Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 15
Ég læt súrmatinn
samt vera
Staðan er enn
sú sama
Greta Mjöll Samúelsdóttir gerir heimildamynd um þorrann. – DVPáll Bergþórsson og eiginkona hans eru enn aðskilin. – DV
Orkufyrirtæki í almannaþágu
Spurningin
„Já, ég fór á Sónar. Ég stoppaði
mjög stutt á báðum kvöldum en
mér leist bara vel á þetta. Góð
stemning, fullt af fólki, þetta var
bara mjög vel heppnað.“
Anna Andersen
26 ára ritstjóri The Reykjavik Grapevine
„Nei, en ég hafði mjög mikinn
áhuga á því, mjög flott bönd að
spila í ár og ég kann að meta
framtakið.“
Óttar Símonarson
19 ára nemi
„Já. Mér fannst Squarepusher
standa upp úr.“
Ósk Gunnarsdóttir
26 ára þúsundþjalasmiður
„Já. Ég hafði mest gaman af
James Blake.“
Dóra Júlía Agnarsdóttir
20 ára danskennari í World Class
„Nei, ég fór ekki. Móðir mín stal
miðanum mínum.“
Kolbeinn Hamíðsson
18 ára þjónn á Prikinu
Fórst þú á Sónar-
tónlistarhátíðina?
1 „Ég finn sársaukann hans og angist alla leið hingað“
Fjölskylda Ebbu Guðnýjar í sárum
vegna Oscars Pistorius.
2 Hundrað prósent árangur Gunnars Nelson Gunnar hafði
betur gegn Brasilíumanninum Jorge
Santiago í UFC á laugardagskvöld.
3 Sjónvarpskveðja Reeva Steenkamp Raunveruleikaþáttur
með kærustu Oscars Pistorius sýndur
skömmu eftir dauða hennar.
4 Horfa á hana með fyrirlitn-ingu Ljósmyndarinn Haley Morris-
Cafiero sem glímir við offitu stóð fyrir
athyglisverðri tilraun á dögunum.
5 Blóðug krikketkylfa fannst á heimili Oscars Pistorius
Rannsókn á máli Oscars Pistorius sem
skaut kærustu sína til bana er í fullum
gangi.
6 Leikjum streymt í rauntíma á netinu Sony kynnir til sögunnar
Playstation 4-leikjatölvuna á
miðvikudag.
7 Haraldur hagnast við strendur Afríku Einn af fyrrverandi eigendum
Sjólaskipa græddi 34 milljónir króna
árið 2011.
Mest lesið á DV.is
Í
slendingar vilja að orkufyrir
tæki séu í eigu almennings og
starfi í almannaþágu. Áttatíu og
fimm prósent Íslendinga vilja
ekki einkavæða Landsvirkjun
samkvæmt niðurstöðum könnunar
MMR á dögunum. Niðurstaðan
kemur ekki á óvart og spyrja má
hvers vegna sé sérstaklega verið að
kanna afstöðu almennings í þessu
máli nú í aðdraganda alþingiskosn
inga – eru ekki allir stjórnmálaflokk
ar þessarar skoðunar?
Svarið við því er þó ekki einfalt
en fyrst er kannski rétt að spyrja:
Hvers vegna vilja áttatíu og fimm
prósent Íslendinga að Landsvirkjun
verði áfram í almannaeigu? Í mínum
huga er svarið augljóst. Þannig get
um við tryggt skynsamlega nýtingu
náttúruauðlinda og tryggt að sá auð
ur sem verður til af nýtingu þeirra sé
nýttur í almannaþágu. Það er lykil
atriði í huga okkar vinstrigrænna
að tryggja að auður samfélagsins
sé nýttur í almannaþágu. Í þeim til
gangi höfum við barist fyrir opin
beru eignarhaldi á orkufyrirtækjum.
Ég segi barist, því á vettvangi stjórn
málanna hefur það ekki þótt alveg
sjálfsagt. Í þessari baráttu höfum
við stundum haft sigur og stundum
beðið lægri hlut.
Því miður tókst ekki að koma í
veg fyrir einkavæðingu á HS Orku
árið 2007. Það hefur síðan leitt
til þess að fyrirtækið er að mest
um hluta í erlendri eigu. Sjálf
stæðisflokkurinn, með aðkomu
Framsóknarflokksins, tók þessar
ákvarðanir bæði á vettvangi ríkis
stjórnar og sveitarstjórna Reykja
víkur og Reykjanesbæjar. Fulltrú
um Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs tókst hins vegar að stöðva
og vinda ofan af einkavæðingar
áformum sömu flokka á Orkuveitu
Reykjavíkur haustið 2007.
Baráttunni er þó hvergi nærri
lokið. Formaður Sjálfstæðisflokks
ins lýsti því nýlega yfir að hann vildi
hefja einkavæðingu Landsvirkjunar
í samræmi við ályktanir sem lands
fundur flokksins hefur samþykkt.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
hefur hins vegar ávallt talað fyrir op
inberu eignarhaldi á orkufyrirtækj
um og barist gegn slíkri einkavæð
ingu. Ef sú barátta á að skila sigrum
þurfum við liðstyrk kjósenda.
Það er vitaskuld ekki nóg að
orkufyrirtækin séu í opinberri eigu.
Þeim þarf einnig að stýra með skyn
samlegum hætti. Helstu rök þeirra
sem vilja einkavæða orkufyrirtæki í
opin berri eigu eru þau að þannig sé
dregið úr áhættu almennings vegna
reksturs þeirra auk þess sem nýta
megi söluandvirðið til að greiða nið
ur skuldir ríkissjóðs. Þessi rök eiga
við ef við gefum okkur að orkufyrir
tæki séu ekki rekin af skynsemi og í
þágu almennings og því miður hefur
opinberum orkufyrirtækjum stund
um verið stýrt óskynsamlega og ekki
í þágu almennings. Farið hefur verið
í gríðarmiklar framkvæmdir til að
framleiða orku fyrir stóriðju á út
söluverði. Þær hafa verið fjármagn
aðar með lánsfé sem ríkið hefur
ábyrgst. Orkufyrirtækjunum hefur
því verið stjórnað á áhættusaman
hátt fyrir almenning, bæði út frá
efnahagslegum og umhverfislegum
sjónarmiðum.
Frá því að vinstrigræn tóku sæti
í ríkisstjórn hefur hins vegar orðið
stefnubreyting hjá Landsvirkjun. Nú
er megináherslan hjá Landsvirkjun
lögð á að skapa arð fyrir eigendur
sína – að fyrirtækið sé rekið í þágu
almennings. Hefur forstjóri fyrirtæk
isins lýst því yfir að eftir um það bil
áratug geti fyrirtækið átt allar virkj
anir sínar skuldlausar og þá geti það
að óbreyttu greitt 25 milljarða króna
í arð á ári í sameiginlega sjóði al
mennings. Það er því ljóst að með
þeirri stefnu sem nú er rekin hjá
Landsvirkjun eiga rök þeirra sem
vilja einkavæða ekki við.
Sú stefnubreyting sem orðið hef
ur hjá Landsvirkjun eftir að vinstri
græn komu að landsstjórninni sýnir
að hægt er að reka orkufyrirtæki í
almannaþágu og það er farsælt og
skynsamlegt. Verði þeirri stefnu fylgt
til til frambúðar bæði hjá Lands
virkjun og öðrum opinberum orku
fyrirtækjum mun það stuðla að auk
inni velsæld og jöfnuði í íslensku
samfélagi í þágu almennings. Við
vinstrigræn munum gera allt sem
í okkar valdi stendur til að sú verði
raunin í framtíðinni.
Höfundur er mennta- og menningar-
málaráðherra og varaformaður
Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs
Tónlist og dans Það var mikið um að vera í tónlistarhúsinu Hörpu um helgina en þar fór fram tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík. Fyrir helgina komu einnig saman hátt í tvö
þúsund manns í tónlistarhúsinu og dönsuðu gegn kynbundnu ofbeldi á vegum UN Women. sigTryggur ariMyndin
Umræða 15Mánudagur 18. febrúar 2013
Maður var litinn
hornauga
Ásmundur Friðriksson varð fyrir áfalli þegar hann missti fyrirtæki sitt. – DV
„Því miður
tókst ekki
að koma í veg fyr-
ir einkavæðingu á
HS Orku árið 2007
Kjallari
Katrín
Jakobsdóttir