Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Blaðsíða 19
Voltaren getur Verið lífshættulegt
n Langvarandi notkun getur valdið hjartaáföllum og heilablóðföllum n Læknirinn Vilhjálmur Ari segir parasetamól virka vel á gigtarverki
Gigtar- og verkjalyf
Gigtarlyfin voltaren, naproxen og íbúfen eru öll seld í lausasölu án lyfseðils í minni
skömmtum. Þessi lyf eru bólgueyðandi og verkjastillandi og því mikið notuð sem
almenn verkjalyf líka. Mun fleiri aukaverkanir fylgja þessum lyfjum heldur en paratabs
eða panó díl og líkt og nú hefur komið í ljós getur langvarandi notkun voltaren verið
lífshættuleg.
Voltaren
n Voltaren Dolo er bólgueyðandi lyf
með verkjastillandi og hitalækkandi
verkun. Virka efnið díklófenak dregur
úr myndun prostaglandínefna í
líkamanum, en þau stuðla m.a. að
bólgumyndun. Lyfið er notað við
ýmsum gigtarsjúkdómum, verkjum
og bólgum af ýmsum toga, m.a. eftir
slys og aðgerðir, tíðaverkjum og bak-
verkjum. Notkun þess við gigtarsjúkdómum kallar oft á langtímameðferð en bólgueyð-
andi og verkjastillandi meðferð með díklófenaki er oftast skammtímameðferð.
Voltaren rapid hefur nánast sömu eiginleika og er notað í svipuðum tilfellum.
Tekið er fram á lyfjabok.is að voltaren dolo sé ekki ætlað til langtímanotkunar en sé það
gert sé æskilegt að fara í reglulegt eftirlit til læknis til að meta áhrif lyfsins á lifur, nýru,
blóðhag og maga.
Aukaverkanir:
Algengar aukaverkanir (meira en 1 prósent): Bjúgur, hár blóðþrýstingur, hægðatregða,
höfuðverkur, svimi, kviðverkir, uppþemba, vindgangur, lystarleysi, ógleði, uppköst,
niðurgangur, meltingartruflanir, suð fyrir eyrum, útbrot og kláði.
Sjaldgæfar aukaverkanir (minna en 1 prósent): Gula, hiti, slappleiki, lystarleysi, mar-
blettir, hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur, svartar eða blóðugar hægðir, blóð í
þvagi, útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar.
Íbúfen
n Íbúfen er bólgueyðandi lyf með verkjastill-
andi og hitalækkandi verkun. Virka efnið í
lyfinu dregur úr myndun prostaglandínefna
í líkamanum, en þau valda meðal annars
bólgum. Íbúfen er notað við liðagigt, slitgigt,
tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk og sem verkjalyf
eftir minni háttar aðgerðir. Lyfið er einnig notað til að
lækka hita hjá börnum.
Langtímanotkun íbúfens getur valdið magasári og magablæðingu. Því getur verið
nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.
Aukaverkanir:
Algengar aukaverkanir (meira en 1 prósent): Höfuðverkur, þreyta, ógleði, niðurgangur,
magaóþægindi og útbrot.
Sjaldgæfar aukaverkanir (minna en 1 prósent): Gula, hiti, slappleiki, lystarleysi, mar-
blettir, svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi, útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfið-
leikar.
Naproxen
n Naproxen er bólgueyðandi lyf með verkja-
stillandi og hitalækkandi verkun. Naproxen
dregur úr myndun prostaglandínefna í
líkamanum, en þau valda m.a. bólgum. Lyfið
er notað við slitgigt, hrygggigt, þvagsýrugigt,
tíðaverkjum og bólgu og verkjum eftir áverka.
Langtímanotkun lyfsins getur valdið magasári og magablæðingu. Því gæti reynst
nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.
Aukaverkanir:
Algengar aukaverkanir (meira en 1 prósent): Höfuðverkur, svimi, þreyta, niðurgangur,
ógleði, kviðverkir, brjóstsviði, suð fyrir eyrum og útbrot.
Sjaldgæfar aukaverkanir (minna en 1 prósent): Gula, hiti, slappleiki, lystarleysi, marblett-
ir, svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi, útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar.
Neytendur 19Mánudagur 25. júní 2012
við verkjum. Vilhjálmur bendir jafn
framt á að það sem fólk kalli í dag
legu tali vöðvabólgur séu í raun ekki
raunverulegar bólgur. Því dugi vel að
taka parasetamól við verkjum sem
fylgja slíkum bólgum. Það sé miklu
öruggara lyf og virki jafn vel.
„Parasetamól hefur verið aðal
lausasölulyfið við verkjum og það
lang öruggasta og virkar eins og aspirín
sem var notað hérna áður fyrr,“ seg
ir Vilhjálmur. Hann bendir þó á að
nýlegar rannsóknir bendi til þess að
aspirín geti í raun valdið jafn hættuleg
um aukaverkunum og það gerir gagn.
„Það hefur sýnt sig með mörg lyf
sem hafa farið í umferð að síðar kem
ur í ljós að þau eru ekki jafn örugg
og skammtímalyfjarannsóknir hafa
sýnt. Þá eru langtímaafleiðingarnar
miklu meiri heldur en menn reikn
uðu með.“
Vilhjálmur segir að nú standi til
að endurskoða sölu díklófenaks á
markaði í Danmörku og það verði
jafnvel tekið úr lausasölu þar í landi.
Hann telur að sala á lyfinu verði í
kjölfarið tekin til gagngerrar endur
skoðunar, einnig hér á landi.
Nota frekar parasetamól
Íslendingar nota almennt mikið
af gigtarlyfjum en Vilhjálmur Ari
bendir á að verkja- og hitastill-
andi lyfið parasetamól virki alveg
jafn vel á gigtarverki og gigtarlyf
og því fylgi mun minni áhætta.
Matur sem
ekki skemmist
Leynist hrísgrjónapakki frá árinu
1982 aftarlega í eldhússkápnum
þínum?
Þótt mörg okkar vilji ekki
kannast við það, þá höfum við öll
ákveðinn gildistíma. Og flest af
því sem er í kringum okkur fyrnist
sömuleiðis einhvern tímann. Tölv
an okkar dugar aðeins í ákveðinn
tíma og kjötið sem við kaupum
helst aðeins ferskt í örfáa daga.
Sem er allt eðlilegt og partur af
náttúrulegri hringrás lífsins.
En sumar matartegundir virð
ast geymast endalaust. Þessar
vampírur fæðutegundanna er gott
að kaupa í stórum stíl. Þær munu
aldrei skemmast né tapa gæðum
sínum og eru því alltaf til taks þegar
þú þarft á þeim að halda. Það er að
segja ef þú geymir þær rétt.
Sterkt vín Það er engin ástæða til
að hlaupa til og þamba allt áfengið sem
þú verslaðir í tollinum. Ef þú geymir sterkt
vín á köldum, dimmum stað mun það
geymast endalaust. Lyktin af víninu gæti
dofnað en ekki svo að eftir því verði tekið.
Hrísgrjón Jafnvel þótt pakkinn sé
þakinn þykku lagi af ryki eru grjónin jafn
góð og daginn sem þú keyptir þau. Þetta
á að vísu ekki við um brúnu hrísgrjónin
vegna þess að þau innihalda meiri olíu og
renna því út fyrr. Passaðu bara að geyma
hrísgrjónin í loftlausum pakkningum svo
pöddur komist ekki að þeim.
Sykur Áskorunin með sykurinn
snýst frekar um að halda honum linum
og mjúkum heldur en ferskum. Sykur
skemmist ekki af því að bakteríur eiga
erfitt uppdráttar í honum. Mundu bara að
geyma hann í loftskiptum umbúðum svo
hvorki pöddur né raki komist að honum.
Maíssterkja Til að láta maís-
sterkju duga að eilífu skaltu geyma hana
á þurrum og köldum stað í loftskiptum
umbúðum. Þar sem fæstir fara með heilan
pakka á fáum dögum er gott að vita að þú
þarft ekki að endurnýja lagerinn – aldrei.
Hunang Hunang geymist enda-
laust. Það gæti breytt um lit eða áferð en
það er samt öruggt til átu og dásamlegt á
bragðið. Ef þér líst ekki á áferðina skaltu
opna krukkuna í heitu vatni og hræra í þar
til kristallarnir hverfa.
Salt Borðsalt, matarsalt og sjósalt.
Saltið helst jafn ferskt næstu árin og
daginn sem þú keyptir það. Saltið klikkar
aldrei sem bragðbætir.
D
ísilbílar eru ekki jafn um
hverfisvænir og margir
vilja vera láta, en Alþjóða
heilbrigðismálastofnun
in sendi frá sér skýrslu á
dögunum þar sem varað er við út
blæstri frá dísilvélum. Er útblástur
inn settur í sama hættuflokk og
arsenik og sinnepsgas og jafnframt
er talið að aukning mengunarefna á
borð við nítrógendíoxíð megi rekja
til dísilbíla. Þetta er eflaust sláandi
fyrir þá fjölmörgu bifreiðaeigend
ur sem töldu sig gera umhverfinu
greiða með því að keyra um á dísil
bílum. Ljóst er að meginhluti þeirra
köfunarefnissambanda sem mælast
í andrúmslofti kemur frá þeim og
jafnframt eru öragnir í dísilvélareyk
mjög krabbameinsvaldandi.
Borgaryfirvöld í Osló sækjast nú
eftir því að banna alfarið umferð
dísilbíla í borginni og hafa samtök
astma og ofnæmissjúklinga í Nor
egi tekið undir þessar hugmynd
ir. Borgarstjórnin hefur lengi haft
heimild til að grípa til slíks banns
þegar loftmengun mælist mikil,
en langt er síðan heimildinni hef
ur verið beitt. Jafnframt geta borg
aryfirvöld bannað að þungum
flutningabílum sé ekið í gegnum
borgina. Hingað til hafa stjórnvöld á
Norðurlöndunum hvatt til kaupa á
dísilbílum og veitt eigendum þeirra
ýmis fríðindi sem birtast í lægri
sköttum og gjöldum, greiðara að
gengi að bílastæðum og svo fram
vegis. Talið var að þeir væru talsvert
umhverfisvænni en bensínbílar, en
nú eru farnar að renna á menn tvær
grímur.
Varað við dísilbílum
n Borgaryfirvöld í Osló vilja banna dísilbíla
Í sama flokki og arsenik Dísilreykur er sérlega krabbameinsvaldandi