Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 76
Ég byrjaði strax eftir prófin mín, en ég er að læra viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Svo
þetta eru um fimmtán greiðslur í
heildina,“ segir Dagný Gunnars-
dóttir sem vakið hefur athygli á
samfélagsmiðlunum fyrir hressi-
legt og öðruvísi jóladagatal, en
hún er með öllu sjálflærð í þessum
efnum. Hún á sér þó dyggan aðdá-
endahóp, en hún hefur verið iðin
við að bjarga vinkonum sínum, og
mæðrum þeirra um upplyftingu.
Nú býður hún inter netinu að
stökkva á vagninn, og hefur hlotið
mikið lof fyrir.
Dagný segir greiðslurnar eiga
það sameiginlegt að vera einfaldar
og á allra færi að henda í góða
greiðslu, enda gráupplagt að geta
hent í eina góða þegar brestur á
með endalausum jólaboðum og
nýársgleðiköstum. Hefur Dagný
fengið gríðargóð viðbrögð við
framtakinu, en hún merkir allar
greiðslurnar með myllumerkinu
#fíntíhárið og leggur sig fram við
að hafa þær þannig að flestar geti
hent í eina. „Ég er sjálf aldrei með
uppsett hár, held það hafi gerst
einu sinni á minni ævi. Mér finnst
ekkert að því, en það hentar mér
bara ekki,“ bendir hún á og skýtur
að: „Sjálf er ég með algjöra fóbíu
fyrir að feluspennur sjáist, svo
það hentar mér að vera með lág-
stemmdari greiðslur og ég nota
plastteygjurnar mikið í mínum.
Auk þess sem ég er ekki að bæta
við neinu aukahári líkt og algengt
er í flottum greiðslum.“
Aðspurð hvaðan þessi sjálfs-
áskorun, í miðri jólabiluninni
sem brestur jafnan á þegar líða
fer að jólum, segir Dagný þetta
framtak ekki nýtt af nálinni hjá
sér. „Ég tók þátt í Meistaramánuði
2013 og gerði þá þrjátíu og eina
greiðslu. Það hafðist, en ég hafði
klárlega ekki hugsað það verkefni
til enda,“ segir hún og skellir upp
úr. Hún hafi þannig ekki miklað
fyrir sér að henda í fimmtán
greiðslur, og hefur farið létt með
það enn sem komið er.
En hvaðan skyldi Dagný fá
innblásturinn? „Nú er ég alger
Pint erest-, Google- og You-
Tube-sjúklingur, og sæki inn-
blástur mikið þangað. Ég geri þó
aldrei beint upp úr því sem ég
finn, heldur bæti og breyti eftir
mínum smekk,“ svarar hún. Hún
segist sjálf eiga erfitt með að velja
sér eina greiðslu sem hún kjósi
umfram aðrar, en sennilega grípi
hún oftast til fiskifléttu, sem í raun
sé mun auðveldari en fólk geri sér
í hugarlund.
Hún segir þó fjarri lagi að alltaf
sé hún með uppstrílaðan koll,
oftar en ekki láti hún sér nægja
að greiða á sér hárið fyrir sturtu
og svo ekki aftur fyrr en að næstu
sturtu komi. „Það kemur nefni-
lega líka vel út að hafa það svolítið
tætt,“ segir hún og bætir við: „Og
svo skapar æfingin auðvitað
meistarann, það er ágætt að hafa
það í huga,“ og brosir sínu breið-
asta. gudrun@frettabladid.is
Dagný hefur enga menntun að baki þegar kemur að hárgreiðslu, en er hins vegar hokin af reynslu sem
vinkonur sækja stöðugt í. Fréttablaðið/GVa
1. Krulla hárið með járninu
ROD VS3 frá HH Simonsen.
2. Tylli bandi ofan á kollinn
og festi það með spennum
báðum megin.
3. Vef hárinu utan um teygj-
una svo ekki sjáist í hana.
4. Spreyja góðu hárspreyi til
að festa herlegheitin.
Vesenslaus
jóladagsgreiðsla í
fjórum skrefum
11. desember
Býr til
jóladagatal
úr hárinu á sér
„Ég er haldin algjörri fóbíu fyrir feluspennum
sem sjást,“ segir Dagný Gunnarsdóttir, við-
skiptafræðineminn sem heldur úti óvenju-
legu jóladagatali, þar sem hún telur niður
dagana með nýrri hárgreiðslu sem auðvelt
er að apa eftir.
15. desember
12. desember
16. desember
1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r48 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
B
B
-A
1
E
0
1
7
B
B
-A
0
A
4
1
7
B
B
-9
F
6
8
1
7
B
B
-9
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K