Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 2
Líkamsárásir á Stór-Reykjavíkursvæðinu Vesturbær 38 12:00 – 18:01 föstudag og sunnudag* Háaleiti 36 12:01 – 18:00 föstudag 2 Fréttir 18. febrúar 2013 Mánudagur *Jafnmörg brot framin á tveimur tímabilum. HeiMild: lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu T ilkynnt var um 664 líkams- árásir á höfuðborgarsvæð- inu á síðasta ári. Langflestar þeirra áttu sér stað í mið- borg Reykjavíkur. Þetta kem- ur fram í bráðabirgðatölum sem lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman. Ekki er tekið tillit til íbúafjölda í hverfunum í þessum töl- um, heldur aðeins fjölda brota, stað- setningar og tíma dags. Þá er ekki úti- lokað að fleiri brot hafi átt sér stað í hverfunum þar sem þetta nær aðeins yfir þau brot sem tilkynnt var um til lögreglunnar. Af öllum líkamsárásunum voru 279, eða 42 prósent, í miðborginni. Ef horft er út fyrir miðborgina er Breiðholtið það svæði sem líkams- árásir eru algengastar á. Þar var til- kynnt um 63 líkamsárásir árið 2012, sextán fleiri en í Laugardal, sem er í þriðja sæti listans. sólarhringurinn Séu líkamsárásirnar skoðaðar eftir því hvenær sólarhringsins tilkynnt var um þær kemur í ljós að langflestar líkamsárásir áttu sér stað á kvöldin og nóttunni. Samtals var tilkynnt um 489 líkamsárásir á milli klukkan 18 síðdegis og sex um morguninn á síð- asta ári. Það jafngildir 74 prósentum af öllum líkamsárásum. Mikill fjöldi þeirra líkamsárása sem tilkynnt var um á höfuðborgarsvæðinu árið 2012 átti sér stað í miðborg Reykjavíkur að nóttu til um helgar. Á þeim tíma sólarhringsins er gjarna samankom- inn fjöldi fólks í bænum til að neyta áfengis og skemmta sér. Tölurnar gefa til kynna að einhver tenging sé á milli þessa og líkamsárása. Fjögur hverfi skera sig þó úr hvað varðar tímasetningar brota. Í Háaleiti og Vesturbæ Reykjavíkur og Garða- bæ var tilkynnt um fleiri líkamsárás- ir yfir daginn, frá klukkan sex árdegis til 18 síðdegis, en á kvöldin og nótt- unni. Samtals var tilkynnt um 86 lík- amsárásir á þessum svæðum, þar af 48 að degi til. Helgarnar verstar Samkvæmt yfirliti yfir þá vikudaga sem tilkynnt var um árásirnar kem- ur í jós að helgarnar eru verstar hvað fjölda líkamsárása varðar. Af öllum árásum sem tilkynnt var um árið 2012 var tilkynnt um 228 á sunnudegi og 156 á laugardegi. Það eru 58 pró- sent allra líkamsárása. Meiri munur er þó á milli hverfa og svæða þegar kemur að því að greina tölurnar eftir vikudögum en eftir tíma sólarhrings. Sem dæmi má nefna voru þau tvö brot sem framin voru á Álftanesi til- kynnt á mánudegi og þriðjudegi. Ofbeldisbrotum fjölgar jafnt og þétt eftir því sem líður á vikuna frá mánudegi til sunnudags. Tilkynnt er um fæst brot á mánudögum, næst- fæst á þriðjudögum og svo framveg- is. Aðeins var tilkynnt um 47 líkams- árásir, eða sjö prósent, á síðasta ári á mánudögum. Langmesta stökkið er á milli föstudags og laugardags en á milli þeirra daga fjölgaði árásum sem tilkynnt var um úr 69 í 156. n Tilkynnt um fæstar líkamsárásir á Álftanesi n Flestar árásir eiga sér stað um helgar Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Miðbærinn um helgar Algengast er að tilkynnt sé um líkamsárásir séu að nóttu til í miðbæ Reykjavíkur. Þá er tilkynnt um umtalsvert fleiri líkamsárásir á laugardögum og sunnudögum en öðrum dögum vikunnar. Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd eyþór árnason Með hnífa í belti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra karlmenn í Árbæ um tíu leytið á laugardagskvöld. Mennirnir, sem voru allir í bol- um merktum bifhjólasamtökun- um Outlaws, voru saman í bifreið þegar lögregla hafði afskipti af þeim en ökumaðurinn reyndist vera undir áhrifum fíkniefna. Í til- kynningu frá lögreglu á sunnu- dag kom fram að mennirnir hefðu haft í fórum sínum svokallaðan „mace“-úða og nokkra hnífa í belti. Ökumaðurinn á yfir höfði sér refsingu vegna fíkniefnaaksturs en auk þess verða þeir allir kærðir fyrir brot á vopnalögum. Mönnun- um var sleppt eftir skýrslutöku en einn þeirra var tæplega 18 ára en hinir á þrítugsaldri. Hnífamaður gómaður Skömmu eftir atvikið í Árbæ var karlmaður á fertugsaldri hand- tekinn í Grafarholti. Maðurinn hafði farið inn um dyr á svölum á annarri hæð húss í hverfinu en í íbúðinni bjó fyrrverandi sambýlis- kona hans. Maðurinn, sem var vopnaður hnífi þegar hann var handtekinn, mun hafa tekið ein- hverja muni af heimilinu, að sögn lögreglu. Hann var farinn út þegar lögregla kom á vettvang en náðist skammt frá. Engan sakaði. Maður- inn var færður í fangageymslu og var hann yfirheyrður á sunnudag þegar áfengis- og fíkniefnavíman var runnin af honum. Alþýðufylkingin fram í öllum kjördæmum Framhaldsstofnfundur Alþýðu- fylkingarinnar var haldinn í Iðnó á laugardag. Á fundinum var sam- þykkt stefnuskrá samtakanna og fjórar ályktanir. Þorvaldur Þor- valdsson var kjörinn formaður og Vésteinn Valgarðsson vara- formaður auk fimm annarra félaga í framkvæmdastjórn. Þá var kjör- inn tilskilinn fjöldi í miðstjórn en lögin gera ráð fyrir að kjördæmis- félögin tilnefni fulltrúa í miðstjórn þegar þau verða stofnuð. Í tilkynningu frá Alþýðu- fylkingunni kemur fram að auk umræðna um stefnuskrá og ályktanir hafi verið rætt um kosninga áherslur og kosninga- undirbúning, stofnun kjördæm- isfélaga og aðra starfsemi við uppbyggingu samtakanna. Fram- kvæmdastjórn var falið að hefja uppstillingu á framboðslista í samráði við kjördæmisfélög eftir því sem þau verða stofnuð. Alþýðufylkingin sótti nýlega um listabókstafinn R með tilskild- um fjölda undirskrifta og stefnir að framboði í öllum kjördæmum. Miðborg 279 00:00 – 06:00 sunnudag Laugardalur 47 18:01 – 23:59 laugardag Grafarvogur 20 00:00 – 06:00 mánudag, þriðjudag og sunnudag* Árbær 25 00:00 – 06:00 sunnudag Hlíðar 25 18:01 – 23:59 fimmtudag Breiðholt 63 18:01 – 23:59 laugardag Kópavogur 52 00:00 – 06:00 sunnudag Hafnarfjörður 47 00:00 – 06:00 sunnudag Garðabær 12 12:01 – 18:00 laugardag Miðborgin er nær alltaf hættulegust

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.