Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 4
Steinunn og Páll benda á landSbanka 4 Fréttir 18. febrúar 2013 Mánudagur Fimm með Ögmundi í Kína n Kostaði rúmar þrjár milljónir n Fundað um ýmis mál F imm voru í fylgdarliði Ög- mundar Jónassonar innanrík- isráðherra í ferð til Kína í byrj- un mánaðarins. Ferðin kostaði samtals 3,14 milljónir króna en kostnaður við hvern og einn nam 524 þúsund krónum. Ferðakostnað- urinn skiptist þannig að 286 þúsund krónur voru greiddar fyrir flugmiða hvers og eins ferðalangs og 238 krón- ur í dagpeninga. Dagpeningarnir eru annars vegar vegna gistikostnaðar og hins vegar vegna fæðis og annars kostnaðar. Kínverska ríkið tók ekki neinn þátt í kostnaðinum við ferðina fyrir utan kvöldverðarboð. Auk Ögmundar fóru í ferðina þau Ragnhildur Hjaltadóttir ráðu- neytisstjóri, Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri skrif- stofu mannréttinda og sveitarfélaga, Sigurbergur Björnsson, skrifstofu- stjóri skrifstofu innviða, og Valur Ingimundarson, prófessor við HÍ. Í ferðinni átti Ögmundur í við- ræðum við kínversk flugmálayfir- völd um réttindi fyrir íslensk flug- félög til að fljúga til og frá Kína frá þriðja ríki, það er að segja ekki beint til og frá Íslandi. Það gæti gert ís- lenskum flugfélögum til að mynda kleift að sinna leiguflugi til og frá Kína. Þá ræddi Ögmundur einnig við stjórnvöld um ættleiðingarmál. Flest börn sem ættleidd eru til Ís- lands frá erlendum ríkjum koma frá Kína. Þar að auki skrifaði Ögmund- ur undir viljayfirlýsingu um sam- starf á milli Íslands og Kína á sviði neytendamála en þau mál voru til umræðu í ferðinni. n Samgöngumál Ögmundur, sem er ráðherra samgöngumála, ræddi við kínversk flugmálayfirvöld í ferðinni. Mynd Sigtryggur Ari S litastjórn hafnar í öllu þeim kröfum og fullyrðingum sem lífeyrissjóðirnir setja fram í bréfi sínu til Héraðs- dóms Reykjavíkur, dags 25. janúar 2013,“ segir í svarbréfi þeirra Steinunnar Guðbjartsdóttur og Páls Eiríkssonar, úr slitastjórn Glitnis, við kröfubréfi fimm lífeyrissjóða sem hafa krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að þau skili 482 millj- ónum króna sem sjóðirnir telja að þau hafi oftekið sér í laun út úr búi Glitnis. Svarbréfið er dagsett þann 12. febrúar 2013 og barst Eggert Ósk- arssyni héraðsdómara sem í kjölfar- ið mun taka afstöðu til deilumálsins. DV hefur svarbréfið undir höndum. Lögmaður lífeyrissjóðanna, Reim- ar Pétursson, sendi bréfið til Héraðs- dóms Reykjavíkur fyrir þeirra hönd í lok janúar síðastliðinn. Heildar- greiðslur þrotabúsins til þeirra Steinunnar og Páls, frá því þau voru skipuð í slitastjórn Glitnis árið 2009, námu 842 milljónum króna í fyrrahaust. Kröfur Reimars í bréfinu voru þær að Steinunn og Páll endur- greiddu umræddar 482 milljónir til búsins. Til vara var þess krafist að dómarinn ákvarði upphæð endur- greiðslunnar. Að lokum var þess kraf- ist að Héraðsdómur Reykjavíkur viki þeim Steinunni og Páli úr slitastjórn Glitnis ef þau endurgreiddu ekki milljónirnar 482 til búsins. Sumir fá 73 þúsund á tímann Meðal þeirra röksemda sem Steinunn og Páll halda á lofti í svar- bréfi sínu er að tímagjald þeirra, 35 þúsund krónur auk virðisaukaskatts, sé ekki óhóflegt, líkt og haldið er fram í bréfi Reimars, þegar gjaldtaka þeirra er borin saman við tímakaup lögmanna sem sinna sambærilegum störfum hér á landi. Steinunn og Páll benda til dæmis á það að tímagjald slitastjórnarmanna Landsbankans sé 35 þúsund krónur. Þá er á það bent að tímagjald einstaka lög- manna sem starfa fyrir kröfuhafana sé á bilinu 44 þúsund til 73 þúsunda. Ályktunin sem Steinunn og Páll draga af þessum upplýsing- um er sú að því fari fjarri að tíma- gjald þeirra sé óhóflegt: „Samkvæmt ofan greindu má sjá að fullyrðingar lífeyris sjóðanna um tímagjald lög- manna á Íslandi sem fást við sams- konar hagsmuni eru fullkomlega úr lausu lofti gripnar og þar að auki má sjá að tímagjald slitastjórnar er vel undir því tímagjaldi sem tíðkast í vinnu af þessum toga.“ Kostnaður rúmar 1.700 milljónir Steinunn og Páll benda á það að kostnaðurinn við skila- og slitameð- ferð Landsbankans hafi numið rúm- lega 1.700 milljónum á tímabilinu 2009 til 2012 eða um tvöfalt hærri upphæð en slitameðferð Glitnis. Þau telja að Héraðsdómur Reykja- víkur verði þá einnig að skoða samb- ærileg störf annarra sérfræðinga sem unnið hafa við slitameðferðir á fjár- málafyrirtækjum þar sem gjaldtak- an er sambærileg og hjá slitastjórn Glitnis. Fordæmið sem mál lífeyr- issjóðanna gæti búið til er því það að kröfuhafar annarra fjármálafyr- irtækja gætu höfðað sambærileg mál þar sem gjaldtaka slitastjórnar- mannanna er sambærileg eða jafn- vel hærri. Steinunn og Páll mótmæla því þeirri fullyrðingu „harðlega“ að tímagjald þeirra sé of hátt og úr hófi við það sem gengur og gerist. Héraðsdómur Reykjavíkur mun í kjölfarið taka afstöðu til deilumáls- ins. n n Segja kostnaðinn við slit Landsbankans tvöfalt hærri Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Segja tímagjaldið eðlilegt Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson hafa hafnað kröfu fimm lífeyrissjóða um að skila tæpum 482 milljónum króna sem sjóðirnir telja að þau hafi oftekið sér í laun úr búi Glitnis. „Samkvæmt ofan- greindu má sjá að fullyrðingar lífeyrissjóð- anna um tímagjald lög- manna á Íslandi sem fást við sams konar hagsmuni eru fullkomlega úr lausu lofti gripnar. 11.–12. febrúar 2013 nýtt stjórnmálaafl stofnað: Þorvaldur leiðir Lýð- ræðisvaktina „Eina leiðin til að komast að því hvort kjósendur hafa áhuga á þessu er að bjóða þeim upp á þennan kost en ef það kemur í ljós að kjósendur hafa ekki áhuga á þessu þá bara, eftir lögmálum lýð- ræðisins, verður það niðurstaðan og við munum una glöð við það,“ segir Þorvaldur Gylfason, sem á laugardag var kosinn formaður nýs stjórnmálaafls, Lýðræðisvakt- arinnar, sem ætlunin er að bjóði fram í öllum kjördæmum við næstu alþingiskosningar. Að baki því framboði segir Þor- valdur um breiðan hóp fólks að ræða en helstu stefnumál flokks- ins og áherslur verði kynntar á næstu dögum. Með Þorvaldi að nýja flokknum standa meðal annars séra Örn Bárður Jónsson, útvarpsmaðurinn Pétur Gunn- laugsson, Arnfríður Guðmunds- dóttir prófessor og Lýður Árnason læknir. Varaformaður flokksins er Sigríður Ólafsdóttir, lífefna- fræðingur. Þorvaldur segir að í sínum huga verði helstu stefnumið þrjú talsins en ítrekar að flokkurinn verði vettvangur allra sem það vilja. „Við viljum að Alþingi virði vilja þjóðarinnar í stjórnarskrár- málinu og við viljum stuðla að því á næsta Alþingi að það verði meirihluti fyrir staðfestingu frum- varpsins sem við treystum enn að núverandi Alþingi muni, eins og það hefur lofað, samþykkja fyrir þinglok og sem tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru búnir að leggja blessun sína yfir. Í öðru lagi viljum við bjóðast til að hjálpa til við að endursemja þau lög sem þarf að breyta til að þau samrýmist nýrri stjórnarskrá. Þar á ég við kosn- ingalöggjöfina, fiskveiðistjórnar- lögin, upplýsingalögin og önnur lög. Í þriðja og síðasta lagi viljum við gjarnan leggja hönd á plóg við að hraða endurreisn Íslands eftir hrun. Því Ísland er orðið eftirbátur Norðurlanda í lífskjörum og því þarf að linna sem allra fyrst ef við eigum að geta haldið unga fólkinu heima.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.