Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Qupperneq 17
Nauðgun er í mínum huga alvarlegur glæpur Egill Einarsson í yfirlýsingu eftir að nauðgunarmál gegn honum var fellt niður. DV.is Aðför að eldri borgurum Spurningin „Mér finnst hún bara flott, mér finnst þetta flott frumkvæði og bara gott að vekja athygli á þessum málum. Þannig að þetta er algjörlega jákvætt.“ Kristín Þorláksdóttir 20 ára nemi „Mér finnst það bara snilld. Er það ekki bara frábært að vekja athygli á góðu málefni með athyglisverðum hætti?“ Guðmundur Jóhann Guðmundsson 19 ára þjónn „Mér líst bara mjög vel á þetta, flott framtak.“ Ragnhildur Ásta Valsdóttir 19 ára nemi „Þetta er ágæt áhugavakning á þessu.“ Birgitta Ólafsdóttir 19 ára nemi „Það er gott að vekja áhuga á þessu.“ Helga María Guðmundsdóttir 26 ára hjúkrunarnemi. Hvað finnst þér um druslu- gönguna? 1 Berglind: Slegin í rot og dregin upp í bíl Hluti úr viðtali við Berglindi Steindórsdóttur þar sem hún lýsir árásum á hendur sér 2 Sakar Gillzenegger um að vera hræsnari Ritstjórinn Jónas Kristjánsson svaraði yfirlýsingu Egils Einarssonar 3 Fær höll í 30 ára afmælisgjöf Vilhjálmur Bretaprins fagnaði 30 ára afmæli sínu síðastliðinn fimmtudag 4 „Mér fannst þetta hafa verið mér að kenna“ Rósa Björk Bergþórsdóttir segir að fyrstu árin eftir að henni var nauðgað hafi hún engum sagt frá því 5 „Skömmin var of mikil“ Ingunn Henriksen steig fram og deildi lífsreynslu sinni af nauðgun 6 Þóra hefur safnað 11 milljón-um Á vefsíðu Þóru Arnórsdóttur kemur fram að tæplega 11 milljónum hafi verið safnað í kosningasjóð hennar 7 VÍS milljarðar renna loksins til Skinneyjar Eignarhaldsfélag í eigu Skinneyjar–Þinganess á Höfn Hornafirði hefur nú runnið inn í útgerðarfélagið Mest lesið á DV.is Í slendingar hafa sýnt mikið sjálfstæði og ákveðni í gegnum tíðina. Við þykj- um standa framarlega hvað mann- réttindi varðar og almennt eru það forréttindi að fá að alast upp og búa hér á landi. Hins vegar er alltaf hægt að gera betur og ber að hafa það í huga. Hollt er að vera í stanslausri sjálfs- skoðun og þróun að bættu samfélagi. Ýmislegt látum við hins vegar yfir okkur ganga. Miðað við atburði síðustu ára er alveg ótrúlegt hversu lítil ólgan í samfé- laginu hefur í raun og veru verið. Fólk er tilbúið að „kvarta“ og finna lausnir hvert í sínu horni en svo þegar kemur að mótmælum og samstöðu þá er sami hópurinn vart sýnilegur. Allt að 30 sagt upp Sjálf tilheyri ég þeim hópi. Eru þetta kannski Íslendingar í hnotskurn? Nú standa umræður um forsetakosningar sem hæst, á sama tíma kemur fram í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins sem lögð var fram á borgarráðs- fundi í gær að um 24 til 30 leiðbeinend- um sem unnið hafa í félagsmiðstöðvum eldri borgara hafi verið sagt upp störf- um og að ekki muni verða ráðnir starfs- menn í þeirra stað. Reykjavíkurborg er hér með að „gjöreyða“ félagstarfi eldri borgara á 15 starfsstöðvum. Mjög pent. Tillögunni var ýtt í gegn á meðan aðrar umræður voru í brennidepli. Hefur til- lagan verið samþykkt af velferðarráði, borgarstjórn eða borgarráði. Hálft starfsgildi verður fyrir hverja félagsmið- stöð og reyna á að fá Rauða krossinn og/eða hjúkrunarheimilin til að manna restina með sjálfboðastarfi. Félagsleg einangrun Hvað er verið að tala um? Það sér það hver heilvita maður að þetta getur alls ekki gengið upp. Niðurskurðurinn á hjúkrunarheimilum borgarinnar er nú þegar orðinn það mikill að ég efast stór- lega um að þar sé hægt að fá mann- skap í sjálfboðastarf til að manna stöð- ur, þó að þar vinni frábært fólk sem má þola mikið álag dag hvern og sé alltaf tilbúið að leggja fram aðstoð sína og þjónustulund. Hvert mun þessi hópur leita? Hvert getur hann leitað? Er búið að hugsa málið til enda? Eins og þetta kemur mér fyrir sjónir eru þetta hrein- lega fáránlegar aðgerðir sem skreytt- ar eru með hugtökum sem „flott“ er að nota nú á dögum þegar þarf að afgreiða flókin mál, má þar nefna hugtök eins og „sjálfbærni” og „valdefli”, hugtök sem hinn almenni borgari skilur hugsan- lega ekki til hlítar, því þau eru notuð í svo víðu samhengi og við öll tilefni sem gefast, en allt lítur þetta rosalega vel út á pappír. Að mínu mati getur borgin hrein- lega ekki sokkið dýpra. Þetta eru kerfis- bundnar aðgerðir í átt að verulegri fé- lagslegri einangrun og ekkert annað. Þessar aðgerðir munu hafa skelfilegar afleiðingar í för með sér. Svo ekki sé minnst á fjölskyldur þeirra sem sótt hafa félagsstarfið, áhyggjur þeirra af ástvinum og ættingjum munu stór- aukast. Sparnaðaraðgerðir þaggaðar niður Eldri borgarar hafa unnið fyrir sér frá unga aldri, margir hverjir ef ekki all- ir mun erfiðari störf en þekkjast í dag. Þau hafa borgað sína skatta og gjöld. Hvenær mun vera komið nóg? Af minni reynslu þá finn ég það að félagsstarf eldri borgara gefur þeim sem sækja það mikið: eldmóð, tilhlökkun, hamingju og fyllingu í lífið. Sá hópur sem er virkur í félagsstarfinu nýtur þess tvímælalaust. Það fer ekki á milli mála að þetta starf er nauðsynlegt og er hluti af lífi þús- unda einstaklinga. Kominn er tími til að við hugsum hvað Reykjavíkurborg er að gera. Hefur sameining leikskóla sýnt að þær aðgerðir skili þeim sparnaði sem sú sameining átti að færa? Sam- eina á heimili fyrir fatlaða núna á næstu misserum. Hvað hefur það í för með sér? Talað hefur verið um sameiningu grunnskóla. Áður en við vitum af verð- ur allt sameinað í sparnaðarskyni, en myndar það samstöðu í samfélaginu? Kominn er tími á, að ekki aðeins það góða hjá borginni rati í fjölmiðla og sparnaðaraðgerðir þaggaðar niður. Hvernig væri að borgarstjórn myndi hætta að tala um það hverjir fara í jóm- frúarflug og hverjir ekki og fari að sinna sínu starfi af alvöru. Höfundur er félagsliði og háskólanemi. Fótbolti og bjór á Ingólfstorgi Bjórdæla og risaskjár eru töfraorðin þegar alþjóðlegar keppnir í knattspyrnu standa yfir. Gestir fylgdust ákafir með leik Englendinga og Ítala úr sætum sínum á Ingólfstorgi á sunnudagskvöld. mynd SIgtryggur ArIMyndin Umræða 17mánudagur 25. júní 2012 Þetta var ótrúlega flott dæmi Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona Of Monsters and Men . DV Þeim manni þótti samþykki ekki sexí „Það fer ekki á milli mála að þetta starf er nauðsynlegt og er hluti af lífi þúsunda einstaklinga. Kjallari Hildur Dís Jónsdóttir Scheving Þyrnigerður Láfa um mann sem braut gegn henni kynferðislega. DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.