Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Qupperneq 3
Fréttir 3Mánudagur 18. febrúar 2013
n Tilkynnt um fæstar líkamsárásir á Álftanesi n Flestar árásir eiga sér stað um helgar
Miðborgin oftast verst
Aðeins í miðborginni, Breiðholti
og Kópavogi var tilkynnt um fleiri
en fimmtíu líkamsárásir. Á fjórum
stöðum; Grafarvogi, Mosfellsbæ,
Garðabæ, Grafarholti og Álftanesi,
voru tuttugu eða færri tilkynningar
um líkamsárásir.
Sama hvernig tölurnar eru
flokkaðar virðist miðborg Reykja-
víkur oftast koma verst út. Aðeins á
tímabilinu frá hádegi til 18 síðdeg-
is var tilkynnt um fleiri líkamsárás-
ir í Breiðholti en í miðborginni.
Það munaði þó ekki nema einu
broti. n
Vandræði Eigendur Metro hafa
átt í miklum vandræðum með
rekstur skyndibitastaðarins sem
skuldar Skjánum vegna auglýsinga.
Skjárinn í mál við hamborgarastað
n Eigendur Metro stóðu ekki í skilum vegna auglýsinga
S
kjárinn ehf., sem meðal annars
á og rekur Skjá Einn, hefur
höfðað mál á hendur fyrirtæk-
inu Líf og heilsa ehf. í von um
að innheimta peninga sem félagið
skuldar Skjánum.
Skuldin er samkvæmt upplýs-
ingum DV tilkomin vegna auglýs-
ingabirtinga fyrir hamborgarastað-
inn Metro en Líf og heilsa hafði frá
árinu 2010 rekið skyndibitastaðinn
þar til það var úrskurðað gjaldþrota
á dögunum.
Skjárinn höfðaði mál á hendur
Lífi og heilsu í fyrra en aðspurð seg-
ir Bestla Njálsdóttir, fjármálastjóri
Skjásins, að um sé að ræða talsverða
upphæð. „Já, já. Alveg nóg. Það mun-
ar í það minnsta um hana,“ segir hún
í samtali við DV.
„Það var gerður samningur um
auglýsingabirtingu og þeir bara
stóðu ekki við sitt. Þetta er mjög ein-
falt,“ segir Bestla.
Talsverðir erfiðleikar hafa verið
á rekstri Metro undangengin ár og
tvö félög farið í þrot við rekstur þess.
Líf og heilsa ehf. tók við af Lyst ehf.
þegar það félag fór í þrot en Lyst rak
áður McDonald‘s-veitingastaðina
hér á landi.
DV greindi frá því í júlí árið 2010
að Jón Garðar Ögmundsson, sem átti
Lyst og var framkvæmdastjóri Lífs og
heilsu, hefði, þegar Lyst var úrskurð-
að gjaldþrota, fært rekstur skyndi-
bitakeðjunnar yfir á Líf og heilsu,
sem var í eigu kærustu hans, Ásgerð-
ar Guðmundsdóttur.
Engar skuldir fylgdu með í þeim
kaupum, þær urðu eftir í hinu gjald-
þrota félagi. Morgunblaðið hafði
heimildir fyrir því að lítið fengist upp
í 400 milljóna króna kröfur sem gerð-
ar voru í þrotabú Lystar þvert á yfir-
lýsingar Jóns Garðars um annað á
sínum tíma. Skiptum á búinu er ekki
lokið.
Nýr rekstraraðili er kominn að
Metro, félag sem heitir M-Veitingar.
Athyglisvert verður því að sjá
hvernig Skjánum gengur að inn-
heimta auglýsingaskuld við gjald-
þrota félag á flakki.
mikael@dv.is
Miðborgin er nær
alltaf hættulegust
K
atrín Jakobsdóttir, ráðherra
mennta- og menningarmála
og varaformaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns fram-
boðs, tilkynnti um hádegisbil-
ið á sunnudaginn að hún hygðist gefa
kost á sér sem formaður flokksins. Það
gerði hún í kjölfar ákvörðunar Stein-
gríms J. Sigfússonar um að láta af for-
mannssætinu. Samkvæmt heimildum
DV nýtur Katrín óskoraðs trausts
í flokknum, jafnt meðal flokksfor-
ystunnar og þingmanna og almennra
flokksfélaga. Ólíklegt þykir að nokkur
geti skákað Katrínu í formannsslag
á landsfundi flokksins sem fram fer
næstu helgi.
Leit til Katrínar
DV greindi frá því á föstudaginn síð-
astliðinn að útlit væri fyrir að Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
grænna til fjórtán ára, léti af stöðu
formanns fyrir komandi landsfund.
Var hann sagður líta til Katrínar sem
arftaka síns en hún hefur verið vara-
formaður flokksins frá árinu 2003.
Steingrímur boðaði svo til blaða-
mannafundar í Norræna húsinu á
laugardaginn þar sem hann lýsti því
yfir að hann hygðist ekki gefa kost á
sér í formannskjöri flokksins þó hann
væri hvergi nærri hættur á þingi.
Nýtur víðtæks stuðnings
Heimildarmenn DV úr röðum
Vinstri-grænna eru allir á einu máli
um að Katrín Jakobsdóttir njóti víð-
tæks stuðnings innan flokksins en
ákvörðun Steingríms mælist einnig
vel fyrir. Katrín er talin geta sameinað
flokksmenn að baki sér og endurheimt
tapað fylgi hans að einhverju leyti en
fylgi Vinstri-grænna hefur minnk-
að jafnt og þétt í skoðanakönnun-
um frá síðustu alþingiskosningum og
hefur hver höndin verið uppi á móti
annarri í flokknum á undanförnum
misserum. Í kosningunum árið 2009
hlaut flokkurinn tæplega 22 prósenta
fylgi og 14 þingmenn en mælist nú
með stuðning undir 10 prósentum.
Heita má öruggt að Katrín eigi
stuðning Steingríms vísan. Þá var
Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og
auðlindaráðherra, fljót til að lýsa yfir
stuðningi við Katrínu í stöðuuppfær-
slu á Facebook. Eðlilegt hefði verið að
líta til Svandísar sem mögulegs mót-
frambjóðanda Katrínar en þær leiða
lista Vinstri-grænna í Reykjavíkurkjör-
dæmunum tveimur. Í samtali við DV
segist Svandís ekki hafa hugleitt fram-
boð til formanns og segist hún held-
ur ekki hafa hug á sæti varaformanns.
Þær Katrín munu hafa rætt formanns-
framboð sín á milli og segist Svandís
styðja Katrínu af heilum hug.
Ögmundur ekki í framboð
Þegar blaðamaður hafði samband
við Ögmund Jónasson innanríkisráð-
herra var hann staddur erlendis og
hafði ekki heyrt af fyrirhuguðu fram-
boði Katrínar. „Þú ert að bera mér
þessar fréttir, ég heyrði í gær að Stein-
grímur ætlaði ekki að bjóða sig fram
og nú að Katrín ætli í framboð.“
Sjálfur þvertekur Ögmundur fyrir
að hann hyggi á framboð. Hann vill
ekki lýsa yfir stuðningi við neinn fram-
bjóðanda að svo stöddu en segist
fylgjast með gangi mála af hliðar-
línunni. Þó enginn af sitjandi ráðherr-
um Vinstri-grænna komi til með að
berjast við Katrínu um formannssætið
getur vel hugsast að framboð berist
frá einhverjum utan framvarðasveit-
ar flokksins, líkt og gerðist á síðasta
landsfundi þegar Steingrímur fékk tvö
mótframboð. Þó verður að teljast afar
líklegt að Katrín Jakobsdóttir verði
næsti formaður Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs.
Vinsælasti ráðherrann
„Fjármálaráðherra lands á barmi
gjaldþrots verður seint sá sem til þurfti
ef hann hugsar fyrst og fremst um eig-
in vinsældir,“ sagði Steingrímur J. Sig-
fússon í tilkynningu sinni á laugar-
daginn. Talið er að Katrín njóti meiri
vinsælda meðal almennings en Stein-
grímur um þessar mundir. Hann hef-
ur á liðnu kjörtímabili gegnt stöðu
fjármálaráðherra og atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra og hefur á þeim
vettvangi tekið ákvarðanir er varða
stærstu og erfiðustu deilumál kjör-
tímabilsins. Katrín er hins vegar sögð
njóta þess að hafa stýrt mennta- og
menningarmálaráðuneytinu og hefur
hún oftsinnis mælst vinsælasti ráð-
herra ríkisstjórnarinnar í skoðana-
könnunum.
Þrátt fyrir sársaukafullan niður-
skurð til menntamála hefur nemend-
um í framhalds- og háskólum fjölgað
frá bankahruninu. Þá hefur engum
skólum verið lokað heldur hefur þeim
þvert á móti fjölgað. Þá er það talið
Katrínu til tekna að verði hún kjörin
formaður Vinstri-grænna verður hún
eina konan sem kemur til með að
leiða einn af stóru stjórnmálaflokkun-
um. Formenn Sjálfstæðisflokks, Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks eru
karlmenn á aldrinum 38–47 ára.
Ekki „aftursætisbílstjóri“
Á blaðamannafundinum í Norræna
húsinu sagði Steingrímur að ákvörðun
hans um að láta af formennsku væri
tekin af fúsum og frjálsum vilja.
Hann tók skýrt fram að hann ætlaði
ekki að gerast „aftursætisbílstjóri“
flokksins. Sagði hann meðal annars
að nóg væri af „fordæmum og vít-
um til að varast þar sem menn hafa
látið af formennsku, nauðugir vilj-
ugir kannski, en geta ekki hætt.“ Lilja
Mósesdóttir, fyrrverandi þingmaður
Vinstri-grænna, gefur lítið fyrir þessi
orð Steingríms og varar við því á Face-
book-síðu sinni að hann ætli sér að
vera „skuggastjórnandi“ flokksins. n
Katrín nýtur
fyllsta trausts
n Ögmundur ætlar ekki í framboð n Svandís styður framboð Katrínar
Óumdeild Viðmælendur DV úr röðum Vinstri-grænna binda miklar vonir við að Katrín Jak-
obsdóttir muni sameina flokkinn að baki sér og auka fylgi flokksins fyrir kosningarnar í vor.
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
„Allt á sinn tíma“ Steingrímur segir
óæskilegt að sami maður gegni formennsku
í stjórnmálaflokki nema í áratug eða í mesta
lagi rúmlega það.