim sparnaði
sem sú sameining átti að færa? Sam-
eina á heimili fyrir fatlaða núna á næstu
misserum. Hvað hefur það í för með
sér? Talað hefur verið um sameiningu
grunnskóla. Áður en við vitum af verð-
ur allt sameinað í sparnaðarskyni, en
myndar það samstöðu í samfélaginu?
Kominn er tími á, að ekki aðeins það
góða hjá borginni rati í fjölmiðla og
sparnaðaraðgerðir þaggaðar niður.
Hvernig væri að borgarstjórn myndi
hætta að tala um það hverjir fara í jóm-
frúarflug og hverjir ekki og fari að sinna
sínu starfi af alvöru.
Höfundur er félagsliði og háskólanemi.
Fótbolti og bjór á Ingólfstorgi Bjórdæla og risaskjár eru töfraorðin þegar alþjóðlegar keppnir í knattspyrnu standa yfir. Gestir fylgdust ákafir með leik Englendinga og Ítala
úr sætum sínum á Ingólfstorgi á sunnudagskvöld. mynd SIgtryggur ArIMyndin
Umræða 17mánudagur 25. júní 2012
Þetta var ótrúlega
flott dæmi
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona Of Monsters and Men . DV
Þeim manni þótti
samþykki ekki sexí
„Það fer ekki á milli
mála að þetta starf
er nauðsynlegt og er hluti
af lífi þúsunda einstaklinga.
Kjallari
Hildur Dís Jónsdóttir
Scheving
Þyrnigerður Láfa um mann sem braut gegn henni kynferðislega. DV