Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 12
Samfélag Pepoj-fjölskyldan er stödd
úti í Skode í Albaníu og er afskaplega
fegin stuðningi sem hún hefur fengið
frá íslensku samfélagi. Til að komast
til Íslands aftur hefur hún þurft að
afla gagna, svo sem sakavottorða,
hjúskaparvottorðs og fæðingarvott-
orða.
Hermann Ragnarsson, sem hefur
lagt fjölskyldunni lið, segir albanskan
þingmann greiða götu þeirra svo þau
komist sem fyrst með Kevi til Íslands.
„Albanskur þingmaður aðstoðar
Pepoj-fjölskylduna við að afla gagn-
anna eins fljótt og kostur er til að þau
komist sem fyrst til landsins. Nú eru
öll gögn komin til allsherjarnefndar
til vinnslu,“ segir Hermann og stað-
festir með því að umsókn fyrir fjöl-
skylduna hafi verið lögð fram.
Einnig hefur verið lögð umsókn
fyrir Phellumb-fjölskylduna og
drenginn Arjan sem glímir við hjart-
veiki.
Um sókn ir um ríkisborgararétt sem
allsherjarnefnd Alþingis fjallar nú um
eru 62 en þær varða fleiri ein stak linga
þar sem hver um sókn get ur varðað
ein stak ling og börn hans.
Í framhaldinu gerir allsherjarnefnd
tillögu að frumvarpi til laga um veit-
ingu ríkisborgararéttar. Tíminn er að
verða naumur en talið er áríðandi að
frumvarpið verði afgreitt fyrir jólafrí
Alþingis. Unnur Brá Konráðsdóttir,
formaður allsherjarnefndar, segist
gera ráð fyrir því að frumvarpið verði
lagt fram fljótlega.
Þótt báðar albönsku fjölskyld-
urnar gætu fengið ríkisborgararétt
fyrir jól þarf að greiða úr ýmsum
flækjum varðandi komu þeirra til
landsins. Mikilvægt er að drengirnir
tveir, Kevi og Arjan, fái heilbrigðis-
þjónustu. Nýir ríkisborgarar eru hins
vegar undanskildir sjúkratryggingum
fyrstu sex mánuðina eftir komu, eða
endurkomu til Íslands.
Sjúkratryggingastofnun er heimilt
að ákveða samkvæmt umsókn að
einstaklingur sem sjúkratryggður er
samkvæmt lögunum sé áfram sjúkra-
tryggður hafi hann dvalið erlendis í
námi eða atvinnu en ströng skilyrði
eru sett um búsetu á Íslandi áður.
Því er ljóst að eins konar undanþágu
þarf frá reglum um sjúkratryggingar.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Öll gögn Albananna eru
komin í hendur Alþingis
ÞVERÁ, KJARRÁ OG
LITLA ÞVERÁ Í BORGARFIRÐI
ÞRJÁR VEIÐIPERLUR
SAMAN Í EINNI BÓK
Vatnagörðum 14 · 104 Reykjavík · Sími 563-6000 · www.litrof.is
Þverá / Kjarrá og Litla Þverá er enn ein perlan í bókaflokknum um laxveiðiár á Íslandi. Hérna er í
fyrsta sinn fjallað um Þverá og Kjarrá ásamt Litlu Þverá sem eina heild og veiðisvæðinu lýst á
einstaklega skemmtilegan og aðgengilegan hátt. Bókin er ómissandi viðbót í flokknum um veiði
sem Litróf hefur staðið að á metnaðafullan hátt. Bókina prýðir fjöldinn allur af vönduðum ljós-
myndum sem varpa ljósi á stórkostlegt umhverfi Borgarfjarðar ásamt kortum af veiðisvæðinu.
Bókin Þverá / Kjarrá og Litla Þverá er langþráð viðbót í safnið um laxveiðbækur. Fæst í öllum
helstu bókaverslunum.
KYNNING
Í VEIÐIHORNINU
SÍÐUMÚLA 8
LAUGARDAG
KL. 16
ÞRJÁR
LAXVEIÐIÁR
Í EINNI BÓK
Arjan mun eins og Kevi landi hans þurfa undanþágu frá reglum um sjúkratrygg-
ingar til að fá viðeigandi læknishjálp komi hann til Íslands. Mynd/Stöð2
RúSSland Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti fór hörðum orðum um
tyrkneska ráðamenn á hinum árlega
blaðamannafundi sínum sem sjón-
varpað var í gær. Hann sagðist ekki
sjá neinn flöt á því að bæta sam-
skiptin við Tyrkland á næstunni.
„Við höfum lært það af reynslunni
að það er erfitt eða næstum því
ómögulegt að komast að samkomu-
lagi við núverandi stjórn Tyrklands,“
sagði Pútín. „Jafnvel þegar við segj-
umst vera sammála þeim, þá reyna
þeir að leika á okkur eða stinga okkur
í bakið gjörsamlega að ástæðulausu.“
Hann sagði hugsanlegt að þegar
Tyrkir skutu niður rússneska her-
þotu í síðasta mánuði hefðu þeir
fyrst og fremst ætlað að sleikja sig
upp við Bandaríkjamenn, og notaði
þar sæmilega gróft orðalag:
„En ef einhver forystumanna Tyrk-
lands ákvað að sleikja Bandaríkja-
menn á vissum stað, þá veit ég ekki
hvort það var skynsamlegt,“ sagði
Pútín og hótaði refsiaðgerðum.
„Ég held hins vegar að leiðtogar
Tyrklands hafi farið fram úr sjálfum
sér þarna. Rússland neyðist til þess
að grípa til efnahagshafta eða ann-
arra aðgerða, til dæmis hvað varðar
ferðaþjónustu.“
Á hinn bóginn sýndi Pútín vilja til
þess að vinna með Bandaríkjamönn-
um að lausn á átökunum í Sýrlandi:
„Hugmyndir Rússlands fara í
megin atriðum saman við þær hug-
myndir sem Bandaríkin hafa viðrað.
Það er samstarf um stjórnarskrár-
breytingar, eftirlit með lýðræðis-
legum kosningum í framtíðinni,
kosningarnar sjálfar og viðurkenning
á úrslitum þeirra,“ sagði hann, en hélt
þó fast við eindreginn stuðning sinn
við Bashar al Assad Sýrlandsforseta.
Loftárásir rússneska hersins í Sýr-
landi þjóni einkum því markmiði
að styðja sókn stjórnarhersins gegn
uppreisnarmönnum.
Hins vegar styðji hann drög
Bandaríkjamanna að ályktun í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
um Sýrland: „Ég held að sýrlenskir
ráðamenn muni líka fallast á þau
drög. Það getur verið eitthvað sem
einhver er ekki ánægður með. En til
að reyna að finna lausn á blóðugum
átökum til margra ára, þá er alltaf
rúm fyrir málamiðlanir á báða bóga.“
Þá viðurkenndi Pútín í fyrsta sinn
opinberlega að Rússar hefðu sent
uppreisnarmönnum í austanverðri
Úkraínu hernaðaraðstoð af einhverju
tagi, þótt orðalagið væri óljóst:
„Við höfum aldrei sagt að það
væru ekki menn þarna að sinna
ákveðnum verkefnum, þar á meðal
á hernaðarsviðinu, en þetta þýðir
ekki að þarna sé rússneskt herlið.
Áttaðu þig á muninum,“ sagði hann
við spyrjanda, sem nafngreindi rúss-
neska hermenn sem úkraínsk stjórn-
völd hafa handtekið.
Loks hældi Pútín bandaríska repú-
blikananum Donald Trump á hvert
reipi, sagði hann bæði snjallan og
hæfileikaríkan. „Það er ekki okkar
að leggja mat á kosti hans, heldur
bandarískra kjósenda,“ sagði Pútín
við blaðamenn að lokinni sjón-
varpsútsendingunni. „Hann er mjög
áberandi persóna, hæfileikaríkur, tví-
mælalaust.“ gudsteinn@frettabladid.is
Óhjákvæmilegt að refsa Tyrkjum
Á hinum árlega blaðamannafundi sínum viðurkenndi Pútín í fyrsta sinn að rússneski herinn væri með
menn í Úkraínu. Hann sér ekki fram á sættir gagnvart Tyrkjum. Og hrósar Donald Trump hástöfum.
Að venju var mikið fjölmenni á hinum árlega blaðamannafundi Pútíns, sem sjónvarpað var í gær. FréttAblAðið/EPA
fRakkland Sádiarabíski bloggarinn
Raif Badawi hlaut í gær Sakharov-
verðlaunin, sem Evrópuþingið veit-
ir árlega til einstaklinga eða hópa
sem hafa helgað líf sitt baráttunni
fyrir mannréttindum og tjáningar-
frelsi.
Árið 2012 var Badawi hnepptur í
fangelsi í Sádi-Arabíu fyrir að hafa
smánað íslamstrú á bloggsíðu sinni.
Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi
og gert að þola þúsund svipuhögg.
Badawi situr því enn í fangelsi í
Sádi-Arabíu og gat ekki tekið við
verðlaununum, en eiginkona hans,
Ensaf Haidar, mætti til Strassborgar
í gær til að veita þeim viðtöku fyrir
hans hönd.
„Ég vona að þessi verðlaun opni
Raif leið til frelsis,“ sagði hún við
fréttavefinn Euronews.com. „Þau
hafa veitt mér og börnum okkar
siðferðilegan stuðning.“ – gb
Eiginkona
Badawis tók við
verðlaununum
En ef einhver
forystumanna
Tyrklands ákvað að sleikja
Bandaríkjamenn á vissum
stað, þá veit ég ekki hvort
það var skynsamlegt.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands
Ensaf Haidar veitir Sakharov-verðlaun-
unum viðtöku fyrir hönd eiginmanns
síns, sem situr í fangelsi í Sádi-Arabíu.
FréttAblAðið/EPA
1 8 . d e S e m b e R 2 0 1 5 f Ö S T U d a g U R12 f R é T T i R ∙ f R é T T a b l a ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-C
9
6
0
1
7
B
B
-C
8
2
4
1
7
B
B
-C
6
E
8
1
7
B
B
-C
5
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K