Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 14
Sandkorn É g lít aldrei um öxl, ég horfi aldrei til fortíðar. […] Gert er gert og það er ekki hægt að breyta því,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, þing- kona Framsóknarflokksins, í viðtali við DV á dögunum. Inntak við- talsins var að óska eftir sýn Vigdísar á nærfortíð Framsóknarflokksins og hvort hún teldi að flokkurinn hefði gert nægjanlega upp við spillingar- sögu flokksins á fyrsta áratug 21. ald- ar þegar stjórnendur flokksins, meðal annars Halldór Ásgrímsson, komu að því einkavæða að minnsta kosti þrjú fyrirtæki í ríkiseign upp í hendurnar á vildarvinum sínum, til dæmis eigend- um Skinneyjar-Þinganess, Finni Ing- ólfssyni og Þórólfi Gíslasyni. Vigdís var hins vegar ekki á því að fjölyrða neitt um þessa fortíð Fram- sóknarflokksins og hvort gera þyrfti betur upp við hana. Hennar fortíðar- sýn er á þá leið að Framsóknarflokk- urinn sem stýrði þessari einkavæðingu hafi ekki verið Framsóknarflokkurinn sem hún er í í dag og þar af leiðandi sé ósanngjarnt að spyrða þá saman. „Framsóknarflokkurinn er bara þeir þingmenn sem eru í flokknum hverju sinni. Framsóknarflokkurinn 2013 er allt annar Framsóknarflokkur en Framsóknarflokkurinn 1980. Það er fólkið sem í flokknum er á hverjum tíma sem skapar stjórnmálaflokkinn,“ sagði Vigdís. Með þessum orðum vill hún væntanlega að fólk hætti að bendla Framsóknarflokkinn henn- ar við þessa spillingarsögu flokksins og horfi þess í stað fram á veginn. „Ég held að við ættum að fara að tala um það sem er gerast í nútíðinni en ekki í fortíðinni, þeirri gömlu, gömlu.“ Á sama tíma var Vigdís mjög ánægð og stolt af því að Framsóknar- flokkurinn ætti sér nærri hundrað ára sögu; hún var væntanlega stolt af því vegna þess að það er jákvætt að eiga sér langa sögu en neikvætt að eiga sér spillingarsögu. Fortíðarsýn framsóknarmannsins er því valkvæð í meira lagi. Þessi sýn þingmannsins á nærsögu síns eigin stjórnmálaflokks ber þess merki að hún hafi ekki mikinn áhuga á henni og vilji helst af öllu að hún liggi í þagnargildi. Að mati margra er saga hlutanna mikilvæg – saga heims- ins, þjóða, stjórnmálaflokka, samtaka og einstaklinga – því hún segir yfir- leitt eitthvað um af hverju þessir hlut- ir eru eins og þeir eru; saga hlutanna hjálpar til við að skilja samfélagið og okkur sjálf. En Vigdís virðist ekki vera sammála þessu. Að hennar mati er saga Framsóknarflokksins ekki saga Framsóknarflokksins sem hún er í heldur einhvers annars flokks – Hall- dór Ásgrímsson var líklega ekki for- maður flokksins og Finnur Ingólfsson ekki ráðherra hans. Ekki það að Vigdís hafi sett sig inn í þessa sögu og geti þar af leiðandi tekið afstöðu til þess hvort Framsóknarflokkurinn þurfi að gera upp við spillingarsögu sína. „Ég get bara ekkert sett mig inn í það, ég er ekki rannsóknaraðili.“ Þessi fortíðarsýn Vigdísar er dæmi- gerð fyrir einstaklinga, samtök, flokka eða þjóðir sem vilja gleyma nær fortíð sinni af því það þjónar hagsmunum þeirra. Um slíka fortíðarsýn sagði breski sagnfræðingurinn Tony Judt einu sinni að hún gengi út á að líta á fortíð eigin lands sem fortíð „annars lands“. Judt sagði eitt sinn að íbúar Evrópu hefðu gripið til þess í kjölfar heimsstyrjaldarinnar síðari árið 1945 að reyna að breiða yfir eigin fortíð með því að líta öðrum augum á söguna en staðreyndirnar gáfu tilefni til. Þessi fortíðarsýn var liður í þeirri uppbyggingu sem lönd Evrópu gengu í gegnum með stofnun Evrópusam- bandsins: Horfa átti á það sem sam- einaði en ekki það sem sundraði. „Í ljósi þessarar nýfundnu Evrópuhyggju greip um sig allsherjar minnisleysi meðal íbúa Vestur-Evrópu sem hafði læknandi áhrif. Skilningur þeirra á fortíð þeirra hluta álfunnar var byggð- ur á nokkrum goðsögnum. Þess- ar goðsagnir voru andstæðar þeim sögulegu staðreyndum um heims- styrjöldina sem lágu fyrir.“ Þetta minnisleysi sem Judt ræðir um átti sér praktískar rætur; nærsaga Evrópu var einfaldlega of óþægileg til að hægt væri að horfast í augu við hana til fulls og endurreisa álfuna eftir ófriðinn á grundvelli Evrópu- sambandsins. Fortíðarsýn Vigdísar Hauksdóttur um Framsóknarflokk- inn er líka praktísk í eðli sínu og er ætlað að græða spillingarsár flokksins. En öfugt við það sem Judt lýsir hér að framan þá snýst fortíðarsýn Vigdísar bara um hagsmuni Framsóknar- flokksins en ekki hagsmuni annarra. Þótt þetta minnisleysi Vigdísar sé hag- nýtt fyrir flokk hennar þá er ekki þar með sagt að það sé skynsamlegt eða gáfulegt. Þvert á móti hlýtur það að teljast heimskulegt, jafnvel dólgslegt, að afneita staðreyndum um eigin sögu. Borgarstjóri hundeltur n Nú er af sem áður var þegar Ólafur F. Magnússon var borgarstjóri og fór með öll völd í Reykjavík í umboði Sjálfstæðisflokksins. Fyrir dyrum stendur að elta hann uppi vegna rúmlega þriggja milljóna króna styrks sem hann fékk í nafni Frjálslynda flokksins eftir brotthvarf það- an. Frjálslyndir fengu einnig sömu upphæð. Nú er borg- arlögmaður búinn að reisa endurgreiðslukröfu á gamla borgarstjórann sem skal borga. Skuggi Vafnings n Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, á erfitt uppdráttar í skugga Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem vann stórsigur í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Skýrar vísbendingar eru uppi um að sjálfstæðismenn vilji að Hanna Birna taki við en hún stendur við þá ákvörðun að fara ekki aftur gegn Bjarna. Bjarni mætti í Bítið á Bylgj- unni og sat þar fyrir svörum hlustenda. Áberandi voru spurningar til hans um Vafn- ing og N1 sem var í rúst eftir að hann fór. Könnun á DV.is sýndi að 86 prósent svarenda vildu að hann hætti sem for- maður. Ritsóði og blábjáni n Mikil aðsókn varð að Beinni línu DV þar sem Davíð Þorláksson, formaður SUS, sat fyrir svörum. Aðspurður um gjaldþrot Seðlabank- ans í tíð Davíðs Odds- sonar svar- aði Davíð: „Seðlabankinn fór ekki á hausinn, enda geta seðlabankar ekki farið á hausinn því þeir prenta bara meiri peninga.“ Þetta fór mjög fyrir brjóst Björns Vals Gíslasonar, alþingismanns VG, sem bloggaði um málið og líkti gamla Davíð við rit- sóða en unga Davíð við blá- bjána. Steingrímur út? n Mikill vandræðagangur er innan Vinstri-grænna vegna þess að Björn Val- ur Gíslason er í kuldanum eftir að hafa fallið í forvali. Áhrifamenn í flokknum telja nauðsynlegt að þessi orðhvassi baráttujaxl eigi von um að ná inn á þing. En til þess þarf að hrófla við öðrum. Hugmyndir eru uppi um að Steingrímur J. Sigfússon hætti alveg í lok kjörtímabilsins og Björn Val- ur verði efsti maður í Norð- austurkjördæmi. Þarna var Shakira til dæmis uppgötvuð Ég lifði í róman- tísku æði Hera er komin í úrslit í söngvakeppni í Chile. – DV Viðar Eggertsson hélt að hann væri ljóð í æsku. – DV Fortíðarsýn framsóknarmanns K ona bankar upp á hjá vinkonu sinni snemma morguns. Hún er útgrátin og með rautt far í andliti. Áverkar eru víða og hluti af fallega hárinu hefur verið rifinn úr með rótum. Móðir legg- ur barn varlega frá sér í rúmið og geng- ur með kvíðahnút út úr herberginu. Maðurinn fylgir henni eftir. Hún von- ar með sjálfri sér að höggið komi ekki fyrr en hún er komin út úr herberginu. Önnur kona útskýrir að rifrildin og slagsmálin séu nú ekki bara honum að kenna. Hún eigi nú sinn hlut í þessu. Af einhverri ástæðu er það samt alltaf hún sem fær marblettina og glóðar- augað. Kannski vegna 30 sentimetra hæðarmunar, líkt og einn ættinginn bendir henni þurrlega á. Allt eru þetta sannar sögur. Þúsundir kvenna beittar ofbeldi Heimilisofbeldi er íslenskur veruleiki þar sem einn fjölskyldumeðlimur kúgar annan í skjóli friðhelgi heimil- isins og tilfinningalegrar, félagslegrar og fjárhagslegrar bindingar. Í rann- sókn Elísabetar Karlsdóttur og Ásdísar A. Arnalds frá 2008 um reynslu kvenna á aldrinum 18–80 ára af ofbeldi kom í ljós að á 12 mánaða tímabili hafði um 1 prósent kvenna orðið fyrir líkamlegu ofbeldi. Sama hlutfall hafði orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Frá 16 ára aldri höfðu um 20 prósent kvenna orðið fyr- ir líkamlegu ofbeldi. Algengast var að ofbeldismaðurinn væri eiginmaður, sambýlismaður eða kærasti, núver- andi eða fyrrverandi, og að ofbeldið ætti sér stað innan veggja heimilis- ins. Þrátt fyrir þetta er ofbeldi í nánum samböndum mjög falið. Aðeins 22 prósent kvennanna leituðu til samtaka eða stofnana sem aðstoða konur og 13 prósent tilkynntu síðasta ofbeldisatvik til lögreglu, jafnvel í þeim tilvikum sem konan hlaut líkamlegt mein eða þurfti á læknishjálp að halda. Í 24 prósentum tilvika urðu börn vitni að ofbeldinu. Af hverju beita menn ofbeldi? Rannsóknir hafa talað um tvenns kon- ar tegundir af heimilisofbeldi, annars vegar ógnarstjórn og hins vegar maka- deilur. Ógnarstjórnin felur í sér gaml- ar hugmyndir um eignarrétt, þar sem karlinn á konuna og henni ber að hlýða vilja hans. Þar er alvarleiki of- beldisins yfirleitt meiri og tilhneiging til að það aukist og verði alvarlegra eftir því sem á líður. Með makadeilum er átt við þegar deilur pars fara úr böndunum. Þá getur hvort kynið sem er gripið til ofbeldis til að koma fram vilja sínum, án þess að um frekari átök um völd sé að ræða. Ofbeldið er ekki jafn alvarlegt, lítil sem engin tilhneig- ing til aukningar og ofbeldið er ekki einhliða kúgunartæki. Heimilisofbeldi er alvarlegt þjóð- félagsmein. Enginn á að þurfa að þola ofbeldi. Það skaðar þann sem fyrir verður, en eitrar líka út frá sér til mun stærri hóps, samfélagsins alls. Það já- kvæða er að við sem einstaklingar og samfélag getum dregið verulega úr þeim skaða sem einstaklingar sem beittir hafa verið ofbeldi verða fyrir. Árið 2006 samþykkti ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, að tillögu þáverandi félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra, aðgerðaáætl- un vegna ofbeldis karla gegn konum í nánum samböndum sem náði til ár- anna 2006–2011. Að verkefninu komu auk þess heilbrigðisráðuneytið og menntamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Áfram er unnið að verkefninu með sérstakri nefnd um aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn kyn- bundnu ofbeldi árin 2011–2015. Aðgerðaáætlunin hjálpaði til við að koma þessu samfélagsmeini meira upp á yfirborðið og leiddi einnig í ljós að margt er ógert. Kvennaathvarfið hefur staðið sig frábærlega í að styðja við konur í ofbeldissamböndum og börn þeirra. Það endurspeglast í að Kvennaathvarfið er talið mikilvægasti samstarfsaðilinn í málum sem tengj- ast ofbeldi á heimilum. En betur má ef duga skal. Ekki er hægt að vísa ábyrgðinni á þessum vanda yfir á frjáls félagasamtök. Mikilvægt er að fleiri aðilar, svo sem félagsþjónusta og barnavernd, líti á þennan málaflokk sem „sinn“ og taki ábyrgð á honum. Ríkið og sveitarfélög þurfa að gera sitt. Skrá þarf betur tilvik heimilisofbeldis og fylgjast sérstaklega með aðstæðum og fjölda kvenna í viðkvæmum hóp- um. Einnig þarf að bæta samræmdar verklagsreglur vegna heimilisofbeldis og samskipti lögreglu, félagsþjónustu og skóla í málum sem tengjast heim- ilisofbeldi. Við framsóknarmenn munum aldrei sætta okkur við heimilisofbeldi. Tryggja þarf að baráttan gegn því sé hluti af heildstæðri fjölskyldustefnu stjórnvalda. Saman verðum við að taka á þess- um vanda. Heimilisofbeldi – íslenskur veruleiki Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 18. febrúar 2013 Mánudagur „Framsóknar­ flokkurinn er bara þeir þingmenn sem eru í flokknum hverju sinni. Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Kjallari Eygló Harðardóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.