Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 11
Fréttir 11Mánudagur 18. febrúar 2013 VERÐTRYGGÐAR EIGNIR UM 65% AF EIGNASAFNI n Lífeyrissjóðirnir á Íslandi eiga um 1.500 milljarða króna í verðtryggðum eignum Ý msir hafa talað fyrir því að nauðsynlegt sé að leið- rétta verðtryggð lán þar sem forsendubrestur í kjölfar hrunsins hafi leitt til þess að þau hafi snarhækkað. Margir hafa viljað færa vísitölu til verðtryggingar aftur til 1. janúar 2008. Frá þeim tíma, eða síðustu fimm ár, hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 43 pró- sent. Fimm árin þar á undan hækk- aði hún hins vegar um 25 prósent. Á hinn bóginn hefur líka verið bent á það að vandamálið sé ekki verðtryggingin heldur íslenska krón- an. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og þingmaður flokksins, kom með þá fullyrðingu á Beinni línu DV í síðustu viku að lán fólks hefðu ekki hækkað held- ur launin lækkað. Í þessu samhengi má benda á að árið 2006 voru laun á Íslandi þau þriðju hæstu í Evrópu. Árið 2010 höfðu Íslendingar hins vegar fallið niður í 15. sæti. Ekkert ríki í Evrópu þurfti að taka á sig við- líka kjaraskerðingu. Lækkuðu launin um heil 40 prósent mælt í evrum en fyrir sama tímabil hækkaði vísitala neysluverðs einnig um 40 prósent. Þó að þróun á gengi gjaldmiðla sé ekki eini þátturinn sem hefur áhrif á hækkandi verðbólgu má þó segja að hann sé lykilþáttur. Lækkun íslensku krónunnar leiðir til þess að innfluttar vörur hækka í verði sem hefur mestu áhrifin á vísitölu neysluverðs. Mælt í evrum hafa verðtryggð lán lands- manna ekki hækkað mikið. Verðtryggðar eignir lífeyris- sjóða nærri 1.500 milljarðar Verðtryggingin hefur hins vegar haft þau áhrif að virði á skuldabréf- um í eigu íslenskra lífeyrissjóða hefur ekki minnkað jafn mikið mælt í evrum og annars hefði orðið ef verðtryggingar nyti ekki við. Í sam- tali við DV segir Þórey S. Þórðar- dóttir, framkvæmdastjóri Lands- samtaka lífeyris sjóða, að verðtryggð skuldabréf vegi um 65 prósent af eignum lífeyrissjóðanna. Verðmæti þeirra liggi nærri 1.500 milljörðum króna í dag. Í töflu með frétt má sjá að heildarverðmæti útgefinna verð- tryggðra skuldabréfa á Íslandi liggur nálægt 2.400 milljörðum króna og því eiga lífeyrissjóðirnir um 65 pró- sent af þeim eignum. Í þessu samhengi má nefna að í upphafi árs 2008 áttu lífeyrissjóð- irnir um 50 milljarða króna í ríkis- skuldabréfum og um 200 milljarða króna í HFF-skuldabréfum Íbúða- lánasjóðs. Frá þeim tíma hafa þess- ar eignir hins vegar sexfaldast. Eiga lífeyrissjóðirnir 300 milljarða króna í ríkisskuldabréfum og íbúðabréf upp á um 600 milljarða króna. Um- rædd ríkisskuldabréf eru þó ekki öll verðtryggð. Talið er að lífeyrissjóð- irnir eigi um 70 prósent af öllum útgefnum íbúðabréfum Íbúðalána- sjóðs í dag. Líkt og flestir þekkja hef- ur oft verið nefnt að lífeyrissjóðirn- ir ráði miklu um vaxtakjör í landinu. Þannig núvirða sjóðirnir eignir sín- ar árlega í samræmi við 3,5 pró- senta langtíma raunávöxtunarkröfu. Þannig á Íbúðalánasjóður erfitt með að fara í skuldabréfaútgáfu án þess að taka tillit til þessarar kröfu lífeyris sjóðanna um 3,5 prósenta ár- lega raunávöxtun. „Ef ávöxtunarviðmiðinu væri breytt úr raunávöxtunarkröfu í nafn- ávöxtunarkröfu er eðlilegt að horfa til sögulegrar verðbólgu. Verðbólga hefur verið viðvarandi í íslensku hagkerfi og má sem dæmi nefna að síðustu 20 ár hefur verðlag hækkað að jafnaði um 4,6 prósent á ári. Ef við bætum 3,5 prósent raunávöxtun ofan á þá tölu og 0,5 prósent verð- bólguálagi til viðbótar þyrfti nafn- ávöxtunarkrafan að vera nálægt 9 prósentum,“ segir Þórey aðspurð hvað lífeyrissjóðirnir myndu sætta sig við sem viðmið ef verðtrygging yrði afnumin á Íslandi. Óverðtryggðir vextir mjög háir Einnig má nefna að síðustu 12 árin hafa óverðtryggðir vextir á Íslandi verið nálægt 11 prósentum. Það er margfalt hærra en í flestum öðrum löndum í Evrópu. Á sama tíma hafa verðtryggðir vextir að meðaltali ver- ið í kringum 5,4 prósent og verð- bólga að meðaltali 5,5 prósent. Það þýðir að út frá vaxtaprósentu hefði verið jafn hagstætt að vera með verðtryggð lán á umræddu tímabili líkt og verðtryggð. Það er hins vegar hagstæðara að taka óverðtryggð lán þar sem svokallaðir vaxtavextir leggjast ofan á verðbætur verð- tryggða lánsins sem ekki gerist í til- felli óverðtryggðu lánanna. Hins vegar geta afborganir óverðtryggðra lána hækkað mjög mikið í sam- ræmi við vaxtastig í landinu. Þannig voru óverðtryggðir vextir að meðal- tali um 17 prósent frá 2007 til 2008. Sá sem var með 20 milljóna króna óverðtryggt lán á þeim tíma hefði því þurft að greiða um 280 þúsund krónur á mánuði einungis í vexti fyr- ir utan afborgun höfuðstólsins. Ekki er víst að margir hefðu ráðið við það. Verðbólgan vandamálið Þegar Þórey er spurð hvað henni finnist um háværa umræðu um afnám verðtryggingar um þessar mundir segir hún að það sé henn- ar skoðun að verðtryggingin sé ekki vandamálið heldur viðvar- andi verðbólga á Íslandi. „Verð- bólgan veldur miklum skaða fyrir alla og því er mikilvægasta verkefnið að koma böndum á verðbólguna. Margir halda að verðtryggingin sé tilkomin vegna lífeyrissjóðanna en svo er ekki. Verðtryggingin er tæki sem var innleitt á Íslandi í kjölfar óðaverðbólgu á áttunda áratugn- um til að jafna greiðslubyrði lántak- enda en kostur verðtryggðra lána er að verðbólguskotum er dreift yfir lánstíma lánanna,“ segir Þórey. Það sé reynslan að þegar verð- bólga sé mikil vilji fáir aðilar á fjár- málamarkaði lána fé. „Þeir sem lána fjármuni vilja geta treyst því að þeir fái að minnsta kosti sömu fjármuni endurgreidda. Nú er gerð krafa um að lífeyrissjóðirnir greiði verð- tryggðan lífeyri og því eru skuld- bindingar sjóðanna verðtryggð- ar. Flestir eru þeirrar skoðunar að greiða skuli verðtryggðan lífeyri og má nefna að OECD mælist til þess að lífeyrissjóðir greiði verðtryggðan lífeyri. Það er örðugt fyrir einstak- linga á efri árum að standa frammi fyrir skerðingu á lífeyrisgreiðslum vegna verðbólgu og telja flestir eðli- legt og sanngjarnt að sá sem lagt hefur fyrir fjármuni geti treyst því að fá sömu verðmæti til baka,“ seg- ir hún. Það sé afstaða Landssamtaka líf- eyrissjóðanna að ekki sé hægt að afnema verðtryggingu á þegar gerð- um lánssamningum. Stjórnvöld geti hins vegar bannað verðtryggingu til framtíðar. Áhrifin af slíkri aðgerð yrði ekki mikil á efnahagsreikn- inga lífeyrissjóðanna til skamms tíma. „Hins vegar er líklegt að að ávöxtunar krafa á markaði myndi hækka vegna verðbólguóvissu og lánasamningar myndu styttast. Bú- ast má við því að lengri lán yrðu með breytilegum vöxtum,“ segir Þórey að lokum. n Útgefin verðtryggð skuldabréf á Íslandi Verðtryggðar skuldir Alls Þ.a. heimili Útlán Íbúðalánasjóðs 850 650 Útlán banka 680 400 Útlán lífeyrissjóða 175 175 LÍN 170 Önnur fjármálafyrirtæki 175 175 Landsvirkjun 55 Orkuveita Reykjavíkur 35 Sveitarfélög 100 Ríkissjóður 300 Alls 2.370 1.570 *Allar tölur í milljörðum króna Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Verðbólgan vandamálið Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að það sé sín skoðun að verð- trygging sé ekki vandamálið á Íslandi heldur viðvarandi verðbólga. Verðbólgan vandamálið Þórey S. Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að það sé sín skoðun að verðtrygging sé ekki vandamálið á Íslandi heldur viðvarandi verðbólga. Háar fjár- hæðir í húfi Á laugardaginn greindi Morgunblað- ið frá því að samkvæmt svari frá Mariu Lissowska, sérfræðingi fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins í neytendalöggjöf, væri ólöglegt að veita verðtryggð lán ef ekki væri tekið mið af verðbólgu í árlegri hlutfallstölu kostnaðar sem og heildarlántökukostnaði lánsins. Var um að ræða svar við fyrirspurn frá Mariu Elviru Mendez-Pinedo, prófessor í Evrópurétti við Háskóla Íslands, fyrir hönd Tonio Borg, sem fer með heilbrigðis- og neytendamál í framkvæmdastjórn ESB, en spurningin var jafnframt lögð fyrir Stefan Füle, stækkunarstjóra sambands- ins. Tilefnið var rannsóknir um lögmæti verðtryggingar í ljósi Evrópuréttar sem Mendez-Pinedo hefur stundað undanfarin ár og umsagnir sem hún og fleiri sendu til Alþingis vegna nýs frumvarps til laga um neytendalán. Kom fram í fréttinni að ef í ljós kæmi að verðtryggð lán standist ekki ákvæði Evrópuréttar er snýr að neytendalöggjöf gæti slíkt mögulega kostað allt að 1.000 milljarða króna ef allur kostnaður af ver- tryggðri lántöku félli niður. Jafnframt kom fram að Hagsmunasamtök heimilanna hafa höfðað dómsmál á hendur Íbúða- lánasjóði og gæti þessi niðurstaða kostað sjóðinn hundruð milljarða króna. Á ekki við um fasteignalán Stöð 2 fjallaði einnig um málið á laugardaginn. Í þeirri frétt kom fram að málið snérist um tilskipun 2008/48 um neytendalán. Ísland hafi aðeins að hluta til innleitt þessa tilskipun með íslenskum lögum um neytendalán. Hún gildi aðeins um minni neytendalán sem nema allt að 75 þúsund evrum eða um 13 milljónum íslenskra króna en eigi ekki við um fasteignaveðlán. Ræddi Stöð 2 við Áslaugu Árnadóttur lögmann sem hefur lokið framhaldsnámi í Evrópurétti auk þess að hafa starfaði sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu. Sagði Áslaug að umrædd tilskipun ætti einungis við um minni neytendalán eins og bílalán en ekki fasteignaveðlán. Þá væri umrædd tilskipun frá árinu 2008 og því tæki hún einungis til lánasamninga sem hefðu verið gerðir frá þeim tíma. Tilskipunin ekki enn innleidd Arnar Kristinsson lögmaður benti hins vegar á það í Silfri Egils í gær að tilskipun 2008/48 hefði ekki enn verið innleidd í íslensk lög en lögð hefur verið fram þings- ályktunartillaga um breytingu á lögum um neytendalán. Árið 1994 voru samþykkt lög nr. 121/1994 í kjölfar þess að Ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu sem enn eru í gildi. Þar með voru tilskipanir nr. 87/102 EB og 90/88 EB sem snúa að neyt- endalánum líka innleiddar. Upphaflega voru fasteignalán ekki inni í þeim lögum en með breytingu sem tók gildi árið 2001 voru fasteignalán færð inn í umrædda löggjöf. Því virðist sem ákvæði tilskipunar 2008/48 skipti því ekki enn máli þar sem hún hefur ekki enn verið innleidd. „Margir halda að verðtryggingin sé tilkomin vegna lífeyrissjóðanna en svo er ekki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.