Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 6
Þórólfur og Sigurjón
tengduSt braSkinu
6 Fréttir
„Mjög einföld deila“
n Dómsmál á hendur Kára Stefánssyni heldur áfram
Þ
etta er mjög einföld deila
á milli verktaka og verk
kaupa um frágang á verki,“
segir Kári Stefánsson, for
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
um dómsmál sem verktakafyrir
tækið Fonsi ehf. höfðaði á hendur
honum. Fyrirtækið vann að
byggingu húss Kára við Fagraþing
í Kópavogi og forsvarsmenn þess
telja hann skulda sér á annan tug
milljóna króna fyrir verkið. Fyrir
taka fór fram í málinu í Héraðs
dómi Reykjavíkur á föstudag. Lög
maður Kára lagði fram matsgerð
unna af dómkvöddum matsmönn
um sem á að sýna fram á galla og
vankanta við húsbygginguna.
Dómsmálið hefur staðið yfir í þó
nokkurn tíma og greindi DV frá því
í maí í fyrra að lögmaður hefði lagt
fram greinargerð fyrir dómi. Þar
kom fram að Kári teldi sig hafa gert
upp við verktakafyrirtækið en hann
hefur borgað þeim um 60 milljónir
króna fyrir verkið.
Í greinargerðinni kom einnig
fram að Kári teldi fyrirtækið skulda
sér rúmlega 30 milljónir króna fyrir
ofgreiðslu verklauna og galla.
Sigurbjörn Þorbergsson, lög
maður Fonsa, sagði í samtali við
DV að ekki hefðu neinar sátta
umleitanir átt sér stað í málinu en
nú þegar matið liggi fyrir sé kom
inn frekari grundvöllur fyrir hugs
anlega sátt.
Önnur fyrirtaka í málinu verður
15. mars næstkomandi og fer aðal
meðferð fram í kjölfarið nema aðil
ar semji sín á milli.
Töluvert hefur verið fjallað um
byggingu hússins sem stefnir í að
verða glæsihöll klædd með títani.
Árið 2010 hóf Kópavogsbær að
beita Kára dagsektum því fram
kvæmdir á lóðinni höfðu stað
ið í stað í dágóðan tíma. Sama ár
höfðaði byggingarfélagið Eykt ehf.
mál á hendur Kára vegna 11 millj
óna króna uppgjörs í tengslum
við byggingu hússins. Samkvæmt
heimildum DV endaði málið þó
með sátt. n
solrun@dv.is
Þ
órólfur Gíslason og Sigurjón
Rúnar Rafnsson, æðstu
stjórnendur Kaupfélags
Skagfirðinga og tveir af
helstu stjórnendum Fjár
festingarfélagsins Giftar, tengdust
fasteignabraskinu í Örfirisey sem
Gift lánaði 840 milljónir króna inn
í árið 2007. Þeir Þórólfur og Sigur
jón Rúnar, ásamt Finni Ingólfssyni,
voru stjórnarmenn í eignarhalds
félaginu Skarðsá sem eignaðist tíu
prósenta hlut í fasteignafélaginu
Gómi, félaginu sem tók við 840 millj
óna króna láni með veði í fasteignum
Góms árið 2007. DV fjallaði ítarlega
um viðskipti Góms og Giftar í síðustu
viku.
Í þeirri umfjöllun kom fram að
Finnur Ingólfsson, fjárfestir og fyrr
verandi ráðherra, hefði átti hlut
í fasteignafélögunum í Örfirisey,
Gómi ehf. og Lindbergi ehf., sem
Gift lánaði 840 milljónir. Félag Finns
heitir Hólmaslóð ehf. og átti Fikt,
félag Finns, 44 prósenta hlut í því.
Samkvæmt undirrituðu samkomu
lagi sem DV hefur undir höndum og
greindi frá á föstudaginn áttu eigend
ur Hólmaslóðar, Finnur og Ómar
Benediktsson, að hagnast persónu
lega á fjárfestingunni í Gómi.
Færðu félag yfir til Ómars
Auk þess að eiga Hólmaslóð saman
færðu þeir Þórólfur, Sigurjón Rúnar
og Finnur eignarhaldsfélagið
Skarðsá ehf. yfir til Ómars Bene
diktssonar í ársbyrjun 2008. Það fé
lag eignaðist svo tíu prósenta hlut í
Gómi ehf. Skarðsá var stofnað árið
2006 og var til heimilis hjá Sigur
jóni Rúnari Rafnssyni á Sauðár
króki. Þórólfur og Sigurjón Rún
ar voru stjórnarmenn í Gift og kom
Sigurjón Rúnar meðal annars að því
þegar Gift keypti hlutabréf í Kaup
þingi fyrir meira en 20 milljarða í lok
árs 2007.
Þann 11. janúar 2008 var Skarðsá
fært frá Sauðárkróki og yfir á heim
ilisfang Ómars Benediktssonar
í vesturbæ Reykjavíkur. Þá fékk
Ómar einnig prókúru fyrir félagið.
Sá sem tilkynnti um stjórnarskiptin
og breytinguna á prókúrunni fyrir
hönd Skarðsár var Sigrún Helga Jó
hannsdóttir, lögmaður á lögmanns
stofunni Fulltingi, sem í dag heitir
Advel. Þetta kemur fram í tilkynn
ingu frá lögmanninum til fyrir
tækjaskrár sem dagsett er þann 6.
apríl 2008.
Undir fundargerð hluthafa
fundarins þar sem ákveðið var að
skipta um stjórn hjá Skarðsá skrifuðu
Finnur Ingólfsson, Sigurjón Rún
ar Rafnsson og Þórólfur Gíslason,
fyrir hönd fráfarandi stjórnar félags
ins, og Ómar Benediktsson og Guð
rún Marta Þorvaldsdóttir eiginkona
hans. Athygli vekur að þrátt fyrir að
hluthafafundurinn hafi ekki verið
haldinn fyrr en í janúar 2008 þá er
Ómar Benediktsson, ekki fráfarandi
stjórnmenn eða aðilar þeim tengdir,
skráður sem eigandi félagsins í árs
reikningi 2007.
Sagðist hafa keypt félagið af
lögmannsstofu
Þrátt fyrir að nafn Ómars sé í
fundargerð Skarðsár ásamt nöfn
um þremenninganna þá segist
hann ekki kannast við að hafa tek
ið við félaginu frá þeim. Ómar segir
að hann minni að hann hafi keypt
félagið af lögmannsstofu.
Ómar: „Ég man það nú ekki. Ég
held að ég hafi keypt það af ein
hverri lögmannstofu eða eitthvað
slíkt.“
Blaðamaður: „Þú veist hverjir
stýrðu þessu félagi áður en þú
eignaðist það?“
Ómar: „Nei, mér er ekki kunnugt
um það.“
Blaðamaður: „Það voru stjórnend
ur Giftar.“
Ómar: „Það getur ekki verið. Ég er
bara að reyna að rifja þetta upp.“
Í fundargerðinni er hins vegar al
veg skýrt að Ómar sat hluthafafund
Skarðsár með Þórólfi, Finni og Sig
urjóni Rúnari og var félagið fært frá
Sauðárkróki og yfir til hans. Undir
skrift Ómars er í fundagerðinni við
hliðina á undirskrift þeirra. Þá voru
Ómar og Guðrún Marta kjörin í nýja
stjórn félagsins á fundinum.
Finnur Ingólfsson og Gift tengd
ust því fasteignaviðskiptum Góms í
Örfirisey á að minnsta kosti þrenns
konar hátt: Finnur átti hlut í Gómi
í gegnum annað félag; Þórólfur,
Sigurjón Rúnar og Finnur stýrðu
eignarhaldsfélagi sem svo eignaðist
tíu prósenta hlut í Gómi og loks lán
aði Gift 840 milljónir inn í fasteigna
verkefnið. n
18. febrúar 2013 Mánudagur
n Félag sem átti í Gómi var fært til Ómars Benediktssonar árið 2008
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Færðu félag til Ómars Félag sem skráð var til heimilis hjá aðstoðarkaupfélagsstjóra
Kaupfélags Skagfirðinga, Sigurjóni Rúnari Rafnssyni, var fært þaðan og yfir á heimilisfang
Ómars Benediktssonar í ársbyrjun 2008. Sigurjón Rúnar og Þórólfur Gíslason höfðu setið í
stjórn félagsins ásamt Finni Ingólfssyni.
„Það getur
ekki verið
Ekki sammála Fonsi ehf.
telur Kára skulda því á annan
tug milljóna króna.
Framhaldsnám
í Strandabyggð
Ákveðið hefur verið að stofna
námsdeild á framhaldsskólastigi
í Strandabyggð. Nemendur geta
skráð sig í deildina sem tekur til
starfa í haust, að sögn Jóns Gísla
Jónssonar, oddvita sveitarstjórnar.
Kynningarfundur verður haldinn
í Félagsheimilinu á Hólmavík 21.
febrúar þar sem Þorkell Þorsteins
son, aðstoðarskólameistari Fjöl
brautaskóla Norðurlands, fer yfir
starf deildarinnar en um verður að
ræða fjarnámsdeild frá skólanum.
Í samtali við DV segir Jón Gísli
að þetta sé í fyrsta sinn sem nem
endum í sveitarfélaginu standi
nám til boða á framhaldsskóla
stigi. Hingað til hafa nemendur
þurft að sækja framhaldsnám utan
sveitarfélagsins. „Krakkarnir hafa
dreifst víða um land, margir hafa
farið á Akureyri,“ segir hann. Jón
Gísli segir að fámennur árgangur
ljúki grunnskólanámi í vor, aðeins
fimm nemendur, en næsti árgang
ur sé fjölmennur í samanburði; 17
börn. Mikilvægt sé að halda unga
fólkinu í sveitarfélaginu og skólinn
sé mikilvægur í því samhengi.
2.282 fleiri
Íslendingar
Íslendingum fjölgaði um 2.282 frá
1. janúar 2012 til 1. janúar 2013.
Fjölgunin nemur heildaríbúa
fjölda Húsavíkur. Þetta kemur
fram í tölum frá Hagstofunni. Ís
lendingar voru 321.857 í ársbyrjun
en í prósentustigum nemur fjölg
unin 0,7. Athygli vekur að konum
fjölgaði um 1,4 prósent en körlum
aðeins um 0,03 prósent.
Hlutfallslega var fjölgunin mest
á Vestfjörðum; 1,1 prósent. Fólks
fækkun varð á tveimur landssvæð
um; Norðurlandi vestra, þar sem
fækkaði um 28 manns, eða 0,4
prósent, og á Suðurnesjum þar
sem fækkaði um 36, eða 0,2 pró
sent.
Lóan á 10.000
króna seðlinum
Tíu þúsund króna seðill verður
settur í umferð í ár og er hönnun á
honum nú lokið. Þetta kom fram
í fréttum RÚV á sunnudag en þar
kom fram að fyrstu eintök af nýja
seðlinum muni koma til landsins í
vor – líkt og lóan sem muni koma
við sögu á seðlinum. Síðla vors
eða í byrjun sumars verði seðillinn
kominn í notkun.
Seðillinn verður helgaður Jónasi
Hallgrímssyni en það er Kristín
Þorkelsdóttir, myndlistamaður og
grafískur hönnuður, sem hannaði
hann. Hún hefur hannað alla ís
lenska peningaseðla frá árinu 1981.