Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 13
Erlent 13Mánudagur 18. febrúar 2013
Barnsmorðingi
myrtur í fangelsi
Subhan Anwar, sem dæmdur
var í lífstíðarfangelsi í Bret-
landi árið 2009 fyrir að pynta og
myrða tveggja ára stjúpdóttur
sína, fannst látinn í klefa sínum
á dögunum. Tveir samfangar
hans eru grunaðir um að hafa
gengið harkalega í skrokk á
honum með þeim afleiðingum
að hann lést. Mál Subhans vakti
mikla athygli þegar það kom
upp. Kærasta hans og móðir
stúlkunnar var talin meðsek og
dæmd í níu ára fangelsi vegna
dauða dóttur hennar. Mál fang-
anna tveggja sem grunaðir eru
um morðið á Subhan er nú í
rannsókn hjá lögreglu, að því er
breska blaðið Mirror greinir frá.
Brúðkaup
í IKEA
Ástralskt par lét draum sinn rætast
á sjálfan Valentínusardaginn, 14.
febrúar, og gekk í það heilaga fyrir
utan verslun IKEA. Chad Martin
og Lynne Klanbida eru miklir að-
dáendur verslunarkeðjunnar og
buðu meðal annars upp á kjötboll-
ur úr IKEA í brúðkaupsveislunni.
Þá borðuðu gestir veislumatinn af
diskum úr IKEA. „Við vildum gift-
ast í búðinni af einfaldri ástæðu –
við elskum IKEA. Við vildum líka
sýna fram á að það er hægt að eiga
rómantíska stund alls staðar,“ segir
Lynne í samtali við ástralska fjöl-
miðla. Ástæðan fyrir þessu óvenju-
lega brúðkaupi er þó einnig sú að
parið tók þátt í keppni þar sem
í boði var brúðkaup í IKEA. Þau
báru sigur úr býtum og þurftu ekki
að greiða krónu fyrir brúðkaupið.
Yfir 500 pör tóku þátt og því duttu
þau Chad og Lynne heldur betur í
lukkupottinn.
M
innkandi kirkjusókn
og bágur fjárhagur eru
sagðar helstu ástæður
þess að sífellt fleiri kirkjur
– kaþólikka jafnt sem mót-
mælenda – í Þýskalandi, eru seldar
til einkaaðila. Kirkjurnar eru sumar
hverjar jafnaðar við jörðu til þess að
skapa rými fyrir nýjar byggingar eða
þeim breytt í veitingastaði og klifur-
hús eins og dæmi er um. Blaðamað-
urinn Matthias Schulz fjallar um
málið í úttekt á vefútgáfu Spiegel.
„Mjög sárt“
Hópurinn sem hafði það verkefni að
rífa hina helgu „kirkju fjölskyldunn-
ar“ í bænum Barmstedt í norður-
hluta Þýskalands mætti árla dags
til þess að fjarlægja skírnarfontinn.
Þegar því var lokið var jarðýta notuð
til þess að rífa niður veggi kirkjunn-
ar sem og kirkjuturninn. Á einungis
nokkrum klukkustundum breyttist
þetta guðshús í rústir einar.
„Mjög sárt,“ sagði presturinn Stef-
an Langer í kjölfar niðurrifs kirkjunn-
ar. Í fjölda ára sá hann um að skíra og
gifta á þessum stað sem er nú algjör-
lega auður. Í dag stendur til að byggja
á landinu sem er nú auglýst „á besta
stað“ og er til sölu fyrir 310 þúsund
evrur — litlar 53 milljónir króna.
Einungis upphafið
„Á árunum 1990 til 2010 lokuðum
við 340 kirkjum en 46 þeirra voru
jafnaðar við jörðu,“ sagði Thomas
Begrich, yfirmaður fjármála
evangel ísku kirkjunnar í Þýska-
landi, stærstu samtaka mótmæl-
enda í Þýskalandi. Þetta er einungis
upphafið, að hans sögn. „Við gæt-
um þurft að losa okkur við þúsund
byggingar í viðbót.“
Kirkjur eru nú rifnar um allt
Þýskaland í síauknum mæli. Í um-
fjöllun Spiegel er bent á að árið 1950
hafi 430 þúsund mótmælendur búið
í Frankfurt am Main. Í dag sé sú tala
komin niður í 110 þúsund. Þetta hef-
ur valdið því að þurft hefur að loka
fjórðu hverju kirkju á svæðinu.
Kirkja múslima
Á sama tíma er kirkja sem áður var í
eigu mótmælenda í Hamburg í fyrsta
sinn komin í hendur múslima. Kirkj-
an sem er í Horn-hverfinu var seld
til athafnamanns árið 2005 sem síð-
ar seldi trúfélagi múslima eignina
en þar er nú starfrækt íslömsk trúar-
miðstöð.
Sömu sögu má segja um
kaþólskar kirkjur, skrifar Matthias
Schulz í Spiegel. Kaþólskar kirkj-
ur standa meira að segja auðar í
Bæjaralandi, helsta vígi kaþólikka í
Þýskalandi, og þá hefur þurft að loka
kirkju í Telgte, sem er heilagur staður
kaþólskra pílagríma nálægt borginni
Münster.
Sorgleg stund
Fjölmargar kirkjubyggingar í Þýska-
landi hafa þegar verið notaðar í allt
öðrum tilgangi en þeim var upphaf-
lega ætlað. Í sumum þeirra sækja
listnemar fyrirlestra á meðan öðrum
hefur hreinlega verið breytt í geymslu-
pláss fyrir fyrirtæki. St. Maximin-
klaustrinu í Trier hefur verið breytt
í leikfimisal fyrir grunnskólanema. Í
kirkju hins helga hjarta í Katleburg fer
stíf danskennsla nú fram.
Þegar prestur hefur lýst því yfir að
brátt verði dagar kirkju hans taldir,
síðasta kvöldmáltíðin sé framundan,
veldur það mörgum sóknarbörn-
um hugarangri, segir í umfjöllun
Spiegel. Fólk er sagt safnast saman á
kirkjubekkjum, fullt sorgar, þar sem
það grætur í sameiningu. Presturinn
Michael Kemper sem þurfti að loka
sinni kirkju segist ennþá vera í sár-
um. „Lokanir þessara kirkna valda
mér ógleði,“ sagði hann.
Kristniboð á undanhaldi
Þessi þróun ætti þó ekki að koma
neinum á óvart, skrifar Matthias
Schulz í Spiegel. Í yfir tvö þúsund
ár hefur kristindómurinn hvílt á
öxlum kristniboða, en það eru fáir
sem kæra sig um að heyra boðskap
þeirra í dag.
„Einungis þrettán prósent barna
sem fæðast í dag verða skírð inn í
kirkju mótmælenda,“ sagði Thomas
Höflich, umsjónarmaður kirkju í
Hanover, í samtali við Spiegel, þegar
hann útskýrði frekari niðurskurðar-
áform kirkjunnar.
Þrátt fyrir að fjölmargir vilji
vernda kirkjubyggingar vegna
sögulegs gildis þeirra eru þær ein-
faldlega of margar til þess að hægt
sé að halda þeim öllum við. Í aust-
urhluta landsins eru tvö hundruð
kirkjur bókstaflega að grotna niður
vegna lélegs viðhalds. Í borginni
Wiesbaden hefur kirkja sem skráð
var á sérstakan lista yfir sögu-
leg verðmæti meira að segja verið
rifin.
Kirkja á eBay
Þessari þróun fylgja spaugilegar
hliðar. Í tilraun til þess að koma
einhverjum af þeim verðmætum
sem finna má í kirkjum sem eru
við það að glatast, í verð, hefur það
færst í vöxt að altaristöflur og ann-
að lauslegt sé sett á sölu á vefsíðum
eins og eBay og Amazon.
Þá hafa heilu kirkjurnar ver-
ið settar á sölu á slíkum síðum.
En „kirkja á vinsælu íbúasvæði“ í
borginni Brandenburg er einmitt
auglýst til sölu á eBay. Þrátt fyrir
þetta reynist erfitt að selja margar
kirkjurnar. Ástæðan er meðal annars
sú að fólk á erfitt með að finna not
fyrir byggingarnar en gólfin í þeim
eru oftar en ekki köld og það er hátt
til lofts.
Kirkjusteikhús
Þrátt fyrir að eigendur kirknanna
vildu helst óska þess að nýjir eigend-
ur gerðu eitthvað kristilegt við þær er
það sjaldnast raunin. Þannig er ein
jarðarfararkapella í Berlín nú bíó-
hús og hraðbanka hefur verið kom-
ið fyrir í kirkjugarði við kirkju í bæn-
um Milow.
St. Martin-kirkjunni í Bielefeld
hefur síðan verið breytt í veitinga-
stað en þar gæða gestirnir sér á
lungamjúkri nautasteik á meðan
þeir hlýða á píanótónana í bak-
grunni. n
KirKjurnar
hverfa
Frýs í himnaríki Það getur verið
kalt uppi á Wendelstein-fjalli en þar
má finna kirkju sem er 1.838 metrum
yfir sjávarmáli, hæst allra guðshúsa í
landinu.
Breytt í íþróttasal St. Maxinum kirkjan í Trier hýsir nú íþróttasal. Húsið er einnig
notað undir tónleika.
n Kirkjur enda í einkaeign n Fjárskorti og dræmri kirkjusókn kennt um
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Lokanir
þessara
kirkna valda
mér ógleði
„Við gætum
þurft að losa
okkur við þúsund
byggingar í viðbót
Drakk eigið
þvag til að lifa
Breskur bakpokaferðalangur
komst í hann krappan á dögun-
um þegar hann villtist í óbyggðum
Ástralíu. Mað-
urinn, Sam
Woodhead
sem er 18 ára,
hélt síðast-
liðinn þriðju-
dag út að
skokka en
hann hafði
dvalið um
nokkurra daga skeið á kúabúi í
Queensland. Woodhead skilaði
sér hins vegar ekki til baka og eftir
nokkrar klukkustundir var farið að
leita að honum. Það var hins vegar
ekki fyrr en á föstudag að flug-
menn björgunarþyrlu komu auga
á hann. Þá var Woodhead orðinn
illa haldinn vegna næringar- og
vökvaskorts en afar þurrt hefur
verið á svæðinu undanfarnar vik-
ur. Hann missti 12 kíló á þessum
þremur dögum og sagði í samtali
við fjölmiðla að hann hefði drukk-
ið linsuvökva sem hann var með
á sér og eigið þvag sem líklega
bjargaði lífi hans.