Fréttablaðið - 18.12.2015, Qupperneq 34
hef einnig fengið hrós frá ungum
stelpum sem tala nú um kynlíf
og geta sagt orðið píka. Líka frá
móður sem nú talar við börn sín
um kynlíf og kaupir smokka. Og
foreldrana sem fóru að tala um
raunveruleika uppeldis, án alls
glans. Og öllum þeim lesendum
sem segja mér að þeir lesi í hverri
einustu viku og hafi gagn og
gaman af. Ég er svo óendanlega
þakklát ykkur í hjartanu.
Ofurkraftur á lyklaborðinu
Það er ekki hægt að neita því að
þegar maður fær slíkan með-
byr og yl frá samborgurum, þá
losnar um eitthvað. Ég pikka að-
eins fastar og hraðar á lyklaborð-
ið. Ég þarf að koma miklu að og
eina leiðin til þess er að tala við
fólk, hreyfa við því svo það verði
að gárum breytinga í sínu um-
hverfi. Þannig aukum við skilning
og manngæsku, með því að hreyfa
við næsta manni sem svo ber kær-
leikann og fróðleikinn áfram.
Fyrst ég er svona á einlægu
nótunum þá get ég alveg sagt þér,
kæri lesandi, ég er að skrifa tvær
bækur. Önnur er sérvalið saman-
safn af þessum pistlum sem hafa
birst hér í Fréttablaðinu og hin er
bók um kynlíf fyrir unglinga. (Þó
hún sé raunverulega einnig fyrir
allt það fólk sem aldrei fékk kyn-
fræðslu og vill fá hana beint í æð
án allra krúsídúlla, bara hrein-
an og beinan (og fyndinn!) fróð-
leik). Ég er því ekki með öllu horf-
in og mun áfram herja á land-
ann með opnari og hreinskilnari
umræðu um kynlíf, tilfinningar,
samskipti og ástina, sem og kyn-
fræðslu í grunn- og framhalds-
skólum landsins.
Hvað, eða hver,
er í þínum vegi?
Ég reyndar taldi lengi að ég mætti
ekki skrifa bók. Það var eitt af því
sem minnimáttarkenndin hvísl-
aði í eyra mitt. „Þú ert sko enginn
Andri Snær, Þorgrímur, Kristín
Marja, eða Vigdís Gríms, og verð-
ur aldrei, svo slepptu þessu bara,“
hvísluðu raddirnar. Sem betur fer
þá náði hrósið ykkar að yfirgnæfa
hvíslið og þegar þessi leiðinda-
kór ætlar að byrja þá set ég bara
Edith Piaf í eyrun og öskra „Non,
rien de rien, je regrette rien!“.
Það hefur nefnilega ekki alltaf
verið svo að lífið sé dans á rósum
en ég trúi því að þetta sé spurn-
ing um að reyna að þrauka, draga
lærdóm af aðstæðunum, hlusta á
sterka fyrirmynd og fá sér súkk-
ulaði. Stundum sökkar allt (svo ég
sletti) og þá er bara allt í lagi að
setjast niður, anda djúpt og troða í
sig molum og syngja. Sérstaklega
þegar ekkert annað er í stöðunni.
Ég er Pollýanna í hjartanu og trúi
á að við eigum að vera duglegri
að hlusta á innsæi okkar og taka
áhættu, sér í lagi ef hjartað öskr-
ar á þig að fara af stað. Aðgerðar-
leysi getur valdið eftirsjá en mis-
tök eru hluti af reynslubankanum
og mótandi afl.
Eina leiðin er áfram. Það er
svo margt ósagt og ógert í tengsl-
um við samskipti og kynlíf og
mitt verkefni snýst um miklu
meira en einhverja spéhræðslu
hjá mér yfir takmörkunum á eigin
gáfum eða hégóma um að halda
ákveðnu andliti út á við. Verkefni
mitt snýst um að bæta heiminn
og fólkið í honum. Og þá er bara í
boði að halda áfram.
Þú getur breytt heiminum
Ég hef margoft sagt að ég ætli
mér að breyta heiminum og ég
ætla að standa við það. Þegar
maður hefur stuðning, birtu og
kraft frá sterkum einstaklingum
þá skín maður áfram og stoppar
ekki. Þú, kæri lesandi, hefur átt
þátt í því að móta mig og styrkja.
Það er vegna þín sem ég þrosk-
ast. Ég er auðmjúk, tillitssöm og
langar að bæta mig og verða betri
manneskja, því það skiptir máli.
Hvernig ég hegða mér, hvað ég
segi og hvað ég geri skiptir máli.
Það skiptir líka máli fyrir þig. Við
skiptum öll máli því öll höfum við
áhrif á manneskjurnar í okkar
nærumhverfi.
Segðu píka. Kauptu smokka.
Notaðu smokkinn. Spyrðu: „Er
allt í lagi? Finnst þér þetta gott?
Má ég halda áfram?“ Opnaðu
augun. Segðu: „Mér þykir vænt
um þig.“ Farðu í sleik. Elskaðu
þig. Elskaðu líkama þinn. Elsk-
aðu samferðafólk þitt. Virtu þig
og aðra. Segðu takk. Vertu með í
að breyta heiminum og bæta.
Ást til ykkar allra inn í
jólin og nýtt ár, við hitt-
umst án efa á nýju ári,
takk fyrir mig og sam-
fylgdina!
Þ
á er komið að því. Ekki nóg
með að formleg jól gangi í
garð í næstu viku heldur er
þetta einnig síðasti pistill-
inn sem ég skrifa í Frétta-
blaðið. Þetta hefur verið ævintýra-
legur tími og það sem fáir vita er
að fyrsti pistillinn eftir mig birt-
ist árið 2006 í Fréttablaðinu. Þá
var ég mjög innblásin af Carrie úr
Beðmálum í Borginni og skrifaði
um leitina að draumaprinsinum,
og leitina að sjálfri mér. Ég man að
ég áttaði mig alls ekki á því hversu
margir, ef þá einhverjir, hefðu
áhuga á þessum pistlum en ég hef
alltaf skrifað svo þetta er bara
órjúfanlegur hluti af mér og hver
ég er. Kannski réttast að undirbúa
þig. Þessi pistill er smá sjálfshátíð
og það er von á væmni. Ekki segja
að ég hafi ekki varað þig við.
Fyrir fimm árum
Þegar ég kom heim úr kynfræði-
náminu hafði blaðamaður sam-
band við mig og bauð mér að
skrifa fyrir Fréttablaðið. Mér
fannst það spennandi en jafnframt
var ég hrædd við það því nú var
ekkert hægt að skrifa bara um að
vera í sleik á einhverjum skemmti-
stað, nú þyrfti að skrifa af alvöru.
Í fyrstu var ég mjög upptek-
in af því að skrifa um rannsóknar-
niðurstöður og vildi passa að hafa
allt faglegt og flott. Mér fannst ég
þurfa að sanna mig og ekki vera
lengur þessi týnda stelpa. Ég gyrti
mig í brók með nokkrum háskóla-
gráðum, heimsferðalögum og sterk-
um maka og settist við skriftir. Það
var samt ekki fyrr en ég leyfði mér
að slaka aðeins á og setti smá af
mér í pistilinn þar sem þeir virki-
lega flugu af stað og öðluðust sjálf-
stætt líf. Orðin hreyfðu við lesend-
um.
Þakklæti
Ég hef heyrt af konum sem hafa
klippt út pistla og hengt upp inn
Takk fyrir mig og gleðileg jól!
Sigga Dögg kynfræðingur kveður síður Fréttablaðsins og skrifar lokapistil um ferðalagið sem skrifin hafa verið og þakkar
lesendum innilega fyrir meðbyr, hrós og stuðning þegar hún heldur á vit nýrra ævintýra í kynfræðslu og bókaskrifum.
Þegar maður hefur stuðning, birtu og kraft frá sterkum einstaklingum þá skín maður áfram og stoppar ekki.
um kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst.
sigga@siggadogg.is
viltu spyrja
um kynlíf?
Ef þú hefur spurningu
á kaffistofur og jafnvel lesið upp-
hátt fyrir samstarfsfélagana. Ég
hef heyrt af konum sem klippa
þá út og safna þeim. Ég hef per-
sónulega fengið hrós frá fallegum
ungum herramönnum sem segja
að skrifin hafi bætt þeirra sam-
band og þeir hugsi nú öðruvísi. Ég
„Þú, kæri lesandi,
hefur átt þátt í því að
móta mig og styrkja.
Það er vegna þín
sem ég þroskast. Ég
er auðmjúk, tillitssöm
og langar að bæta
mig og verða betri
manneskja, því það
skiptir máli.“
JÓLAGJÖFIN HENNAR
Smáralind
facebook.com/CommaIceland
Heilsuvísir
4 • LÍFIÐ 18. DESEmbEr 2015
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-B
F
8
0
1
7
B
B
-B
E
4
4
1
7
B
B
-B
D
0
8
1
7
B
B
-B
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K